Morgunblaðið - 13.06.2022, Page 28

Morgunblaðið - 13.06.2022, Page 28
28 MENNING MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 13. JÚNÍ 2022 Framkvæmdir hefjast Bandaríkjamenn komu að her- stöð sem var vanbúin til hlutverks- ins. Mörg af þeim mannvirkjum sem þar höfðu verið byggð í heims- styrjöldinni 1939 til 1945 höfðu ver- ið rifin. Ljóst var að þörf var á miklum framkvæmdum til að hýsa varnarliðið. Af hálfu Íslendinga tóku Samein- aðir verktakar þátt í þessum fram- kvæmdum. Að- dragandinn að stofnun Samein- aðra verktaka var mjög stuttur. Fundur var boð- aður 2. júlí 1951 að Borgartúni 7 um stofnun verktakafélags til fram- kvæmda af hálfu Íslendinga á Keflavíkurflugvelli. Hörður Bjarna- son skipulagsstjóri boðaði til fund- arins og á honum voru Anton Sig- urðsson, formaður Trésmiðafélags Reykjavíkur, Árni Snævarr verk- fræðingur, Einar Kristjánsson tré- smíðameistari, Guðmundur Hall- dórsson trésmíðameistari, Gústaf E. Pálsson, formaður Verkfræð- ingafélags Íslands, Jón Bergsteins- son, formaður Múrarameistara- félags Reykjavíkur, og Tómas Vigfússon, trésmíðameistari. Á fundinum talaði skipulagsstjóri og sagði að erlend verktakafyrir- tæki hefðu haft með höndum fram- kvæmdir á Keflavíkurflugvelli fram til þessa. Nú væri þess að vænta að ýmsar byggingaframkvæmdir stæðu fyrir dyrum þar syðra. Íslensk stjórnvöld vildu að Íslendingar hefðu hönd í bagga með framkvæmdum og að þær yrðu á vegum íslenskra aðila ef unnt væri. Til stóð að skipulags- stjóri færi vestur um haf til að ræða málið og vildi hann fá mann með sér úr þeim hópi sem sótti fundinn. Leitað var til Gústafs A. Pálssonar til að fara vestur. Engir sósíalistar, en af þeim var talsvert í trésmiða- og múrarastétt, voru með í ráðum um stofnun Sameinaðra verktaka. Annar fundur var hald- inn þann 8. ágúst til að undirbúa verktakasamband til að starfa á Keflavíkurflugvelli. Á hann voru boðaðir 23 iðnmeistarar og verk- fræðingar, en athygli vekur að eng- inn þeirra var frá Suðurnesjum. Í umboði, sem Gústaf E. Pálsson fékk frá hluthöfum Sameinaðra verktaka til að ganga frá fyrstu samningum við varnarliðið um framkvæmdir, var útlistað hvaða skuldbindingar undirritaðir höfðu undirgengist vegna stofnunar Sam- einaðra verktaka. Hörður og Gúst- af skiluðu íslenskum hags- munaaðilum skýrslu eftir fundi í Washington með hernum og New York með þarlendum verkfræð- ingum. Á fundunum voru rædd hagnýt atriði í sambandi við bygg- ingar á Keflavíkurflugvelli. Fram kom að betra væri að byggja stein- steypuhús eftir íslenskum venjum en bandarísk semipermanent hús eða bragga, sem hefðu reynst illa og verið dýr. Rætt var um að ganga ekki framhjá íslenskum verktökum, en bjóða verk út bæði í Bandaríkjunum og Íslandi. Íslendingar sögðust geta útvegað 500 manns í vinnu þegar í stað. Lýst var yfir áhuga á að leggja hitaveitu á flugvöllinn frá Krýsuvík eða öðrum hentugum stað og voru Bandaríkjamenn hrifnir af því. Íslendingar nefndu að Keflavíkur- bær myndi hafa áhuga á að vera með í framkvæmdinni. Stofnað var íslenskt verktakafyrirtæki fyrir atbeina íslenska