Morgunblaðið - 05.07.2022, Side 10

Morgunblaðið - 05.07.2022, Side 10
10 FRÉTTIR Innlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 5. JÚLÍ 2022 Sumarsmellur Stiga Combi 748 S • Heimilissláttuvél með 140cc mótor • Notendavæn drifvél • Einstök vél Verð kr.125.000 m/vsk. Askalind 4 | Kópavogi | Sími 564 1864 | vetrarsol.is 40 ár á Íslandi SVIÐSLJÓS Líney Sigurðardóttir Þórshöfn „Það sem átti að verða til að hleypa lífi í sjávarþorp allt í kringum landið er markvisst verið að brjóta niður, og þá sérstaklega brotthættar byggðir, miðað við núverandi fyr- irkomulag strandveiða sem er al- gjörlega glórulaust,“ segir Einar E. Sigurðsson, útgerðarmaður á Rauf- arhöfn, en hann er einn af þeim sjó- mönnum sem tjáðu sig við Morgun- blaðið um strandveiðikerfið. Þeir, eins og aðrir smábátasjó- menn á Norðausturlandi, eru afar ósáttir við kerfið sem þeir telja fela í sér grófa mismunun milli veiði- svæða. „Þetta er ekkert annað en aðför að brothættu byggðunum á norð- austurhorninu, kerfið neyðir okkur hér á svæði C til að veiða smáan og verðlítinn fisk strax í maí þegar stærri og verðmeiri fiskur er ekki genginn á okkar svæði svo við eigum alltaf á hættu að heildarpotturinn verði búinn loks þegar stærri fiskur fer að veiðast hér. Hagstæðasta veiðitímabilið hér er frá því seint í júní og út ágúst. Þá hefur hins vegar stór og verðmeiri fiskur verið veið- anlegur á svæði A rúmum einum og hálfum mánuði fyrr og því mikið veitt fyrir vestan. Núna er búið að veiða um 60% úr heildarpottinum þar,“ segja þeir en sjómenn á svæði C sitja eftir með sárt ennið. Þjóðhagslega óhagkvæmt og hrein sóun að drepa smáfiskinn Árið 2017 var strandveiðikerfinu breytt og svæðaskipting kvóta af- numin en svæðin voru áfram fjögur. Fyrir breytinguna var visst afla- mark á hverju svæði. Ef bræla var og engin veiði þá færðist kvóti svæð- isins yfir á næsta mánuð. Þá var lítið róið í maí og fram í júní á svæði C enda mikið um vorbrælur á þeim tíma við norðausturhornið og aðeins smáfisk að fá svo arðsemi var lítil sem engin. Þjóðhagslega er það mjög óhag- kvæmt og sóun á kvótanum að drepa smáfiskinn. Skynsamlegra og hag- kvæmara væri að bíða í einn og hálf- an mánuð eftir að fiskur er genginn á svæðið. „Engum heilvita útgerðarmanni sem á aflamark dettur í hug að veiða á handfæri hér í maí og fram yfir miðjan júní til að slíta upp verðlítinn smáfisk en strandveiðikerfið býður ekki upp á annað. Menn neyðast því til að fara af stað til að ná þó ein- hverjum dögum, vitandi það að lík- lega verði strandveiðarnar stöðv- aðar í lok júlí eða byrjun ágúst. Það er í raun verið að flytja aflaheimildir frá svæði C við Norðausturland yfir á svæði A, enda fjölgar bátum þar. Á svæði A missa menn ekki af lestinni eins og gerist á svæði C, því góð veiði er þar strax í maí og menn geta byrjað að veiða stóran og góðan fisk úr heildarpotti landsins.“ Tekjumöguleikar brostnir – útgerðir flýja heimabyggð „Verði þetta fyrirkomulag óbreytt þá gerist bara eitt, menn flytja ein- faldlega útgerðir sínar og lögheimili þangað sem hagkvæmast er og það er vestur á land. Það er þegar byrjað að gerast. Samfélagið okkar heima tapar í heild og byggðarlögin hér verða af miklum tekjum. Tekju- möguleikar okkar á strandveiðum eru brostnir miðað við núverandi kerfi og um nýliðun í greininni er ekki að ræða. Það væri glórulaust í þessu kerfi, enginn mun ráða við það, ekki á þessu svæði,“ segja sjó- mennirnir. Þeir nefna sem dæmi að meðal- verð hjá Fiskmarkaði Þórshafnar þar sem strandveiðibátar landa sín- um afla frá Kópaskeri til Vopna- fjarðar var frá 1. maí til 12. júní að- eins 273 kr. á kíló, sem er hundrað krónum lægra meðalverð á kíló en það sem Landssamband smábáta- eigenda hefur gefið út í frétta- miðlum. Segja sig úr Landssambandi smábátaeigenda Sjómennirnir eru mjög ósáttir við Landssambandið og segjast flestir vera búnir að segja sig úr því, sam- bandið hafi í raun unnið gegn þeirra hagsmunum og ekki hlustað á áhyggjur þeirra af því hvernig kom- ið sé fyrir strandveiðisjómönnum við Norðausturland. Strandveiðimenn segja einsýnt að sjómenn við Norð- austurland muni stefna vestur á næsta strandveiðitímabili að öllu óbreyttu. Potturinn klárast áður en verð- mætasti fiskurinn fæst Strandveiðikerfið á sér fleiri ann- marka. Heildarmagnið sem veiða má er næstum búið og klárast líklega fyrstu dagana í júlí en þeir sem eru á strandveiðum eru bundnir í kerfinu þar til nýtt kvótaár byrjar og geta því ekki nýtt betri fisk sem þá er genginn á svæðið. Sjómenn á Þórshöfn og Raufar- höfn segja að nú sé vertíðin í raun- inni að byrja á þeirra svæði en þá mega þeir ekki veiða því ekkert er eftir. Á Kópaskeri, Raufarhöfn, Þórshöfn, Bakkafirði og Vopnafirði eru um 40 bátar á strandveiðum í sumar. Allflestir landa á Fisk- markað Þórshafnar en um miðjan júní var búið að landa þar 120 tonn- um. Heildin yfir landið var þá ca. 3.200 tonn svo sneiðin sem norðaust- urhornið fékk af kökunni var heldur rýr. Vilja hafa val um veiðitímabil og að jafnræðis sé gætt Strandveiðisjómenn á svæði C telja að það eina rétta í stöðunni sé að taka upp fyrra fyrirkomulag þar sem aflaheimildir verði svæðis- bundnar því kerfið gengur ekki upp þar sem fiskgengd er svo mismun- andi eftir landsvæðum og benda þeir á reglugerð um grásleppuveiðar til hliðsjónar. „Krafa okkar er einföld og skýr, við viljum eiga okkar ákveðnu veiði- daga á hvern bát og hafa val um hve- nær við nýtum þá. Við veljum þá eft- ir aðstæðum, svo sem fiskigengd og veðri. Það er bæði okkar hagur og samfélagsins alls, enginn hagnast á því að eltast við verðlítinn smáfisk í misjöfnu veðri.“ Þeir segja sjómenn mjög ósátta við tregðu ráðamanna við að endur- skoða kerfið og að kynna sér fyrir al- vöru hvað felst í núverandi fyrir- komulagi strandveiða: „Strandveiðikerfið á að fela í sér jafnræði allt í kringum landið, það var ekki búið til handa einu land- svæði en þannig er það núna.“ Útgerðarmenn á strandveiðum vona að sveitarfélög innan C- svæðisins fari að gera sér grein fyrir því gríðarlega tekjutapi sem þau hafa orðið fyrir og þrýsti á breyt- ingar því tilflutningur á aflaheim- ildum og útgerðum strandveiðibáta milli landsvæða er augljós. Kerfið að eyða brothættri byggð - Smábátasjómenn á Norðausturlandi mjög ósáttir við strandveiðikerfið - Telja grófa mismunun vera á milli veiðisvæða - Hætt við að potturinn klárist þegar stærri fiskur er genginn á svæðið Morgunblaðið/Líney Sigurðardóttir Þórshöfn Smábátasjómenn við löndun í góðviðrinu nýverið en þeir eiga undir högg að sækja eftir að illa hefur gengið að veiða á tilteknu tímabili sökum brælu vikum saman. Þeir kalla eftir breyttu fyrirkomulagi. Útgerð Fjölmargir bátar hafa verið gerðir út frá Þórshöfn til strandveiða í sumar en margir veiðidagar dottið út.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.