Morgunblaðið - 14.06.2022, Blaðsíða 29

Morgunblaðið - 14.06.2022, Blaðsíða 29
MENNING 29 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 14. JÚNÍ 2022 Nánari upplýsingar um sýningartíma á sambio.is TRYGGÐU ÞÉR MIÐA INNÁ Empire Rolling StoneLA Times BENEDICT CUMBERBATCH ELIZABETH OLSEN chiwetel ejiofor BENEDICT WONG xochitl gomez MICHAEL STÜHLBARG RACHEL MCadams U S A TO D AY 72% STÓRKOSTLEG NÝ FJÖLSKYLDUMYND ÚR TÖFRAHEIMI HARRY POTTER. SÝND MEÐ ÍSLENSKU TALI 96% Empire The Playlist BBC The sun Total FilmRogerEbert.com “Top Gun: Maverick is outstanding.” Breathtaking “It’s the BEST MOVIE OF THE YEAR!” “Might be the best movie in 10 years.” “Top Gun: Maverick is fantastic.” “Best Action Sequel Of All Time” “What going to the movies is all about” “You must see this one in the theater.” “a must see!” 89% Metnaðarfullt menningarverkefni var kynnt í gær í húsnæði félags- ins Íslenskrar grafíkur í Hafnar- húsi, verkefni sem brátt hefur göngu sína í samstarfi menning- ar- og viðskiptaráðuneytisins og sænska sendiráðsins og tengist rannsóknarferð Daniels Solanders til Íslands. Verkefnið mun standa yfir í tvö ár með þátttöku um 30 íslenskra samstarfsaðila, að því er fram kemur í tilkynningu frá menningar- og viðskiptaráðuneyt- inu. Verður sýningin Solander 250 – bréf frá Íslandi sýnd á ellefu stöð- um á landinu en tíu íslenskir myndlistarmenn koma að henni og voru þeir viðstaddir í gær ásamt Lilju Alfreðsdóttur, menn- ingar- og viðskiptaráðherra og Pär Ahlberger, sendiherra Sví- þjóðar á Íslandi. Segir í tilkynningu að tilefnið hafi verið að fagna þessum áfanga og að samstarfsverkefnið sé með þeim umfangsmeiri á sviði menningar sem erlent sendiráð hafi staðið að í samstarfi við ís- lensk stjórnvöld. Bók sem hafði mikil áhrif Um menningarverkefnið segir m.a. að Englendingurinn Joseph Banks hafi leitt vísindaleiðangur til Íslands árið 1772 og að með honum í för hafi verið náttúru- fræðingurinn sænski Daniel Sol- ander. Með í leiðangrinum hafi verið Uno von Troil sem síðar hafi orðið erkibiskup í Uppsölum og skrifaði hann bók um ferðina, Bref rörande en resa till Island eða Bréf frá Íslandi, sem var gef- in út árið 1777. Lýsing hans á Ís- landi er sögð hafa haft mikil áhrif í Evrópu 18. aldar og vakið áhuga nágranna okkar á landi og þjóð. „Áhrifa leiðangursins varð ekki síst vart í Svíþjóð, þar sem Bréf frá Íslandi átti þátt í að skapa til- finningu fyrir djúpum tengslum þjóðanna, í gegnum tungumál, sögu og menningu,“ segir m.a. í tilkynningu og að í samstarfi við menningar- og viðskiptaráðu- neytið muni sænska sendiráðið standa fyrir mikilli dagskrá tengdri rannsóknarferð Solanders sem muni standa yfir í tvö ár með þátttöku um 30 íslenskra sam- starfsaðila. „Þema verkefnisins er Solander 250 – Bréf frá Íslandi. Tímamóta- árið einkennist af nánu samtali lista og vísinda. Það er þver- menningarlegt og opnar á samtal milli norðurskauts- og Kyrrahafs- svæðisins og innan Norðurlanda. Tímamótaárið lítur jafnframt fram á við, inn í sameiginlega framtíð okkar. Verkefnið snýst um samtal vinaþjóðanna Íslands og Svíþjóðar um sameiginlega sögu, sem og loftslag, náttúru og menningu í fortíð, nútíð og fram- tíð,“ segir í tilkynningu og að ein- stök