Morgunblaðið - 20.07.2022, Qupperneq 11

Morgunblaðið - 20.07.2022, Qupperneq 11
FRÉTTIR 11Erlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 20. JÚLÍ 2022 Laugavegi 29 - sími 552 4320 www.brynja.is - verslun@brynja.is Lykilverslun við Laugaveg síðan 1919 Áratuga þekking og reynsla VERÐ FRÁ 4.100 7.180 9.560 8.710 29.980 1.250 Vefverslun brynja.is VASAHNÍFAR & ELDHÚSHNÍFAR MIKIÐ ÚRVAL SWISS TOOL Eftir að fréttir bárust af samningum í deilu flugmanna skandinavíska flug- félagsins SAS í fyrrakvöld, og þar með lokum 15 daga verkfalls sem setti strik í reikning margs ferða- langsins, innan sem utan Norður- landanna, var í fyrstu óljóst um afdrif nýs samnings. Frá SAS barst tilkynning um að ekkert hefði verið undirritað, þrátt fyrir að fjölmiðlar kepptust við að segja frá samningum í höfn. Eld- snemma í gærmorgun var því loks slegið föstu að málinu væri lokið að þessu sinni. Loksins eðlilegur rekstur Nýi samningurinn nær til fimm og hálfs árs og tryggir meðal annars 450 af 560 flugmönnum, sem misstu störf sín í heimsfaraldrinum, vinnu á ný. „Loksins getum við hafið eðlilegan rekstur á nýjan leik og flogið með við- skiptavini okkar í eftirsóttar sum- arleyfisferðir,“ sagði Anko van der Werff, forstjóri félagsins, í gær. Flugmennirnir sem misstu vinn- una brigsluðu SAS um að komast hjá endurráðningum með því að nýta sér starfsmannaleigur. Þeim áburði hafa stjórnendur félagsins vísað á bug frá upphafi. „Það gleður mig mjög að deilunni er lokið. Hún stóð allt of lengi og hafði allt of víðtæk áhrif,“ sagði Roger Klokset, formaður stéttarfélags norskra flugmanna SAS, í gær, um leið og hann bað farþega félagsins af- sökunar á verkfalli sem náði til 900 flugmanna. „Von mín er að við komum flugum- ferð í gang á nýjan leik svo fljótt sem verða má og komum fólki þangað sem það ætlar sér. Það er ánægjuefni að við tókum slaginn fyrir þá sem sættu uppsögnum og á þeim vettvangi tel ég okkur hafa unnið sigur,“ sagði Klokset enn fremur. AFP/Lars Schroder Loksins Anko van der Werff, for- stjóri SAS, er sæll að deilu lokinni. 450 af 560 í vinnu hjá SAS að nýju - Vélarnar í loftið eftir harða orrahríð Bandaríska varn- armálaráðu- neytið hefur samið við Lock- heed Martin- verksmiðjurnar um framleiðslu 375 F-35- orrustuþotna næstu þrjú árin. Þetta tilkynnti William LaPlante, innkaupastjóri vopna hjá ráðuneytinu, í gær og kvað ánægjuefni. Kostnaðurinn við smíðina er 30 milljarðar dala, jafnvirði rúmra 4.000 milljarða íslenskra króna. Al- gengasta útgáfa F-35 er F-35A, sem norski herinn hefur keypt í tugatali til að leysa fornan F-16-flota sinn af hólmi. Sú framleiðsla, sem nú mun líta dagsins ljós, er fimmta kynslóð F-35, sem fyrst var framleidd árið 2007. Vélarnar eru þeirrar náttúru að vera torséðar á ratsjám. BANDARÍKIN Semja um smíði 375 F-35-orrustuþotna Brynjaður varg- fugl í forsal vinda. Atli Steinn Guðmundsson atlisteinn@mbl.is Rúmlega 400 slökkviliðsmenn í London börðust í gær við að minnsta kosti sjö elda, þar á meðal í íbúðar- húsum í Wennington í Austur-Lond- on, þar sem eldur kviknaði upphaf- lega í graslendi