Morgunblaðið - 28.06.2022, Blaðsíða 26

Morgunblaðið - 28.06.2022, Blaðsíða 26
26 ÍÞRÓTTIR MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 28. JÚNÍ 2022 Mjólkurbikar karla 16-liða úrslit: Kórdrengir – Afturelding ............... 2:1 (frl.) ÍA – Breiðablik ......................................... 2:3 Lengjudeild karla Grótta – Þróttur V.................................... 1:0 Staðan: Selfoss 8 5 2 1 19:10 17 Grótta 8 5 1 2 19:10 16 HK 7 5 0 2 14:8 15 Fylkir 8 4 2 2 21:10 14 Grindavík 8 3 4 1 12:8 13 Vestri 8 3 3 2 12:18 12 Fjölnir 8 3 2 3 16:14 11 Kórdrengir 8 2 4 2 12:12 10 Afturelding 8 2 3 3 10:11 9 Þór 8 1 2 5 8:18 5 KV 9 1 2 6 9:21 5 Þróttur V. 8 0 3 5 3:15 3 Bandaríkin Vancouver Whitecaps – New England 0:0 - Arnór Ingvi Traustason lék fyrstu 66 mínúturnar með New England sem er í sjötta sæti Austurdeildar MLS. Svíþjóð Kalmar – Värnamo.................................. 1:0 - Davíð Kristján Ólafsson lék allan leikinn fyrir Kalmar. Elfsborg – Varberg ................................. 4:1 - Sveinn Aron Guðjohnsen kom inn á sem varamaður á 59. mínútu og lagði upp mark fyrir Elfsborg. Hákon Rafn Valdimarsson var varamarkvörður hjá liðinu. - Oskar Tor Sverrisson var ekki í leik- mannahópi Varberg. Sirius – Gautaborg .................................. 1:2 - Aron Bjarnason lék allan leikinn fyrir Si- rius. - Adam Benediktsson var varamarkvörð- ur Gautaborgar. Staðan: Häcken 11 7 3 1 24:16 24 AIK 12 7 3 2 18:14 24 Djurgården 12 6 3 3 25:10 21 Hammarby 11 6 3 2 21:10 21 Malmö FF 12 6 3 3 13:10 21 Kalmar 11 6 1 4 14:9 19 Elfsborg 11 5 3 3 23:12 18 IFK Göteborg 11 5 2 4 13:11 17 Mjällby 11 4 4 3 11:10 16 Norrköping 11 4 3 4 15:13 15 Sirius 11 4 2 5 13:19 14 Värnamo 11 3 3 5 11:13 12 Varberg 11 3 2 6 8:19 11 Degerfors 11 2 1 8 9:24 7 Sundsvall 11 2 0 9 11:29 6 Helsingborg 12 1 2 9 10:20 5 B-deild: Brommapojkarna – Öster ...................... 1:1 - Alex Þór Hauksson lék allan leikinn fyrir Öster. Landskrona – Örebro.............................. 2:1 - Axel Óskar Andrésson lék allan leikinn fyrir Örebro. Norrköping – Uppsala ............................ 0:2 - Andrea Thorisson lék allan leikinn fyrir Uppsala. Noregur B-deild: Sogndal – Mjöndalen............................... 1:0 - Valdimar Þór Ingimundarson lék allan leikinn með Sogndal, Jónatan Ingi Jónsson fór af velli í uppbótartíma og Hörður Ingi Gunnarsson fór af velli á 75. mínútu. _ Efstu lið: Brann 29, Ranheim 23, Mjöndalen 22, Stabæk 20, Sogndal 20, Sandnes Ulf 19, KFUM Ósló 18, Start 16. Undankeppni HM kvenna A-riðill: Georgía – Írland ....................................... 0:9 _ Svíþjóð 19, Írland 11, Finnland 10, Sló- vakía 5, Georgía 0. Vináttulandsleikir kvenna Kósóvó – Norður-Makedónía.................. 4:0 Finnland – Japan...................................... 1:5 4.$--3795.$ Stúlkurnar í U18 ára landsliði Ís- lands í íshokkíi töpuðu 5:1 fyrir Ástralíu í fyrsta leik sínum á heimsmeistaramótinu í þessum aldursflokki í Istanbúl í Tyrklandi í gær. Katrín Rós Björnsdóttir skoraði mark Íslands eftir send- ingu frá Löru Mist Jóhannsdóttur. Ísland mætir Spáni í öðrum leik sínum á mótinu í dag en þessar þrjár þjóðir eru saman í riðli. Eft- ir það verður spilað um sæti á mótinu. Tap gegn Ástr- alíu í Istanbúl Undankeppni HM karla Norður- og Mið-Ameríka: Bandaríkin – Grænland ....................... 36:28 Mexíkó – Kúba...................................... 33:25 _ Úrslitakeppni um eitt sæti á HM 2023. Leikið er í Mexíkó. %$.62)0-# Grótta hafði naumlega betur gegn botnliði Þróttar úr Vogum í eina leik gærkvöldsins í 1. deild karla í knattspyrnu, Lengjudeildinni. Leiknum lauk með 1:0-sigri, þar sem Skagamaðurinn Sigurður Hrannar Þorsteinsson, lánsmaður frá ÍA, skoraði sigurmarkið undir lok fyrri hálfleiks. Með sigrinum fór Grótta upp um tvö sæti, úr fjórða sæti og upp í annað sætið. Liðið er nú með 16 stig eftir átta leiki, einu stigi á eftir toppliði Selfoss, sem hefur leikið jafnmarga leiki. Grótta upp í annað sæti Morgunblaðið/Eggert Annað sæti Arnar Þór Helgason, leikmaður Gróttu. Framtíð Elvars Más Friðrikssonar, landsliðsmanns í körfuknattleik, hjá ítalska félaginu Dethrona Tor- tona, er í óvissu. Elvar gekk til liðs við félagið fyrir aðeins þremur mánuðum en hefur lítið spilað. „Það mega bara sex útlendingar vera í hóp og ég var fenginn sem sjöundi útlendingurinn,“ sagði Elv- ar við mbl.is í gær. Ekki er útlit fyr- ir að hann verði einn sex útlendinga á næsta tímabili. „Þeir stóðu ekki alveg við það sem þeir sögðu við mig. Því veit ég eiginlega ekkert hvað framtíðin ber í skauti sér.