Morgunblaðið - 13.06.2022, Blaðsíða 27
höggum á fjórum hringjum, einu
höggi undir pari. Keppendur voru 156
og 60 þeirra komust í gegnum nið-
urskurðinn á föstudaginn.
_ HK lagði Þór frá Akureyri að velli,
3:1, í 1. deild karla í fótbolta á laugar-
daginn í Kórnum í Kópavogi. Aron
Ingi Magnússon kom Þór yfir í fyrri
hálfleik en á fyrstu 15 mínútum síðari
hálfleiks skoruðu Atli Arnarson, Birk-
ir Valur Jónsson og Stefán Ingi Sig-
urðarson fyrir HK og tryggðu liðinu
sinn þriðja sigur í fyrstu fimm leikj-
unum.
Á Ísafirði misstu Kórdrengir niður
tveggja marka forskot gegn Vestra og
lokatölur urðu 2:2. Þórir Rafn Þór-
isson og Kristófer Jacobsen Reyes
komu Kórdrengjum í 2:0 í fyrri hálfleik
en Vladimir Tu-
fegdzic og Toby
King jöfnuðu met-
in fyrir Vestra.
_ Viktor Gísli
Hallgrímsson,
landsliðs-
markvörður í
handknattleik,
varð í gær danskur meistari með
GOG þegar lið hans vann Aalborg á
útivelli, 27:26, í öðrum úrslitaleik lið-
anna. Liðin höfðu áður gert jafntefli á
heimavelli GOG. Viktor varði fjögur
skot, þar af eitt vítakast, og var með
25 prósent markvörslu. Aron Pálm-
arsson var einn þriggja markahæstu
manna Aalborg með fimm mörk úr
sex skotum en hann og Arnór Atlason
aðstoðarþjálfari máttu sætta sig við
silfurverðlaunin. Viktor kveður nú
GOG og gengur til liðs við Nantes í
Frakklandi.
_ Tindastóll og Fjarðabyggð/Höttur/
Leiknir, tvö liðanna sem virðast ætla
að berjast í efri hluta 1. deildar kvenna
í fótbolta, skildu jöfn, 2:2, á Sauðár-
króki á laugardaginn. Bryndís Rut
Haraldsdóttir og María Dögg Jóhann-
esdóttir skoruðu fyrir Skagfirðinga en
Yolanda Bonnin og Ainhoa Plaza fyrir
Austfirðinga.
_ Guðný Geirsdóttir, markvörður
kvennaliðs ÍBV í knattspyrnu, hand-
arbrotnaði í bikarleik liðsins við
Stjörnuna á föstudagskvöldið en
þetta staðfesti hún við fótbolta.net í
gær. Hún verður
væntanlega frá
keppni fram í
ágúst en vara-
markvörðurinn,
Lavinia Boanda,
landsliðs-
markvörður frá
Rúmeníu, ver
mark Eyjakvenna í
næstu leikjum.
_ Erling Braut Haaland, nýjasti liðs-
maður Manchester City, var allt í öllu
hjá Norðmönnum þegar þeir unnu
sætan sigur á Svíum, 3:2, í Þjóða-
deildinni í fótbolta í gær. Haaland
skoraði tvö fyrstu mörkin og lagði
upp þriðja markið fyrir Alexander
Sörloth.
ÍÞRÓTTIR 27
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 13. JÚNÍ 2022
HANDBOLTI
Þjóðadeild UEFA
A-deild, 2. riðill:
Spánn – Tékkland..................................... 2:0
Sviss – Portúgal........................................ 1:0
_ Spánn 8, Portúgal 7, Tékkland 4, Sviss 3.
A-deild, 3. riðill:
England – Ítalía........................................ 0:0
Ungverjaland – Þýskaland...................... 1:1
_ Ítalía 5, Ungverjaland 4, Þýskaland 3,
England 2.
A-deild, 4. riðill:
Holland – Pólland ..................................... 2:2
Wales – Belgía .......................................... 1:1
_ Holland 7, Belgía 4, Pólland 4, Wales 1.
