Morgunblaðið - 14.06.2022, Page 28

Morgunblaðið - 14.06.2022, Page 28
28 MENNING MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 14. JÚNÍ 2022 Ragnhildur Þrastardóttir ragnhildur@mbl.is Danshöfundurinn og listakonan Sigríður Soffía Níelsdóttir hefur marga fjöruna sopið: Flakkað með dansverk um landið, stundað nám við sirkusskóla í Brussel, troðið upp í Frakklandi og víðar í Evrópu og hannað flugeldasýningar í Reykja- vík og Barcelona, svo fátt eitt sé nefnt. Íslenskur líkjör sem hún fram- leiðir í samstarfi við Foss Distillery og ilmur sem hún skapaði ásamt Lilju Birgisdóttur eru nýjustu verk Sigríðar Soffíu og ganga þau bæði undir vörumerki Eldblóma. Þrátt fyrir að viðfangsefni Sigríðar Soffíu, sem er nýjasti gestur Dag- mála, séu fjölbreytt eiga þau sér öll sameiginlega rót: Dansinn. Í þættinum fer Sigríður Soffía meðal annars yfir ferilinn. Tólf ára byrjaði hún í dansi þegar hún fylgdi vinkonu sinni í djassballett. Aðspurð segir Sigríður Soffía að hún hafi ekki endilega ætlað sér að verða atvinnudansari og ákvað hún að fara í Menntaskólann í Reykja- vík vegna þess að hún var áhuga- söm um stjarneðlisfræði. Leiðin lá þó ekki í þá grein heldur fór Sigríð- ur Soffía í Listaháskólann eftir út- skrift úr MR. Þegar hún var í þann mund að klára námið í LHÍ barst henni afdrifaríkt starfstilboð um að dansa í sýningu hjá Ernu Ómars- dóttur, sem nú starfar sem list- rænn stjórnandi Íslenska dans- flokksins, í Frakklandi. „Þetta var og er stærsta tæki- færi lífs míns. Ég gleymi aldrei símtalinu þegar hún hringdi í mig,“ segir Sigríður Soffía og minnist þess að hún hafi verið í matsal LHÍ þegar símtalið barst. Hún dansaði með danshópi Ernu, Shalala, í um fjögur ár og ferðaðist með þeim um Evrópu. Á sama tíma dansaði Sigríður Soffía í verki eftir belgískan höfund og söng í óperu í Frakklandi. „Þetta var allt sem mann dreym- ir um sem einhvern lítinn bóhem úr LHÍ. Á einhverjum geggjuðum rauðvínsbörum að hlusta á djass, fara á leik- og danssýningar á hverju einasta kvöldi,“ segir Sigríð- ur Soffía um reynsluna. Þó henni hafi liðið vel á meginlandinu, þyrsti hana í að komast til Íslands og breiða út samtímadansinn. Út á land fór hún með sólóverk sem hún sýndi 32 sinnum, þar af einungis þrisvar eða fjórum sinnum í Reykjavík. „Mér fannst mjög gaman að koma inn á mismunandi staði og setja upp sýningu með tækni og leikmynd og ljósum og öllu,“ segir Sigríður Soffía. Jónas Sen tónlistar- maður var með í för og spilaði lif- andi tónlist á flygil undir dansinn. En Sigríður Soffía hefur reynt fyrir sér á fleiri sviðum listarinnar, til dæmis hefur hún hannað flug- eldasýningar, fyrst fyrir menning- arnótt Reykjavíkurborgar þrjú ár í röð. Einnig var hún fengin til þess að standa að flugeldasýningu í Barcelona sem var hálftíma löng og um tvær milljónir manna fylgdust með. Nú hefur Sigríður Soffía hannað verk úr blómum, líkjör og ilmvatn sem allt er sprottið úr þeim inn- blæstri sem hún hefur fundið í flug- eldunum. Hún komst nefnilega að því þegar hún hannaði sýninguna í Barcelona að flugeldar voru upp- runalega hannaðir „til að upphefja náttúruna“, en flestir flugeldar eru í grunninn hannaðir til þess að líkj- ast trjám eða blómum. „Það sem átti að upphefja náttúr- una er núna byrjað að tortíma henni. Nú erum við bara farin að menga svo ógeðslega mikið með ódýrri framleiðslu, ódýrri vöru, hættulegum eiturefnum,“ segir Sigríður Soffía, sem er ekki endi- lega á þeirri skoðun að banna eigi flugelda yfirhöfuð, frekar eigi að finna jafnvægi í þeim efnum. Hátt hlutfall af samtímadansi Eftir að hún uppgötvaði tengingu flugelda við blóm ákvað hún að nota blóm sem flugeldar byggjast á og rækta úr þeim verk sem sett var upp í Hallargarðinum og var þar í tvö sumur. Verkefnið hlóð sífellt utan á sig, til dæmis þegar hún átt- aði sig á því að öll blómin mætti borða og væri því hægt að nota í líkjör, „hinn fyrsta íslenska spritz“. „Það er