Morgunblaðið - 28.06.2022, Blaðsíða 25

Morgunblaðið - 28.06.2022, Blaðsíða 25
DÆGRADVÖL 25 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 28. JÚNÍ 2022 „„KISI Á KLIKK“ EFTIR DR. SEUSS. BÖNNUÐ FYRIR AÐ LÝSA KÖTTUM SEM STURLUÐUM.“ „ÞÚ ERT BETUR SETTUR HÉR Í VINNUNNI EN Í RÚMINU HEIMA AÐ VORKENNA SJÁLFUM ÞÉR.“ Ferdinand Hrólfur hræðilegi Grettir ... gott furunála- freyðibað. Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim UngerHermann REIPTOG VIÐ ÍKORNA! ÓKEI, NOKKRA ÍKORNA FYRSTA UMRÆÐUEFNIÐ FYRIRORUSTU DAGSINS ER … LIÐHLAUP! kemur annað áhugamál til sög- unnar. Áhugi á andlegum málum sem sprottið er af næmi fyrir hinu óáþreifanlega. Ég hef grúskað töluvert í þeim málum í nokkra áratugi. Þannig að ég les mikið um andann og ferðalag hans. Þótt vinnan og áhugamálin hafi tekið mikla orku til sín skipta dæturnar fimm og afleggjarar miklu máli og sú hefð hefur mynd- ast að bjóða þeim og mökum í mat vikulega. Mjög mikilvægar stundir enda fjölskyldumaður mikill. Ferðalög eru fastur hluti af tilver- unni og eru Spánn og Ítalía í uppáhaldi. Ég stefni einmitt á að vera á Spáni á afmælisdaginn. Fjölskylda Dætur Sveins eru: 1) Sigrún Þóra, f. 22.6. 1988, sálfræðingur og doktorsnemi. Maki hennar er Stefnir Kristjánsson verkfræð- ingur. Þau eiga soninn Ragnar Fróða, f. 19.2 2022; 2) Agla Eir, f. 17.3. 1993, lögfræðingur. Maki hennar er Nökkvi Páll Jónsson. Þau eiga dæturnar Bríeti, f. 10.2. 2017, og Gígju, f. 3.3. 2022; 3) Birta Fönn, 10.10. 1996, arkitekt. Maki hennar er Sigmar Bjarni Sigurðsson tölvunarfræðingur; 4) Theodóra, f. 22.8. 2002, stúdent; 5) Katrín Þóra, f. 25.2. 2010, grunn- skólanemi. Systkini Sveins eru: Gísli Ragn- arsson, f. 13.3. 1948, sérfræðingur hjá Decode, og Sigríður Ragnars- dóttir, f. 26.12. 1960, sérfræð- ingur hjá Íslandsstofu. Foreldrar Sveins eru: Ragnar Ólafsson, f. 2.6. 1927, fyrrverandi aðaldeild- arstjóri hjá Skattstofu Reykjavík- ur, og Theódóra Guðmundsdóttir, f. 7.4. 1929, húsmóðir og síðar starfsmaður hjá Handprjóna- sambandi Íslands. Sveinn Ragnarsson Elín Guðbjörg Guðmundsdóttir Stóru-Háeyri, Eyrarbakka Gísli Kjartansson prestur á Eyvindarhólum Sigríður Gísladóttir húsfreyja í Skaftafelli í Öræfasveit Guðmundur Bjarnason bóndi í Skaftafelli í Öræfasveit Theodóra Guðmundsdóttir starfsmaður hjá Handprjónasambandi Íslands Þuríður Runólfdóttir húsfreyja á Hofi Bjarni Jónsson bóndi í Hofi í Öræfasveit Þórdís Halldóra húsfreyja á Litlu Brekku Jón Jónsson bóndi og sjómaður á Litlu Brekku á Grímsstaðaholti Sigríður Jónsdóttir húsfreyja í Kvíum Ólafur Eggertsson bóndi í Kvíum í Þverárhlíð Margrét Ólafsdóttir húsfreyja í Kvíum Eggert Sigurðsson bóndi í Kvíum í Þverárhlíð Ætt Sveins Ragnarssonar Ragnar Ólafsson deildarstjóri hjá Skattstofu Reykjavíkur Á Jónsmessu 24. júní orti Hóm- fríður Bjartmarsdóttir og setti á Boðnarmjöð: Frassa veður úti er eða bleytuhíming köld norðan þrasi og þokusmér það verður engin sól í kvöld. Blaut og hrakin blómin öll bágt eiga skepnur víða. Í nótt kom aftur fönn í fjöll Nú fer ég að detta íða. Ingólfur Ómar sendi mér vísu og nefnist sumarnótt: Faðminn býður friðsæl nótt foldu geislar hjúpa. Blærinn hjalar blítt og rótt blómin höfði drúpa. Enn gaukaði Ingólfur Ómar að mér vísu sem vert er að hafa í huga þegar kemur að vísnagerð: Alltaf tek ég af því mið enda þarft að muna. Ef stöku geri styðst ég við stuðlasetninguna. Á Boðnarmiði yrkir Hallmundur Guðmundsson og kallar Hyggindi: Þegar fátt er sykursætt og sumarið komið í skrúfuna, – þá er fínt að fá sig klætt í föðurlandið og húfuna. Morgunvísa eftir Guðmund Arn- finnsson: Blikar loftsins bláa höll, bjartar öldur tifa, glóa blóm um grænan völl, gott er nú að lifa. Friðrik Steingrímsson yrkir og liggur vel á honum: Irish Coffee er ég með og á því dreypi. Hlýnar mér um hjartarætur, hýrgar geðið dropinn sætur. Dagbjartur Dagbjartsson skrif- ar: „Sem krakki var ég í sveit hjá ágætum systkinum og sérstaklega önnur systirin mikil áhugakona um gróður og garðyrkju. Við jarð- arför hennar varð þessi til“: Lagt í gröf er lúið hold, lifa gömul kynni, færð er gróðri og gróðurmold gjöf í hinsta sinni. Gunnar J. Straumland hefur lög að mæla: Kærleikurinn kærir sig kollóttan um lit og kyn, greiðir úr og gleður þig, gott er að eiga slíkan vin. Vísast okkar veröld köld verður að flestu leyti ef hatrið látum hafa völd í hræðslunnar föruneyti. Halldór Blöndal halldorblondal@simnet.is Vísnahorn Frassa veður á Jónsmessu

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.