Morgunblaðið - 05.07.2022, Síða 1
Notkun skotvopna eykst
- Áhættumat lögreglu í sífelldri endurskoðun - Um 60% vopnatengdra útkalla
vegna hnífs - 20 til 30 Íslendingar komu saman og fundu styrk hver í öðrum
Eins og stendur bendir ekkert til þess að skot-
árásin verði flokkuð sem hryðjuverk. Árásarmað-
urinn er þó sagður hafa birt myndefni á sam-
félagsmiðlum sem sýna skotvopn.
20 til 30 Íslendingar komu saman í Jónshúsi í
Kaupmannahöfn í gær vegna árásarinnar. „Fólk
talaði hvert við annað aðallega og sumir töluðu
við mig. Þetta var aðallega hugsað þannig að fólk
gæti hlotið styrk hvert af öðru,“ segir séra Sigfús
Kristjánsson, prestur íslenska safnaðarins í
Danmörku, um samkomuna.
Gunnar Hörður Garðarsson, samskiptastjóri rík-
islögreglustjóra, segir Ísland eiga í stöðugu sam-
tali við hin norrænu löndin þar sem „auðvitað“ sé
rætt hvað sé hægt að gera til að fyrirbyggja voða-
verk líkt og skotárásirnar sem hafa nýlega átt sér
stað í bæði Osló og Kaupmannahöfn.
„Það er þó samtal sem er stærra en bara um við-
brögð lögreglu og snýr að samfélagsmálum eins
og vopnalöggjöf til dæmis,“ bætir Gunnar við.
Vopnaútköll hjá sérsveit ríkislögreglustjóra
hafa aldrei verið fleiri en fyrstu sex mánuði þessa
árs. Gunnar segir um 60% vopnatengdra útkalla
vera vegna hnífs. Hins vegar sé vissulega aukning
í notkun skotvopna og áhættumat lögreglu því í sí-
felldri endurskoðun. Þá eru æfðar viðbragðsáætl-
anir til staðar.
Gæsluvarðhald í 24 daga
Tíu urðu fyrir skotum árásarmannsins í versl-
unarmiðstöðinni Field‘s í Kaupmannahöfn í fyrra-
dag. Þrír þeirra létust og fjórir eru alvarlega
særðir. Dómari úrskurðaði í gær að maðurinn
skyldi sæta gæsluvarðhaldi fram til 28. júlí. Í úr-
skurðinum segir einnig að maðurinn, sem er 22
ára, skuli sæta varðhaldi á lokaðri geðdeild um leið
og rými losnar. MÁrásir með skotvopnum »2 og 13
AFP/Mads Claus Rasmussen
Skotárás Mette Frederiksen, forsætisráðherra Danmerkur, lagði í gær blómvönd við inngang Field’s ásamt dómsmálaráðherranum, Mathias Tesfaye.
„Nú fer ballið að byrja,“ segir
Magnús Benediktsson, fram-
kvæmdastjóri Landsmóts hesta-
manna í ár. Forkeppni í öllum gæð-
ingakeppnum lauk í gær og næst á
dagskrá eru því milliriðlar og
íþróttagreinarnar. „Þetta er búin
að vera gríðarlega sterk forkeppni.
Fólk hafði áhyggjur af því að við
værum að selja bestu hrossin úr
landi en þetta sýnir bara að við
framleiðum svo marga gæðinga.“
Magnús og hans teymi settu sér
það markmið að gera Landsmótið
eftirminnilegt og umsvifameira en
það hefur verið undanfarin skipti,
en fjögur ár eru liðin frá síðasta
Landsmóti. „Okkur finnst við vera
á góðum stað með að ná því. Þetta
gengur eins og í bestu sögu, því-
líkur andi í mannskapnum.“ Á öðr-
um degi Landsmótsins voru tvö til
þrjú þúsund gestir mættir á svæðið.
Magnús á von á því að undir lok vik-
unnar verði sá hópur kominn upp
undir tíu þúsund. „Mótið hófst á
sunnudag en fólk var strax mætt á
laugardaginn að koma sér fyrir til
þess að vera hér alla vikuna.“
Magnús vill ekki segja að það sé
uppselt á Landsmótið, enda taka
brekkurnar lengi við, en tjald-
svæðin eru sífellt að þéttast.
Skemmtidagskrá verður svo í
veislutjaldi öll kvöld frá og með
morgundeginum. »4
Nú fer ballið að byrja
- Gestir mættir áður en mótið hófst - Sterk forkeppni
Morgunblaðið/Hákon
Ungmenni Forkeppnir fóru fram í ungmennaflokki og meistaraflokki í gær.
Þ R I Ð J U D A G U R 5. J Ú L Í 2 0 2 2
.Stofnað 1913 . 155. tölublað . 110. árgangur .
LANGÞRÁÐUR
SIGUR FYRIR
LEIKNISMENN
OPNAÐI EKKI
TIL ÞESS AÐ
FÁ STJÖRNU
MERKUR LEIK-
HÚSHUGS-
UÐUR LÁTINN
VIÐURKENNING 2 PETER BROOK 28SEXTÁN LEIKJUM SÍÐAR 26
Smábátasjómenn á Norðausturlandi
eru mjög ósáttir við strand-
veiðikerfið og telja þeir grófa mis-
munun vera á milli veiðisvæða.
Þeir segja í samtali við Morgun-
blaðið í dag að kerfið neyði þá til að
veiða smáan og verðlítinn fisk strax í
maí „þegar stærri og verðmeiri fisk-
ur er ekki genginn á okkar svæði svo
við eigum alltaf á hættu að heildar-
potturinn verði búinn loks þegar
stærri fiskur fer að veiðast hér“.
Einar E. Sigurðsson, útgerðar-
maður á Raufarhöfn, segir að það
sem hafi átt að hleypa lífi í sjávar-
þorp sé í raun að brjóta niður brot-
hættar byggðir. Þetta segir Einar
„glórulaust“.
Árið 2017 var strandveiðikerfinu
breytt og svæðaskipting kvóta af-
numin en svæðin voru áfram fjögur.
Fyrir breytinguna var visst afla-
mark á hverju svæði. Ef bræla var
og engin veiði þá færðist kvóti svæð-
isins yfir á næsta mánuð. Þá var lítið
róið í maí og fram í júní á svæði C
enda mikið um vorbrælur á þeim
tíma við norðausturhornið og aðeins
smáfisk að fá svo arðsemi var lítil
sem engin.
„Verði þetta fyrirkomulag óbreytt
þá gerist bara eitt, menn flytja ein-
faldlega útgerðir sínar og lögheimili
þangað sem hagkvæmast er og það
er vestur á land. Það er þegar byrjað
að gerast,“ segja sjómennirnir. »10
Ósáttir
við strand-
veiðikerfið
- „Glórulaust,“
segir einn sjómaður
Morgunblaðið/Líney Sigurðardóttir
Veiði Sjómennirnir telja jafnræði
skorta í núverandi fyrirkomulagi.