“ Framtíð Elvars á Ítalíu í óvissu Morgunblaðið/Arnþór Birkisson Æfing Elvar fyrir landsliðsæfingu í gær. Hann íhugar nú framtíðina. KÖRFUBOLTI Gunnar Egill Daníelsson gunnaregill@mbl.is Íslenska karlalandsliðið í körfuknatt- leik mætir því hollenska í mikil- vægum leik í 1. umferð undankeppni HM 2023 í Ólafssal á Ásvöllum næst- komandi föstudagskvöld. Ísland er þegar búið að tryggja sér sæti í loka- umferð undankeppninnar. Hún sker endanlega úr um hvaða 12 Evrópu- þjóðir taka þátt á HM í Filippseyjum, Japan og Indónesíu. Þrátt fyrir það er leikurinn mikilvægur varðandi það hversu marga sigra Ísland tekur með sér í lokaumferðina, enda þýða fleiri stig aukna möguleika á þátttöku Ís- lands á HM í fyrsta skipti í sögunni. „Það er stærðarinnar munur á því að taka tvo sigra eða þrjá með okkur á næsta stig. En það verður erfitt. Öll þrjú liðin geta enn endað í fyrsta, öðru eða þriðja sæti í riðlinum. Ég efast ekki um að Hollendingum er fullkunnugt um það, þannig að þeir verða hungraðir. Þeir eru að berjast fyrir því að ná í sigra til að taka með sér á næsta stig. Það yrði afskaplega mikilvægt fyrir okkur ef við getum unnið á föstudag til þess að taka þrjá sigra með okkur á næsta stig,“ sagði Craig Pedersen landsliðsþjálfari í samtali við Morg- unblaðið fyrir æfingu liðsins í Ólafs- sal á Ásvöllum í gær. Gaman að komast á næsta stig Fjögur lið voru upphaflega í H- riðlinum en Alþjóðakörfuknattleiks- sambandið, FIBA, vísaði Rússlandi úr keppni og því fara öll þrjú liðin sem eftir eru í honum, Ísland, Hol- land og Ítalía, áfram. „Við vonuðumst auðvitað eftir því að komast áfram, jafnvel þótt Rússland hefði enn verið með. Hlutirnir æxluðust eins og þeir gerðu en það er skemmtilegt að kom- ast áfram á næsta stig. Ekki síst vegna þess að það er gaman fyrir leikmennina að fá að spila gegn þessum virkilega góðu lið- um. Það er bara öðruvísi að spila gegn NBA-leikmönnum og leik- mönnum úr EuroLeague. Það er mjög spennandi,“ bætti hann við. Spurður hvaða skoðun hann hefði á því að Rússum hafi verið vísað úr keppni sagði Pedersen: „Ég hef enga skoðun á því, þannig. Manni virtist það fremur augljóst að þetta færi á þennan hátt miðað við ákvarðanir sem voru teknar hjá samböndum í knattspyrnu, handbolta og fleiri íþróttum. Þetta kom því ekkert á óvart.“ Martins sárt saknað Í fyrri leik Íslands og Hollands ytra í nóvember síðastliðnum fór Martin Hermannsson á kostum og skoraði 27 stig í naumum 79:77-sigri. Pedersen sagði það morgunljóst að hans yrði sárt saknað, en Martin sleit krossband í síðasta mánuði og verður því lengi frá. „Það er mikill missir að honum. Við skulum horfast í augu við það að hann er leikmaður sem er að spila í bestu deildinni, í einu besta liði hennar og er auk þess einn mikilvæg- asti leikmaður liðs síns. Þannig að um mikinn missi er að ræða en undanfarin ár, þegar okkur hefur vantað leikmenn, höfum við veitt öðrum leikmönnum tækifæri og vonandi munu þeir stíga inn og bæta leik sinn til þess að hjálpa okkur. Ég tel okkur ekki geta fyllt skarð Mart- ins en við erum með leikmenn sem geta bætt sig og lagt sitt af mörkum fyrir liðið.