listasýning sé hornsteinn tímamótaársins. Í samstarfi við Ís- lenska grafík hafi tíu íslenskum listamönnum verið boðið að hug- leiða Ísland, Solander og leiðang- urinn árið 1772. „Einstakur viðburður“ Listamennirnir sem taka þátt í verkefninu eru Anna Líndal, Aðalheiður Valgeirsdóttir, Daði Guðbjörnsson, Gíslína Dögg Bjarkadóttir, Guðmundur Ármann Sigurjónsson, Iréne Jensen, Laura Valentino, Soffía Sæmundsdóttir, Valgerður Björnsdóttir og Viktor Hannesson. Tíu grafíklistaverk þeirra munu mynda sýningu sem heitir Solander 250: Bréf frá Ís- landi. Verður hún á ellefu stöðum víða um Ísland ásamt sýningunni Paradise Lost – Daniel Solander’s Legacy sem samanstendur af verkum eftir tíu listamenn frá Kyrrahafssvæðinu sem áður hafa verið sýnd á Nýja-Sjálandi, Ástralíu og Svíþjóð. „Þetta er einstakur viðburður, samtal í gegnum list milli norður- slóða og Kyrrahafs, hér á Íslandi. Vonast er einnig til þess að þetta veki áhuga meðal hinna fjölmörgu erlendu gesta Íslands. Auk þess er ætlunin, með öllu verkefninu árin 2022 og 2023, að vekja áhuga og forvitni barna á náttúruvís- indum og stórkostlegri flóru Ís- lands,“ segir að lokum í tilkynn- ingu. Tíu grafíkerar í Solander 250 - Umfangsmikið og þvermenningarlegt verkefni sem tengist rannsóknarferð Solanders til Íslands - Samstarf ráðuneytis, sænska sendiráðsins og grafíkera Morgunblaðið/Eggert Fögnuður Frá samkomunni í húsnæði félagsins Íslenskrar grafíkur í Hafnarhúsinu í gær. Kvikmyndavefurinn Variety greinir frá því að íslenska framleiðslufyrir- tækið Glassriver undirbúi gerð sjón- varpsþáttaraðar sem nefnist Maga- luf og verður með Steinþóri Hróari Steinþórssyni, þ.e. Steinda jr., í að- alhlutverki. Ragnar Bragason og Snjólaug Lúðvíksdóttir skrifa hand- ritið og verður verkefnið kynnt á Conecta Fiction-ráðstefnunni á Spáni. Í frétt Variety er rætt við framleiðandann Hörð Rúnarsson hjá Glassriver sem segir að þetta sé öflugt handritsskrifatvíeyki; Snjó- laug skrifi þrjá af sex þáttum og sjái til þess að kvenhlutverk verði mikil- væg. Stefnt er að því að Magnús Leifsson leikstýri þáttunum og segir í fréttinni að Magaluf sé létt, róm- antísk kómedía með dramatískum undirtóni. Þættirnir eiga að gerast árið 1979 og segja af Halla, sem Steindi leikur, sem heldur í örvænt- ingu til Mallorca til að vinna aftur hjarta Karenar, æskuástar sinnar. Gerist hann fararstjóri á eyjunni þar sem Karen er að vinna að heimildarmynd um fegurðar- samkeppni. Halli leiðir hóp ís- lenskra ferðamanna í pakkaferð og er þetta jafnframt fyrsta utanlands- ferðin hans. Þegar í ljós kemur að Karen á danskan kærasta syrtir í ál- inn hjá Halla. Hörður segir í samtali við Variety að á þessum tíma hafi Íslendingar farið með dósamat til Spánar af ótta við að borða mat heimamanna. Sumar persónur þátt- anna séu þó á undan sínum samtíma og þeirra á meðal Karen, sem telji fegurðarsamkeppnir karlrembu. Magaluf sé bæði þroskasaga karl- manns og heillar þjóðar þar sem fortíðin sé til skoðunar og hversu mikið íslensk þjóð hafi breyst. Hörð- ur segir þættina eiga eftir að höfða til breiðs aldurshóps. Steindi fer til Magaluf Steinþór Hróar Steinþórsson Snjólaug Lúðvíksdóttir

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.