Morgunblaðið - 25.07.2022, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 25.07.2022, Blaðsíða 20
20 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 25. JÚLÍ 2022 Fallegi og skemmtilegi Óskar bróðir er fallinn frá. Elsku besti Ósk- ar. Mikið og margt fór í gegnum hugann þegar ég fékk skilaboðin um andlátið þitt. Fór strax að hugsa að ég hefði ekki heimsótt þig lengi og ekki nógu oft og hefði getað gert betur í þeim efnum, en þangað fer hugurinn bara þegar svona fréttir berast. Væntumþykja mín til þín er óendanleg. Lífið er oft ósangjarnt og ekki alltaf eins og við viljum hafa það. Mannskepnan vill oft stjórna og stýra öllu í kringum sig og verður fúl ef hlutirnir fara ekki eins og við viljum. Við Óskar áttum margt sam- eiginlegt og gátum oft spjallað um lífið og tilveruna á alvarlegu nótunum þegar svo lá við. Við ólumst upp á Grenivík í stórum systkinahóp. Þar var oft líf og fjör í Akurhól. Óskar var Óskar Valdemarsson ✝ Óskar Valdemarsson fæddist 18. maí 1954. Hann lést 30. júní 2022. Útför hans fór fram 12. júlí 2022. næstelstur bræðr- anna, sem eru fjór- ir. Í þá daga var allt þorpið leikskólinn og veit ég stundum ekki hvernig við komumst lifandi eða óslösuð í gegn- um sumt sem okkur datt í hug að gera, því uppátækin voru mörg. Óskar var mjög uppátækja- samur og ef honum datt eitthvað sniðugt í hug, framkvæmdi hann það. Sumarliði Óskar var hann skírður, þessi falleg drengur með ljósu lokkana sína og fal- lega brosið. Óskar var mikill hrakfallabálkur og man ég dag- inn sem hann datt á tröppunum og hjó í sundur á sér tunguna. Æi, það var svo sárt. Við Óskar vorum miklir trúð- ar og náðum vel saman í því hlutverki. Gátum hlegið að því sem aðrir skildu ekki. Þegar Óskar og einn af bræðrunum komu í heimsókn til Englands þegar ég bjó þar, þá var aldeilis tekið á því og tjúttað alla daga í þær tvær vikur sem þeir stoppuðu. Þeir voru heppnir að sleppa frá vinkonum mínum, þær heilluðust svo af þessum fal- legu og skemmtilegu bræðrum. Óskar var mikill sjarmör og skemmtilegur karakter. Hann var orðheppinn og með húmor- inn í lagi og var sjaldan logmolla þar sem hann fór. Hann fór alla leið í því sem hann tók sér fyrir hendur og skildi ekki þær hindr- anir sem aðrir létu stoppa sig. Hann var dugnaðarforkur og óð áfram í því sem hann fékk áhuga á og tók það huga hans allan. Hann var mikill bissnes- skarl, fór eftir sinni sannfær- ingu, gerði það sem honum datt í hug og hlustaði bara á sitt innsæi. Hugurinn bar hann oft lengra en hann réði við. Hann var sannkallaður ofur- hugi, þessi elska. Öll slysin sem þú lentir í og þjáningarnar vegna þess, voru ekki auðveld. Ég minnist réttardagsins 1976 þegar ég kom norður til þín. Þá hafðir þú fyrr um daginn lent í bílslysi með frænda okkar, en það var eins og önnur verk- efni sem þú leystir, sjúkrahús- vist í nokkra daga og svo var haldið áfram með lífið. En heppnin var ekki alltaf til staðar og ekki alltaf kátt í höll- inni. Bakkus var óþægilega mik- ið með í ferðum og ásamt hinum slysunum sem á eftir komu varð þetta þér að falli og lífið fór bók- staflega á hvolf. Við vitum hvað kom í kjölfar- ið, endalaus vinna og endurhæf- ing á Grensási í mörg ár. Þetta hafði mikil áhrif á allt þitt líf og fjölskyldunnar. Það þurfti að