Morgunblaðið - Sunnudagur - 19.06.2022, Page 20

Morgunblaðið - Sunnudagur - 19.06.2022, Page 20
20 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 19.6. 2022 FERÐALÖG Síðumúli 16 I 108 Reykjavík I Sími 580 3900 I fastus.is fastus.is WEXIÖDISK, COMENDA OG HOBART UPPÞVOTTAVÉLAR ÖFLUGUR LIÐSAUKI Í ELDHÚSIÐ WEXIÖDISK Vandaðar og öflugar vélar fyrir þá sem vilja það besta COMENDA Ódýrari kostur - öflug og góð vél fyrir stærri eldhús HOBART Frábær fyrir minni eldhús, kaffistofur o.fl. Nánari upplýsingar veitir sölufólk okkar í síma 580 3900 H eiða Björg Ingólfs- dóttir, leikskóla- kennari frá Fá- skrúðsfirði, lét ekki slíkar vangaveltur nægja. Hún lagði drög að utanför í nokkur ár, lét slag standa í fyrra og er nýkomin heim eftir ferðalag í tæpt ár. Heiða ræddi við Sunnudagsblaðið um ferðina sem tók óvænta stefnu fyrir áramót. Upphaflega ætlaði Heiða sér að flakka um Evrópu og var í Þýskalandi þegar hún fékk heimboð til Nígeríu. „Vinur minn sem er kallaður Ben býr í Nígeríu. Hann vissi að ég væri á löngu ferðalagi og bauð mér að eyða jólunum með sér í Nígeríu. Ég var í München en við byrjuðum að tala um í október að ég myndi vera í Nígeríu um jólin. Það átti að vera nægur tími og ég fór að lesa um ferl- ið. Upplýsingarnar voru svolítið mis- vísandi. Ég taldi að fólk með íslenskt vegabréf myndi fá stimpil á flugvell- inum en svo kom í ljós að það er bara fyrir forgangshópa. Ég þurfti á end- anum að senda bæði pappíra og vegabréfið mitt til Írlands vegna þess að sendiráð Nígeríu í Dublin sér um vegabréfsáritanir fyrir Ís- lendinga. Fyrst fannst mér það ekki geta staðist, og fannst óþægilegt að senda vegabréfið í pósti, enda er vegabréfið eitt það dýrmætasta sem maður á. Auk þess var þetta skömmu fyrir jól og þá var ég sem sagt vegabréfslaus í München. Ef mér tækist ekki að komast til Níger- íu þá var plan b að fara heim til Ís- lands um jólin. Ég gat alla vega ekki hugsað mér að vera ein í München á jólunum. Þetta tók óratíma og ég fékk aldr- ei skýr svör. Þá hafði ég samband við utanríkisráðuneytið og í fram- haldinu var ræðismaður Nígeríu á Íslandi settur í málið. Þegar hann fór að spyrjast fyrir var málið af- greitt og ég fékk vegabréfið til baka með stimplinum. Þegar farið er til Nígeríu þarf að framvísa alls kyns upplýsingum eins og yfirlýsingu frá viðskiptabankanum um að maður geti framfleytt sér í landinu. Þetta var orðið mjög stressandi svona rétt fyrir jól og maður er búinn að bóka rándýrt flug sem maður vill helst ekki breyta. Þökk sé kórónuveirunni reyndist auðvelt að breyta fluginu. Ég ætlaði að koma til Nígeríu viku fyrir jól en skilaði mér á Þorláks- messu. Á aðfangadagskvöld hringdi ég í foreldrana og tjáði þeim að ég væri í Nígeríu. Þeim stóð ekki alveg á sama en fundu að ég var í góðum höndum.“ Börnin í Bíafra Margir Íslendingar kannast við borgarastyrjöldina sem geisaði í Nígeríu á sjöunda áratugnum. Igbo ættbálknum lýsti yfir sjálfstæði Bí- afra í austurhluta landsins en eftir borgarastyrjöldina lést um ein millj- ón vegna sjúkdóma og hungurs. Þegar Ingólfur faðir Heiðu var að alast upp á Fáskrúðsfirði var honum sagt að hugsa til barnanna í Bíafra. Um fjórum áratugum síðar var dótt- ir hans stödd á þessu svæði, sem er ekki beinlínis ferðamannastaður. „Hugsaðu nú til barnanna í Bíafra var það sem pabbi fékk að heyra við matarborðið þegar hann var lítill strákur ef hann var ekki sáttur við það sem var á boðstólum. Og hvar var ég nú lent? Jú, akkúrat á meðal Bíafrafólksins. Þeim fannst alveg magnað að heyra að á litla Íslandi á þessum tíma hefði fólk yfirhöfuð vit- að hvar Bíafra var. Hvað þá að Ís- lendingar hefðu verið með hugann við hörmungarnar í Bíafra. Þá var borgarastyrjöld á þessu svæði en í dag er allt með mun friðsamlegra móti þótt vissulega kraumi enn mik- ið undir í samfélagi Igbo-ættbálks- ins sem varð illa úti í þeirri baráttu,“ Þarfasti þjónninn? Ljósmynd/úr einkasafni Heiða Björg Ingólfsdóttir á Fróni. Morgunblaðið/Hákon Erum öll eins í grunninn Margir velta því fyrir sér hvort ekki væri hress- andi að fá einhverja tilbreytingu í lífið og til- veruna. Brjóta sér leið út úr hversdagsleikanum með einhverjum hætti. Kristján Jónsson kris@mbl.is 5

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.