Morgunblaðið - 25.07.2022, Síða 11

Morgunblaðið - 25.07.2022, Síða 11
FRÉTTIR 11Innlent MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 25. JÚLÍ 2022 Sigurður Bogi Sævarsson sbs@mbl.is Nauðsynlegt er að mæta nýjum veruleika sem skapast hefur á vaxtarsvæðum þar sem til að mynda ferðaþjónustan er burðarás í at- vinnulífinu. Styrkja þarf innviði á viðkomandi stöðum og styrkja mik- ilvæga starfsemi þar. Þetta segja nokkrir þingmenn Suðurkjördæmis, spurðir um stöðu mála. Í Morgun- blaðinu sl. föstudag sagði Einar Freyr Elínarson, væntanlegur sveit- arstjóri í Mýrdal, frá því viðhorfi sínu að ríkið yrði að standa við sitt í nauðsynlegri uppbyggingu úti á landi. Tiltók þar að á ári hverju kæmi um milljón manns í Reyn- isfjöru og í Vík, með öllu því álagi sem slíku fylgdi til dæmis á heil- brigðisþjónustuna og vegakerfið. Í fjárveitingum til samfélagslegra verkefna fylgir ríkið þumalputta- reglu um fjölda skráðra íbúa með lögheimili í viðkomandi sveitarfé- lagi. Í Mýrdalshreppi búa nú um 850 manns og vissulega hefur fjölgað þar mjög á undanförnum árum. Ferða- fólkið með sínar fjölbreyttu þarfir skapar hins vegar álag á almanna- þjónustuna. Því verður að bregðast við af myndugleika, segir sveitar- stjórinn. Sjónarmið hans virðist njóta góðs skilnings, af orðum stjórnmálamanna að dæma Mýrdalur á sér margar hliðstæður „Sú staða sem nú er uppi í Vík í Mýrdal á sér margar hliðstæður víða um land; í Suðurkjördæmi eins og víða annars staðar. Í fyrsta lagi þarf sá mikli fjöldi ferðafólks sem hingað kemur að dreifast betur um landið. Álagið er mjög misjafnt. Á þeim stöðum sem flestir sækja þarf að gera betur í heilbrigðismálum og neyðarþjónustu. Þar tel ég mikil- vægt að nálgast verkefnin með nýj- um lausnum sem tölvutæknin býður upp á og nota þyrlur í ríkari mæli til sjúkraflutninga,“ segir Guðrún Haf- steinsdóttir, þingmaður Sjálfstæðis- flokksins í Suðurkjördæmi. „Sam- göngumál eru alltaf í brennidepli og svo þarf að gera betur í uppbygg- ingu húsnæðis úti á landi. Í ferða- þjónustu út um land er fólk af er- lendum uppruna mikilvægt vinnuafl sem segja má að haldi greininni uppi. Margt af því fólki er að festa rætur hér á landi, en oft hefur ekki tekist að tryggja því fólki boðlegt húsnæði. Þarna þurfa ríki og sveitarfélög og aðrir eftir atvik- um að finna sam- eiginlegar lausn- ir. Atvinnulíf úti á landi í dag er víða í ágætum gangi og þangað vill fólk flytja ef boð- leg skilyrði eru til staðar. Að slíku vil ég vinna. Sjálf hef ég verið á ferðinni víða um land að undanförnu og þar séð að úr- lausnarefnin eru víða svipuð og er lýst í Mýrdalnum. Því er ljóst hvern- ig landið liggur.“ Eitt samvinnuverkefni Hafdís Hrönn Hafsteinsdóttir, þingmaður Framsóknarflokks í Suðurkjördæmi, segir mikilvægt að huga vel að innviðum og öryggi þar sem ferðamenn eru flestir. Hún seg- ist hafa rætt þessi mál við Einar Frey: það er þann veruleika að á vissum mánuðum ársins rúmlega tvöfaldast fólksfjöldinn á Suður- landi. Slíkt gerist á þeim tímum þeg- ar mest er umleikis í ferðaþjónust- unni. Á sumrin er raunin oft sú til dæmis í uppsveitum Árnessýslu, en æ oftar víðar á Suðurlandi. Hve mik- ið ferðafólki sem um svæðið fer hef- ur fjölgað gjörbreytir öllum