Morgunblaðið - 14.06.2022, Side 1
Þ R I Ð J U D A G U R 1 4. J Ú N Í 2 0 2 2
.Stofnað 1913 . 137. tölublað . 110. árgangur .
KAFBÁTA-
HERNAÐUR ER
HÓPÍÞRÓTT
LANDNÁM LÍFSINS
Í SURTSEY
ALLT SEM
ÉG GERI
ER DANS
GRÓSKUMIKILL GRÓÐUR 14 SIGRÍÐUR SOFFÍA 28NATO-ÆFING 6
Yfirtaka Marels á
Wenger, sem lauk
í síðustu viku, er
sú önnur til þriðja
stærsta í sögu fé-
lagsins.
Fjölmörg félög
hafa sameinast
Marel í gegnum
árin og eru yfir-
tökurnar um 40
talsins á síðustu 40
árum, flestallt fjölskyldufyrirtæki eins
og Wenger. Árlegur vöxtur Marels frá
skráningu á markað hefur verið yfir
20% sem er að tveimur þriðju hlutum
frá yfirtökum og svo kröftugur 6% ár-
legur innri vöxtur, að sögn Árna Odds
Þórðarsonar, forstjóra Marels.
Wenger er leiðandi í lausnum og
þjónustu fyrir framleiðendur á mat-
vælum fyrir gæludýr og fóðri fyrir
fiskeldi og markaðsaðila sem eru að
hasla sér völl á neytendavörumarkaði
með afurðir úr plöntupróteinum. Síð-
asttaldi markaðurinn gæti tífaldast á
næstu árum. »12
Ein stærsta
yfirtakan
Árni Oddur
Þórðarson
Íslenska karlalandsliðinu í fótbolta tókst ekki að knýja fram
sigur á Ísraelsmönnum á Laugardalsvellinum í gærkvöld
þrátt fyrir að hafa komist tvisvar yfir í leiknum, í seinna
skiptið með marki Þóris Jóhanns Helgasonar sem fagnaði vel
eins og sjá má. Þar með hafa allir þrír leikir liðsins endað með
jafntefli, báðir leikirnir gegn Ísrael 2:2, og möguleikarnir á
að vinna riðilinn eru ekki miklir en liðið á aðeins eftir að
mæta Albaníu á útivelli. Sá leikur fer fram í september.
Jón Dagur Þorsteinsson skoraði fyrra mark íslenska liðsins
sem nýtti ekki nokkur mjög góð marktækifæri í leiknum en
frammistaða ungra leikmanna lofar þó góðu fyrir framhaldið
í haust. »27
Morgunblaðið/Eggert
Enn eitt jafntefli Íslands í Þjóðadeildinni
Andrés Magnússon
andres@mbl.is
Mikil fundahöld voru samhliða þing-
fundum í gær til þess að freista þess
að geta náð þinglokum í sátt og sam-
lyndi fyrir þjóðhátíðardaginn 17. júní
nú á föstudag. Gangi allt eftir ættu
dagurinn í dag og á morgun að duga
til þess að ljúka umræðum, en síðan
yrðu atkvæðagreiðslur á fimmtudag.
Lítið má hins vegar út af bera til þess
að það fari í handaskolum.
Um tíma var útlit fyrir að þingloka-
samkomulag allra þingflokka nema
Miðflokks, sem gert var síðastliðinn
fimmtudag, væri í uppnámi, þar sem
ekki var útlit fyrir að öll umsamin
þingmannafrumvörp fengju fram-
gang í þinginu, en þau reyndust mjög
misflókin í meðförum eða erfið í póli-
tískum skilningi.
Þar á meðal var frumvarp Hildar
Sverrisdóttur um að heimila netversl-
un með áfengi, sem var lagt til hliðar
um leið og þingflokkasamkomulagið
var gert, en samkvæmt heimildum
Morgunblaðsins nötraði stjórnar-
heimilið vegna þess. Vinstri græn
lögðust þvert gegn því og Framsókn
reyndist áhugalaus um það.
Samið var um að taka gjafsókna-
frumvarp Helgu Völu Helgadóttur í
Samfylkingu til meðferðar, þó engu
sé lofað um afgreiðslu þess. Þrátt fyr-
ir að frumvarp Hönnu Katrínar Frið-
riksson um hjónaskilnað án undan-
fara sé lagatæknilega flókið, nýtur
það víðtæks stuðnings í þinginu og
mun stjórnin greiða götu þess.
Vonast var til að umræðum um
fjármálaáætlun og aðhaldsaðgerðir
ríkisstjórnarinnar mætti ljúka í gær-
kvöld, en þær stóðu enn yfir þegar
Morgunblaðið fór í prentun í gær-
kvöld. Til stendur að ræða ramma-
áætlun og fleiri mál í dag.
Þrátt fyrir að þinglok náist senn er
von á að þingið verði aftur kallað sam-
an í sumar til að ræða skýrslu ríkis-
endurskoðanda um bankasölumálið.
Vonast eftir þinglokum
fyrir þjóðhátíðardaginn
- Barið í bresti þinglokasamnings - Vínsölufrumvarpi fórnað
Morgunblaðið/Ómar
Alþingi Enn er margt óútrætt á
þingi fyrir 17. júní nú á föstudag.
Hlutabréfamark-
aðir héldu áfram
að lækka um allan
heim í gær.
Bandarískir
markaðir tóku
dýfu niður á við í
gær en að sögn
greinenda vestan-
hafs óttast fjár-
festar aukna verð-
bólgu, hækkandi
stýrivexti og frek-
ari samdrátt hagkerfisins. S&P 500-
vísitalan lækkaði um 3,9% í gær og
hefur nú lækkað um tæp 22% á árinu.
Nasdaq-vísitalan lækkaði um 4,7% í
gær og Dow Jones um 3%. Lækkunin
á heimsvísu hófst þegar markaðir
voru opnaðir í Asíu, þar sem helstu
hlutabréfavísitölur lækkuðu um rúm-
lega 3%. Í Evrópu hélt lækkunin
áfram þar sem markaðir lækkuðu á
bilinu 1,5-2,5%. Hækkandi verðbólga,
von á hærri stýrivöxtum og áhyggjur
fjárfesta af efnahagsmálum vestan-
hafs hafa þar mikil áhrif.
Allir mark-
aðir rauðir
Verðbólga Fjár-
festar eru svart-
sýnir vestanhafs.