Morgunblaðið - 14.06.2022, Page 27
ÍÞRÓTTIR 27
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 14. JÚNÍ 2022
Í LAUGARDAL
Víðir Sigurðsson
vs@mbl.is
Jafntefli gefa ekki nógu mikið í fót-
bolta. Því hefur íslenska karlalands-
liðið fengið að kynnast í Þjóðadeild-
inni. Þriðja jafntefli í þremur
leikjum leit dagsins ljós á Laugar-
dalsvellinum í gærkvöld þegar seinni
viðureign Íslands og Ísraels lauk á
nákvæmlega sama hátt og þeirri
fyrri ellefu dögum fyrr í Haifa, 2:2.
Þetta þýðir að Ísraelsmenn standa
afar vel að vígi í þriggja liða barátt-
unni við Ísland og Albaníu, eru með
fimm stig gegn þremur hjá Íslandi
og einu hjá Albaníu, og geta nú
tryggt sér efsta sætið og sæti í A-
deild með því að vinna heimaleikinn
gegn Albaníu í september, áður en
Ísland leikur gegn Albönum í Tir-
ana.
Það er ekki endilega sætið í A-
deild sem heillar, Ísland á erfiðar
minningar af stórum töpum þar á
undanförnum árum, en þetta getur
skipt miklu máli hvað varðar um-
spilssæti fyrir Evrópumótið 2024.
Þar mun niðurstaðan í Þjóðadeild-
inni hafa eitthvað að segja.
En burtséð frá því var synd að lið-
inu tækist ekki að knýja fram sigur á
Laugardalsvellinum í opnum og
nokkuð fjörugum leik þar sem á
fjórða tug markskota á báða bóga
litu dagsins ljós.
Jón Dagur Þorsteinsson skoraði
fallegt skallamark snemma leiks. Ís-
lenskt skólabókarmark, sama form-
úla og t.d. fyrra markið gegn Eng-
landi á EM 2016. Langt innkast
Morgunblaðið/Eggert
Ungir Skagamennirnir ungu Ísak Bergmann Jóhannesson og Hákon Arnar Haraldsson setja vaxandi svip á íslenska landsliðið.
Harðar Björgvins, skalli leikmanns
númer 14, núna var það Daníel Leó
en ekki Kári Árnason, og Jón Dagur
var mættur á réttan stað og skoraði.
Eins komst Ísland yfir með lag-
legu marki þegar Arnór Sigurðsson
komst að endamörkum og sendi fyr-
ir, boltinn hrökk út þar sem Þórir
Jóhann Helgason skoraði með
hörkuskoti, 2:1.
Því miður hélt íslenska liðið ekki
forystunni sem það náði í tvígang og
þá var afdrifaríkt að Arnóri skyldi
ekki takast að kom Íslandi í 2:0 í
fyrri hálfleik þegar hann slapp
aleinn gegn markverði Ísraels. Eftir
leikina þrjá í Þjóðadeildinni situr
eftir að liðinu gengur ekkert að
herja út sigra gegn liðum sem eru
svipuð að styrkleika, rétt eins og
þegar það gerði þrjú jafntefli í slík-
um leikjum síðasta haust.
Er liðið á réttri leið? Já, ég held að
leikurinn í gærkvöld hafi sýnt ágæt-
lega skýr merki þess. Arnar Þór Við-
arsson virðist vera búinn að finna
nokkurn veginn sitt byrjunarlið,
m.a. traust miðvarðapar í þeim Daní-
el Leó og Herði Björgvini. Hann á þó
eftir að útfæra betur varnarleik liðs-
ins á miðjunni því Ísraelsmenn kom-
ust oft í vænlegar stöður í kringum
íslenska vítateiginn og náðu að
skjóta að marki í ein 19 skipti í leikn-
um. Það er alltof mikið.