atvinnu- háttum þar frá því sem var. „Landslagið er að breytast og við sem störfum í þágu samfélagsins þurfum að hugsa þetta sem eitt sam- vinnuverkefni allra,“ segir Hafdís Hrönn. „Heilbrigðisþjónusta í dreifðari byggðum hefur verið áskorun og ég tel mikilvægt að við horfum til fjartækni í því samhengi en þó leysir það aðeins að hluta til vandann. Læknir þarf að vera á staðnum til að geta veitt þá þjónustu sem þarf, oftast þá bráðahjálp. Því er mikilvægt að við vinnum saman þvert á öll stjórnsýslustig að úrlausn mála.“ Nánast allir á Suðurland Oddný G. Harðardóttir, þingmað- ur Samfylkingar, segir að fleiri ferðamönnum fylgi augljóslega álag á vegina, heilbrigðisþjónustu og á löggæsluna. Þetta sé raunin á Suðurlandi, þar sem nánast allir ferðamenn sem til landsins koma fara um. „Til að geta tekið á móti gestum verður að styrkja innviði. Á það hef ég margoft bent en talað fyrir dauf- um eyrum. Ef það er ekki gert kem- ur það niður á ferðaþjónustu og þjónustu við íbúa. Stjórnvöld þurfa að bregðast við á svæðum þar sem álagið er mest, hvort sem er vegna ferðamanna eða fjölgunar íbúa á vaxtarsvæðum,“ segir Oddný. Innviðirnir fylgi nýjum veruleika - Mikið álag á almannaþjónustu á fjölsóttum ferðamannastöðum - Nálgast verkefni með nýjum lausnum - Boðlegt húsnæði fyrir erlend vinnuafl - Alþingismenn sammála um að úrbætur þurfi Morgunblaðið/Sigurður Bogi Vík Riðið í sumarsól með Reynisdranga í baksýn. Þúsundir ferðamanna koma í Mýrdalinn á degi hverjum svo innviðir þar eru komnir að eða yfir þolmörk. Hafdís Hrönn Hafsteinsdóttir Guðrún Hafsteinsdóttir Oddný G. Harðardóttir Hólmfríður María Ragnhildardóttir hmr@mbl.is Umræðan um hvort, hvernig og hve- nær meintir gerendur eigi aftur- kvæmt í sviðsljósið er flókin og vandmeðfarin. Engin ein rétt leið blasir við en ljóst er að gerendur verða að axla ábyrgð og iðrast áður en samfélagið getur tekið þá í sátt. Þetta segir Þorsteinn V. Einarsson kynjafræðingur en hann var gestur í nýjasta þætti Dagmála. Alvarlegast að trúa frekar gerendum „Það er engin uppskrift, það er ekkert einfalt í þessu. En það sem er alvarlegast er þegar við tökum meinta gerendur frekar trúanlega en þolendur. Það er mjög alvarlegt og þegar við kaupum gagnrýnislaust frásagnir meintra gerenda,“ segir Þorsteinn. Gengur ekki upp „Við þurfum að vera gagnrýnin og taka frásögnum meintra gerenda af varkárni og gagnrýni. Ég er ekkert að tala um að úthýsa gerendum. Ég veit að þeir eru það margir að það gengur ekki upp. En við erum á þeim stað að við erum ekki búin að finna út úr þessu en við þurfum að halda áfram að varpa ljósi á ofbeldi.“ Þorsteinn segir mikilvægt að skapa aðstæður í samfélaginu þar sem gerendur ofbeldis verði að axla ábyrgð á gjörðum sínum. Hægara sagt en gert Það er m.a. gert með metoo- byltingunni en svo þurfa aðstand- endur gerenda einnig að sigrast á gerendameðvirkni og þrýsta á þá til að gangast við verknaðinum. Það er þó hægara sagt en gert. „Það er engin uppskrift“ - Gengur ekki að úthýsa gerendum ofbeldis - Ekki einfalt Dagmál Þorsteinn V. Einarsson, fyrirlesari sem lengi hefur haldið úti hlað- varpinu Karlmennskan, er gestur Hólmfríðar Maríu í Dagmálum.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.