Morgunblaðið - 20.07.2022, Qupperneq 28

Morgunblaðið - 20.07.2022, Qupperneq 28
Álfheimum 74, 104 Rvk, sími 568 5170 Verið velkomin 30-50% afsláttur Kjólar • Peysur • Bolir • Blússur • Pils ÚTSALA Glæsileg Saxófónleikarinn Tumi Árnason og trymbillinn Magnús Trygvason Eliassen halda uppi sumarstemningu í Mengi í kvöld kl. 21, en húsið verður opnað kl. 20.30. „Á samstarfsferli sínum hefur tvíeykið Magnús og Tumi ævinlega fetað framandi og framsæknar slóðir. Laglín- ur hlykkjast innan um rytmískar áferðir, svipmyndir umbreytast jafnharðan og þær formgerast. Árið 2019 kom út hljómplatan Allt er ómælið, við einstaklega góð- ar undirtektir. Tvíeykið vinnur nú að nýrri breiðskífu,“ segir í tilkynningu frá tónleikahaldara. Tumi og Magnús koma fram í Mengi MIÐVIKUDAGUR 20. JÚLÍ 201. DAGUR ÁRSINS 2022 Sími: 569 1100 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is Í lausasölu 776 kr. Áskrift 8.383 kr. Helgaráskrift 5.230 kr. PDF á mbl.is 7.430 kr. iPad-áskrift 7.430 kr. Reykjavíkurliðin KR og Fram skildu jöfn, 1:1, í Bestu deild karla í fótbolta á Meistaravöllum í Vesturbænum í gærkvöldi. Magnús Þórðarson kom Fram yfir undir lok fyrri hálfleiks, þegar hann fylgdi eftir skoti frá Guð- mundi Magnússyni. Ægir Jarl Jónasson jafnaði með marki af stuttu færi eftir horn á 47. mínútu og þar við sat. KR-ingar hafa því enn aðeins unnið einn heimaleik á leiktíðinni. Eftir leikinn eru liðin áfram í sjöunda og áttunda sæti. KR með 17 stig og Fram með 14 í sætinu fyrir neðan. »22 Jafnt í Reykjavíkurslag í Vesturbæ ÍÞRÓTTIR MENNING Tómas Arnar Þorláksson tomasarnar@mbl.is Pálmi Hafþór Ingólfsson, kylfingur og íbúi í Grindavík, tók nýverið Hópstún í Grindavík upp á arma sína og hefur í sínum frítíma gert túnið að par þrjú golfvelli með níu holum en brautirnar eru á bilinu 30 til 90 metra langar. Að sögn Pálma sækja ungir sem aldnir þangað og nýta völlinn til að æfa sig og leika sér í golfi. „Það er sérstakt ánægju- efni að sjá börn og eldri borgara bæjarins þar við leik,“ segir Pálmi í samtali við Morgunblaðið. Að sögn Pálma hafði á Hópstúni verið vísir að golfvelli áður en ekki verið sinnt í mörg ár. Pálmi hafði um árabil æft sig í stutta spilinu og farið með barnabörnin á Hópstún til að æfa golf, áður en hann ákvað að ráð væri að nýta möguleika túnsins til fulls. „Mér fannst þetta svo frábært svæði að ég ákvað að taka túnið í fóstur,“ segir Pálmi og segist í kjöl- farið hafa sett upp holur á túninu og slegið túnið til að mynda braut- ir. Bærinn bætir völlinn frekar Í kjölfarið steig Grindavíkurbær inn í ásamt Golfklúbbi Grindavíkur og hjálpaði til við að bæta brautir- nar á vellinum með aðbúnaði og umhirðu. Pálmi segir samstarfið hafa gengið einkar vel en þó sé enn rými til bætinga fyrir völlinn og af þeim sökum hafi hann ritað erindi til bæjaryfirvalda með hugmyndum til að efla völlinn enn frekar. Að hans sögn tók bæjarráð Grindavíkur vel í erindið og í kjöl- farið var sviðsstjóra frístunda- og menningarsviðs falið að halda utan um áframhaldandi uppbyggingu á svæðinu í samráði við Pálma. „Hann hefur þegar hafist handa og komin er gróf áætlun fyrir næstu skref. Ekki er ólíklegt að svæðið verði skilgreint sem golf- æfingasvæði í deiliskipulagstillögu,“ segir hann, vongóður um að fjár- magn verði lagt til frekari fram- kvæmda á vellinum á næsta ári. „Ég og embættismennirnir erum búnir að ákveða að hittast í haust og kortleggja þetta allt saman.“ Börn æfa sig á vellinum Hann segir koma sér mjög vel fyrir íbúa Grindavíkur að hafa golf- völl inni í bænum og tekur fram að nánast öll golfkennsla barna fari fram á vellinum. Þá bendir hann á að staðsetningin sé mikill kostur fyrir börn, þar sem golfvöllur Golf- klúbbs Grindavíkur er aðeins fyrir utan bæinn og getur oft reynst erf- itt fyrir börn og aðra að fá far að vellinum. „Þetta er inni í miðjum bænum og þá geta börnin bara rölt yfir með sinn poka og mætt á æfingu.“ Pálmi tekur fram að sér þyki vænt um að sjá hve margir mæti á völl- inn og hversu mikið golfiðkun hafi aukist á túninu enda er hann fædd- ur og uppalinn í Grindavík og kenndi þar um árabil. Í lokin hvetur Pálmi bæjarbúa Grindavíkur og nágrennis til að taka fram kylfurnar og æfa sig. „Það er ekki hægt að finna betri stað fyrir byrjendur að hefja leik í þessari skemmtilegu íþrótt.“ Tók túnið í fóstur og setti upp níu holna völl - Segir unga sem aldna sækja völlinn til að æfa sig í golfi Grindavík Pálmi Hafþór Ingólfsson á níundu holu vallarins með Grindavík- urbæ í bakgrunni. Fólk kemur oft gangandi á völlinn með golfsett á bakinu. Æfing Yngstu börnin taka fyrstu skrefin í golfi ásamt kennara á vellinum.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.