Hákon Arnar Haraldsson fékk sitt
annað tækifæri í byrjunarliðinu og
nýtti það vel. Bráðskemmtilegur
leikmaður og þeir jafnaldrarnir frá
Akranesi, hann og Ísak Bergmann,
eru svo sannarlega ekki bara fram-
tíðarmenn – þeir eru leikmenn sem á
að byggja framtíðarliðið í kringum.
Jafnteflin gefa of lítið
- Þriðja jafnteflið í þremur leikjum Þjóðadeildar - Ísland komst tvisvar yfir
gegn Ísrael með mörkum Jóns og Þóris - Erfitt að vinna riðilinn héðan af
Ari Gunnarsson hefur verið ráðinn
þjálfari kvennaliðs ÍR í körfuknatt-
leik til næstu tveggja ára. Hann
kemur í stað Kristjönu Eirar Jóns-
dóttur sem stýrði ÍR upp í úrvals-
deildina í vetur en var síðan ráðin
þjálfari Fjölnis. Ari hefur mikla
reynslu af þjálfun og hefur áður
stýrt fimm liðum í úrvalsdeild
kvenna, Hamri, KR, Skallagrími,
Val og Haukum. ÍR vann Ármann í
úrslitaeinvígi 1. deildar í vor, eftir
að hafa endað í öðru sæti deild-
arinnar og leikur í úrvalsdeildinni í
fyrsta sinn í átján ár.
Ari tekur við
nýliðum ÍR
Morgunblaðið/Hari
Breiðholt Ari Gunnarsson þjálfar
kvennalið ÍR næstu tvö ár.
Grétar Rafn Steinsson, fyrrverandi
landsliðsmaður, hefur verið ráðinn
„frammistöðustjóri“ hjá enska
knattspyrnufélaginu Tottenham,
samkvæmt frétt netmiðilsins The
Athletic í gær. Þar kemur fram að
Grétar muni vinna í kringum lið fé-
lagsins í öllum aldurshópum og ná-
ið með yfirmanni knattspyrnumála,
Fabio Paratici. Grétar er að ljúka
tímabundnu ráðgjafarstarfi hjá KSÍ
en hann vann hjá enska félaginu
Everton í þrjú ár, 2018-2021, og var
þar á undan yfirmaður knatt-
spyrnumála hjá Fleetwood Town.
Grétar Rafn
til Tottenham
Morgunblaðið/Eggert
Tottenham Grétar Rafn Steinsson
er á leiðinni til London.
ÍSLAND – ÍSRAEL 2:2
1:0 Jón Dagur Þorsteinsson 9.
1:1 Ramzi Safouri 35.
2:1 Þórir Jóhann Helgason 60.
2:2 Dor Peretz 66.
M
Hákon Arnar Haraldsson
Þórir Jóhann Helgason
Daníel Leó Grétarsson
Arnór Sigurðsson
Ísak B. Jóhannesson
Dómari: Duje Strukan, Króatíu.
Áhorfendur: 2.778.
Ísland: (4-3-3) Mark: Rúnar Alex Rún-
arsson. Vörn: Alfons Sampsted, Hörð-
ur Björgvin Magnússon, Daníel Leó
Grétarsson, Davíð Kristján Ólafsson.
Miðja: Þórir Jóhann Helgason (Albert
Guðmundsson 90), Birkir Bjarnason
(Aron Elís Þrándarson 79), Hákon
Arnar Haraldsson. Sókn: Arnór Sig-
urðsson (Ísak B. Jóhannesson 61),
Andri Lucas Guðjohnsen (Sveinn Aron
Guðjohnsen 61), Jón Dagur Þorsteins-
son (Stefán Teitur Þórðarson 79).
_ Jón Dagur Þorsteinsson skoraði í
öðrum landsleik sínum í röð og sitt
fjórða mark í 21 A-landsleik þegar
hann kom Íslandi í 1:0.
_ Þórir Jóhann Helgason skoraði sitt
annað mark í 12 landsleikjum, og ann-
að mark gegn Ísrael, þegar hann kom
Íslandi í 2:1.
