Morgunblaðið - 25.07.2022, Blaðsíða 25
DÆGRADVÖL 25
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 25. JÚLÍ 2022
Nýmalað, engin hylki.
Suðurlandsbraut 20 · 108 Reykjavík
Sími: +354 5880200 · www.eirvik.is
Z10 fyrir heita og kalda kaffidrykki.
Ný kvörn, Product Recognising Grinder (P.R.G.), breytir sjálfkrafa
grófleika mölunar á milli mismunandi kaffidrykkja. Þetta gerir það
að verkum að í fyrsta skipti er hægt að hella upp á bæði heita og
kalda drykki með espresso aðferð. Upplifðu algerlega nýja leið til
þess að njóta kaffidrykkja. JURA – If you love coffee.
„SÁ SEM Á TÍMANN HJÁ ÞÉR KL. 10.15 ER
MÆTTUR. Á ÉG AÐ SEGJA HONUM AÐ ÞÚ
SÉRT EKKI MÆTTUR?“
„OG VIÐ HVAÐ STARFAÐIRÐU ÁÐUR EN ÞÚ
GERÐIST RÆNINGI?“
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
... að vera hamingju-
samur þegar hún er
hamingjusöm.
Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim UngerHermann
ÞAÐ ER KOMINN
VETUR
OG ANNAR STÓR KOSTUR… ÞAÐ ÞARF EKKI AÐ
KYNDA MEÐ VIÐARKUBBUM Á VETURNA!
TIL
SÖLU
DRUN
UR
DYNKIR
Kristinsson, f. 1981, rafvirki. Sam-
býliskona hans er Svava Lára Sig-
urjónsdóttir, f. 1985, fram-
reiðslukona. Þau eiga börnin Sigur-
jón Smára, f. 2006 og Unndísi
Magneu, f. 2017. Börn Ólínu og
Kristins eru: 1) Kristrún Vala Krist-
insdóttir, f. 1993, lögfræðingur. Sam-
býlismaður hennar er Patrekur Ein-
ar Jónsson Sæmundsen, f. 1994,
framreiðslumaður. Þau eru búsett í
Hveragerði.
2) Katrín Lilja Kristinsdóttir, f.
1996, myndlistarkona. Sambýlis-
maður hennar er Alexander Schev-
ing Haraldsson, f. 1990, tæknimaður.
Þau eru búsett í Reykjavík. Alexand-
er á dótturina Júlíu. 3) Kristín María
Kristinsdóttir, f. 1998, húsasmiður.
Sambýlismaður hennar er Stefán
Björnsson González, leiðbeinandi á
tómstundaheimili. Systkini Ólínu
eru: 1) Kristján Gunnlaugsson, f.
1952, d. 2018, pípulagningamaður og
sjómaður á Hellnum. 2) Þorvarður
Gunnlaugsson, f. 1957, fiskihagfræð-
ingur og heildsali í Svolvær, Noregi.
3) Elín Guðrún Gunnlaugsdóttir, f.
1964, arkitekt í Reykjavík.
Foreldrar Ólínu voru: Gunnlaugur
Hallgrímsson, f. 1930, d. 1989, og
Kristín Lilja Kristjánsdóttir, f. 1928,
d. 1988. Gunnlaugur var fæddur á
Dagverðará í Breiðuvíkurhreppi og
ólst þar upp en Kristín var fædd í
Bárðarbúð á Hellnum í sama hreppi
og ólst þar upp. Þau settust fyrst að í
Reykjavík þar sem Gunnlaugur
gekk í Handíðaskólann og vann það
sem til féll. Síðar fluttu þau að Helln-
um og byggðu húsið Akra þar sem
þau hófu búskap og bjuggu þar síð-
an. Gunnlaugur var alltaf á sjó frá
Hellnum, auk þess að vinna við smíð-
ar o.fl. en Kristín sá að mestu um
börn og bú.
Ólína
Gunnlaugsdóttir
Ingiríður Bjarnadóttir
húsmóðir á Tröðum og
Bjarnarfosskoti, Staðarsveit
Halldór Jónsson
bóndi á Tröðum og
Bjarnarfosskoti, Staðarsveit
Helga Halldórsdóttir
húsmóðir á Dagverðará,
Breiðuvíkurhreppi
Hallgrímur Ólafsson
bóndi á Dagverðará,
Breiðuvíkurhreppi
Gunnlaugur Hallgrímsson
útvegsbóndi á Ökrum á Hellnum
Ragnheiður Símonardóttir
húsmóðir á Sogni og
í Reykjavík
Ólafur Guðmundsson
bóndi á Gljúfri og Sogni í Ölfusi
Ólína Ólafsdóttir
húsmóðir í Bárðarbúð, Hellnum
Brandur Jóhannesson
Bárðarbúð, Hellnum
Kristján Sigurjón Brandsson
útvegsbóndi í Bárðarbúð, Hellnum
Kristjana Þorvarðardóttir
húsmóðir í Bárðarbúð, Hellnum
Kristín Teitsdóttir
húsmóðir í Bjarnabúð,
Arnarstapa
Þorvarður Þórðarson
bóndi í Bjarnabúð,Arnarstapa
Ætt Ólínu Gunnlaugsdóttur
Kristín Lilja Kristjánsdóttir
húsmóðir á Ökrum á Hellnum
Á Boðnarmiði orti Friðrik Stein-
grímsson á miðvikudag og
kallaði „Þvílíkt veðurfar“:
Hérna volnar varla neitt
visna grös og fúna,
en óskaplega er þeim heitt
í útlandinu núna.
Magnús Geir Guðmundsson hélt
áfram og sagði „Þá stormi hefur
slotað …!“
Ýmsra grýtt varð göngutröð,
geðið strítt þá réði frekt.
Nú er blítt á boðnarmjöð,
bara hlýtt og notalegt.
Hér yrkir Friðrik með friðar-
kveðjum:
Fráleitt ber að fagna því
að fólskan dafni lengi,
nú er hlaupin ólund í
okkar bestu drengi.
Tíminn læknar sérhvert sár,
svo mun enn til haga,
að geti breyst í gleði tár
grenjur fyrri daga.
„Náttúruskoðun fyrir vestan“
segir Skúli Pálsson:
Himinn, fjara, haf og fjall,
heiði, brekka, melur:
leggur sig á steinastall
státinn bústinn selur.
Guðmundur Arnfinnsson um
„Heilsubót“:
Brestur þrek og birtan dvín,
blaktir gamla skarið,
býst þó við að brennivín
bæti heilsufarið.
Dagbjartur Dagbjartsson hefur
lög að mæla:
„Hafið þið nokkurntíma velt því
fyrir ykkur hvað það er merkilegt
að flest það fólk sem er manni sam-
mála í einhverjum deilumálum er
vel gefið og víðsýnt skynsemdar-
fólk en þeir sem eru ósammála eru
að mestu leytir þröngsýnir, illa
gefnir þverplankar?? Alveg merki-
legt.“
Ég álít þá andlega lasna
og upplagt að geta þess hér,
flesta þá endemis asna
sem ekki eru sammála mér.
Hallmundur Guðmundsson svar-
ar og segir: „Svona er þetta hjá
okkur, frændi“.
Ég sjaldnast er nú sammála þér,
svona erkibjána.
Þó vatnið sífellt sæki mér;
– sjálfur handan við ána.
Halldór Blöndal
halldorblondal@simnet.is
Vísnahorn
Um náttúruskoðun
og skynsemisfólk