B-deild, 1. riðill:
Úkraína – Armenía................................... 3:0
Írland – Skotland...................................... 3:0
_ Úkraína 6, Írland 3, Skotland 3, Armenía
3.
B-deild, 3. riðill:
Svartfjallaland – Bosnía .......................... 1:1
Rúmenía – Finnland................................. 1:0
_ Bosnía 5, Finnland 4, Svartfjallaland 4,
Rúmenía 3.
B-deild, 4. riðill:
Noregur – Svíþjóð .................................... 3:2
Slóvenía – Serbía ...................................... 2:2
_ Noregur 10, Serbía 6, Svíþjóð 3, Slóvenía
1.
C-deild, 1. riðill:
Færeyjar – Litháen.................................. 2:1
Lúxemborg – Tyrkland ........................... 0:2
_ Tyrkland 9, Lúxemborg 6, Færeyjar 3,
Litháen 0.
C-deild, 2. riðill:
Norður-Írland – Kýpur............................ 2:2
Grikkland – Kósóvó.................................. 2:0
_ Grikkland 9, Kósóvó 6, Norður-Írland 2,
Kýpur 2.
C-deild, 4. riðill:
Georgía – Búlgaría ................................... 0:0
Norður-Makedónía – Gíbraltar .............. 4:0
_ Georgía 10, Norður-Makedónía 7, Búlg-
aría 3, Gíbraltar 1.
D-deild, 2. riðill:
Malta – San Marínó.................................. 1:0
_ Eistland 6, Malta 6, San Marínó 0.
HANDBOLTI
Þýskaland
Magdeburg – RN Löwen .................... 37:34
- Ómar Ingi Magnússon skoraði 6 mörk
fyrir Magdeburg og Gísli Þorgeir Krist-
jánsson 4.
- Ýmir Gíslason skoraði ekki fyrir Löwen.
Lemgo – Hamburg .............................. 28:24
- Bjarki Már Elísson skoraði 4 mörk fyrir
Lemgo.
Füchse Berlín – Flensburg................. 22:28
- Teitur Örn Einarsson skoraði 4 mörk
fyrir Flensburg.
Kiel – Göppingen................................. 38:31
- Janus Daði Smárason skoraði ekki fyrir
Göppingen.
Bergischer – N-Lübbecke .................. 26:22
- Arnór Þór Gunnarsson skoraði ekki fyrir
Bergischer.
Stuttgart – Melsungen........................ 28:25
- Viggó Kristjánsson skoraði 6 mörk fyrir
Stuttgart en Andri Már Rúnarsson ekkert.
- Arnar Freyr Arnarsson skoraði 3 mörk
fyrir Melsungen og Alexander Petersson 2
en Elvar Örn Jónsson er meiddur.
Hannover-Burgdorf – Leipzig........... 26:26
- Heiðmar Felixson er aðstoðarþjálfari
Hannover-Burgdorf.
Erlangen – Balingen........................... 33:26
- Ólafur Stefánsson er aðstoðarþjálfari
Erlangen.
- Oddur Gretarsson skoraði 5 mörk fyrir
Balingen og Daníel Þór Ingason eitt.
Lokastaðan:
Magdeburg 64, Kiel 58, Füchse Berlín 53,
Flensburg 50, Göppingen 38, Lemgo 37,
Wetzlar 35, Melsungen 33, Leipzig 33, RN
Löwen 30, Bergischer 29, H-Burgdorf 27,
Erlangen 27, Hamburg 26, Stuttgart 24,
Minden 18, Balingen 16, N-Lübbecke 14.
_ Magdeburg er meistari og Kiel fer líka í
Meistaradeildina en Füchse Berlín, Flens-
burg og Göppingen fara í Evrópudeildina.
_ Balingen og N-Lübbecke falla en Gum-
mersbach og Hamm koma í þeirra stað.
B-deild:
Gummersbach – Coburg..................... 29:27
- Elliði Snær Viðarsson skoraði 3 mörk
fyrir Gummersbach en Hákon Daði Styrm-
isson er frá vegna meiðsla. Guðjón Valur
Sigurðsson þjálfar liðið sem vann deildina
með 62 stig, 13 stigum á undan Hamm.
