Morgunblaðið - 13.06.2022, Page 27

Morgunblaðið - 13.06.2022, Page 27
höggum á fjórum hringjum, einu höggi undir pari. Keppendur voru 156 og 60 þeirra komust í gegnum nið- urskurðinn á föstudaginn. _ HK lagði Þór frá Akureyri að velli, 3:1, í 1. deild karla í fótbolta á laugar- daginn í Kórnum í Kópavogi. Aron Ingi Magnússon kom Þór yfir í fyrri hálfleik en á fyrstu 15 mínútum síðari hálfleiks skoruðu Atli Arnarson, Birk- ir Valur Jónsson og Stefán Ingi Sig- urðarson fyrir HK og tryggðu liðinu sinn þriðja sigur í fyrstu fimm leikj- unum. Á Ísafirði misstu Kórdrengir niður tveggja marka forskot gegn Vestra og lokatölur urðu 2:2. Þórir Rafn Þór- isson og Kristófer Jacobsen Reyes komu Kórdrengjum í 2:0 í fyrri hálfleik en Vladimir Tu- fegdzic og Toby King jöfnuðu met- in fyrir Vestra. _ Viktor Gísli Hallgrímsson, landsliðs- markvörður í handknattleik, varð í gær danskur meistari með GOG þegar lið hans vann Aalborg á útivelli, 27:26, í öðrum úrslitaleik lið- anna. Liðin höfðu áður gert jafntefli á heimavelli GOG. Viktor varði fjögur skot, þar af eitt vítakast, og var með 25 prósent markvörslu. Aron Pálm- arsson var einn þriggja markahæstu manna Aalborg með fimm mörk úr sex skotum en hann og Arnór Atlason aðstoðarþjálfari máttu sætta sig við silfurverðlaunin. Viktor kveður nú GOG og gengur til liðs við Nantes í Frakklandi. _ Tindastóll og Fjarðabyggð/Höttur/ Leiknir, tvö liðanna sem virðast ætla að berjast í efri hluta 1. deildar kvenna í fótbolta, skildu jöfn, 2:2, á Sauðár- króki á laugardaginn. Bryndís Rut Haraldsdóttir og María Dögg Jóhann- esdóttir skoruðu fyrir Skagfirðinga en Yolanda Bonnin og Ainhoa Plaza fyrir Austfirðinga. _ Guðný Geirsdóttir, markvörður kvennaliðs ÍBV í knattspyrnu, hand- arbrotnaði í bikarleik liðsins við Stjörnuna á föstudagskvöldið en þetta staðfesti hún við fótbolta.net í gær. Hún verður væntanlega frá keppni fram í ágúst en vara- markvörðurinn, Lavinia Boanda, landsliðs- markvörður frá Rúmeníu, ver mark Eyjakvenna í næstu leikjum. _ Erling Braut Haaland, nýjasti liðs- maður Manchester City, var allt í öllu hjá Norðmönnum þegar þeir unnu sætan sigur á Svíum, 3:2, í Þjóða- deildinni í fótbolta í gær. Haaland skoraði tvö fyrstu mörkin og lagði upp þriðja markið fyrir Alexander Sörloth. ÍÞRÓTTIR 27 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 13. JÚNÍ 2022 HANDBOLTI Þjóðadeild UEFA A-deild, 2. riðill: Spánn – Tékkland..................................... 2:0 Sviss – Portúgal........................................ 1:0 _ Spánn 8, Portúgal 7, Tékkland 4, Sviss 3. A-deild, 3. riðill: England – Ítalía........................................ 0:0 Ungverjaland – Þýskaland...................... 1:1 _ Ítalía 5, Ungverjaland 4, Þýskaland 3, England 2. A-deild, 4. riðill: Holland – Pólland ..................................... 2:2 Wales – Belgía .......................................... 