Morgunblaðið - Sunnudagur

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

Morgunblaðið - Sunnudagur - 19.06.2022, Qupperneq 29

Morgunblaðið - Sunnudagur - 19.06.2022, Qupperneq 29
um takti sem fær okkur til að hugsa hvaða hæðum Elvis hefði getað náð hefði hann ekki orðið fórnarlamb skuggahliðar sinnar eigin frægðar,“ skrifar Pete Hammond í Deadline Hollywood og bætir við að Butler sé sem skapaður fyrir hlutverkið. Philip De Semlyen, gagnrýnandi Time Out, segir að þegar Butler hnykki mjöðmunum í fyrsta sinn á sviði í myndinni, sé það eins og að „horfa á tvær stjörnur fæðast í senn“. Myndin sjálf fær gegnumsneitt frekar jákvæða dóma, þó inn á milli megi finna gagnrýnendur sem eru ekki eins hrifnir. Um er að ræða ævisögulega kvik- mynd sem segir sögu Elvis frá því að hann var barn og þangað til hann féll frá langt fyrir aldur fram, lúinn á lík- ama og sál. Þar á milli slær hann rækilega í gegn sem rokkari og kvik- myndaleikari, svo annað eins hefur varla sést. Fá menn örlög sín í vöggu- gjöf eða knýja þau einfaldlega dyra? Þá fer talsvert rými undir flókið sam- band Elvis við umboðsmann sinn, Tom Parker ofursta, sem Tom Hanks leikur, einnig við mikla hrifningu gagnrýnenda. „Sumir myndu segja að ég væri skúrkurinn í þessari sögu,“ segir Hanks seiðandi röddu í stiklu myndarinnar. En deildu þeir Elvis mögulega bara sömu ástríðu, sömu sýn? Eðli málsins samkvæmt er tónlist- in rauður þráður gegnum myndina og hver Elvis-smellurinn af öðrum fær að heyrast. „Ef þú þorir ekki að orða hugsun þína þá skaltu syngja!“ segir Elvis í stiklunni. Elvis syngur að vonum sjálfur, eins Austin Butler, en einnig koma við sögu listamenn á borð við Stevie Nicks, Eminem & CeeLo Green, Ka- cey Musgraves, Måneskin og Jack White. Þá samdi tónlistarkonan Doja Cat sérstaklega lag fyrir myndina undir sterkum áhrifum frá Elvis. Það heitir því viðeigandi nafni Vegas. Myndin var lengi í pípunum en strax árið 2014 var gert heyrinkunn- ugt að ástralski leikstjórinn Baz Luhrmann hygðist gera sögu Elvis skil á hvíta tjaldinu. Hann er kunnur fyrir myndir á borð við Rauðu myll- una, William Shakespeare’s Romeo + Juliet og Strictly Ballroom. Luhr- mann skrifaði handritið sjálfur ásamt Sam Bromell, Craig Pearce og Je- remy Doner. Skriður komst þó ekki á verkefnið fyrr en 2019, þegar Butler var ráðinn í aðalhlutverkið og hristi þar af sér áskorendur á borð við Ansel Elgort, Miles Teller og Harry Styles. Tökur hófust í janúar 2020 en lágu niðri mánuðum saman vegna heimsfarald- ursins. Þeim lauk loks í mars í fyrra. Endaði á spítala Butler gaf sig allan í verkefnið og endaði meira að segja á spítala degi eftir að tökum lauk. „Ég vaknaði sárkvalinn og brunað var með mig á spítala,“ segir hann í samtali við breska tímaritið GQ. Hann mun hafa verið greindur með sýkingu og þurfti að liggja inni í heila viku. Butler er ekki í nokkrum vafa um að veikindin hafi tengst verkefn- inu, enda hafi hann verið lengi í kar- akter. „Líkami