endurskipuleggja allt sem þú hafðir byggt upp til margra ára og þrotlaus vinna tók við. Elsku Óskar, ég veit þú gerðir alltaf þitt besta á þeim tíma, en stundum vitum við ekki betur. Elsku bróðir minn og vinur. Ég ætla að minnast þín með stolti og þakka þér fyrir allar góðu minningarnar sem við átt- um og sköpuðum saman á okkar lífsleið. Það var alltaf gaman að hitta þig. Þú varst alltaf hress og góð- ur við mig og var ég alltaf vel- komin þar sem þú varst. Ég er óendanlega þakklát fyr- ir það. Minningin lifir um góðan dreng. Guðrún Valdimarsdóttir. Elsku bróðir, mikið vildi ég að ég gæti faðmað þig einu sinni enn, gefið þér léttan koss á kinn sest niður í spjall og hlegið með þér. Það eru svo ótal margar minningar sem koma upp í hug- ann að það væri efni í heila bók. Þú varst svo mikill athafna- maður, harðduglegur og lést fátt stoppa þig en fyrst og fremst varst þú umhyggjusamur, glað- ur, þolinmóður og mikill húm- oristi og þú gast gert óspart grín að sjálfum þér. Það skipti engu máli hvort þú varst í byggingarvinnu eða undir bíl að gera við, þú gafst þér allt- af tíma til að staldra við og hlusta ef maður þurfti á þér að halda eða fá ráðleggingar. Þegar ég var tólf ára og þú og Eygló bjugguð á Grenivík var ég hjá ykkur eitt sumar og passaði stelpurnar og það var oftast kátt á hjalla hjá okkur. Sextán ára dvaldi ég hjá ykk- ur yfir vetur og vann í frystihús- inu. Þetta var svo skemmtilegur tími og alltaf stuð og mikið að gerast. Eftir að þú fluttir suður aftur var alltaf allt á fullu hjá þér bæði í vinnu og að lifa lífinu og þér tókst að draga hana móður okkar sem var komin yfir sex- tugt út fyrir landsteinana. Ég man eins og gerst hafi í gær þegar ég kom í Grænatúnið í heimsókn og þú sagðir mér mik- ið hreykinn að mamma væri að fara með ykkur fjölskyldunni til Hollands. Mér fannst þetta bara alveg frábært hjá þér. Svo þegar þið voruð í Hol- landi þá settir þú mömmu upp í rútu og sendir hana til Parísar með fleira fólki. Man hún var frekar skelkuð en hún var svo ánægð með þetta þegar hún kom heim að hún talaði varla um ann- að. Aldrei settir þú út á það sem ég gerði eða gerðir lítið úr því. Þú peppaðir mann frekar upp og sagðir mér oftar en einu sinni að þú værir stoltur af mér. Þú sagðist líka vera stoltur af mér og hlóst þegar ég sagði þér frá einhverju sem fór kannski ekki sem best og svo sátum við bæði og hlógum. Skellurinn kom 1993 þegar þú lentir í alvarlegu snjósleðaslysi og það tók þig yfir ár að geta staðið á eigin fótum og komast aftur út í lífið. Þú gast nú ekki látið vera að gera grín að því líka og sagðir að þú hefðir nú endilega þurft að reka skíðið á sleðanum í eina steininn á svæð- inu og síðan kastast upp í loft og lent með hausinn á sama stein- inum og svo hlóstu og það var bara ekki annað hægt en hlæja með þér því svona varstu, sást alltaf spaugilegu hliðarnar á öllu. Einn dag í maí 1994 bankaðir þú upp á hjá mér og baðst mig að aðstoða þig með fyrirtækið þitt Hvell þar sem þú varst orð- inn einn. Við unnum saman þar í tvö ár, sem var mjög skemmtilegur tími og ég lærði svo margt, óteljandi margar góðar stundir sem við áttum á þessum árum sem ég er svo þakklát fyrir. Ég fæ þær sorgarfréttir 1999 að þú hafir orðið fyrir öðru áfalli sem varð til þess að þú