1:1 _ Holland 7, Belgía 4, Pólland 4, Wales 1. B-deild, 1. riðill: Úkraína – Armenía................................... 3:0 Írland – Skotland...................................... 3:0 _ Úkraína 6, Írland 3, Skotland 3, Armenía 3. B-deild, 3. riðill: Svartfjallaland – Bosnía .......................... 1:1 Rúmenía – Finnland................................. 1:0 _ Bosnía 5, Finnland 4, Svartfjallaland 4, Rúmenía 3. B-deild, 4. riðill: Noregur – Svíþjóð .................................... 3:2 Slóvenía – Serbía ...................................... 2:2 _ Noregur 10, Serbía 6, Svíþjóð 3, Slóvenía 1. C-deild, 1. riðill: Færeyjar – Litháen.................................. 2:1 Lúxemborg – Tyrkland ........................... 0:2 _ Tyrkland 9, Lúxemborg 6, Færeyjar 3, Litháen 0. C-deild, 2. riðill: Norður-Írland – Kýpur............................ 2:2 Grikkland – Kósóvó.................................. 2:0 _ Grikkland 9, Kósóvó 6, Norður-Írland 2, Kýpur 2. C-deild, 4. riðill: Georgía – Búlgaría ................................... 0:0 Norður-Makedónía – Gíbraltar .............. 4:0 _ Georgía 10, Norður-Makedónía 7, Búlg- aría 3, Gíbraltar 1. D-deild, 2. riðill: Malta – San Marínó.................................. 1:0 _ Eistland 6, Malta 6, San Marínó 0. HANDBOLTI Þýskaland Magdeburg – RN Löwen .................... 37:34 - Ómar Ingi Magnússon skoraði 6 mörk fyrir Magdeburg og Gísli Þorgeir Krist- jánsson 4. - Ýmir Gíslason skoraði ekki fyrir Löwen. Lemgo – Hamburg .............................. 28:24 - Bjarki Már Elísson skoraði 4 mörk fyrir Lemgo. Füchse Berlín – Flensburg................. 22:28 - Teitur Örn Einarsson skoraði 4 mörk fyrir Flensburg. Kiel – Göppingen................................. 38:31 - Janus Daði Smárason skoraði ekki fyrir Göppingen. Bergischer – N-Lübbecke .................. 26:22 - Arnór Þór Gunnarsson skoraði ekki fyrir Bergischer. Stuttgart – Melsungen........................ 28:25 - Viggó Kristjánsson skoraði 6 mörk fyrir Stuttgart en Andri Már Rúnarsson ekkert. - Arnar Freyr Arnarsson skoraði 3 mörk fyrir Melsungen og Alexander Petersson 2 en Elvar Örn Jónsson er meiddur. Hannover-Burgdorf – Leipzig........... 26:26 - Heiðmar Felixson er aðstoðarþjálfari Hannover-Burgdorf. Erlangen – Balingen........................... 33:26 - Ólafur Stefánsson er aðstoðarþjálfari Erlangen. - Oddur Gretarsson skoraði 5 mörk fyrir Balingen og Daníel Þór Ingason eitt. Lokastaðan: Magdeburg 64, Kiel 58, Füchse Berlín 53, Flensburg 50, Göppingen 38, Lemgo 37, Wetzlar 35, Melsungen 33, Leipzig 33, RN Löwen 30, Bergischer 29, H-Burgdorf 27, Erlangen 27, Hamburg 26, Stuttgart 24, Minden 18, Balingen 16, N-Lübbecke 14. _ Magdeburg er meistari og Kiel fer líka í Meistaradeildina en Füchse Berlín, Flens- burg og Göppingen fara í Evrópudeildina. _ Balingen og N-Lübbecke falla en Gum- mersbach og Hamm koma í þeirra stað. B-deild: Gummersbach – Coburg..................... 