Morgunblaðið - 28.06.2022, Side 24

Morgunblaðið - 28.06.2022, Side 24
24 DÆGRADVÖL MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 28. JÚNÍ 2022 90 ÁRA Sigurður fæddist á bænum Fornahvammi í Vopnafirði. Hann fór snemma á sjó og stundaði sjómennsku á höfum úti í yfir 50 ár. „Ég byrjaði í sjó- mennsku þegar ég var 12 ára og var rúmlega tvítugur þegar ég lét smíða bátinn Helgu ásamt Ólafi Jónssyni.“ Sigurður stundaði sjó- inn á sumrin í Vopna- firði en fór suður til Reykjavíkur á haustin og var þar á togurum á veturna. Hann fékk pláss á togaranum Mars haust- ið 1950 og lenti skjótt í miklu óveðri undan Vestfjörðum. „Aðrir togarar lágu allir í vari undir Grænuhlíð en á Mars hélt Gísli skipstjóri áfram að veiða. Ég hef aldrei verið eins sjóveikur um ævina enda þá enn óharðnaður 18 ára gutti. Svo fórum við suður á Selvogsbanka og mokveiddum.“ Sig- urður hætti á togurum 1960 og flutti sig yfir á síldveiðibátana. Eftir um 50 ár á sjó kom hann sér upp hjalla á bænum Melum í Kjós þar sem hann verkaði hákarl. Í seinni tíð hefur hann oft verið nefndur Siggi hákarl enda var hann á tíma stórtækur hákarlaverkandi og mikill sérfræðingur í þeim efnum. „Ég byrjaði á þessu sem unglingur heima á Vopnafirði en var mest í þessu eftir að ég hætti á sjó. Núna er ég alveg hættur þó að ég eigi alltaf hákarl hjá mér.“ Sigurður hafði gaman af því að dansa og var mikið í því á sínum yngri árum. FJÖLSKYLDA Sigurður var giftur Sólveigu Maríu Björnsdóttur, oft köll- uð Mæja, f. 15.8. 1922, d. 26.4. 2014. Þau eignuðust fjögur börn, Helgu Rós, f. 3.8. 1961, Björn Guðgeir, f. 16.7. 1963, Maríu Hlín. f. 27.8. 1964, og stúlkubarn, f. og d. 22.3. 1969. Foreldrar Sigurðar voru Guðmundur Skag- fjörð Guðmundsson, f. 5. október 1879, d. 15. apríl 1954, og Helga Gísla- dóttir, f. 24. apríl 1875, d. 24. apríl 1950. Sigurður Hólm Guðmundsson Stjörnuspá 21. mars - 19. apríl , Hrútur Búðu þig undir að þurfa að aðlag- ast breytingum en láttu þér ekki detta í hug að þetta ástand haldist óbreytt um alla ei- lífð. Einhver setur þér stólinn fyrir dyrnar. 20. apríl - 20. maí + Naut Þú færð hugsanlega óvænt tækifæri til þess að ferðast. Það rignir upp í nasirnar á manneskju sem þú þekkir, reyndu að forðast hana um tíma. 21. maí - 20. júní 6 Tvíburar Sumir leita til þín með mál sín í fullri alvöru, en svo eru þeir, sem eru bara að tékka á skoðunum þínum. Þú leggur nótt við dag til að klára framkvæmdir heima. 21. júní - 22. júlí 4 Krabbi Það skiptir engu máli hversu lengi þú talar, fólk er ekki að hlusta. Hikaðu ekki við að slá til og stökkva á tilboð sem þú færð. Þú hefur engu að tapa. 23. júlí - 22. ágúst Z Ljón Góðar hugmyndir læðast hægt og ró- lega að þér. Einhver atburðarás er komin af stað sem þú ræður engu um. Ekki missa móðinn. 23. ágúst - 22. sept. l Meyja Þú ættir endilega að gera ferðaáætl- anir fyrir árið. Þú vinnur best ef þú ert með skipulagið á hreinu. Ef þú staldrar við og hlustar á þína innri rödd færðu svar. 23. sept. - 22. okt. k Vog Eins og stendur stjórnar þú ferðinni í þínu lífi og berð ábyrgð á því að láta drauma þína rætast. Þú færð hrós frá ókunnugum. 23. okt. - 21. nóv. j Sporðdreki Hafðu ekki of miklar áhyggjur af öðru fólki, því þú þarft að hafa tíma fyrir sjálfa/-n þig. Veltu hverri krónu fyrir þér. 22. nóv. - 21. des. h Bogmaður Vertu eins og safnari og safn- aðu að þér vinum sem auðga líf þitt með skemmtilegum minningum og jákvæðum straumum. 22. des. - 19. janúar @ Steingeit Það hefur ekkert upp á sig að stinga höfðinu í sandinn, vandamálin hverfa ekki. Treystu innsæi þínu, það hefur gefist vel hingað til. 20. jan. - 18. febr. ? Vatnsberi Lífið hefur á sér margar hliðar og það getur stundum verið erfitt að velja réttu leiðina. Reyndu að sýna sanngirni. 