varðst óvinnufær. Þú lést aldrei bugast og hélst húmornum á lofti alla tíð. Alltaf jákvæður þó svo að þú vissir um þitt hlutskipti. Minningin um þig lifir þangað til við hittumst næst, elsku bróð- ir. Takk fyrir allt. Þú varst hetja. Þín litla, systir Auður Elísabet Valdemarsdóttir (Beta). Það var árið 1974 sem ég kom fyrst í Lindarholtið og hitti Stellu og Hadda og gisti þar með vinkonu minni nokkrar nætur. Á þeim árum þótti sjálfsagt að fólk kæmi úr höfuðborginni og staldr- aði við hjá ættingjum og vinum úti á landi og öfugt. Það var eins og hefðum þekkst alla ævi eftir stutta stund, það var spjallað, spurt og hlustað af einstakri hlýju sem síðar átti eftir að einkenna samband okkar og vináttu þegar fram liðu stundir. Á þessum tímapunkti vissi ég ekki að ég ætti eftir að flytjast til Ólafsvíkur og eiga þar heima í mörg ár og njóta samvista við fólkið sem tók mér opnum örm- um þegar ég kom þangað í fyrsta sinn. Ég sé Stellu mína standa við eldavélina að baka fyrir okkur Ingveldur Magnea Knaran Karlsdóttir ✝ Ingveldur Magnea Knar- an Karlsdóttir Stella fæddist 11.4.1935. Hún lést 29. júní 2022. Hún var jarðsungin 9. júlí 2022. pönnukökur og hella upp á kaffi og spyrja af væntum- þykju um fólkið mitt. Það var alltaf tími til að spjalla um lífið og tilveruna og hafa skoðanaskipti um menn og mál- efni. Andleg málefni voru oft á tíðum rædd og stundum las hún í bolla fyrir mig og sagði mér sitthvað sem enginn vissi nema ég og svo líka eitthvað sem átti eftir að gerast. Þær stundir hafa komið að ég hef þurft að segja einhverjum frá því sem ég hræddist og þá var gott að geta litið inn hjá Stellu og Hadda, þar var hlustað og svo fékk ég ráðleggingar og kær- leiksríkt faðmlag að lokum. „Dokaðu við,“ var sagt, „það er nógur tími.“ Hamingjan býr í húsi þar sem vinir eiga skjól. Nú er tími Stellu liðinn hér á jörð. Takk fyrir það sem þú varst mér og mínum. Ástvinum öllum sendi ég mín- ar innilegustu samúðarkveðjur. Kolbrún Þóra Björnsdóttir. ✝ Þórdís Helga fæddist 10. desember 1927 í Vetleifsholtsparti (nú Kastalabrekka) í Ásahreppi, Rang- árvallasýslu. Hún andaðist í Sunnu- hlíð, Kópavogi 15. júlí 2022. Þórdís var dótt- ir hjónanna Guð- bjargar Guðna- dóttur, f. 12. mars 1892 að Hamarskoti, Gaulverjabæj- arhreppi í Flóa, Árnessýslu, d. í Reykjavík 21. júlí 1972, og Guðmundar Tyrfingssonar, f. 8. desember 1893 í Ártúnum, Rangárvallahreppi, Rangár- vallasýslu, d. á Sjúkrahúsinu á Stórólfshvoli 1. mars 1932. Foreldrar Þórdísar Helgu bjuggu allan sinn búskap að 1947 fór hún til Reykjavíkur og vann þá meðal annars á Hótel Skjaldbreið. Eftir að syn- irnir komust á legg vann Þór- dís í fjölda ára hjá Nið- ursuðuverksmiðjunni Ora í Kópavogi. Eiginmaður Þórdísar var Þórður Kristinn Júlíusson, f. 19. júlí 1928 á Ísafirði. Hann andaðist á Landakoti 4. sept- ember 2016. Þau Þórdís og Þórður gengu í hjónaband 6. desember 1958 og bjuggu lengst af í Hófgerði 13, Kópavogi. Þau eignuðust þrjá syni: 1) Birgir, f. 21. júlí 1956, kvæntur Unni Maríu Ólafsdóttur og eiga þau þrjú börn, Þórð, Sigrúnu og Lindu Maríu. 2) Leifur Ottó, f. 30. nóvember 1961, í sambúð með Gróu Hafdísi Jónsdóttur. 