Morgunblaðið - 28.06.2022, Blaðsíða 28

Morgunblaðið - 28.06.2022, Blaðsíða 28
28 MENNING MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 28. JÚNÍ 2022 Ragnhildur Þrastardóttir ragnhildur@mbl.is Hugur listamannsins Hugleiks Dagssonar leitar ósjálfrátt að því versta í mannkyninu og því sem er hlægilegt við það. Hann segir það ekki meðvitaða ákvörðun hjá sér að gera grín að því sem „ekki má“. Hugleikur er viðmælandi í nýjasta þætti Dagmála, viðtalsþátta sem aðgengilegir eru áskrifendum Morgunblaðsins. Hugleikur er hvað þekktastur fyrir myndasögur sínar en hann er einnig uppistandari og handritshöf- undur. Það hefur heyrst oftar en einu sinni að Hugleikur geti sagt ýmislegt sem aðrir yrðu gagnrýndir harðlega fyrir að segja. Í þættinum ræðir Hugleikur m.a. um það sem má og ekki má gera grín að. Hann stendur sjálfur í þeirri trú að það sé mögulegt að gera grín að öllu en máli skipti hvað sé sagt, hver segi það, hvar viðkom- andi segi það og hvernig. Þegar hann fær ábendingar um grín sem þykir ekki við hæfi lítur hann á það sem tækifæri til þess að þróa grínið betur. „Mér hefur alltaf fundist þessi svokallaði PC-kúltúr mjög nærandi fyrirbæri fyrir sköpun,“ segir Hug- leikur og vísar til menningarpóli- tískrar réttsýni. Spurður hvort það þurfi ekki að vera hægt að gera grín að öllu, líka því sem erfitt er að ræða, jánkar Hugleikur því. „Að gera grín að einhverju er ekki að gera lítið úr því. Að gera grín að einhverju er að vekja at- hygli á því, eða er í raun ein leið til þess að [takast á] við það. Að hunsa það, tala ekkert um það – það er verra en gera grín að því,“ segir Hugleikur. Hann minnist þess að eitt sinn hafi kona komið upp að honum á bar og sagt hann vera alltaf að reyna að móðga fólk. „Það er eins og ég sé með lista yf- ir það sem ég á ekki að gera grín að og geri bara grín að því. Það er ekki viljandi,“ segir Hugleikur. „Ósjálf- rátt leitar hugur minn að því versta í mannkyninu og að finna eitthvað hlægilegt við það.“ Hugleikur hefur teiknað síðan hann man eftir sér. Hann ætlaði sér alltaf að teikna flóknar myndasögur en tilviljun olli því að spýtukarlar urðu hans einkennismerki og hafa bækur hans með slíkum fígúrum verið gefnar út í tugum landa. Fæddust á Seyðisfirði Spýtukarla-sögurnar fæddust þegar Hugleikur stundaði nám við Listaháskóla Íslands. Hann hafði farið á Seyðisfjörð með tveimur öðr- um listnemum til þess að taka þátt í myndlistarsýningu. Hann var með tvö eða þrjú verk á sýningunni en fannst vanta eitt til viðbótar. Þá byrjaði hann að teikna spýtukarla sem viðhöfðu það sem flestir myndu telja óviðeigandi ummæli. Á 30 mín- útum teiknaði hann jafnmargar slík- ar teikningar og kom þeim fyrir á borði á listsýningunni þar sem gest- ir og gangandi gátu flett í herleg- heitunum. „Þá tók ég sumsé eftir því að fólk var að hlæja,“ segir Hugleikur, sem í kjölfarið fór með bunkann upp í Listaháskóla og bætti við. „Fólk fór að koma reglulega að borðinu mínu til þess að athuga hvort ég væri búinn að gera eitt- hvað nýtt,“ segir Hugleikur sem áttaði sig þá á því að hann væri með eitthvað í höndunum. Fimm árum síðar var hann farinn að starfa við að teikna myndasögur í þessum stíl. „Þetta var algjör slysni í algjöru hugsunarleysi. Það er rosalega heppilegt að ég hafi byrjað að teikna þetta. Það er skrýtið að hugsa til þess enn þá þegar ég er að teikna þessa spýtukarla að þetta sé vinnan mín, að þetta fór þessa leið og að mér tókst að láta drauminn rætast,“ segir Hugleikur sem telur húmor felast í því þegar einfaldar teikningar sem þessar mæta skila- boðum í hræðilegri kantinum. „Margar af þessum teikningum mínum væru ekki svona fyndnar ef þær væru ekki svona einfaldar.