“ Stór æfingahópur Þar sem keppnistímabili þeirra fé- lagsliða sem leikmenn íslenska lands- liðsins leika með er lokið, gafst liðinu færi á mun lengri undirbúningi með mun stærri æfingahópi en venjan er. „Það hefur verið afar mikilvægt. Þetta hefur verið mjög gott þótt þess- ir leikmenn séu alltaf fljótir að koma sér á sömu blaðsíðu og slípa sig sam- an á ný. Við sjáum það nú þegar á fyrsta degi, sem er frábært. Þessir aukadagar hafa gert okkur kleift að bæta við nokkrum hlutum til við- bótar, nýjum hlutum sem við getum nýtt okkur og öðlast sjálfstraust við að framkvæma þá. Það hefur verið frábært. Við erum búnir að endurheimta leikmenn sem hafa verið liðinu mik- ilvægir en hafa verið fjarverandi um skeið. Það er gott að koma þeim aftur inn í hlutina og venjast því hvernig hinir leikmennirnir spila. Þetta hefur verið mjög jákvætt og góð blanda af fínu línunni á milli ágætis æfinga- magns en að fara sér ekki um of í hraðanum,“ hélt hann áfram. Reyna að undirbúa sem flesta Upphaflega komu 26 leikmenn saman til æfinga um þarsíðustu helgi. Í gær var tilkynnt um þá 16 leikmenn sem munu æfa fyrir leikinn á föstu- dag og freista þess að vera hluti af 12 manna hópi á leikdegi. Var það erfitt fyrir Pedersen að skera æfingahóp- inn niður og bæta um leið við nokkr- um leikmönnum? „Já það var erfitt en það sem við erum að gera núna, með þessum 16 leikmönnum, er til dæmis líka að líta til landsleikjagluggans í ágúst, því það gæti verið að það verði ekki hægt að velja tiltekna leikmenn. Við erum að reyna að undirbúa eins marga leik- menn og mögulegt er, svo að ef við þurfum að kalla einhvern til hafi sá leikmaður í það minnsta fengið smjörþefinn af hugmyndafræði okk- ar, svo þeim sé unnt að komast fljótar á sömu blaðsíðu ef þeir verða valdir,“ sagði hann að lokum. Stór munur á því að vinna tvo eða þrjá sigra - Ísland mætir Hollandi í lokaleik 1. umferðar - Þegar komið í lokaumferðina Morgunblaðið/Arnþór Birkisson HM Craig Pedersen er spenntur fyrir því að taka þátt í lokaumferð und- ankeppni HM 2023 en vill fyrst ná í mikilvægan sigur gegn Hollandi. Sextán manna hópurinn, sem Craig Pedersen tilkynnti í gær fyrir leikinn gegn Hollandi á föstudagskvöld, er þannig skipaður en fækkað verður nið- ur í tólf leikmenn fyrir leikinn. Landsleikjafjöldi fylgir: Hörður Axel Vilhjálmsson, Keflavík ........................................................... 86 Haukur Helgi Briem Pálsson, Njarðvík ...................................................... 68 Ægir Þór Steinarsson, Gipuzkoa (Spáni).................................................... 68 Elvar Már Friðriksson, Dethrona Tortona (Ítalíu).................................... 60 Ragnar Ágúst Nathanaelsson, Hamri ......................................................... 57 Tryggvi Snær Hlinason, Zaragoza (Spáni)................................................. 51 Ólafur Ólafsson, Grindavík........................................................................... 49 Kristinn Pálsson, Aris Leeuwarden (Hollandi) .......................................... 26 Kári Jónsson, Val............................................................................................ 26 Gunnar Ólafsson, Stjörnunni ........................................................................ 24 Þórir Guðmundur Þorbjarnason, Landstede Hammers (Hollandi)......... 18 Jón Axel Guðmundsson, Crailsheim (Þýskalandi) ..................................... 17 Sigtryggur Arnar Björnsson, Tindastóli .................................................... 14 Hilmar Smári Henningsson, Haukum ......................................................... 10 Styrmir Snær Þrastarson, Davidson University (Bandaríkjunum)........... 2 Hilmar Pétursson, Breiðabliki ....................................................................... 0 _ Ísland hefur unnið tvo leiki af þremur í fyrri undanriðli HM, úti gegn Hollandi og heima gegn Ítalíu, en tapaði útileiknum gegn Ítalíu. _ Liðin þrjú fara öll í seinni hluta undankeppninnar og taka úrslitin með sér en mæta þar Spáni, Georgíu og síðan annað hvort Úkraínu eða Norður- Makedóníu. Þrjú efstu liðin í þeim riðli komast á HM 2023 sem fram fer í Japan, Indónesíu og á Filippseyjum. Sextán manna hópur Íslands

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.