Morgunblaðið - 25.07.2022, Síða 27

Morgunblaðið - 25.07.2022, Síða 27
_ Heimsmeist- arinn Max Ver- stappen, liðs- maður Red Bull, vann franska Formúlu eitt- kappaksturinn í Le Castellet í gær. Lewis Ha- milton hjá Merce- des varð annar í sínum þrjúhundr- aðasta Formúlu eitt-kappakstri á ferlinum og liðsfélagi hans George Russell varð þriðji. Verstappen er með 63 stiga forskot á Charles Lec- lerk í stigakeppni ökuþóra í formúl- unni. _ Erling Braut Haaland, norski sóknarmaðurinn, var fljótur að skora í fyrsta leiknum fyrir Manchester City, Englandsmeistarana í knatt- spyrnu, sem keyptu hann af Dort- mund í sumar. Haaland skoraði sig- urmarkið strax á 12. mínútu gegn Þýskalandsmeisturum Bayern Münc- hen, 1:0, í sýningarleik liðanna í Green Bay í Bandaríkjunum í fyrri- nótt. _ Víkingar sigruðu Stjörnuna í ís- lenskum úrslitaleik í flokki 16 ára drengja á alþjóðlega knattspyrnu- mótinu Gothia Cup í Gautaborg í Sví- þjóð á laugardagskvöldið. Úrslita- leikurinn endaði 0:0 en Víkingar sigruðu í vítaspyrnukeppni og Guðni Th. Jóhannesson forseti Íslands, sem fylgdist með mótinu, afhenti þeim sigurlaunin í leikslok. Víkingar unnu alla níu leiki sína á mótinu og Stjarnan alla átta leikina fram að úrslitaleiknum. _ Perla Sól Sigurbrands- dóttir úr Golf- klúbbi Reykjavík- ur varð á laugardaginn fyrst Íslendinga til að verða Evrópumeist- ari 16 ára og yngri í golfi. Hún sigraði á Evrópumeistaramótinu í þessum aldursflokki sem þá lauk í Finnlandi og tryggði sér eins höggs sigur með pútti á átjándu og síðustu holunni. Hún lék þrjá hringi á mótinu samtals á 214 höggum, tveimur höggum und- ir pari vallarins. _ Golfklúbbur Mosfellsbæjar sigraði Golfklúbb Reykjavíkur, 3,5:1,5, í úr- slitaleiknum á Íslandsmóti golf- klúbba í kvennaflokki á Hlíðavelli í Mosfellsbæ á laugardaginn. Þetta er fjórði sigur GM í sögunni. Í úrslita- leiknum í karlaflokki vann Golf- klúbbur Kópavogs og Garðabæjar sigur á Golfklúbbi Reykjavíkur, 3:2. GKG varð þar með meistari í fjórða sinn á sex árum. _ Velski knattspyrnumaðurinn Ga- reth Bale var fljótur að skora í bandarísku MLS-deildinni. Hann kom inn á eftir 65 mínútur hjá Los Angel- es FC í sínum fyrsta leik í fyrrinótt og skoraði 18 mínútum síðar og gull- tryggði sigur liðsins á Sporting Kan- sas City, 2:0. ÍÞRÓTTIR 27 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 25. JÚLÍ 2022 Íslenska piltalandsliðið í körfubolta, skipað leikmönnum yngri en 20 ára, tryggði sér á laugardaginn sæti í A- deild Evrópumótsins á næsta ári með því að sigra Finna á sannfær- andi hátt, 94:77, í undanúrslitum B- deildarinnar í Tbilisi í Georgíu. Orri Gunnarsson skoraði 27 stig fyrir Ísland í leiknum, Friðrik Jóns- son 15, Sigurður Pétursson 14 og Þorvaldur Orri Árnason 10. Serbía vann síðan Ísland, 81:67, í úrslitaleik B-deildarinnar í gær en liðin voru bæði komin upp og Eist- land fylgir þeim í A-deildina eftir sigur á Finnum í leiknum um brons- verðlaunin í gær. Staðan í hálfleik var 39:38, Serbum í hag. Þorvaldur Orri Árnason skoraði 19 stig gegn Serbum í gær en hann var tilnefndur sem einn af bestu leikmönnum mótsins. Sigurður Pét- ursson skoraði 11 stig og Ólafur Gunnlaugsson átta. Silfur og sæti í A- deild Evrópumóts Ljósmynd/FIBA A-deild Sigurreifir leikmenn íslenska liðsins eftir að Finnar voru lagðir að velli í úrslitaleiknum um sæti í A-deild Evrópumótsins. Langri þrautagöngu Frakka á Evr- ópumóti kvenna í fótbolta lauk loks í Rotherham á Englandi í fyrra- kvöld þegar franska liðið vann Evr- ópumeistara