- Tumi Steinn Rúnarsson skoraði 3 mörk
fyrir Coburg sem endaði í 11. sæti.
Dessauer – Aue.................................... 26:26
- Arnar Birkir Hálfdánsson skoraði eitt
mark fyrir Aue. Sveinbjörn Pétursson
varði 13 skot í marki liðsins, 38 prósent.
Aue endaði í 19. sæti og féll.
Emsdetten – Ludwigshafen ............... 29:30
- Anton Rúnarsson skoraði 6 mörk fyrir
Emsdetten og Örn Vésteinsson 2. Ems-
detten varð í 20. og neðsta sæti og féll.
KNATTSPYRNA
Þjóðadeild karla:
Laugardalur: Ísland – Ísrael............... 18.45
2. deild kvenna:
Álftanes: Álftanes – Fram ................... 19.15
KNATTSPYRNA
U21
Víðir Sigurðsson
vs@mbl.is
Magnaður endasprettur hjá U21-árs
landsliði karla í fótbolta í undan-
keppni Evrópumótsins náði hámarki
á laugardagskvöldið. Íslensku strák-
arnir unnu þá stórsigur gegn Kýpur á
Víkingsvellinum, 5:0, og þar sem
Portúgal vann Grikkland 2:1 á sama
tíma náði Ísland öðru sæti riðilsins og
leikur tvo umspilsleiki í haust um
sæti í lokakeppninni.
Íslenska liðið var í fjórða sæti af
sex liðum þegar keppnin var hálfnuð
um áramót. Þeir gerðu síðan jafntefli
gegn Portúgal og Kýpur á útivöllum í
mars og sigruðu Liechtenstein,
Hvíta-Rússland og Kýpur með sam-
anlagðri markatölu 17:1 í leikjunum
þremur á Víkingsvellinum nú í júní-
mánuði.
Átta þjóðir leika í umspilinu en eitt
lið í öðru sæti kemst beint á EM. Það
skýrist á þriðjudag hvort það verður
Noregur, Króatía, Ítalía, Írland,
Sviss eða Danmörk sem fær það sæti.
Þar ræðst einnig hvort Noregur
eða Króatía vinnur A-riðil, og hvort
Ítalía eða Írland vinnur B-riðil.
Sigurvegarar riðlanna níu fara beint
á EM og þegar er ljóst að þar verða
Þýskaland, Spánn, Portúgal, Hol-
land, England, Frakkland og Belgía
ásamt gestgjöfum Rúmeníu og
Georgíu.
Dregið 21. júní
Í umspilinu verða Ísland, Ísrael,
Slóvakía, Tékkland og Úkraína, og
síðan þrjár þessara þjóða: Noregur,
Króatía, Ítalía, Írland, Sviss og Dan-
mörk.
Dregið verður í umspilið þriðju-
daginn 21. júní og íslenska liðið mun
leika þar tvo leiki í haust, heima og
heiman. Þann 18. október verður síð-
an dregið í riðla fyrir lokakeppnina
sem haldin verður í Rúmeníu og
Georgíu sumarið 2023.
Sigurinn gegn Kýpur var afar
sannfærandi en það voru Kýpurbúar
sem opnuðu leiðina fyrir Ísland með
óvæntum 3:0 sigri á Grikkjum á dög-
unum. Kristall Máni Ingason skoraði
á 10. mínútu og Kýpurbúar skoruðu
sjálfsmark á 32. mínútu, 2:0 í hálfleik.
Kristall Máni á 57. og Sævar Atli
Magnússon á 65. mínútu komu Ís-
landi í 4:0 og á sama tíma komst
Portúgal í 2:0 gegn Grikklandi.
Í uppbótartíma skoraði svo Kristi-
an Nökkvi Hlynsson, 5:0, og um leið
minnkuðu Grikkir muninn gegn
Portúgölum án þess að það kæmi að
sök. Íslensku strákarnir gátu því
fagnað sæti í umspilinu ásamt fjölda
áhorfenda á Víkingsvellinum.