minn gaf sig bara eftir að ég hætti að vera Elvis,“ segir hann. Í viðtalinu kemur fram að hans nánustu hafi tekið eftir breytingum á Butler meðan á gerð myndarinnar stóð og að rödd hans sé önnur í dag. „Fjölskyldan segir að ég hljómi ekki lengur eins og ég sjálfur,“ segir hann. Butler þurfti að skipta tíma sínum milli Elvis og sjónvarpsmyndaflokks- ins Masters of the Air, sem gerist í seinna stríði, en alltaf fylgdi kóng- urinn honum. „Ég hugsaði með mér: Svona hefur Elvis liðið þegar hann var kvaddur í herinn. Eina stundina er maður um- kringdur veinandi aðdáendum og þá næstu kominn í einkennisbúning, eins og hver annar maður.“ Cary Fukunaga, leikstjóri Master of the Air, fór ekki varhluta af þessu. „Þegar hann mætti á svæðið var heil- mikill Elvis í honum,“ hefur GQ eftir honum. Sjálfur viðurkennir Butler að hon- um þyki vænst um Elvis af öllu því fólki sem hann hefur aldrei hitt. Þeir eiga líka sitthvað sameiginlegt. „Móðir hans féll frá þegar hann var 23 ára og móðir mín dó einnig þegar ég var 23 ára. Ég fékk gæsahúð þeg- ar ég komst að þessu og ég hugsaði með mér: Gott og vel, ég get tengt við þetta.“ Hvort Butler á svo nokkurn tím- ann eftir að losa sig við Elvis, mun tíminn leiða í ljós. Austin Butler á rauða dreglinum í Lund- únum á dögunum. AFP/Justin Tallis 19.6. 2022 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 29 fyrir heimilið Sendum um land allt Tjarnargötu 2 | 230 Reykjanesbæ | Sími 421 3377 | bustod@bustod.is | www.bustod.is Fallegar vörur Stóll á snúningsfæti í ítölsku nautsleðri 75 cm á breidd Verð frá 139.000 kr. Loksins fáanlegir aftur, í mörgum litum SPRELL Hjónin Melissa McCarthy og Ben Falcone eru í aðalhlutverkum í nýjum spéþáttum á Netflix, God’s Favourite Idiot eða Eftirlætisbjáni almættisins, en sá síðarnefndi er einn- ig höfundur handrits. Sagt er frá manni sem fellur fyrir samstarfskonu sinni um sama leyti og hann verður óvænt sérlegur erindreki Guðs. Í dagskrárkynningu eru áhorfendur hvattir til að búa sig undir hið óvænta en hjónin voru síðast saman í kvikmyndinni Thun- der Force. Melissa McCarthy leikur í þáttunum. AFP/Frazer Harrison BÓKSALA 8.-14. JÚNÍ Listinn er tekinn saman af Eymundsson 1 Engin heimilisgyðja Sophie Kinsella 2 Handbók fyrir ofurhetjur 7 Elias/AgnesVahlund 3 500 mílur frá mér til þín Jenny Colgan 4 Sumar í strandhúsinu Sarah Morgan 5 Elskhuginn Helene Flood 6 Að leikslokum Mohlin & Nyström 7 Kennarinn sem fuðraði upp Bergrún Íris Sævarsdóttir 8 Hvað er drottinn að drolla? Auður Haralds 9 Liðin tíð Lee Child 10 Hanni granni dansari Gunnar Helgason 1 Handbók fyrir ofurhetjur 7 Elias/AgnesVahlund 2 Kennarinn sem fuðraði upp Bergrún Íris Sævarsdóttir 3 Hanni granni dansari Gunnar Helgason 4 Risasyrpa – fjallaklifur Disney 5 Stúfur fer í sumarfrí Eva Rún Þorgeirsdóttir 6 Múmín mallakútur 1, 2, 3 Tove Jansson 7 Sjóræningjarnir eru að koma! John Condon/Matt Hunt 8 Sveitahljóð – bók með hljóði 9 Martröð á netinu Rakel