Hollands, 1:0, í fram- lengdum leik í átta liða úrslitum þar sem Éve Périsset, sem í sumar gekk til liðs við ensku meistarana Chelsea, skoraði sigurmarkið úr vítaspyrnu. Þetta er í fyrsta skipti sem Frakkland kemst í undanúrslit EM en á sex síðustu Evrópumótum í röð hefur franska liðið fallið úr keppni í átta liða úrslitum. Sömu sögu er að segja af tveimur síðustu heims- meistaramótum og Ólympíu- leikunum 2016. Þá enduðu Frakkar í fjórða sæti HM 2011 og í fjórða sæti á ÓL 2012 og hafa því aldrei unnið til verðlauna á stórmóti þrátt fyrir að hafa verið í fremstu röð mestalla þessa öld. Frakkar mæta Þjóðverjum í undanúrslitum á Milton Keynes á miðvikudagskvöld en Englendingar og Svíar eigast við í Sheffield annað kvöld. AFP/Lindsey Parnaby Undanúrslit Éve Périsset fagnar sigurmarkinu gegn Hollendingum. Langri þrautagöngu Frakka loks lokið Kanada og Bandaríkin unnu heims- meistaratitlana í 4x100 m boðhlaupi karla og kvenna í Eugene í Banda- ríkjunum í fyrrinótt og þar var í báðum tilvikum um mjög athyglis- verða og frekar óvænta sigra að ræða. Kanada vann boðhlaupið í karla- flokki í fyrsta sinn í 25 ár og hafði betur gegn Bandaríkjunum á 37,48 sekúndum gegn 37,55. Aaron Brown, Jerome Blake, Brendon Rodney og Andre De Gasse skipuðu sigursveitina. Í kvennaflokki unnu Bandaríkin frekar óvæntan sigur á sveit Ja- maíku sem skartaði sigurveg- urunum í 100 og 200 m hlaupunum, Shericku Jackson og Shelly-Ann Fraser-Pryce, ásamt Elaine Thomp- son-Herah, ólympíumeistaranum í 100 og 200 m hlaupum. En þær Abby Steiner, Melissa Jef- ferson, Jenna Pradini og Twanisha Terry komu samstilltari í úr- slitahlaupið úr forkeppninni og sigruðu á 41,14 sekúndum, fimmta besta tíma sögunnar í greininni, og Jamaíka fékk silfrið á 41,18 sek- úndum. _ Anderson Peters frá Grenada varð heimsmeistari í spjótkasti karla í annað skiptið í röð og kastaði 90,54 metra. _ Emmanuel Kipkurui Korir frá Kenía sigraði í 800 m hlaupi karla á 1:43,71 mínútu. _ Pedro Pichardo frá Portúgal sigraði í þrístökki karla, stökk 17,95 metra. _ Gudaf Tsegay frá Eþíópíu sigr- aði í 5.000 m hlaupi kvenna á 14:46,26 mínútum. Óvænt úrslit í báð- um boðhlaupunum AFP/Steph Chambers Heimsmeistarar Prandini, Steiner, Terry og Jefferson fagna sigrinum. Danmörk AaB – Köbenhavn.................................... 1:3 - Ísak B. Jóhannesson lék seinni hálfleik- inn með Köbenhavn og skoraði eitt mark, Hákon Arnar Haraldsson lék í 71 mínútu og lagði upp mark en Orri Steinn Óskars- son var varamaður og kom ekki við sögu. AGF – Viborg........................................... 3:1 - Mikael Anderson lék fyrstu 69 mínút- urnar með AGF. Randers – OB ........................................... 2:2 - Aron Elís Þrándarson kom inn á hjá OB á 70. mínútu. Svíþjóð Häcken – Djurgården ............................. 1:2 - Valgeir Lunddal Friðriksson lék allan leikinn með Häcken. Kalmar – Elfsborg................................... 1:0 - Davíð Kristján Ólafsson lék allan leikinn með Kalmar. - Hákon Rafn Valdimarsson varði mark Elfsborg og Sveinn Aron Guðjohnsen kom inn á strax á 14. mínútu. Malmö – Sirius ......................................... 3:1 - Aron Bjarnason fór af velli hjá Sirius á 77. mínútu og Óli Valur Ómarsson kom í hans stað. Staða efstu liða: Djurgården 16 10 3 3 35:11 33 Häcken 15 9 4 2 33:21 31 AIK 16 9 4 3 24:19 31 Malmö 16 9 3 4 22:13 30 Hammarby 14 8 3 3 27:11 27 Kalmar 15 7 3 5 17:12 24 Mjällby 15 6 5 4 16:14 23 B-deild: Örebro – Utsikten.................................... 