mjög hátt hlutfall af samtímadansi í þessum drykk vegna þess að [hann er gerður] úr kóreógröfuðum blómum; þannig að við höldum því fram að það sé öruggt að þú munir finna fyrir frumlegum danshreyfingum brjót- ast út á þriðja glasi,“ segir Sigríður Soffía. Samhliða drykknum var hannaður ilmur og gengur hann, rétt eins og líkjörinn, undir nafninu Eldblóm. Drykkurinn verður fáanlegur í verslunum ÁTVR í haust en ilm- vatnið er uppselt sem stendur. Eins og farið hefur verið yfir hér er ferill Sigríðar Soffíu afskaplega fjölbreyttur en öll hennar verk tengjast þó dansi. „Allt sem ég geri kemur frá dansi. Jú, ég er að gera líkjör en þetta er dansdrykkur,“ segir Sigríður Soffía. Í þættinum nefnir hún t.a.m. að hún hafi hannað flugeldasýning- arnar eins og dansverk og að ilm- urinn sem hún hannaði ásamt Lilju sé „dansandi“. „Allt sem ég geri er dans. Svo er spurning hver útkoman verður,“ segir Sigríður Soffía. Morgunblaðið/Ágúst Óliver Danshöfundur „Allt sem ég geri er dans. Svo er spurning hver útkoman verður,“ segir Sigríður Soffía í nýjasta þætti Dagmála. Sköpun hennar hófst líklega í drullukökubakstri á barnsaldri en hefur nú blómstrað í allar áttir. Ljósmynd/Lilja Birgis Eldblóm Sigríður ásamt líkjörnum sem verður fáanlegur í ÁTVR í haust. „Allt sem ég geri kemur frá dansi“ - Fjölbreyttur ferill Sigríðar Soffíu til umræðu í nýjasta þætti Dagmála - Flugeldasýningar, verk úr blómum, líkjör og ilmur hafa komið úr smiðju hennar - Á allt rætur að rekja til dansins Verk sem upphaflega voru sett upp á West End í Lundúnum og í fram- haldi á Broadway í New York gerðu það gott á bandarísku leiklistarverð- laununum Tony sem afhent voru um nýliðna helgi. Voru það The Lehman Trilogy og Company sem sönkuðu að sér verðlaunum og hlaut það fyrr- nefnda verðlaun sem besta leikritið, fyrir bestu leikstjórn og besta leik- ara í aðalhlutverki. Höfundur verks- ins, Ben Power, sagði í þakkarræðu að hann hefði samið verkið sem óð til New York og leikstjóri sýningar- innar, Sam Mendes, sem einna þekktastur er fyrir kvikmyndir sín- ar, hreppti sín önnur Tony-verðlaun. Simon Russell Beale hlaut verðlaun- in sem besti leikari í aðalhlutverki í leikriti. Sýningin hlaut einnig verð- laun fyrir leikmynd og lýsingu. Besti enduruppfærði söngleik- urinn þótti Company og hlaut Patti LuPone verðlaun sem besta leik- kona í aðalhlutverki í söngleik. Þakkaði hún sérstaklega öllu fólkinu sem gætt hefði að öryggi þeirra sem tóku þátt í sýningunni í faraldrinum. Matt Doyle hlaut verðlaun sem besti aðalleikari í enduruppfærðum söng- leik, fyrir Company, og hlaut sýn- ingin auk þess verðlaun fyrir leik- mynd og leikstjórn. Lansbury heiðruð Verðlaun fyrir besta nýja söngleik hlaut A Strange Loop sem hlaut alls 11 tilnefningar. Söngleikur byggður á lögum Michaels Jacksons, MJ, hlaut einnig verðlaun fyrir besta aðalleikara, Myles Frost, auk þrennra annarra verðlauna, og Joaquina Kalukango hlaut verðlaun sem besta leikkona í nýjum söngleik fyrir Paradise Square. Af öðrum verðlaunum kvöldsins má nefna að leikkonan Angela Lansbury hlaut heiðursverðlaun fyrir ævistarfið en hún er orðin 96 ára og hefur hlotið fimm Tony-verðlaun á ferlinum. Fjölbreytni þótti einkenna Tony- verðlaunin að þessu sinni og segir í frétt The Guardian að sjö þeldökk leikskáld hafi átt verk sem voru til- nefnd. Lista yfir alla verðlaunahafa má finna á vef verðlaunanna, tonyawards.com. helgisnaer@mbl.is Frá West End yfir á Broadway - The Lehman Trilogy og Company gerðu það gott á Tony-verðlaununum AFP/Angela Weiss Hátíðarstund Höfundur og leikarar The Lehman Trilogy sem gerði það gott á Tony-verðlaunahátíðinni um nýliðna helgi. Leikarinn Simon Russell Beale fjórði frá vinstri og leikskáldið Ben Power þriðji frá hægri með verðlauna- gripina í höndunum. Tony-verðlaunin voru afhent í 75. sinn um helgina í borginni sem aldrei sefur, New York.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.