3) Júlíus, f. 13. mars 1964, kvænt- ur Katrínu Níelsdóttur og eiga þau tvo syni, Kristin og Níels Jóhann. Barnabarnabörnin eru fimm og langömmubörnin níu. Útför Þórdísar Helgu verður gerð frá Kópavogskirkju í dag, 25. júlí 2022, klukkan 13. Vetleifsholtsparti, í daglegu tali kall- að Partur, í mót- býli við foreldra Guðmundar, þau Þórdísi Þorsteins- dóttur og Tyrfing Tyrfingsson. Guð- björg bjó áfram eftir lát manns síns í Parti ásamt börnum sínum fram til ársins 1949 en þá fluttist hún til Reykjavíkur. Systkini Þórdísar Helgu voru: Þorgerður Guðný, f. 9.7. 1926, d. 4.9. 2010, Geir, f. 15.9. 1929, d. 12.3. 1993 og Guð- munda Guðbjörg, f. 26.4. 1932, d. 8.6. 2010. Þórdís Helga vann á æsku- árum sínum hefðbundin sveita- störf eins og þá tíðkaðist. Árið Ég minnist tengdamóður minnar með einstakri hlýju frá því ég kynntist henni fyrst árið 1981 er Biggi elsti sonurinn fór að gera hosur sínar grænar fyrir mér. Mér var vel tekið á heimili þeirra hjóna og minnist ég sér- staklega morgnanna um helgar þegar hún var búin að fara út í bakarí og kaupa rúnstykki snemma morguns. Þessu hafði ég ekki vanist á mínu heimili. Síðar þegar barnabörnin fóru að koma þá voru þau alltaf tilbúin að passa þau og færa þeim fata- gjafir, þau voru greinilega ánægð með ömmu- og afahlutverkið. Dísa mín hafði unun af blóm- um. Hún var svo heppin að eiga góða vinkonu sem sáði fyrir fag- urfíflum (bellis) og gaf henni. Það var því nóg af þeim þegar maður gekk út á stétt og blómabeðið þakið fagurfíflum en allt snyrti- lega sett niður því Dísa var mikill snyrtipinni. Alltaf allt hreint og fínt á heimilinu. Þau buðu alltaf okkur fjöl- skyldunni allri í mat á jóladag í hádeginu. Það var ekkert verið að hanga í náttfötum fram eftir degi á þeim tíma. Þetta var samt rólegur og góður dagur því svo var boðið upp á heitt súkkulaði, rjómatertu og smákökur í kaffi- tímanum svo við dormuðum það sem eftir var dags, sérstaklega við tengdadæturnar. Strákarnir spiluðu frekar við krakkana. Síðar þegar við fjölskyldan fluttumst í Mjólkárvirkjun og leigðum íbúðina okkar í bænum áttum við alltaf vísan stað hjá þeim í Hófgerðinu. Þótt það væri ekki mikið pláss vorum við alltaf velkomin. Það var nú ekki mikið mál að koma fimm manna fjöl- skyldu fyrir. Eins ef við fórum í borgarferð til útlanda þá voru þau alltaf tilbúin að hafa börnin fyrir okkur. Svo leið tíminn og sjúkdómurinn fór að gera vart við sig hjá þér, elsku Dísa mín. Ég var nú búin að kynnast honum í gegnum móður mína svo ég sá að hverju stefndi. Það kom að því að þið selduð Hófgerðið og keyptuð litla íbúð í Sunnuhlíð. Það var svolítið erfitt fyrir þig að átta þig á nýjum stað, búin að búa í Hófgerðinu í 40 ár. Sjúkdómurinn ágerðist og árið 2015 kom að því að þú dast og þá var ekki aftur snúið. Þú fórst inn á nokkur hjúkrunarheimili og endaðir í Sunnuhlíð þar sem þú fékkst frábæra ummönnun öll þessi ár. Við fjölskyldan þökkum af heilum hug fyrir það. Hvíl í friði elsku Dísa mín. Loksins ertu komin til Þórðar. Ég efast ekki um að hann hafi tekið vel á móti þér. Þín tengdadóttir, Unnur María Ólafsdóttir. Elskuleg frænka mín, Þórdís Helga Guðmundsdóttir, Dísa frænka, er nú horfin á vit feðra sinna eftir langvinn og erfið veik- indi, síðust systkina sinna. Dísa frænka var ein af mínum uppáhaldsfrænkum og var mér afar kær enda ein af frænkunum sem ég kynntist best. Mamma, Aðalheiður