Morgunblaðið - 05.07.2022, Page 2
Útköll sérsveitar RLS
Fjöldi verkefna sérsveitar 2017-2022
Tegund vopna í vopnamálum,
meðaltal 2017-2022
Fjöldi verkefna sérsveitar eftir
landsvæðum, meðaltal 2017-2022
600
500
400
300
200
100
0
2017 2018 2019 2020 2021 2022
Heimild: Ríkislögreglustjóri
446
420
393
522 523
266
Egg/Stunguvopn 61%
Skotvopn 24%
Barefli 6%
Önnur vopn 9%
Annað 5%
Höfuðborgar-
svæðið 85%
Norðurland
eystra 5%
Suðurnes 5%
Allt árið Janúar til júní
Þar af vopnaútköll:
Allt árið Janúar til júní
154148
74
174
319308
Guðni Einarsson
gudni@mbl.is
Sérsveit ríkislögreglustjóra (RLS)
hefur farið í 266 verkefni fyrstu sex
mánuði ársins. Það eru fleiri verk-
efni en dæmi eru um fyrstu sex mán-
uði undanfarinna ára. Vopnaútköll
hafa aldrei verið fleiri hjá sérsveit
fyrstu sex mánuði árs en á þessu ári.
,,Lögreglan á Íslandi er almennt
ekki vopnuð og sem betur fer krefj-
ast fæst útköll lögreglu vopnaðrar
lögreglu,“ segir Gunnar Hörður
Garðarsson, samskiptastjóri ríkis-
lögreglustjóra, í skriflegu svari til
Morgunblaðsins.
„Sérsveit ríkislögreglustjóra er
þessi vopnaða lögregla á Íslandi og
er kölluð til þegar lögregla þarf að
mæta vopnuðum einstaklingum.“
Hann segir að hafa beri í huga að
þessi útköll séu ekki einsleit. Ef vopn
er á vettvangi er sérsveit kölluð til.
„Um 60% vopnatengdra útkalla
eru vegna hnífa (egg/stunguvopn) og
þar á meðal eru líka útköll vegna til-
rauna til sjálfsskaða. Það þarf því að
fara varlega í að draga snöggar
ályktanir af hrárri tölfræðinni. En
við erum vissulega jafnframt að sjá
aukningu í notkun skotvopna og
áhættumat lögreglu er í sífelldri
endurskoðun.“
Gunnar segir að í tengslum við til-
vik eins og skotárásirnar í Osló og
Kaupmannahöfn gildi það sama.
Áhættumat lögreglu er í sífelldri
endurskoðun og æfðar viðbragðs-
áætlanir eru til staðar.
„Við eigum þó í stöðugu samtali
við hin norrænu löndin í gegnum
okkar alþjóðasamstarf þar sem er
auðvitað líka rætt hvað er hægt að
gera til þess að fyrirbyggja voða-
verk. Það er þó samtal sem er stærra
en bara um viðbrögð lögreglu og
snýr að samfélagslegum málum og
vopnalöggjöf til dæmis.“
Sérsveitin fór í 523 verkefni árið
2021, sem er svipaður fjöldi og árið á
undan. Þar af voru yfir 300 verkefni
vegna vopnamála þessi tvö ár, örlítið
fleiri árið 2021 en 2020. Í um fjórð-
ungi tilvika var um að ræða skot-
vopn, að sögn ríkislögreglustjóra.
Þegar skoðuð er skipting milli lög-
regluumdæmanna níu sést að flest
mál sérsveitar yfir þetta tímabil voru
skráð á höfuðborgarsvæðið (85%) og
næstflest á annars vegar Norður-
land eystra (5%) og hins vegar á Suð-
urnes (5%).
Gögnin voru unnin upp úr mála-
skrá lögreglunnar í gær, 4. júlí. Mál
þar sem sérsveitin hefur sinnt ör-
yggisgæslu eru talin með í fjölda
verkefna sveitarinnar. Þau voru alls
134 frá ársbyrjun 2017 og til loka
júní 2022.
Aldrei fleiri vopnaútköll en þetta ár
- Sérsveit RLS er hin vopnaða lögregla á Íslandi - Kölluð til ef mæta þarf vopnuðum einstaklingum
Morgunblaðið/Eggert
Sérsveit RLS að störfum Hún er
kölluð til þegar vopn er á vettvangi.
2 FRÉTTIR
Innlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 5. JÚLÍ 2022
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 569 1100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Andrés Magnússon andres@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is
Viðskipti Gísli Freyr Valdórsson vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Winkel Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf.
Veitingastaðurinn Óx við Laugaveg
í Reykjavík hlaut Michelin-stjörnu í
gær. Er Óx því annar íslenski veit-
ingastaðurinn til að vera heiðraður
með stjörnunni eftirsóttu. Veitinga-
staðurinn Dill er einnig með stjörn-
una en staðurinn endurheimti hana
árið 2020. Er þetta í fyrsta sinn sem
tveir íslenskir staðir eru með stjörn-
una samtímis
Þráinn Freyr Vigfússon, eigandi
Óx, tók við stjörnunni í gær ásamt
yfirkokki staðarins, Rúnari Pierre
Heriveaux, við athöfn í Stafangri í
Noregi þar sem nýr leiðarvísir Mich-
elin fyrir Norðurlönd var kynntur.
