Morgunblaðið - Sunnudagur - 19.06.2022, Blaðsíða 6
VETTVANGUR
6 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 19.6. 2022
S
kyldi tónlistarmanninum
Helga Björnssyni alltaf finn-
ast rigning vera góð? Maður
gæti freistast til að halda það því
svo oft syngur hann lofgjörð til
rigningarinnar. Og við sem hlustum
hljótum að vera farin að gera því
skóna að þetta sé yfirveguð niður-
staða, að rigning sé hreinlega eftir-
sóknarverð og góð að mati Helga
Björns, en vel að merkja að hans
mati. Þar kemur hið huglæga til
sögunnar.
Mér hefur alltaf þótt landamæri
hins hlutlæga og hins huglæga vera
áhugaverð enda
ekki alltaf auðvelt
að koma auga á
þau. Stundum er
það þó þannig.
Eftir mikla
þurrkatíð fagnar
bóndinn vætunni,
finnst rigningin
góð, en eftir langt rigningatímabil
vill hann á hinn bóginn fá þurrk.
Rigning er með öðrum orðum góð
þegar gróðurlendi skrælnar og
grasið hættir að vaxa. Það eru
óvefengjanleg bláköld sannindi eins
hlutlæg og verða má. En ekki bíta
þau sannindi á hljómsveit Helga
Björnssonar, SSSól, sem kyrjar
óðinn til úrkomunnar óháð öllum
heyskap.
Rigningin er þó ekki tilefni þessa
hugrenningaflakks sem ég leyfi
mér í þessum pistli heldur all-
sérstæð afstaða lítils leikskólabarns
austur í Japan. Þetta barn var
reyndar að öllum líkindum aldrei til
nema í skáldsögu. Sú skáldsaga
heitir Kjörbúðarkonan og er eftir
Sayöku Murata og er nýkomin út á
íslensku hjá Angústúruútgáfunni.
Þetta skáldaða leikskólabarn átti
síðar á lífsleiðinni eftir að starfa í
kjörbúð sem skýrir titil bókarinnar.
Ekki var barnið eins og önnur
börn. Fjarri lagi. Glæpur þess, ef
svo má að orði komast, var sá að
skynja ekki hið huglæga í tilver-
unni. Þetta birtist lesandanum fyrst
þegar leikskólabörnin finna lítinn
stofufugl sem greinilega hafði verið
snúinn úr hálsliðnum og skilinn
þannig eftir á víðavangi. Hvílíkur
harmur. Og nú vildu börnin jarða
fuglinn með tilhlýðilegri virðingu
og hluttekningu. Öll vildu þau þetta
nema kjörbúðarkonan tilvonandi.
Hún stakk upp á því að fuglinn
yrði matreiddur og hafði á orði að
pabba sínum þætti gott fuglakjöt
og hvers vegna ekki borða kjötið af
þessum fugli? Alla hryllti við, bæði
skólabörnin og foreldra þeirra sem
höfðu sameinast um að tína blóm á
leiði litla fuglsins því það væri til
marks um virðingu fyrir hverfulu
lífríkinu að setja „blómalík“ á leið-
ið.
Þarna mættust hinn hlutlægi
heimur sem leggur sér reglulega
fuglakjöt til munns án þess að
blikna og hinn huglægi sem syrgir
ótímabæran dauða. Enda var leik-
skólabarnið okkar skilgreint sem
afbrigðilegt og tilfinningasnautt.
Nokkuð til í því þykir okkur eflaust
flestum. Ef eitthvað er þurfi meiri
tilfinningar og meiri viðkvæmni inn
í tilveruna. Stund-
um þarf að vera
hægt að horfa
framhjá mótsögn-
um lífsins og
beina sjónum ein-
vörðungu að því
sem gott er.
Heimur án kær-
leika sé varla góður íverustaður.
Hann sé fráhrindandi og kaldur.
Vel á minnst. Hið huglæga getur
líka haft áhrif á hitastigið eða öllu
heldur hvernig við skynjum það.
Því hefur verið haldið fram að á Ís-
landi gerist það stundum að hver
celsíusgráða verði á við tvær í öðr-
um löndum. Vegna þess að sólin sé
heitari? Hugsanlega hefur hreint
loft eitthvað að segja. Nei, ekki er
það þó meginskýringin á þessum
hitamun. Skýringin er sú að á góð-
um sumardegi fagnar þjóð, sem að
jafnaði býr við válynd veður, sumri
og sól af slíkum innilegheitum að
með henni stígur hitastigið hraðar
en gerist með öðrum þjóðum.
Þarna er með öðrum orðum hin
huglæga vídd að verki.
Þá er það aftur að SSSól sem
syngur rigningunni til dýrðar. Og
það óháð hagsmunum í heyskap.
Getur það verið að Helgi Björns-
son sé einfaldlega að rétta úr sér,
bjóða tilverunni birginn og segja að
sér finnist lífið gott hvað sem líður
skini og skúrum?
Öll skiljum við þetta heróp, að
láta aldrei bugast; að hvernig sem
viðrar á okkur í lífinu þá stöndum
við alltaf keik og segjum með bros
á vör að okkur finnist rigningin
góð.
Að því gefnu að vísu að hey sé
komið í hús.
Morgunblaðið/Hari
Finnst þér
rigningin góð?
Úr ólíkum
áttum
Ögmundur Jónasson
ogmundur@ogmundur.is
’
Mér hefur alltaf
þótt landamæri hins
hlutlæga og hins hug-
læga vera áhugaverð
enda ekki alltaf auðvelt
að koma auga á þau.
Alhliða húsgagnaviðgerðir
Antikmunir, Klapparstígur 40b (bakhús), 101 Reykjavík,
sími 896 3177, antikmunir101@gmail.com, antikmunir.is
Áratuga reynsla
í viðgerðum á
húsgögnum