Morgunblaðið - 20.07.2022, Blaðsíða 10
10 FRÉTTIR
Innlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 20. JÚLÍ 2022
Suðurlandsbraut 26 Sími 587 2700
Opið 11-18 virka daga innlifun.is
Skoðið fleiri innréttingar á
innlifun.is
Sigtryggur Sigtryggsson
sisi@mbl.is
Áformað er að nýtt íbúðahverfi með
allt að 360 íbúðum bætist við á
svæðinu vestan og norðan Leir-
tjarnar í Úlfarsárdal. Nú þegar eru
í byggingu íbúðarhús nokkur við
Leirtjörn, þ.e. við göturnar Silfra-
tjörn, Rökkvatjörn, Jarpstjörn og
Gæfutjörn.
Umhverfis- og skipulagsráð
Reykjavíkur samþykkti skipulags-
lýsingu hverfisins á fundi sínum 29.
júní sl. en framundan er vinna við
deiliskipulagið sjálft. Stefnt er að
markvissu samráðsferli á skipulags-
tímabilinu.
Tillaga auglýst næsta vor
Vinna við tillögu að nýju deili-
skipulagi mun standa fram á næsta
ár en búist er við því að deiliskipu-
lagstillaga verði auglýst næsta vor
og brugðist við athugasemdum í
framhaldinu, að því er fram kemur
á vef Reykjavíkurborgar.
Þar kemur fram að núverandi
íbúðahverfi í Úlfarsárdal hefur ver-
ið í uppbyggingu síðan 2006 og hafi
nú öllum lóðum verið úthlutað.
Hverfið sé því nærri því fullbyggt.
Lokið er uppbyggingu á skólum,
bókasafni, sundlaug og öðrum þjón-
ustustofnunum og nýlega voru
íþróttamannvirki Fram tekin í notk-
un.
Í núverandi deiliskipulagi fyrir
Úlfarsárdal, sem tók gildi árið 2018,
er fjallað um uppbyggingarsvæði
norðan Skyggnisbrautar, við Leir-
tjörn: „Reiknað er með að nýtt
byggingarsvæði við Leirtjörn verði
ríflega sex hektarar að stærð og þar
rúmist um 360 íbúðir í fjölbýlis-
húsum og sérbýlishúsum, aðallega
raðhúsum. Fjölbýlishúsin eru á lóð-
um við Skyggnisbraut en raðhúsin
móta jaðar byggðarinnar við opna
náttúru Úlfarsfells.“ Horft verður
til þess við gerð nýs deiliskipulags.
Byggðin verður að hluta til fyrir
eldra fólk en fyrir liggja samningar
um uppbyggingu lífsgæðakjarna,
húsnæðisuppbyggingu fyrir eldri
borgara með fjölbreyttu framboði á
þjónustu í nærumhverfinu, meðal
annars á þessu svæði, segir á
heimasíðu borgarinnar.
Við Leirtjörn í Úlfarsárdal, í
Gufunesi og við Ártúnshöfða er gert
ráð fyrir allt að 300 íbúðum fyrir
eldri borgara. Þegar er ákveðið að
ganga til samninga við Samtök aldr-
aðra og Leigufélag aldraðra, eins og
tilkynnt var í byrjun maí.
Verslun og þjónusta í hverfinu
Uppbygging fyrir verslun og
þjónustu er hafin á lóð á núverandi
Leirtjarnarsvæði. Í tillögu að nýju
deiliskipulagi verður gert ráð fyrir
íbúðabyggð með möguleika á sam-
félagsþjónustu, til dæmis hjúkrun-
arheimili, þjónustukjörnum eða
leikskóla. Gert er ráð fyrir að nýt-
ingarhlutfall alls svæðisins geti orð-
ið 0,6-0,7. Ekki sé hægt að fastsetja
slíkt þar sem kortleggja þarf hvort
sprungur eru á svæðinu, líkt og á
því svæði sem nú er uppbyggt. Gert
er ráð fyrir að byggingar verði 2-5
hæða en falli að sama skapi að úti-
vistarsvæði og núverandi byggð.