29:27 - Elliði Snær Viðarsson skoraði 3 mörk fyrir Gummersbach en Hákon Daði Styrm- isson er frá vegna meiðsla. Guðjón Valur Sigurðsson þjálfar liðið sem vann deildina með 62 stig, 13 stigum á undan Hamm. - Tumi Steinn Rúnarsson skoraði 3 mörk fyrir Coburg sem endaði í 11. sæti. Dessauer – Aue.................................... 26:26 - Arnar Birkir Hálfdánsson skoraði eitt mark fyrir Aue. Sveinbjörn Pétursson varði 13 skot í marki liðsins, 38 prósent. Aue endaði í 19. sæti og féll. Emsdetten – Ludwigshafen ............... 29:30 - Anton Rúnarsson skoraði 6 mörk fyrir Emsdetten og Örn Vésteinsson 2. Ems- detten varð í 20. og neðsta sæti og féll. KNATTSPYRNA Þjóðadeild karla: Laugardalur: Ísland – Ísrael............... 18.45 2. deild kvenna: Álftanes: Álftanes – Fram ................... 19.15 KNATTSPYRNA U21 Víðir Sigurðsson vs@mbl.is Magnaður endasprettur hjá U21-árs landsliði karla í fótbolta í undan- keppni Evrópumótsins náði hámarki á laugardagskvöldið. Íslensku strák- arnir unnu þá stórsigur gegn Kýpur á Víkingsvellinum, 5:0, og þar sem Portúgal vann Grikkland 2:1 á sama tíma náði Ísland öðru sæti riðilsins og leikur tvo umspilsleiki í haust um sæti í lokakeppninni. Íslenska liðið var í fjórða sæti af sex liðum þegar keppnin var hálfnuð um áramót. Þeir gerðu síðan jafntefli gegn Portúgal og Kýpur á útivöllum í mars og sigruðu Liechtenstein, Hvíta-Rússland og Kýpur með sam- anlagðri markatölu 17:1 í leikjunum þremur á Víkingsvellinum nú í júní- mánuði. Átta þjóðir leika í umspilinu en eitt lið í öðru sæti kemst beint á EM. Það skýrist á þriðjudag hvort það verður Noregur, Króatía, Ítalía, Írland, Sviss eða Danmörk sem fær það sæti. Þar ræðst einnig hvort Noregur eða Króatía vinnur A-riðil, og hvort Ítalía eða Írland vinnur B-riðil. Sigurvegarar riðlanna níu fara beint á EM og þegar er ljóst að þar verða Þýskaland, Spánn, Portúgal, Hol- land, England, Frakkland og Belgía ásamt gestgjöfum Rúmeníu og Georgíu. Dregið 21. júní Í umspilinu verða Ísland, Ísrael, Slóvakía, Tékkland og Úkraína, og síðan þrjár þessara þjóða: Noregur, Króatía, Ítalía, Írland, Sviss og Dan- mörk. Dregið verður í umspilið þriðju- daginn 21. júní og íslenska liðið mun leika þar tvo leiki í haust, heima og heiman. Þann 18. október verður síð- an dregið í riðla fyrir lokakeppnina sem haldin verður í Rúmeníu og Georgíu sumarið 2023. Sigurinn gegn Kýpur var afar sannfærandi en það voru Kýpurbúar sem opnuðu leiðina fyrir Ísland með óvæntum 3:0 sigri á Grikkjum á dög- unum. Kristall Máni Ingason skoraði á 10. mínútu og Kýpurbúar skoruðu sjálfsmark á 32. mínútu, 2:0 í hálfleik. Kristall Máni á 57. og Sævar Atli Magnússon á 65. mínútu komu Ís- landi í 4:0 og á sama tíma komst Portúgal í 2:0 gegn Grikklandi. Í uppbótartíma skoraði svo Kristi- an Nökkvi Hlynsson, 5:0, og um leið minnkuðu Grikkir muninn gegn Portúgölum án þess að það kæmi að sök. Íslensku strákarnir gátu því fagnað sæti í umspilinu ásamt