utanríkisráðuneyt- isins, Sameinaðir verktakar, til að annast varnarliðsframkvæmdir sem undirverktaki hins bandaríska Hamilton-félags. Tíu Suðurnesja- menn gerðust aðilar þess fyrir milligöngu Karvels Ögmundssonar í Njarðvík. Karvel frétti af málinu því hann hafði milligöngu um að út- vega Sameinuðum verktökum hús- næði á Vellinum fyrir starfsemina. Engar heimildir hafa fundist um að fundir til undirbúnings Samein- aðra verktaka hafi verið auglýstir. Ekki fengu allir iðnaðarmenn sem vildu að ganga inn, fjárhagslegu (og mögulega pólitísku?) skilyrðin voru ströng. Þetta voru leynifundir, líkt því sem var um fleira sem her- setuna varðaði. SÍS kom inn í fé- lagið 1953 en ekki í sátt við Sjálf- stæðismennina sem stóðu að Sameinuðum verktökum. Hluthafar voru í fyrstu 43 talsins. Talan var orðin 193 árið 1955, en svo fækkaði aftur, var 150 1980 og 147 árið 1984. Gústaf E. Pálsson og Guð- mundur Halldórsson trésmíða- meistari sömdu um fyrstu fram- kvæmdir á Keflavíkurflugvelli 22. ágúst 1951. Fyrsti samningur var upp á 11,3 milljónir íslenskra króna sem þótti mjög há upphæð. Guð- mundur Einarsson, ungur verk- fræðingur sem hafði lært og unnið í Bandaríkjunum, m.a. við að byggja skýjakljúfa, var ráðinn til Sameinaðra verktaka og varð svo framkvæmdastjóri þeirra til 1957. Fljótlega var ljóst að umfang framkvæmdanna þýddi að það þyrfti að ráða að minnsta kosti þúsund manns í vinnu. Atvinnuleysi var á þessum tíma, t.d. 1.000 manns í Reykjavík einni í desem- ber 1951. Sameinaðir verktakar tóku á leigu hús sem Bandaríkjamenn höfðu byggt í Ytri-Njarðvík og Karvel Ögmundsson átti nú. Jafn- framt voru verbúðir og félagsheim- ili í Njarðvík og Keflavík tekin á leigu. Dæmi voru um að Samein- aðir verktakar tækju á leigu ókláruð íbúðarhús í Keflavík og semdu um að klára þau fyrir eigendurna. Framkvæmdir höfðu oft stöðvast vegna fjárskorts og eigendur voru mjög ánægðir með að taka við fullkláruðum húsum að loknum leigutíma. Líka var reynt að fá nýja sjúkrahúsið í Keflavík leigt. Það stóð óklárað og fram- kvæmdir höfðu stöðvast vegna fjár- skorts, en samningar tókust ekki. Sameinaðir verktakar gátu hins vegar leigt gamla barnaskólahúsið því starfsemi barnaskólans hafði verið flutt í glæsilegt skólahús á Sólvallagötu í ársbyrjun 1952. Bandaríkjamenn buðu 2.000 kr. fyrir tveggja herbergja íbúð á Suðurnesjum. Samkomuhúsin voru gerð að svefnskálum en mötuneyti fyrir 700 manns var útbúið í skál- um Karvels. Hreinlæti var bágbor- ið í svefnskálunum, fá klósett en notendur margir. Við framkvæmdirnar á Keflavík- urflugvelli kynntust menn tækja- nýjungum í uppsteypu húsa svo sem víbratorum, vélum til múrhúð- unar og gólfslípivélum. Menn lærðu að nota krossvið í mótauppslátt í stað 1x6 tommu borða. Það lækkaði svo byggingakostnað hérlendis. En framan af var stórtap á rekstri Sameinaðra verktaka því menn vantaði gröfur og ýtur. Þjóðviljinn birti í júní 1953 grein sem sýndi vel viðhorf andstæðinga hersetunnar til þeirra umsvifa sem þá voru á Keflavíkurflugvelli. Blað- ið benti á að á Keflavíkurflugvelli væri verið að byggja