Íbúðir rísi við Úlfarsfell
- Skipulagslýsing samþykkt á nýju hverfi vestan og norðan Leirtjarnar - Þar
rúmist um 360 íbúðir í fjölbýlis- og sérbýlishúsum - Deiliskipulag næsta vor
Morgunblaðið/sisi
Úlfarsfell Hér rís hið nýja hverfi í framtíðinni. Aðeins glittir í Leirtjörnina fyrir ofan gulu gröfuna. Nú þegar hafa nokkur hús risið við Leirtjörn.
Ljósmynd/reykjavik.is
Leirtjörn Útlínur nýrrar byggðar eru sýndar með rauðri línu. Leirtjörn er
til hægri á loftmyndinni. Í nágrenni við byggðina er gott svæði til útivistar.
Staðfest kórónu-
veirusmit frá því
kórónuveiru-
faraldurinn
hófst fóru um
um síðustu helgi
yfir 200 þúsund.
Þetta kemur
fram á vefnum
covid.is þar sem
birtar eru upp-
lýsingar um
fjölda smita og fleira tengt far-
aldrinum. Þar kemur einnig fram
að 5.116 hafa veikst oftar en einu
sinni af völdum veirunnar en
53,3% íbúa hér á landi hafa
greinst með sjúkdóminn Covid-19.
Alls hafa 179 látist af völdum sjúk-
dómsins.
Á mánudag lágu 30 á sjúkrahúsi
með sjúkdóminn, þar af 2 á gjör-
gæsludeild. Þann dag greindust
258 með Covid-19.
Staðfest smit komin
yfir 200 þúsund
Sýni tekið vegna
kórónuveiru.
Willum Þór Þórs-
son heilbrigðis-
ráðherra segir
mikilvægt að
benda á að ekki
liggur fyrir til-
laga, útfærsla
eða frumvarp til
laga um afnám
refsingar neyslu-
skammta.
Greint var frá
því um helgina að Willum hygðist
leggja fram frumvarp um afnám
refsingar fyrir veikasta hóp sam-
félagsins í tilteknum tilvikum með
tiltekið magn og efni ávana- og
fíkniefna og hafa áformin verið birt
í samráðsgátt stjórnvalda.
Gagnrýnt hefur verið að einungis
eigi að afnema refsinguna fyrir til-
tekinn hóp fólks, slíkt sé ekki fram-
kvæmanlegt og jaðarsetji fólk.
Meðal annars sagði Halldóra
Mogensen, formaður þingflokks Pí-
rata, við Morgunblaðið að fulltrúar
stórs hluta refsivörslukerfisins
sætu inni í starfshópi sem fjallar
um málið og hugsanlega væri verið
að gera einhverjar málamiðlanir
þar.
„Málið er í breiðu samráði í
starfshópnum en honum var falið
að skilgreina dagskammt eða
neysluskammt í tengslum við breyt-
ingar á lögum um ávana- og fíkni-
nefni. Sú vinna er í raun forsenda
framgangs málsins og það verkefni
hefur ekki breyst,“ segir í svari
Willums við fyrirspurn mbl.is.
Auk þess kemur fram í svarinu
að 13 einstaklingar með fjölbreytta
þekkingu og aðkomu að mála-
flokknum eiga sæti í starfshópnum.
Málið í breiðu sam-
ráði í starfshópnum
Willum Þór
Þórsson
Alls hafa 1.379
flóttamenn frá
Úkraínu komið
til landsins en í
heildina hefur
verið tekið á
móti 2.205 flótta-
mönnum í ár.
Fyrir tveimur
vikum höfðu
1.293 komið frá
Úkraínu og 2.042
flóttamenn í heildina.
Gylfi Þór Þorsteinsson, aðgerða-
stjóri teymis um móttöku flótta-
fólks frá Úkraínu, segir í samtali
við mbl.is að aðeins færri komi
núna til landsins en fyrir nokkrum
vikum.
„Við vitum það líka að það er
dýrara að fljúga, svona yfir hásum-
arið, þannig að það mun eflaust
draga aðeins úr komu flóttafólks á
meðan. Undanfarin ár hafa sýnt
okkur að flestir koma á haustin,
þannig að það má búast við að
flóttafólki fjölgi aftur,“ segir Gylfi.
Færri flóttamenn
yfir hásumartímann
Gylfi Þór
Þorsteinsson