19. feb. - 20. mars = Fiskar Þú hefur mikla þörf fyrir að bæta sjálfa/-n þig með einhverjum hætti. Þú greiðir götu vinar sem mun þakka þér síðar. S veinn Ragnarsson fædd- ist 28. júní 1962 í Reykjavík. Bjó hann í Hlíðahverfinu í Reykja- vík öll sín uppvaxtarár við rætur Öskjuhlíðar sem hafði sitt aðdráttarafl fyrir ungan mann. Eins og margir strákar í Hlíðahverfinu dróst Sveinn að hverfisfélaginu Val og æfði þar fótbolta, badminton og seinna körfubolta. Á sumrin lá svo leiðin í Borgarfjörðinn til afa og ömmu í sveitina í Þverárhlíð. „Þar átti ég mínar bestu stundir í náttúrunni með afa og ömmu sem voru í raun mínir sálufélagar. Eftir Hlíðaskól- ann tók við nám í húsasmíði við Fjölbrautaskólann í Breiðholti. Sérstakt var að taka strætó upp í Breiðholt og elta svo þá sem voru með skólatöskur, því ég hafði aldr- ei komið á slóðir skólans og vissi ekki hvar hann var. Þetta var meira hugmynd föður míns að ég færi í þetta nám þar sem ég var gjarnan að smíða eitthvað heima við og stelast í verkfærin hans. Ég var staðráðinn í að hefja nám í Menntaskólanum við Hamrahlíð enda hann í næstu götu og flestir vinirnir úr Hlíðaskóla á leiðinni í skólann. En svona breyttust þær ráðagerðir og á hinn besta veg og faðir minn vissi greinilega hvað hann var að gera.“ Eftir námið í húsasmíði starfaði Sveinn nokkur ár við smíðar en ákvað svo að mennta sig meira á því sviði. Lauk hann námi í bygg- ingartæknifræði 1998. Með námi starfaði hann hjá Sveinbirni Sig- urðssyni byggingaverktaka, síðar SS-verktakar, og var Sveinn þeirra fyrsti tæknimaður. „Gaman var að kynnast Sveinbirni Sigurðs- syni sem var goðsögn í verktaka- bransanum og er enn. Eftir nokk- ur ár hjá SS-verktökum starfaði ég hjá Verkfræðistofunni Fjöl- hönnun og fékk þar góð tækifæri og handleiðslu í framkvæmdafræð- um hjá Guðna Eiríkssyni og kann honum miklar þakkir fyrir.“ Sveinn stofnaði svo sitt eigið ráð- gjafarfyrirtæki 2005 en dró saman seglin 2008. Hann fór í meistara- nám ásamt því að vinna hjá Verkís verkfræðistofu. Ekki gafst Sveini þó tími til að ljúka náminu að fullu vegna anna hjá Verkís en þar vann hann til ársins 2013. „Ég hélt þá áfram störfum hjá eigin ráðgjafarfyrirtæki, Fram- kvæmdaráðgjöf, sem ég rek enn í dag. Ég hef sérhæft mig í bygg- ingar- og verkefnastjórnun fram- kvæmda fyrir verktaka og fjár- festa. Nokkur helstu verkefni undanfarin ár eru meðal annars Skuggahverfið í Reykjavík, RÚV- reiturinn, íbúðir í Austurhöfn og Íþróttamiðstöð Fram í Úlfars- árdal. Árið 2019 lét Sveinn gamlan draum rætast og keypti jörð í Borgarfirði. „Ég er þar aðeins að prófa mig áfram í hestamennsku. Til stendur að planta trjám í ein- hverjum mæli, en aðalverkefnið þar, sem og aðaláhugamálið þessi misserin, er að breyta útihúsum í sveitahótel sem ég stefni á að opna á næsta ári. Sum áhugamálin eru sem sagt náskyld vinnunni. Ætli ég verði ekki að teljast vinnualki eða þá bara ofvirkur og örugglega með athyglisbrest, því að vinnufélagarnir segja að ég sé gjarnan í öðrum heimi þegar verið er að tala við mig. En þannig Sveinn Ragnarsson – 60 ára Byggingartæknifræðingur og húsasmíðameistari Sveini er margt til lista lagt. Hann rekur ráðgjafarfyrirtæki, Framkvæmdaráðgjöf, en er að auki sveimhugi og hefur áhuga á andlegum málefnum og hinu óáþreifanlega. Lætur drauminn rætast í Borgarfirði Fjölskyldumaður Sveinn er mikill fjölskyldumaður og hann á fimm dætur. Hann býður þeim og mökum þeirra reglulega í mat og finnst líka gott að ferðast, en hann stefnir einmitt á að vera á Spáni á afmælisdaginn. Æskuslóðir Sveinn keypti sér jörð í Borgarfirði 2019 og hefur verið að prófa sig áfram í ýmsu en ætlar sér helst að breyta útihúsum í sveitahótel. Til hamingju með daginn

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.