íbúðir handa „herraþjóðarmönnum“ í þúsunda- tali. Í Morgunblaðinu hefði verið greint frá því að byggja ætti nokk- ur stórhýsi á vellinum. Á sama tíma og Íslendingar búi í „alls kon- ar skúrum og hjöllum svo hundr- uðum skiptir í Reykjavík einni saman, og útburðar er krafist á innfæddum Reykvíkingum, hafa hundruð byggingariðnaðarmanna verið hrakin suður á Keflavík- urflugvöll til að byggja á þessa sumri 28 þriggja hæða blokkir – sem hver um sig er um 760 fer- metrar að grunnfleti – eða bygg- ingar sem samsvara samtals rúm- um 800 smáíbúðum.“ Um 500 starfsmönnum var sagt upp í desember 1953. Ástæðan var slæm verkefnastaða. Starfsmenn töldu hins vegar að nú þyrfti fólk á flotann um vertíðina. Árin 1951 til 1952 komu flestir verkamenn frá Suðurnesjum og öðrum stöðum sem bjuggu við atvinnuleysi: Reykjavík, Vestfjörðum, Ólafsfirði og Siglufirði. Hagstæðast var þó vitanlega að ráða fólk frá Suður- nesjum því ekki þurfti að útvega því húsnæði. […] Maturinn hjá Hamilton og annar sambúðarvandi Um sumarið 1953 var tekið fyrir áfengisflutninga frá Keflavíkur- flugvelli. Bandarískir starfsmenn á Keflavíkurflugvelli, aðrir en her- menn varnarliðsins, höfðu áður haft leyfi til að taka eina átekna flösku með þegar farið var út af flugvell- inum. Að sögn hafði verið haft strangt eftirlit með þessu og starfs- mönnum vikið úr starfi við annað brot. Um svipað leyti varð „uppi- stand út af vopnuðum Bandaríkja- manni á götunum í Keflavík“, eins og Þjóðviljinn orðaði það. „Seint á laugardagskvöldi stöðvaði Banda- ríkjamaður bíl sinn á götu Kefla- víkur og spókaði sig fyrir utan hann. Vegfarendur bentu mann- garminum á að hann mætti ekki ganga vopnaður niðri í Keflavík, en vitanlega hafði hann það að engu. Var þá hringt til íslenzku lögregl- unnar á flugvellinum, sem kom og mun hafa skilað þeim bandaríska stríðsmannsgarmi heim í herstöðv- arnar á vellinum.“ Þjóðviljinn birti snemma í ágúst frétt um mat þann, sem íslensku (og bandarísku) starfsfólki Hamil- ton-félagsins var boðið upp á. Þrá- lát matareitrun hafði gert vart við sig í mötuneytinu og sagt var að þar væri boðið upp á gamlan mat, niðursuðuvörur og frystar vörur úr gömlum birgðum bandaríska hers- ins. Jafnvel hefðu þar sést egg sem stimpluð voru árið 1942. Morgunblaðið birti tveimur dög- um eftir frétt Þjóðviljans um mat- inn á Vellinum frétt um að starfs- fólk Hamilton á Keflavíkurflugvelli kvartaði yfir of miklu kjöti og kryddi. Boðið var upp á kjöt frá Bandaríkjunum, sem var flutt inn frosið, að sögn Morgunblaðsins. Hvergi var þó minnst á frétt Þjóð- viljans í þessu sambandi. Frétt kom í Morgunblaðinu í nóvember um kvartanir vegna launagreiðslna á Keflavíkur- flugvelli. Undanfarið hefði gætt mikillar óánægju meðal verkafólks, sem ynni hjá amerískum verktök- um á Keflavíkurflugvelli, út af kaupgreiðslum. Samkvæmt upplýs- ingum verkfræðingadeildar hersins hefðu alls 922 kvartanir borist. Af þeim hefði náðst samkomulag um 637 en 141 verið vísað frá. 114 kvartanir biðu afgreiðslu meðan verið væri að afla nauðsynlegra gagna og 30 voru í athugun af ýms- um