“ Hugleikur var félagsfælinn sem barn og fylgir það honum enn í dag. Því kom það honum sjálfum á óvart að hann hefði gaman af því að vera í uppistandi. Ari Eldjárn, uppistand- ari og frændi Hugleiks, fékk Hug- leik út í þá sálma nokkrum árum eftir að Hugleikur byrjaði að gefa út myndasögubækur. „Hvernig ég kom mér upp á svið veit ég ekki enn þá. Ég skil ekki hvað olli því,“ segir Hugleikur sem telur að tilhugsunin um að sjá eftir því alla ævi að hafa ekki gripið tækifærið hafi mögulega orðið til þess að hann dreif sig upp á svið. Það gekk svona líka ljómandi vel og hann gat ekki annað en haldið áfram. Finnar myrkari en Íslendingar Hugleikur er sem stendur búsett- ur í Berlín og hefur farið með uppi- stand þar og annars staðar erlendis, t.a.m. í Finnlandi. Þar er hann vin- sæll en Finnar voru fyrstir til að gefa út bækur eftir hann á öðru tungumáli en Íslandi. „Þeir eru frekar líkir okkur. Þeir eru eiginlega myrkari,“ segir Hug- leikur um Finna. „Þegar ég fer til Finnlands fæ ég hvatningu til þess að fara lengra í myrkrinu með brandarana. Þeir kunna að meta svartan húmor betur en Íslendingar. Ég stend sjálfan mig að því að hækka þann stuðul þegar ég fer til Finnlands – gerast myrkari.“ Í Berlín er senan aftur á móti al- þjóðleg og þar lækkar Hugleikur stuðulinn fyrir myrkrið í uppistand- inu sínu. „Ég er að skemmta með grín- istum frá öllum heimshornum og áhorfendurnir eru frá öllum heims- hornum. Að því leyti geturðu ekki talað við svona fjölmenningarhóp eins og þeir séu allir Finnar,“ segir Hugleikur. Spurður hvort það sé ekki erfitt að skemmta svo fjölbreyttum hópi segir hann það skemmtilegt og að svona fjölbreyttur hópur sé „góður æfingavöllur“. Í Berlín getur hann þannig farið með sama uppistandið á mismunandi staði og áhorfendur hlæja á mismunandi stöðum, allt eftir samsetningunni hverju sinni. Íslenskur E.T. á leiðinni Hugleikur skrifaði handrit að sjónvarpsþáttunum Hulli sem voru sýndir á RÚV í tveimur þáttaröð- um. Þá hefur hann einnig skrifað grínatriði o.fl. Á teikniborðinu nú er hjá honum handrit að kvikmynd, sem hann er sem stendur einungis að skrifa fyrir sjálfan sig. Án þess að fara of djúpt út í smáatriði um myndina segir Hugleikur um ís- lenska E.T. að ræða og vísar þá til heimsfrægrar kvikmyndar um sam- nefnda geimveru. Morgunblaðið/Kristófer Liljar Svartur húmor „Þegar ég fer til Finnlands fæ ég hvatningu til þess að fara lengra í myrkrinu með brandarana. Þeir kunna að meta svartan húmor betur en Íslendingar,“ segir Hugleikur Dagsson í nýjasta þætti Dagmála. Leitar að því versta í mannkyninu - Gagnrýni er tækifæri til þróunar grínsins - „Að gera grín að einhverju er ekki að gera lítið úr því,“ segir Hugleikur - Lét drauminn rætast með spýtukörlum sem urðu til í hugsunarleysi Íslenskar bókmenntir verða í önd- vegi á bókmenntahátíðinni Authors’ Reading Month