Þórhallsdóttir 10 Lærðu að skrifa – þrauta- bók með límmiðum Martin Wildmark Allar bækur Barnabækur Síðasta bók sem ég las var bókin Skegg Raspútins eftir Guðrúnu Evu Mínervudóttur. Bókin var gjöf og því hafði hún aukalega merk- ingu fyrir mér. Hún var lesin í nokkrum lotum. Bókin er að mörgu leyti óvenjuleg; þung en einnig glaðvær. Óhætt að mæla með henni og stefnt á að kaupa grænmeti í Kinn við fyrsta mögulega tækifæri hjá Ljúbu og Hlyni. Næstu bækur sem ég stefni á að lesa eru Etýður í snjó og Sendiboð- inn eftir Yoko Ta- wada, báðar í þýðingu Elísu Bjarg- ar Þorsteinsdóttur. Þær eru á náttborðinu. Almennt falla nátt- borðsbækurnar mínar í aðra af tveimur kategóríum: Þær sem safna ryki og þær sem klárast. Það hefur verið markmið undanfarið að kynna sér japanskar bók- menntir og japanska höfunda og yfirleitt hef ég náð settum mark- miðum. Það kemur því ekki til greina að þær falli í rykflokkinn. Það er ekki einfalt að svara því hvaða bók er uppáhaldsbókin. Bækur hafa nefnilega margvíslegt gildi. Fyrir utan gildi textans sjálfs hafa bækur fagurfræðilegt gildi af ýmsum toga, sumar bækur geta verið í uppáhaldi vegna mynd- skreytinga og aðrar tengjast sér- stökum minningum – jafnvel af fólki sem er manni kært – og geta verið í uppáhaldi vegna þess. Eðli bóka er margvíslegt þannig að maður þyrfti að velja uppáhalds- bók úr nokkrum flokkum til að gera þessari spurningu almenni- lega skil. Ég ætla hins vegar að nefna sér- staklega bókina Hundrað ára ein- semd eftir Gabriel García Márq- uez sem ég las fyrir rúmum 20 árum. Ég hef oft í lífinu hætt að lesa bók eða bækur sem ekki hafa náð mér. Hundrað ára einsemd er hins vegar eina bókin sem ég hef tekið meðvitaða ákvörðun um að klára ekki því mér fannst hún það góð, það gaman að lesa hana að ég valdi að sleppa endinum. Ætla í lokin að játa að fyrir ein- hverjum árum átti ég í vandræðum með að tileinka mér orðið „ynd- islestur“, fannst það hljóma eins og refhvörf. Síðan hefur maður skilið að lestur er margbreyti- legur, maður er alltaf að vinna með lestur í ólíkum aðstæðum. Hann, þ.e. það hvernig maður les, breytist líka með aldrinum, með reynslu og öðrum sjónarhornum. Kannski myndi mér þykja minna til Hundrað ára einsemdar koma en mér þótti fyrir áratugum. Nú- orðið les ég til að mynda meira af ljóðabókum en ég gerði. Það er eitthvað við bækurnar, texta og orð sem höfðar meira til mín, hentar mínum lestraraðstæðum betur en þá. Ætla því að enda pist- ilinn á að segja að sú íslenska „bók“ sem er í mestu uppáhaldi hjá mér er ljóðatímaritið Ský nr. 1 frá 1990 sem Óskar Árni Ósk- arsson og Jón Hallur Stefánsson ritstýrðu. Þýðingar þeirra á kvæð- um eftir Brautigan og Cortázar náðu mér fyrir margt löngu. Mögulega voru það kvæðin sem beindu manni inn á þessa braut. HJÁLMAR STEFÁN ER AÐ LESA Valdi að sleppa endinum Hjálmar Stefán Brynjólfsson er lögfræðingur og músíkant. Eftirlætisbjáni almættisins

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.