Þorsteinsdóttir, og hún voru bræðradætur, aðeins eitt ár á milli þeirra en mamma var fædd 31. mars 1926 (d. 2006). Þær frænkur ólust upp á sama hlaðinu í Vetleifsholtsparti, í dag- legu tali kallað Partur (nú Kast- alabrekka). Mamma hjá ömmu sinni og afa, þeim Þórdísi Þor- steinsdóttur og Tyrfingi Tyrf- ingssyni, og föðursystur, Sigríði Tyrfingsdóttur og Dísa hjá for- eldrum sínum, þeim Guðbjörgu Guðnadóttur og Guðmundi Tyrf- ingssyni meðan hans naut við en hann lést langt um aldur fram þann 1. mars 1932 (f. 8. desember 1893) úr blóðeitrun eftir mjög erfiða sjúkdómslegu. Börnin voru þá ung, þau Þorgerður Guðný (Gerða), Þórdís og Geir, það elsta á sjötta ári og það yngsta, Guðmunda Guðbjörg (Munda), fæddist 26. apríl 1932 eða eftir lát hans. Fráfall Guð- mundar var mikið áfall fyrir alla fjölskylduna og söknuðurinn sár. Eftir lát manns síns bjó Guðbjörg ásamt börnum sínum áfram í Parti í mótbýli við tengdaforeldra sína allt fram til ársins 1949 en þá fluttist hún til Reykjavíkur. Það sem tengdi okkur Dísu og hennar fjölskyldu einstaklega nánum böndum var að hún var dagmóðir fyrir son minn Grétar Mar áður en hann fékk inni á barnaheimili. Upphaflega dag- móðirin hafði brugðist og ég var í vandræðum. Þá datt mömmu í hug að spyrja Dísu frænku hvort hún gæti tekið hann og varð hún við þeirri bón. Á þeim tíma þekktumst við lítið en kynnin við hana og fjölskyldu hennar voru einstaklega góð. Dísa og maður hennar, Þórður Júlíusson, og synir þeirra þrír, þeir Birgir, Leifur og Júlíus, urðu Grétari Mar sem önnur fjölskylda sem hann hélt ákaflega mikið upp á og mynduðust sterk tengsl milli fjöl- skyldnanna. Það tilheyrði til dæmis gamlárskvöldi hér á árum áður að fara í Hófgerðið að skjóta upp flugeldum saman. Margar ljúfar og dýrmætar minningar eru frá þeim árum. Dísa frænka var fáguð og heil- steypt kona og hafði marga góða kosti til að bera, brosmildi, hlýju, hógværð og einstaka gestrisni. Gaman var að spjalla við þau hjón og þiggja veitingar þegar ég kom síðdegis að sækja soninn í dag- vistina en þau hjón voru einstak- lega samhent og varla nefnd í fjölskyldunni án þess að hitt væri nefnt. Dísa og Þórður voru okkur einkar kær sem og synirnir sem voru Grétari Mar sem eldri bræður. Nánum ástvinum Dísu frænku, vinum og vandamönn- um, sérstaklega sonum hennar og þeirra fjölskyldum, sendi ég mínar innilegustu samúðarkveðj- ur og þakka henni allan vinskap- inn í gegnum tíðina. Með Dísu frænku er gengin mæt og merki- leg kona sem upplifði, eins og hennar kynslóð, tímana tvenna og miklar umbyltingar í íslensku þjóðlífi. Þórdís Torfhildur. Þórdís Helga Guðmundsdóttir Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, SIGURÐUR PÁLSSON, Þverbraut 1, Blönduósi, áður til heimilis við Kálfshamarsvík á Skaga, lést á HSN á Blönduósi laugardaginn 16. júlí. Útför hans fer fram frá Blönduóskirkju laugardaginn 30. júlí kl. 14. Hægt verður að nálgast streymi frá útför á facebook-síðu Blönduóskirkju. Alda Dagbjört Friðgeirsdóttir Guðbjörg Sigurðardóttir Kristján Þröstur Jónsson Gerður Eyrún Sigurðardóttir Sigurjón Kjartansson Heiðdís Björk Sigurðardóttir Marías Bjarni Viggósson Guðný Sigurðardóttir Kjartan Már Kjartansson barnabörn og barnabarnabörn

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.