sem fram fer í Tékk- landi og Slóvakíu í júlí og koma tugir íslenskra höfunda fram á henni í ýmsum borgum þessara tveggja landa. Miðstöð íslenskra bókmennta á í samstarfi við hátíðina um skipu- lag og útfærslu. Segir í tilkynningu frá miðstöðinni að íslenskir rithöfundar og bók- menntir þeirra veki sífellt meiri at- hygli víða um heim. „Í júlímánuði verða íslenskar bók- menntir í forgrunni á bókmennta- hátíðinni Mesíc autorského ètení eða Authors’ Reading Month sem fram fer í fjórum borgum í Tékklandi og Slóvakíu. Um 30 íslenskir höfundar taka þátt í hátíðinni og lesa úr verk- um sínum í borgunum fjórum; Brno, Bratislava, Ostrava og Košice. Á hverjum degi í júlí býðst íbúum þessara borga og öðrum gestum að kynnast íslenskum höfundum ásamt höfundum frá Tékklandi og Slóvak- íu,“ segir í tilkynningunni og að há- tíð þessi sé ein sú stærsta sem hald- in er í þessum hluta Evrópu og hafi heiðursþátttaka Íslands nú þegar vakið mikla athygli í fjölmiðlum ytra. Íslenskar bókmenntir hafi ver- ið þýddar á tékknesku og slóvak- ísku, þökk sé góðum þýðendum, og ætla megi að aukinn áhugi kalli á frekari tækifæri höfundanna í lönd- unum tveimur. Lesa upp í fjórum borgum Höfundarnir sem taka þátt í hátíð- inni eru Andri Snær Magnason, Auður Jónsdóttir, Bergsveinn Birg- isson, Bergur Ebbi, Bergþóra Snæ- björnsdóttir, Bragi Ólafsson, Bragi Páll Sigurðsson, Dóri DNA, Einar Kárason, Eiríkur Örn Norðdahl, Gerður Kristný, Halldór Armand, Hallgrímur Helgason, Hildur Knútsdóttir, Jón Gnarr, Jón Kalman Stefánsson, Jón Magnús Arnarsson, Kristín Eiríksdóttir, Kristín Ómars- dóttir, Kristín Svava Tómasdóttir, María Elísabet Bragadóttir, Oddný Eir Ævarsdóttir, Sigrún Pálsdóttir, Sigríður Hagalín Björnsdóttir, Sig- urbjörg Þrastardóttir, Sjón, Sverrir Norland, Valgerður Ólafsdóttir, Þóra Hjörleifsdóttir og Þórdís Helgadóttir. Frekar fróðleik má finna á face- booksíðu hátíðarinnar á slóðinni facebook.com/autorskecten. Íslenskar bókmenntir í brennidepli - 30 íslenskir höfundar koma fram í Authors’ Reading Month í Tékklandi og Slóvakíu - Miðstöð íslenskra bókmennta tekur þátt í skipulagi og útfærslu Bragi Ólafsson Gerður Kristný Halldór Armand Ásgeirsson Hildur Knútsdóttir Oddný Eir Ævarsdóttir Sigríður Hagalín Björnsdóttir Jón Kalman Stefánsson Þórdís Helgadóttir Nokkrir þeirra tónlistarmanna sem fram komu á Glastonbury- tónlistarhátíð- inni á Englandi, sem lauk um helgina, tjáðu sig um umdeild- an dóm Hæsta- réttar Banda- ríkjanna sem kveðinn var upp í síðustu viku og sneri eldri dómi réttarins í máli Roe gegn Wade frá 1973. Hefur hann þau réttaráhrif að einstök ríki Bandaríkjanna geta nú sett lög sem banna þungunarrof. Vöktu nokkrir tónlistarmanna at- hygli á þessari sviptingu á frelsi kvenna. Nýsjálenska söngkonan Lorde var ómyrk í máli og sendi hæsta- rétti kaldar kveðjur með f-orðinu og ávarpaði konur sérstaklega og sagði líkama þeirra undir stjórn annarra og hlutgerða allt frá fæð- ingu. Af öðrum sem fordæmdu dóminn má nefna Billie Eilish, Oli- viu Rodrigo, Idles og Phoebe Brid- gers og Kendrick Lamarr lét einnig í sér heyra. Eilish sagði daginn sem dómurinn var kveðinn upp svartan í sögu kvenna í Bandaríkjunum. Fordæmdu dóm um þungunarrof Lorde

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.