en barst þaðan í nærliggjandi hús. Bað slökkviliðið borgarbúa í gær um að hringja ekki í neyðarnúmerið 999 nema um ýtrustu neyð og hreina lífshættu væri að ræða, þar sem neyðarsímaverðir hefðu ekki undan að svara í símann. Eins voru borg- arbúar hvattir til að grilla hvorki né kveikja elda af öðru tilefni. Gerði slökkviliðið heiðarlega til- raun til að halda borgarbúum upp- lýstum um gang mála á samfélags- miðlinum Twitter, þar sem sjá mátti fjölda tilkynninga um ástandið, svo sem að 30 dælubifreiðar og 175 slökkviliðsmenn berðust við eld í graslendi á Pea Lane í Upminster og að ekki sæjust handa skil á M25- brautinni. „Þetta er neyðarástand“ Eins tilkynnti slökkvilið um bruna og fjölda bifreiða og manna á staðn- um í Green Lanes, Oaks Road, Ball- ards Road, Broadway við Wembley og víða annars staðar um borgina. Eins og Morgunblaðið greindi frá í gær, varaði breska veðurstofan þá við eldhættu, nokkuð sem fátítt er þar í landi. „Þetta er skelfilegt,“ sagði Freya Gutteridge, íbúi í Wennington, við breska ríkisútvarpið BBC í gær, „við erum nokkur hér sem vinnum á sama stað og við erum felmtri slegin yfir afdrifum heimila fjölskyldna okkar. Við vitum að okkur verður gert að rýma svæðið ef við erum í hættu en hér í hverfinu eru bens- ínstöðvar og við óttumst um alla hérna,“ sagði Gutteridge. Lestafyrirtæktið c2c Rail bað fólk um að nota járnbrautirnar sem minnst vegna bruna nálægt helstu akstursleiðum lestanna. Sadiq Khan borgarstjóri skrifaði á Twitter-svæði sitt og bað borgarbúa að gæta sín í hvívetna. „Slökkviliðið hefur lýst yfir neyðarástandi vegna stórbruna í höfuðborginni í dag. [...] Þetta er neyðarástand, slökkviliðið sætir gríðarmiklu álagi. Gætið að ykkur.“ Hiti fór í fyrsta sinn á skráningar- tíma yfir 40 gráður í Bretlandi í gær, þegar hann mældist 40,2 gráður á Heathrow-flugvellinum um hádegis- bil. „Við óttumst um alla hérna“ - Hundruð slökkviliðismanna börðust við elda í London í gær - Fólk beðið að nota lestakerfið sem minnst - Sadiq Khan borgarstjóri bað íbúa að gæta að sér - Hiti í fyrsta sinn yfir 40 gráður AFP/William Edwards Sól tér sortna Reykjarmökkur stígur til himins í Dartford í Kent í gær. Franski götufimleikameistarinn Char- les Poujade sýnir færni sína í miðbæ Parísar í gær. Poujade leggur stund á parkour sem meðal annars hefur hlot- ið íslensku þýðinguna götufimleikar. Franska orðsifjafræðin að baki fyrir- bærinu er þó snúnari en þar er hug- takið dregið af parcours du combatt- ant sem vísar til þrautabrauta í her- þjálfun. Parkour snýst um að iðkandinn til- einki sér þá list að koma sér frá punkti A til punkts B á sem stystum tíma og með því að nýta umhverfi sitt og hluti í því til hins ýtrasta. Finna má mynd- skeið af Poujade á YouTube sem vekja í senn skelfingu og aðdáun. Rúmfræði Evklíðs fjallar meðal annars um punkta og línur í plani og það gerir parkour kannski einnig á sinn hátt. Götufimleikar ögra ýmsum lögmálum og vekja spurningar um línur milli ólíkra punkta Svifið um loftin Parísar blá AFP/Julien De Rosa

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.