Morgunblaðið - Sunnudagur - 19.06.2022, Blaðsíða 12
starfi en áhuginn var enn fyrir hendi og ég
notaði tækifærið þegar ég gat til að heim-
sækja vínræktarhéruð ef ég var í fríi,“ segir
Björn Ingi sem er nú nýhættur sem yf-
irverkefnastjóri hjá Austurbrú, en vinnur
enn þar sem ráðgjafi í samgöngu- og flug-
málum.
Hann dreymir um að gera vínfræðsluna að
aðalstarfi.
„Ég er að keyra þetta verkefni áfram og hef
mikinn metnað fyrir því. Ég veit að ég verð
aldrei ríkur af þessu en þetta veitir mér mikla
ánægju og ég brenn fyrir þetta.“
Erum ekki vínræktarland
Eitt leiddi af öðru og vínáhuginn óx og varð að
mikilli ástríðu. Einhvers staðar á leiðinni
kviknaði hugmynd sem nú er að verða að veru-
leika.
„Ég er búinn að ganga með þessa hugmynd í
maganum í fjölda ára, að setja upp vínskóla,“
segir hann og segist hafa viljað sérhanna hann
fyrir Íslendinga.
„Við erum ekki vínræktarland og því finnst
mér vanta að fólk viti meira um hvernig léttvín
er búið til, um þrúgurnar, landslagið, loftslagið
og jarðveginn. Ég hef sett upp námskeiðin
þannig að þau eru afar fræðandi,“ segir hann
og segir hvert námskeið taka tvo til tvo og
hálfan tíma.
„Ég byrja á að bjóða upp á smá freyðivín í
glas og útskýri hvað það er og hvernig það er
búið til. Ég segi líka frá glösunum og hvers
vegna þau eru eins og þau eru. Ég er svo með
myndir á glærum og tala út frá þeim. Eftir
um klukkutíma af bóklegri fræðslu smökkum
við tvö rauðvín og tvö hvítvín, sem eru þá
hvor af sínum ásnum. Við smökkum annars
vegar arómatískt hvítvín og hins vegar hvít-
vín eins og Chardonnay sem er unnið öðru-
vísi. Varðandi rauðvínið smökkum við létta
þrúgu, sem er ljós á lit, og einnig stórt og höf-
ugt vín, kraftmikið,“ segir hann og segir fólk
hafa tækifæri á að spýta ef það svo kjósi,
enda eru ef til vill einhverjir bílstjórar í hópn-
um.
„Við reynum að taka fyrir eitt vínrækt-
arsvæði, eða eitt land, en ég hef tekið sérstök
próf í gegnum tíðina eins og WSET L-3 (Wine
and Spirit Educational Trust) og svo námskeið
þar sem eitt sérstakt vínræktarland er tekið
fyrir á vegum Wine Scholar Guild. Þar hef ég
lokið prófi í Frakklandi og Spáni, og er sem
stendur að læra um Ítalíu,“ segir Björn Ingi og
bendir á innrömmuð skírteini á veggjum máli
sínu til stuðnings.
Í dag er ég alæta
Við göngum út fyrir skólann og skoðum fal-
legt umhverfið. Tíkin Esja fær að fylgja með
og er afar spök og gæf. Björn Ingi og Esja
setjast út á bekk og blaðamaður smellir af
nokkrum myndum. Það er ekki úr vegi að
spyrja að lokum hvort ástríðuvínáhugamað-
urinn og vínkennarinn tilvonandi eigi sér
uppáhaldsvín.
„Ég er alæta en verð að viðurkenna að ég
hafði viljandi haldið Frakklandi utan við
mengið af því að það er frekað flókið og auð-
veldara að byrja á löndum eins og Ástralíu
og Nýja-Sjálandi. Ég elskaði nýsjálensk
hvítvín og mörg áströlsk kraftmikil vín höfð-
uðu mjög til mín í byrjun. Svo hefur það
breyst og ég er í dag alæta. Mér finnst núna
til dæmis Spánn einstaklega sjarmerandi
vínræktarland og hef ferðast þar töluvert
um. Þar er mikil flóra í bæði rauðvíni og hvít-
víni,“ segir hann og segir einnig að Ítalía
höfði mikið til sín.
Það er ljóst að Björn Ingi er eins og barn
sem getur ekki beðið eftir jólunum; hann get-
ur ekki beðið eftir að opna Vínskólann við
vatnið.
„Ég mun nálgast viðfangsefnið þannig að
almenningur geti haft af bæði gagn og
gaman. Ég mun tala mannamál og við
munum hafa léttleikann að leiðarljósi meðan
við fræðumst um þetta heillandi viðfangs-
efni.“
Borðstofan er skemmtilega
innréttuð með vegg þakinn
trélokum af vínkössum.’
Ég er ekki að kynna
neinar vörur og þessi
námskeið eru ekki fyrir fólk
sem er að leita að djammi
eða gæsa- og steggjapartíum.
Þetta eru hágæðanámskeið.
Stórir gluggar eru
þarna svo hægt sé
að njóta útsýnisins.
Meðalfellsvatnið er nokkra
metra frá skólanum.
VÍN
12 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 19.6. 2022