Tveimur leikjum frá EM-sæti
- U21-árs liðið fer í umspil eftir 17 mörk gegn einu í þremur síðustu leikjunum
Morgunblaðið/Kristvin
Sigurgleði Leikmenn 21-árs landsliðsins fagna eftir sigurinn á Kýpur þegar ljóst var að þeir væru komnir í umspil.
Valgarð Reinhardsson úr Gerplu
varð sigursælastur í fullorðins-
flokkum á Íslandsmótinu í áhalda-
fimleikum sem fram fór í Versölum
um helgina.
Valgarð varð Íslandsmeistari í
fjölþraut í sjötta sinn á átta árum á
laugardaginn og í gær sigraði hann
á þremur áhöldum af sex þegar
keppt var til úrslita, gólfæfingum,
stökki og svifrá. Dagur Kári Ólafs-
son úr Gerplu sigraði á hesti og á
tvíslá í gær og Jón Sigurður Gunn-
arsson úr Ármanni á hringjum.
Thelma Aðalsteinsdóttir úr
Gerplu varð Íslandsmeistari
kvenna í fjölþraut á laugardaginn.
Á einstökum áhöldum voru það
hinsvegar samherjar hennar úr
Gerplu, Agnes Suto og Hildur Maja
Guðmundsdóttir, sem skiptu á milli
sín sigrunum. Agnes sigraði í tvíslá
og í stökki en Hildur Maja í slá og í
gólfæfingum.
Sigurður Ari Stefánsson úr
Fjölni og Rakel Sara Pétursdóttir
úr Gerplu sigruðu í fjölþraut í ung-
lingaflokkunum.
Ljósmynd/Fimleikasamband Íslands
Versalir Valgarð Reinhardsson og Thelma Aðalsteinsdóttir urðu Íslands-
meistarar í fjölþraut í flokkum fullorðinna í áhaldafimleikum.
Valgarð sigursælastur
Ómar Ingi Magnússon, Gísli Þor-
geir Kristjánsson og samherjar
þeirra í Magdeburg tóku við þýska
meistaraskildinum í gær eftir
heimasigur á Rhein-Neckar Löwen,
37:34, í lokaumferð þýsku 1. deild-
arinnar í handknattleik.
Magdeburg hafði þegar tryggt
sér sinn annan titil í sögunni þegar
liðið átti þrjá leiki eftir og það hafði
mikla yfirburði í vetur, var efst frá
byrjun tímabils og vann 32 leiki af
34, sem er fáheyrt í þessari sterku
deild. Magdeburg endaði sex stig-
um ofar en Kiel sem hafnaði í öðru
sæti.
Ómar skoraði sex mörk og Gísli
fjögur og Ómar varð þar með næst-
markahæsti leikmaður deild-
arinnar með 237 mörk en hann
varð markakóngur hennar í fyrra.
Nú var það hinsvegar hinn íslensk-
ættaði og fertugi Hans Óttar Lind-
berg sem varð markakóngur með
242 mörk en hann skoraði níu mörk
fyrir Füsche Berlín í lokaumferð-
inni í gær.
Bjarki Már Elísson varð síðan
þriðji markahæstur með 234 mörk
en hann lét sér nægja fjögur mörk í
sigri Lemgo á Hamburg, 28:24.
Alexander Petersson steig af
stóra sviðinu í gær en hann skoraði
þá tvö mörk fyrir Melsungen sem
tapaði 28:25 fyrir Stuttgart. Alex-
ander, sem verður 42 ára í júlí, á að
baki 20 ára feril í þýsku deildinni
og er einn af leikjahæstu mönn-
unum í sögu hennar en áður hafði
hann leikið í fimm ár með Gróttu/
KR.
Í B-deildinni var Guðjón Valur
Sigurðsson kjörinn þjálfari ársins
en Gummersbach vann þar yfir-
burðasigur.
Skjöldurinn fór á
loft í Magdeburg
Ljósmynd/Magdeburg
Magdeburg Þýsku meistararnir
tóku við verðlaununum í gær.