ástæðum. Til þess að ráða bót á þessu ástandi og til þess að flýta fyrir afgreiðslu þessara mála, svo og til þess að reyna að koma í veg fyrir að árekstrar af þessu tagi ættu sér stað, hafði ráðuneytið til- nefnt til bráðabirgða íslenska menn til þess að rannsaka allar kvartanir, sem ekki fengust afgreiddar þegar í stað, og vinna að lausn þeirra. Verkfræðingadeild hersins hafði að sögn brugðist vel við og gert það mögulegt að menn þessir gætu þegar tekið til starfa. Einnig hefðu aðrir aðilar lofað allri aðstoð, sam- kvæmt fréttatilkynningu frá utan- ríkisráðuneytinu. Enn voru fréttir um launa- greiðslur á Keflavíkurflugvelli seinna í mánuðinum, nú frá félags- málaráðuneytinu. Út af endur- teknum staðhæfingum Guðmundar Í. Guðmundssonar alþingismanns hafði félagsmálaráðuneytið aflað álits hjá Jónasi Guðmundssyni sem veitti ráðuneytinu forstöðu þegar mistök áttu sér stað. Fram kemur í álitsgerð Jónasar Guðmundssonar að framkvæmdir sem kröfðust íslensks vinnuafls að ráði hafi ekki hafist fyrr en eftir áramót 1952. Fram að því hafi flugvallarstjóri ríkisins eða fulltrúi hans á Kefla- víkurflugvelli haft það hlutverk að segja til um hvað skyldi vera kaup- gjald Íslendinga, alveg til 8. októ- ber 1952. Varnarmálanefnd hafi tekið til starfa í apríl 1952, en flug- vallarstjórinn var einn af þremur nefndarmönnum. Varnarmálanefnd hafði tekið mjög illa upp þegar félagsmálaráðuneytið, „fyrir þrá- beiðni fyrirsvarsmanna varnarliðs- ins“, fór að gera tilraunir til að leiðrétta launagreiðslur til íslenskra starfsmanna. Samkomulag var gert þann 10. október um að félagsmála- ráðuneytið myndi í samráði við Alþýðusamband Íslands og Vinnu- veitendasamband Íslands ákveða hver skyldu vera kjör á Vellinum. Þó var eftir að fá skriflegt sam- þykki Varnarmálanefndar, sem Hans G. Andersen veitti for- mennsku, en það kom aldrei. Guð- mundur Í. Guðmundsson gerði athugasemd við skýrsluna, sem birtist í Morgunblaðinu. Óhætt er að segja að koma hers- ins hafi valdið mikilli þenslu í efna- hagslífi Keflavíkur. Fjöldi manna úr bænum fékk atvinnu hjá hern- um, húsnæðisverð fór mjög hækk- andi og byggingaframkvæmdir stórjukust, bæði á Vellinum og í Keflavík. Mikil þensla í efnahagslífi Keflavíkur Bókarkafli | Í bókinni Saga Keflavíkur 1949- 1994 rekur sagnfræð- ingurinn Árni Daníel Júlíusson það hve saga Keflavíkur er ólík sögu annarra sveitarfélaga á Íslandi á sama tímabili. Nálægð bæjarins við herstöðina og sam- skipti við bandaríska herinn settu mark sitt á þróun atvinnulífs og menningar í bænum. Ljósmynd/Einkasafn Friðþórs Eydals Fyrsta verk Sameinaðra verktaka fólst í byggingu hverfis með bráðabirgðaskálum fyrir varnarliðsmenn og þús- undir íslenskra og bandarískra verkamanna sem unnu að byggingu varnarstöðvarinnar á sjötta áratugnum. Ljósmynd/Sigurhans Vignir/Byggðasafn Reykjanesbæjar Braggaformið var til margra hluta nytsamlegt og ekki síður að stríðinu loknu og voru braggarnir nýttir á margvíslegan hátt. Á myndinni sést fyrsta kirkjan sem notuð var á varnarliðssvæðinu.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.