Morgunblaðið - Sunnudagur - 19.06.2022, Blaðsíða 15

Morgunblaðið - Sunnudagur - 19.06.2022, Blaðsíða 15
Morgunblaðið/Eggert Hluti fíkniefnanna sem lögregla hald- lagði á dögunum. Morgunblaðið/Eggert legir borgarar þurfi að hafa áhyggjur af of- beldi en á móti kemur að maður veit ekki hvaða mynd þeir hafa af venjulegum borg- urum. Dílerarnir ráða för, hvar efnin eru seld og afhent og opinber neytendavernd er engin. Ótti við afskipti lögreglu virðist sömuleiðis lít- ill.“ Viðskiptin orðin dulkóðuð Að sögn Helga var Facebook virkur miðill í viðskiptum með fíkniefni og þar mátti um tíma finna um 30 lokaða hópa með þúsundir meðlima. „Markaðssetningin var líka ágeng. Birtar voru lokkandi auglýsingar um fíkni- efni, alla flóruna, og engu líkara en fagmenn stæðu að baki. Maður varð alveg gáttaður. Facebook er ekki notuð í dag og viðskiptin á netinu hafa meira og minna færst yfir á dul- kóðuð svæði. Þessir aðilar eru vanir að laga sig að aðstæðum enda þurfa þeir alltaf að vera einu skrefi á undan lögreglunni. Fíkni- efnasalar haga sér á margan hátt eins og amöbur.“ Það er borin von að útrýma fíkniefnum, um það eru flestir sammála, og Helgi segir hlut- verk lögreglu að reyna að höggva í framboðið, með því að uppræta sölu, framleiðslu og inn- flutning á efnum og senda þannig út skýr skilaboð. Það hafi verið gert með myndar- legum hætti nú og fleiri dæmi séu um slíkar aðgerðir, eins og Skútumálið og Stóra fíkni- efnamálið um aldamótin. „Þetta nýja mál mun vafalítið hafa tímabundin áhrif á markaðinn en mín skoðun er sú að þau muni ekki vara lengi. Markaðurinn mun fljótt ná jafnvægi aftur.“ Hann segir ýmislegt hægt að læra af þjóð- um sem séu frjálslyndari gagnvart fíkni- efnum, eins og Hollendingum. „Umburð- arlyndið er meira þar gagnvart neyslu vægari efna en á móti kemur að Hollend- ingar eru að haldleggja einna mest af fíkni- efnum allra þjóða í Vestur-Evrópu; þeir eru mjög harðir gagnvart ólöglegri sölu og dreifingu.“ Neyslan í reynd mjög lítil Oft er sagt að stríðið gegn fíkniefnum sé tapað en Helgi er þeirrar skoðunar að það sé orðum aukið. „Þegar allt kemur til alls er fíkniefna- neysla á Íslandi í reynd mjög lítil og miklu minni en til dæmis áfengisneysla. Hugsanlega er pottlok á þessum markaði sem bannið veitir þótt andstaðan við fíkniefni sé einnig félags- og menningarleg. Brýnast er að nálgast betur fólk með fíknivanda eins og þau sem sprauta sig í æð og huga að forvörnum. Eldra fólkið hefur mun meiri áhyggjur af fíkniefnum en það yngra enda með börnin og barnabörnin sín í huga stundum í neyslu. Yngra fólkið hefur minni áhyggjur.“ Helgi minnir á að dregið hafi úr áfengis- vanda ungs fólks eftir að bjórinn var leyfður árið 1989, auk þess sem verulega hafi dregið úr tóbaksnotkun án refsilíkansins. Í dag fer ís- lenska forvarnarmódelið Planet Youth sigur- för um heiminn þar sem refsivöndurinn kemur hvergi við sögu. Forvarnir skipti því óneitan- lega miklu máli. – Er eitthvað sem lögregla getur gert sem hún er ekki að gera nú þegar? Erum við að missa af einhverjum tækifærum? „Lögreglan er einfaldlega að fylgja lögum landsins. Í grunninn vinnur hún eins og lög- reglan í nágrannalöndunum og eins og þetta nýja mál sýnir er góð samvinna í gangi við til dæmis Europol. Eigi að skipta um kúrs er það fyrst og fremst pólitísk spurning.“ Að áliti Helga er árangursríkast að heyja þessa baráttu á alþjóðavettvangi í góðu sam- starfi við aðrar þjóðir. „Ísland, sem nýbúið er að leyfa bjór, er ekki líklegur brautryðjandi að breyttri fíkniefnapólitík, þótt hægt sé að taka smærri skref. Þetta er alþjóðlegur vandi og farsælast að leysa hann í samstarfi við aðrar þjóðir.“ Morgunblaðið/Golli 19.6. 2022 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 15

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.