Morgunblaðið - 05.07.2022, Síða 6
DAGMÁL
Gísli Freyr Valdórsson
gislifreyr@mbl.is
Fjármál heimilanna mega ekki vera
tabú og við eigum að gera það sem
við getum til að auka þekkingu og
meðvitund fólks um það hvernig það
stýrir fjármálum sínum.
Þetta segir Georg Lúðvíksson,
forstjóri og einn stofnenda Meniga, í
nýjum þætti Dagmála sem sýndur er
á mbl.is í dag. Georg segir að það sé
ekki síður mikilvægt að leggja
áherslu á fjárhagslega heilsu rétt
eins og við leggjum áherslu á and-
lega og líkamlega heilsu.
„Þetta hefur skánað á liðnum ár-
um og það hefur orðið ákveðin vit-
undarvakning,“ segir Georg.
„Þetta hefur verið mikið feimnis-
mál, fólk talar ekki um sín heimilis-
fjármál við aðra. Og ef það er með
fjárhagsáhyggjur eða í fjárhags-
vandræðum þá fylgir því oft mikil
skömm sem fólk ber innra með sér.
[…] Fjárhagsáhyggjur er eitt mesta
böl okkar samfélags, þetta er
stærsta ástæða fjarvista frá störfum,
sambandsslita og skilnaða og fleira.“
Þá segir Georg að samband fólk
við peninga sé oft og tíðum flókið en
hægt sé að afla sér þekkingar um
það hvernig hægt sé að fara betur
með það sem aflað er.
Betra aðgengi að upplýsingum
Þegar talið berst að Meniga segir
Georg að gögn félagsins sýni að þeir
sem nýti lausnina minnki eyðslu sína
að jafnaði um 10%. Það megi meðal
annar rekja til þess að fólk fái betri
tilfinningu fyrir útgjöldum sínum og
um leið betri yfirsýn. Það leiðir til
þess að hægt sé að taka meðvitaðar
ákvarðanir um það með hvaða hætti
fólk ver fjármagni sínu.
Aðspurður segir hann að svo virð-
ist sem þekking ungs fólks á fjár-
málalæsi sé að aukast, þótt ekki liggi
fyrir vísindaleg úttekt á því. Aftur á
móti sé mikið efni til staðar til að
auka þekkingu fólks á fjármálum og
aðgengi að upplýsingum meira en
áður. Í þættinum er meðal annars
rætt um aðgengi að upplýsingum um
vexti og endurfjármögnun lána,
hegðun fólks þegar horft er til út-
gjalda nú þegar verðlagshækkanir
ganga yfir, fjárfestingar og sparnað,
hlutabréfakaup og hvernig hægt sé
að byggja upp sparnað og fjárhags-
legt frelsi til framtíðar.
Öllum mikilvægt að
ná fjárhagslegri heilsu
Morgunblaðið/Kristófer Liljar
Dagmál Georg Lúðvíksson, forstjóri og einn stofnenda Meniga, í myndveri.
- Segir fjárhagsáhyggjur eitt mesta böl samfélagsins
6 FRÉTTIR
Innlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 5. JÚLÍ 2022
Steinþór Stefánsson
steinthors@mbl.is
Trausti Breiðfjörð Magnússon,
borgarfulltrúi Sósíalistaflokksins,
veltir fyrir sér
hvort hækkun
frístundastyrks í
Reykjavík verði
á endanum „ét-
in“ upp af hækk-
unum gjaldskráa
hjá félögum sem
bjóða upp á frí-
stundastarf.
„Þetta var
hækkað árið
2016 upp í 50
þúsund krónur og það varð mikil
gagnrýni frá foreldrum í kjölfarið,
enda varð það ljóst stuttu síðar að
félögin sem bjóða upp á frístunda-
starf fóru að hækka gjaldskrár sín-
ar umtalsvert,“ segir hann í samtali
við Morgunblaðið og bætir við að
hann velti því fyrir sér hvort það
muni ekki endurtaka sig.
Að sögn Trausta er fátt um svör
þegar spurt er um framangreint
vandamál, enda hafi engar lausnir
verið færðar fram.
Hann segir það hagstæðara ef
borgin sjálf myndi semja við félög-
in. „Þá þurfa foreldrar ekki að vera
einskonar umsækjendur sem þurfa
að hafa áhyggjur af þessum málum,
heldur gætu þau sent börnin sín
áhyggjulaus á æfingar.