fjölda áhorfenda á Víkingsvellinum. Tveimur leikjum frá EM-sæti - U21-árs liðið fer í umspil eftir 17 mörk gegn einu í þremur síðustu leikjunum Morgunblaðið/Kristvin Sigurgleði Leikmenn 21-árs landsliðsins fagna eftir sigurinn á Kýpur þegar ljóst var að þeir væru komnir í umspil. Valgarð Reinhardsson úr Gerplu varð sigursælastur í fullorðins- flokkum á Íslandsmótinu í áhalda- fimleikum sem fram fór í Versölum um helgina. Valgarð varð Íslandsmeistari í fjölþraut í sjötta sinn á átta árum á laugardaginn og í gær sigraði hann á þremur áhöldum af sex þegar keppt var til úrslita, gólfæfingum, stökki og svifrá. Dagur Kári Ólafs- son úr Gerplu sigraði á hesti og á tvíslá í gær og Jón Sigurður Gunn- arsson úr Ármanni á hringjum. Thelma Aðalsteinsdóttir úr Gerplu varð Íslandsmeistari kvenna í fjölþraut á laugardaginn. Á einstökum áhöldum voru það hinsvegar samherjar hennar úr Gerplu, Agnes Suto og Hildur Maja Guðmundsdóttir, sem skiptu á milli sín sigrunum. Agnes sigraði í tvíslá og í stökki en Hildur Maja í slá og í gólfæfingum. Sigurður Ari Stefánsson úr Fjölni og Rakel Sara Pétursdóttir úr Gerplu sigruðu í fjölþraut í ung- lingaflokkunum. Ljósmynd/Fimleikasamband Íslands Versalir Valgarð Reinhardsson og Thelma Aðalsteinsdóttir urðu Íslands- meistarar í fjölþraut í flokkum fullorðinna í áhaldafimleikum. Valgarð sigursælastur Ómar Ingi Magnússon, Gísli Þor- geir Kristjánsson og samherjar þeirra í Magdeburg tóku við þýska meistaraskildinum í gær eftir heimasigur á Rhein-Neckar Löwen, 37:34, í lokaumferð þýsku 1. deild- arinnar í handknattleik. Magdeburg hafði þegar tryggt sér sinn annan titil í sögunni þegar liðið átti þrjá leiki eftir og það hafði mikla yfirburði í vetur, var efst frá byrjun tímabils og vann 32 leiki af 34, sem er fáheyrt í þessari sterku deild. Magdeburg endaði sex stig- um ofar en Kiel sem hafnaði í öðru sæti. Ómar skoraði sex mörk og Gísli fjögur og Ómar varð þar með næst- markahæsti leikmaður deild- arinnar með 237 mörk en hann varð markakóngur hennar í fyrra. Nú var það hinsvegar hinn íslensk- ættaði og fertugi Hans Óttar Lind- berg sem varð markakóngur með 242 mörk en hann skoraði níu mörk fyrir Füsche Berlín í lokaumferð- inni í gær. Bjarki Már Elísson varð síðan þriðji markahæstur með 234 mörk en hann lét sér nægja fjögur mörk í sigri Lemgo á Hamburg, 28:24. Alexander Petersson steig af stóra sviðinu í gær en hann skoraði þá tvö mörk fyrir Melsungen sem tapaði 28:25 fyrir Stuttgart. Alex- ander, sem verður 42 ára í júlí, á að baki 20 ára feril í þýsku deildinni og er einn af leikjahæstu mönn- unum í sögu hennar en áður hafði hann leikið í fimm ár með Gróttu/ KR. Í B-deildinni var Guðjón Valur Sigurðsson kjörinn þjálfari ársins en Gummersbach vann þar yfir- burðasigur. Skjöldurinn fór á loft í Magdeburg Ljósmynd/Magdeburg Magdeburg Þýsku meistararnir tóku við verðlaununum í gær.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.