_ Enginn þeirra ellefu sem hófu vin-
áttuleikinn í San Marínó síðasta
fimmtudag var í byrjunarliðinu í gær-
kvöld.
Kunnuglegu andliti brá fyrir á
hlaupabrautinni við Laugardals-
völlinn fyrir leik Íslands og Ísraels
í Þjóðadeildinni í fótbolta í gær-
kvöld.
Lars Lagerbäck var mættur
á nýjan leik á heimaleik íslenska
landsliðsins. Núna í nýju hlutverki
sem viðmælandi Viaplay í útsend-
ingu frá leiknum fyrir og eftir leik.
Meðal þess sem þar kom fram
var að Lars skýrði frá því að það
hefði verið Arnar Þór Viðarsson
landsliðsþjálfari sem hefði viljað
að hann viki úr þjálfarateymi Ís-
lands. Eins og menn muna var
hann þeim Arnari og Eiði Smára,
þáverandi aðstoðarþjálfara, til að-
stoðar og ráðlegginga framan af
árinu 2021.
Eflaust hefði mátt nýta þekk-
ingu og reynslu Svíans lengur og
betur í þeirri uppbyggingu sem nú
á sér stað en einhverra hluta
vegna gekk það ekki upp. Því mið-
ur.
En það var gaman að sjá hann á
vellinum og ekki síst þegar ís-
lensku leikmennirnir gengu til
búningsklefa og þeir Birkir
Bjarnason og Hörður Björgvin
Magnússon, þeir einu sem eftir
eru í liðinu í dag frá tíma Lars,
komu og föðmuðu sinn gamla
leiðtoga.
Eftir leik ræddi hann svo um
leikinn við þá Hannes Þór Hall-
dórsson og Rúrik Gíslason, tvo til
viðbótar af þeim sem léku undir
hans stjórn.
Ekki gafst mikill tími til að
hlusta á þá félaga og mat Lars á
leiknum en ég heyrði þó að hann
var sérstaklega hrifinn af Hákoni
Arnari Haraldssyni, Skagamann-
inum unga, og sagði að það væru
margir efnilegir og áhugaverðir
leikmenn að koma upp í íslenska
liðinu um þessar mundir.
BAKVÖRÐUR
Víðir Sigurðsson
vs@mbl.is
KNATTSPYRNA
Besta deild kvenna:
Varmá: Afturelding – ÍBV........................ 18
Þórsvöllur: Þór/KA – KR.......................... 18
Selfoss: Selfoss – Valur ........................ 19.15
Keflavík: Keflavík – Stjarnan.............. 19.15
Laugardalur: Þróttur R. – Breiðablik 20.15
Í KVÖLD!
Komist Íslands- og bikarmeistarar
Víkings í knattspyrnu í gegnum
forkeppni Meistaradeildar karla
dagana 21. og 24. júní gætu þeir
mætt meisturum Svíþjóðar, Nor-
egs, Finnlands, Wales eða Litháen í
fyrstu umferð undankeppninnar.
Dregið verður til hennar í dag.
Þau lið sem koma til greina eru
Malmö frá Svíþjóð, Bodö/Glimt frá
Noregi, HJK frá Finnlandi, TNS frá
Wales og Zalgiris frá Litháen.
Komist Víkingar ekki áfram úr
forkeppninni fara þeir í 2. umferð
Sambandsdeildarinnar.
Breiðablik og KR leika í 1. um-
ferð Sambandsdeildar en dregið
verður til hennar í dag.
Breiðablik er í efri styrk-
leikaflokki og getur mætt Víkingi
frá Færeyjum, Tre Fiori frá San
Marínó, Sligo Rovers frá Írlandi,
Cliftonville frá N-Írlandi eða Santa
Coloma frá Andorra. KR er í neðri
flokki og getur mætt Flora frá Eist-
landi, Pogon frá Póllandi, Crusad-
ers frá N-Írlandi, HB frá Færeyjum
eða Riga frá Lettlandi.
Mótherjar
í ljós í dag