Maður veltir því fyrir sér þegar
við erum komin að þeim stað að það
er litið á þetta sem nauðsynlegan
þátt í uppeldi barna að þá verði
þetta að vera ókeypis. Það þarf að
vera jöfnuður í þessu þar sem allir
eru á sama stalli,“ segir Trausti
ennfremur.
Efast um
að hækkun
styrks dugi
- Hagstæðara ef
borgin semdi sjálf
Trausti Breiðfjörð
Magnússon
Helgi Bjarnason
helgi@mbl.is
Hafin er uppsteypa á kerum við stækkun seiða-
stöðvar Arctic Fish í Norður-Botni í Tálknafirði.
Fyrsti botninn var steyptur í síðustu viku og
tókst vel til, að sögn Rögnu Helgadóttur, verk-
efnisstjóra framkvæmda hjá Arctic Fish.
Á næstu 6-8 vikum verða steypt 12 eldisker.
Hvert þeirra verður 12,5 metrar á breidd og 5
metrar að hæð og rúmar 600 rúmmetra af eld-
isvökva og fiski.
Meira en tvöföldun eldisrýmis
Seiðastöðin verður stækkuð um 4.200 fer-
metra og verður tæplega 15 þúsund fermetrar
að stærð. Eldisrýmið verður meira en tvöfaldað
því það bætast 7.200 rúmmetrar við þá 6.200
rúmmetra sem fyrir eru. Ragna segir að stöðin
verði tilbúin til að taka við seiðum í eldi í febrúar
eða mars. Þá verði kerin tilbúin og vatnsend-
urnýtingarkerfið komið upp. Í stöðinni verður
þá hægt að framleiða fimm milljónir seiða, mið-
að við 200 grömm, en fram hefur komið að ætl-
unin er að framleiða stærri seiði til útsetningar í
sjóeldið. Fimm milljón seiði geta orðið að 25 þús-
und tonnum af fullvöxnum laxi.
Morgunblaðið/Guðlaugur J. Albertsson
Stór eldisker steypt upp við stækkun í Norður-Botni
Guðrún Sigríður Arnalds
gsa@mbl.is
Hljómsveitin Árstíðir hefur ákveðið
að endurtaka leikinn á lestarstöðinni
í Wuppertal í Þýskalandi á næsta ári,
og syngja þar lag Þorkels Sigur-
björnssonar, Heyr himnasmiður, við
texta Kolbeins Tumasonar. Sveitin
tók lagið upp á þessum stað árið 2013
og í kjölfarið fór upptakan á You-
tube. Sló hún fljótt í gegn og hafa
nærri 8 milljónir manna séð upptök-
una.
„Við vorum að túra í Þýskalandi og
eftir gott gigg eitt kvöldið enduðum
við á lestarstöð, en þá vorum við bún-
ir að fá okkur nokkra bjóra og komn-
ir í smá fíling,“ segir Gunnar Már
Jakobsson, meðlimur í hljómsveit-
inni, þegar hann rifjar upp söguna á
bak við myndbandið.
Hann segir hljómsveitinni hafa
brugðið daginn eftir þar sem mynd-
bandið var komið með töluvert áhorf
á Youtube á aðeins einni nóttu.
„Þarna var augnablikið fangað. Ég
var bara að fá mér að borða og heyri
þá í strákunum syngja sálminn, en
það sést í myndbandinu að ég læðist
inn í miðju laginu,“ segir Gunnar
Már. Árstíðir hafa sem fyrr segir
ákveðið að halda upp á 10 ár frá upp-
töku myndbandsins, með nokkurs
konar lestartúr. Ætlunin sé að
syngja á hinum ýmsu lestarstöðvum í
Evrópu. „Við munum allavega halda
upp á þetta og förum í það minnsta
aftur á lestarstöðina þar sem höldum
kannski smá tónleika.“
Breski forleggjarinn Faber music
hefur réttinn á laginu, en sálmurinn
hefur m.a. heyrst í þáttunum 911
Lone Star á Fox-stöðinni, eins og
fram kom í blaðinu sl. laugardag, og
Handmaids Tale sem streymisveitan
Hulu stendur að.
Endurtaka leikinn
- Árstíðir mæta aftur í lestarstöðina
Skjáskot/Youtube
Flutningur Árstíðir í lestarstöðinni í Wuppertal í Þýskalandi árið 2013.
Skannaðu kóðann
og hlutstaðu á
Árstíðir flytja Heyr
himna smiður.