2:0 - Axel Óskar Andrésson lék allan leikinn með Örebro sem er í sjöunda sæti. Noregur Bodö/Glimt – Jerv ................................... 5:0 - Alfons Sampsted lék allan leikinn með Bodö/Glimt. Kristiansund – Odd ................................. 2:2 - Brynjólfur Willumsson lék í 64 mínútur með Kristiansund og lagði upp mark. Strömsgodset – HamKam ...................... 1:1 - Ari Leifsson lék allan leikinn með Strömsgodset. Vålerenga – Viking ................................. 4:2 - Brynjar Ingi Bjarnason var varamaður hjá Vålerenga og kom ekki við sögu. - Samúel Kári Friðjónsson lék allan leik- inn með Viking en Patrik S. Gunnarsson var varamarkvörður liðsins. Staða efstu liða: Molde 16 11 3 2 32:15 36 Lillestrøm 15 10 3 2 29:14 33 Bodø/Glimt 15 8 4 3 35:18 28 Viking 17 8 4 5 30:23 28 Rosenborg 15 6 7 2 26:17 25 Strømsgodset 15 6 4 5 21:22 22 >;(//24)3;( Vináttulandsleikir U18 karla Færeyjar – Ísland ................................ 39:33 Færeyjar – Ísland ................................ 29:29 E(;R&:=/D EM U20 karla B-deild í Georgíu: Undanúrslit: Ísland – Finnland ................................. 94:77 Serbía – Eistland.................................. 73:58 Úrslitaleikur: Serbía – Ísland...................................... 81:67 Bronsleikur: Finnland – Eistland ............................. 53:63 _ Serbía, Ísland og Eistland leika í A-deild á næsta ári. Ástralía South Adelaide – Southern Tigers ... 45:83 - Isabella Ósk Sigurðardóttir skoraði 2 stig og tók 4 fráköst á 18 mínútum með South Adelaide. >73G,&:=/D KNATTSPYRNA Besta deild karla: Akranes: ÍA – Fram ............................. 19.15 Meistaravellir: KR – Valur.................. 19.15 Í KVÖLD! 8-liða úrslit: Frakkland – Holland ....................... (frl.) 1:0 Undanúrslit á þriðjudag: England – Svíþjóð ..................................... 19 Undanúrslit á miðvikudag: Þýskaland – Holland ................................. 19 Markahæstar á EM: Beth Mead, Englandi.................................. 5 Alexandra Popp, Þýskalandi...................... 4 Alessia Russo, Englandi ............................. 3 Grace Geyoro, Frakklandi.......................... 3 Georgia Stanway, Englandi ....................... 2 Ellen White, Englandi ................................ 2 Lina Magull, Þýskalandi............................. 2 Romée Leuchter, Hollandi ......................... 2 Filippa Angeldahl, Svíþjóð ......................... 2 EM KVENNA 2022 Daninn Jonas Vingegaard vann í gær Frakklandshjólreiðarnar, Tour de France, sem lauk á Champs- Élysées-breiðstrætinu í París eftir þriggja vikna keppni. Hann var með sigurinn í hendi sér fyrir síðustu dagleiðina, 115 kíló- metra vegalengd með lokamarki í höfuðborginni, og endaði tveimur mínútum og 43 sekúndum á undan Tadej Pogacar frá Slóveníu. Þriðji varð Geraint Thomas frá Wales, sem vann keppnina árið 2018, en hann var 7 mínútum og 22 sek- úndum á eftir Dananum. Jasper Philipsen frá Belgíu vann hinsvegar lokasprettinn í gær. Vingegaard, sem er 25 ára gamall og keppir fyrir Team Jumbo Visma, vann þar með Tour de France í fyrsta skipti og náði að snúa við niðurstöðu síðasta árs. Þá var það Pogacar sem varð sigurvegari og Vingegaard hafnaði í öðru sæti. AFP/Thomas Samson Sigurvegarinn Jonas Vingegaard með sigurlaunin á Champs-Élysées í Par- ís í gær eftir að hafa tryggt sér sigurinn í Frakklandshjólreiðunum 2022. Danskur sigur í Tour de France

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.