Morgunblaðið - 13.06.2022, Blaðsíða 25

Morgunblaðið - 13.06.2022, Blaðsíða 25
eftir skapinu hvort ég er í ljóðinu, málverkinu eða laginu, en er oft í þessu öllu sama daginn og reyni að sinna þessu jafnt. Það sem þó á hug minn í dag er hljómsveitin Bergris- arnir en við erum búnir að gefa út fjögur lög á þessu ári og erum að huga að plötu.“ Hljómsveitin heldur afmælistónleika í Háskólabíói 18. júní og mun síðan halda tónleika víða um land í kjölfarið. Bjartmar sat í stjórn Félags tón- skálda og textahöfunda. Hann hlaut menningarverðlaun DV árið 2010 undir liðnum val lesenda, Íslensku tónlistarverðlaunin sem textahöf- undur ársins 2011 og Fréttapýra- mídann 2016 fyrir framlag til menn- ingarmála sem tónlistarmaður, myndlistarmaður og rithöfundur. Bjartmar gaf út bók árið 2016 Þannig týnist tíminn sem er skáld- ævisaga ásamt myndlist og ljóðlist höfundar. Helstu áhugamál Bjartmars eru tónlist, ljóðlist og myndlist. „Ég gerði áhugamálin að atvinnu minni.“ Fjölskylda Eiginkona Bjartmars er María Helena Haraldsdóttir, f. 1.8. 1960, forstöðumaður. Þau eru búsett á Bauganesi í Skerjafirði. Foreldrar Maríu: Harald Albertsson, f. 13.1. 1942, d. 18.8. 1997, skósmiður í Reykjavík, og Erla J. Marinósdóttir, f. 30.3. 1943, fyrrverandi bankamað- ur, búsett í Reykjavík. Þau voru hjón en skildu árið 1977. Börn Bjartmars eru 1) Arna Bjartmarsdóttir, f. 21.12. 1974, BA í spænsku með sjávarútvegsfræði sem hliðargrein og vinnur hjá Sam- skipum, búsett í Hollandi; 2) Elma Björk Bjartmarsdóttir, f. 12.12. 1978, viðskipta- og markaðsfræðingur, bú- sett í Reykjavík. Maki: Orri Péturs- son sjómaður; 3) Berglind Bjart- marsdóttir, f. 18.9. 1985, nemi í innanhússarkitektúr, búsett í Óðins- véum í Danmörku. Maki: Magnús Ómarsson hljóðmaður. Barnabörn Bjartmars eru orðin 8. Systur Bjartmars: Sigurlaug Ágústa Guðlaugsdóttir, f. 22.9. 1945, d. 17.6. 2019, og Ingeborg Guðlaugs- dóttir, f. 4.8. 1947. búsett í Reykjavík. Foreldrar Bjartmars voru hjónin Guðlaugur Ágústsson, f. 2.4. 1919, d. 27.7. 2004, vélstjóri, og Svanhild Jen- sen Ágústsson, f. 22.6. 1926, d. 21.7. 2001, húsmóðir. Þau voru gift í 60 ár og bjuggu á Fáskrúðsfirði, í Vest- mannaeyjum, Keflavík og Reykjavík. Bjartmar Anton Guðlaugsson Petrína Símonsen húsmóðir á Sandi Gunnar Jensen sjómaður á Sandi í Færeyjum Svanhild Jensen Ágústsson, húsmóðir á Fáskrúðsfirði, í Vestmannaeyjum, Keflavík og Reykjavík Guðný Benediktsdóttir húsfreyja í Gamla-Garði Einar Pálsson bóndi í Gamla-Garði í Suðursveit Sigurlaug Stefanía Einarsdóttir húsmóðir á Fáskrúðsfirði Ágúst Pálsson verkamaður á Fáskrúðsfirði Guðlaug Magnúsdóttir húsfreyja á Þiljuvöllum Páll Þorvarðarson bóndi á Þiljuvöllum á Berufjarðarströnd Ætt Bjartmars Guðlaugssonar Guðlaugur Ágústsson vélstjóri á Fáskrúðsfirði, í Vestmannaeyjum, Keflavík og Reykjavík DÆGRADVÖL 25 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 13. JÚNÍ 2022 ÁR 1921-2021 Í Y KKA R ÞJÓNUSTU 10% afsláttur fyrir 67 ára og eldri „VILTU HÆTTA AÐ FLAKKA Á MILLI STÖÐVA EITT ANDARTAK OG GIFTAST MÉR?“ „KAFFI FYRIR MIG OG STEIKARSAMLOKU FYRIR HANN… BORGAÐ SITT Í HVORU LAGI.“ Ferdinand Hrólfur hræðilegi Grettir ... að njóta stundanna saman. Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim UngerHermann KETTIR ERU KONUNGAR FRUMSKÓGARINS! OG VEL SLEGINNA BAKGARÐA VILTU FARA Á EINHVERN ÞÆGILEGRI STAÐ? JÁ! HÚN FÓR HEIM. Ármann Þorgrímsson yrkir á Boðnarmiði og kallar „Svart- sýniskast …“: Ævilínan illa teygð ellimörk þið sjáið að mér sækir eflaust feigð eins og búast má við. Eldast stöðugt allir menn ætíð þannig gengur dauður karlinn ekki enn eitthvað hjari lengur. Hallmundur Kristinsson yrkir og kallar „Vor á þingi“: Í góðviðrinu ilmur vorsins angar. Alþingis er vandamálið skýrt: Umræðurnar eru heldur langar og innihaldið stundum fremur rýrt. „Eyrnahreinsun“ segir Guð- mundur Arnfinnsson: Eldhúsdagsins argaþras yndi hjá mér vekur, þingskörunga mergjað mas merg úr eyrum skekur. Gunnar J. Straumland skrifar: „Það var árið 1967 sem síðustu eyjaskeggjar í Flatey á Skjálfanda tóku sig upp og fluttu upp á „fasta- landið“. Töluverður hluti þeirra ílengdist í mínum gamla heimabæ, Húsavík. Margir minna leikfélaga úr æsku eru afkomendur síðustu ábúendanna í eynni. Það er með að- dáun og ánægju sem ég hef fylgst úr fjarska með ræktarsemi og dugnaði þeirra við að halda arfleifð sinni lifandi með því að gera upp gömlu húsin í Flatey og dvelja þar í frístundum sínum.“ Flateyjarkvæði Í dimmbláum flóa er dulítil ey, dásamleg gerðist þar saga. Upp risu kynslóðir, áttu þar fley austan við Flateyjarskaga. Þær samfélag byggðu er sagan nú á með samtakamætti og hlýju er synir og dætur nú segja okkur frá. Þar sækja má yndi að nýju. Því allt sem var liðið má efla á ný, arfurinn hvílir í hjörtum sem fengu í æsku frásögn af því er finnst nú í minningum björtum. Pétur Bjarnason skrifar: „Ný- kjörin sveitarstjórn Norðurþings stefnir að því að fjölga íbúum sveit- arfélagsins um eitt hundrað. Það þarf þá að aðlaga þá aðstæðum nema stjórnin ætli sjálf að annast fjölgunina“: Nú hefur stjórnin Norðurþinga nýja fundið tekjulind. Í þessa hundrað Þingeyinga þarf að líkum mikinn vind. „Léttur“ eftir Bjarna frá Gröf: Yndi færir ævin mér æskan nærir sporin, lífið hær og leikur sér líkt og blær á vorin. Halldór Blöndal halldorblondal@simnet.is Vísnahorn Dulítil ey og Norðurþing

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.