Morgunblaðið - 05.07.2022, Qupperneq 8

Morgunblaðið - 05.07.2022, Qupperneq 8
8 FRÉTTIR Innlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 5. JÚLÍ 2022 Dekton er mjög slitsterkt og rispuþolið borðplötuefni. Dekton þolir mikinn hita. Það má setja heita potta og pönnur beint á steininn án þess að eiga það á hættu að skemma hann. Blettaþolið SýruþoliðHögg- og rispuþolið Viðarhöfða 1, 110 Reykjavík | Sími 566 7878 | rein.is HÁTT HITAÞOL Vinstri meirihlutinn í borginni hefur haft lag á því að fæla fólk og fyrirtæki út fyrir borgar- mörkin. Gagnvart almenningi hefur þeirri aðferð verið beitt að takmarka lóðaframboð og þar með nýbygg- ingar, auk þess að bjóða helst ekki upp á annað en nýjar íbúðir á dýrustu stöðum. Þetta er hin svokallaða þéttingarstefna í framkvæmd. Nágrannasveitarfélögin, og jafn- vel sveitarfélög víða um Suður- og Vesturland, geta fagnað þessu enda hefur uppbygging þar verið kröftug og bæjarfélögin sýnt áhuga á að taka við nýjum íbú- um. - - - Fyrirtæki hafa einnig hrakist úr borginni og til að ná því fram beitir borgin einnig lóða- skorti í bland við almennt áhuga- leysi, seinagang og háa skatta. Þessi eitraða blanda hefur dugað vel og fyrirtækin tínast burt eitt af öðru. - - - Eitt af nýju dæmunum um stórt fyrirtæki sem er nú að leita að nýju heimili utan Reykja- víkur er Hekla, öflugt fyrirtæki sem verið hefur í Reykjavík ára- tugum saman. Frá því var greint á mbl.is um helgina að Hekla ætti í viðræðum við Garðabæ um að fá lóð undir starfsemina og af um- mælum bæjarstjórans að dæma telur Garðabær feng að því að fá svo myndarlegt fyrirtæki í bæinn. - - - Þetta er viðhorf sem kemur ekki á óvart, en það kemur á óvart að þrátt fyrir allar „breyt- ingarnar“ sem orðið hafa á meiri- hlutanum í Reykjavík skuli ekk- ert hafa breyst í viðhorfi til atvinnuuppbyggingar í borginni. Flóttinn úr borginni STAKSTEINAR Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar- greinum Morgunblaðsins á slóðinni http://mbl.is/mogginn/leidarar/ Icelandair hefur gert samning við portúgalska flugrekandann Euro Atlantic um leigu á Boeing 767-300-flugvél sem verður nýtt í millilandaflugi Icelandair næstu vikur. Vélin, sem kom til landsins í fyrradag, verður fyrst og fremst nýtt í Evrópuflug og var fyrsta flug hennar í leiðakerfi Icelandair kl. 7:40 í gær til borgarinnar München í Þýskalandi. Áætlað er að vélin verði í rekstri Icelandair í um það bil tvær vikur, að því er segir í tilkynningu frá flugfélag- inu. Vélin er ekki í staðlaðri uppsetningu Icelandair enda um skammtímaleigu að ræða sem kemur upp með skömmum fyrirvara. Icelandair mun leitast við að lágmarka áhrif á farþega og verður vélin að- eins notuð þegar nauðsynlegt er til að halda áætl- un. Áhöfn verður skipuð að hluta til starfsfólki Icelandair og starfsfólki Euro Atlantic að hluta. Fram kemur í tilkynningunni að flug og ferða- þjónusta hafi farið hratt af stað eftir Covid-farald- urinn og eftirspurn margfaldast. Á sama tíma hafi uppbygging innviða til að mæta þessari eftirspurn tekið tíma, m.a. sökum manneklu og faraldurs. Leigusamningur um Boeing-vél - Icelandair semur um leigu á Boeing 767-300 Morgunblaðið/Árni Sæberg Icelandair Samningurinn tekur til leigu á Boeing 767-300-flugvél. Vélin fór sitt fyrsta flug í gær. Örn Steinsen, fv. fram- kvæmdastjóri KR, lést á Landspítalanum í Fossvogi 1. júlí síðast- liðinn, 82 ára að aldri. Örn fæddist 11. jan- úar árið 1940 í Vestur- bæ Reykjavíkur og ólst þar upp til 21 árs ald- urs. Foreldrar hans voru Vilhelm Steinsen bankafulltrúi og Krist- ensa Marta Sigurgeirs- dóttir húsfreyja. Örn lauk prófi frá Gagnfræðaskóla Vesturbæjar og stundaði nám við Íþróttaskólann að Laugarvatni. Hann vann ýmis störf á yngri árum, m.a. hjá Flugfélagi Íslands í Kaup- mannahöfn sumarið 1961. Þar fékk hann ferðabakteríuna, vann næsta árið á ferðaskrifstofunni Lönd og leiðir og fór svo aftur að vinna fyrir Flugfélag Íslands, þá við Lækjar- götu í Reykjavík, þar sem hann vann í farmiðasölu í 10 ár. Eftir það var hann framkvæmdastjóri Útsýn- ar, árin 1974-1986. Þá stofnaði hann Ferðaskrifstofuna Sögu, ásamt Pétri Björnssyni, og starfaði þar til 1992. Örn var auglýsingastjóri hjá Icelandair Review í nokkur ár en ár- ið 2000 tók hann við sem fram- kvæmdastjóri KR hjá uppeldisfélagi sínu og lauk þar starfsferli sínum árið 2007. Örn lék knattspyrnu í KR með yngri flokk- um og síðar með meistaraflokki. Hann varð Íslandsmeistari með KR fjórum sinn- um og þrisvar bikar- meistari. Örn lék alls 111 leiki með meist- araflokki KR en hætti í boltanum aðeins 24 ára. Örn lék 8 lands- leiki fyrir Íslands hönd og skoraði eitt mark. Örn hlaut fjölda viðurkenninga fyrir störf sín fyrir KR og íþróttahreyf- inguna, fékk þannig stjörnu KR sem og gullmerki KR, ÍBR, KSÍ og KÞÍ, Knattspyrnuþjálfarafélags Íslands, sem hann tók þátt í að stofna árið 1970. Örn var einnig góður í golfi, var meðal stofnenda Golfklúbbsins Odds í Urriðalandi og starfaði jafn- framt um árabil innan Oddfellow- reglunnar. Örn átti sæti í fjölda nefnda og stjórna, einkum fyrir KR, og átti m.a. sæti í stjórn Kynnis- ferða og Félags íslenskra ferðaskrif- stofa. Eftirlifandi eiginkona Arnar er Erna Guðrún Franklín, f. 1941, fv. fjármálastjóri. Börn þeirra eru Arna Katrín, Stefán Þór, Anna Guðrún og Brynja Dögg Steinsen. Barnabörnin eru 15 talsins og barnabarnabörnin fimm. Andlát Örn Steinsen

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.