Þráinn segir í samtali við Morgun-
blaðið að um frábæran heiður sé að
ræða. „Þetta hefur mikla þýðingu
fyrir mig og þetta er mikil viður-
kenning fyrir þá hugsjón sem er á
bak við staðinn, að gera eitthvað allt
annað en aðrir eru að gera,“ segir
Þráinn og vísar þá til þess að snið
staðarins er óhefðbundið.
Óhefðbundinn og lítill staður
Óx tekur aðeins ellefu gesti í sæti,
sem sitja allir við sama borð. Borðið
umkringir kokkana sem elda fyrir
framan gestina. Að sögn Þráins skil-
ar þessi smæð staðarins sér í aukn-
um gæðum fyrir viðskiptavini. „Það
segir sig nokkuð sjálft að þegar þú
ert að elda fyrir ellefu í stað hundr-
að manns þá er mikill gæðamunur á
því og miklu meiri nánd, sem er hug-
myndin að Óx.“
Aðspurður segir hann þessa við-
urkenningu vera frábæra auglýs-
ingu fyrir veitingastaðinn.
Spurður hvort þetta hafi verið
draumur lengi hjá Óx segir Þráinn
að þetta hafi ekki endilega verið ætl-
unarverkið. „Ég opnaði ekki Óx til
að fá stjörnu en þetta er auðvitað
gífurleg viðurkenning og maður er
þakklátur og stoltur.“
Hann segir það frábæra viður-
kenningu að vera annar af tveimur
veitingastöðum á Íslandi til að hljóta
stjörnuna og tekur fram að hann sé
spenntur fyrir því að fleiri staðir
bætist í hópinn. „Þetta er vonandi
bara byrjunin. Það verða klárlega
fleiri staðir í framtíðinni og það er
bara spurning hvenær,“ segir Þrá-
inn og bætir við að því fyrr sem það
gerist því betra.
Segir hann leyndarmálið á bak við
þessa velgengni veitingastaðarins
vera að þau hjá Óx stefni alltaf að
því að gera betur í dag en í gær. Að
lokum þakkar Þráinn öllu starfsfólk-
inu sem hefur komið að staðnum.
„Bara allir sem hafa gert þetta að
veruleika og gera þetta að veruleika
á hverjum degi.“ tomasarnar@mbl.is
Stjarnan mikill
heiður fyrir Óx
- Segir það tímaspursmál hvenær
fleiri íslenskir staðir bætist í hópinn
Ljósmynd/Aðsend
Stjarna Þráinn Freyr Vigfússon, eigandi Óx, og Rúnar Pierre Heriveaux,
yfirkokkur staðarins, tóku við Michelin-stjörnunni við athöfn í Noregi.
Fyrsta rafmagnsflugvél Íslands hef-
ur nú fengið flughæfisskírteini og
mun senn hefja flugið, að því er fram
kemur í sameiginlegri tilkynningu
frá Icelandair, Isavia, Landsvirkjun,
Hótel Rangá, Landsbankanum,
Flugskólanum Geirfugli, Flugskóla
Reykjavíkur og Flugakademíu Ís-
lands sem standa að fyrstu raf-
magnsflugvélinni á Íslandi.
Segir í tilkynningunni að um sé að
ræða „mikilvæg tímamót í íslenskri
flugsögu“.
„Félagið Rafmagnsflug ehf. flutti
vélina til landsins með það að mark-
miði að taka frumkvæði í orkuskipt-
um í flugi, þjálfa starfsfólk í þessari
nýju tækni og kynna hana fyrir
landsmönnum.“
Flugvélin ber heitið TF-KWH.
Hún er tveggja sæta af gerðinni Pip-
istrel og er framleidd í Slóveníu. Vél-
in er á stærð við þær vélar sem not-
aðar eru í flugkennslu hér á landi.
Skref í átt að orkuskiptum
„Með innflutningi hennar er stigið
mikilvægt fyrsta skref í orkuskipt-
um í flugi. Fyrst um sinn er raun-
hæft að horfa til orkuskipta minni
flugvéla og því næst í farþegaflugi
innanlands. Til þess að gera orku-
skipti möguleg er samstarf lykilaðila
mikilvægt, svo sem flugfélaga, flug-
valla og orkufyrirtækja,“ segir í til-
kynningunni.
„Rafmagnsflug ehf. var upphaf-
lega stofnað af Matthíasi Svein-
björnssyni og Friðriki Pálssyni í árs-
lok 2021 en þeir hafa unnið að því
síðastliðin þrjú ár að fá rafmagns-
flugvélina til landsins.“
Fyrsta raf-
magnsflugvélin
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Tímamót í flugi Matthías Sveinbjörnsson og Friðrik Pálsson við nýju vélina. Þeir stofnuðu Rafmagnsflug ehf.
- „Mikilvæg tímamót“ í flugsögunni