Morgunblaðið - 05.07.2022, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 05.07.2022, Blaðsíða 12
BAKSVIÐ Þóroddur Bjarnason tobj@mbl.is Líftæknifyrirtækið TARAMAR hyggst safna eitt hundrað milljónum króna til rekstrarins með sölu á hlutabréfum í B-flokki. Félagið aug- lýsti útboðið á dögunum. Í auglýsing- unni kemur fram að féð eigi að nota til markaðssóknar í Bretlandi og Dubai en öflugir aðilar á báðum stöð- um hafa samkvæmt auglýsingunni sýnt mikinn áhuga á TARAMAR. Tekið er fram í auglýsingunni að B-hluthafar taki ekki þátt í stjórnun og hafi ekki atkvæðisrétt. Lágmarks- kaup eru 100 þúsund krónur. Fleiri en 300 eigendur Guðrún Marteinsdóttir fram- kvæmdastjóri segir í samtali við Morgunblaðið að fjármögnunarleiðin sé nýjung í sprotasamfélaginu. Hún segir að hingað til hafi félagið verið fjármagnað af venjulegu fólki eins og hún orðar það og nú séu fleiri en 300 manns í þeim hópi. Auk þeirra hefur Eignarhaldsfélag Suðurnesja, Suð- urnesjabær sem og Háskóli Íslands stutt dyggilega við félagið að hennar sögn. „Maður getur ekki annað en fyllst þakklæti og stolti yfir þeim góðu móttökum sem við höfum feng- ið hjá íslensku þjóðinni. Íslendingar sýna vel hvers þeir eru megnugir og í þessu verkefni verða það íslenskir neytendur sem koma þessu íslenska hugviti á markað erlendis,“ segir Guðrún. Hún segir að hlutirnir samsvari um 12% af heildarhlutafé fyrirtækis- ins. Félagið er nú verðmetið á 860 milljónir króna. Nær markmiði sínu Guðrún segir að miðað við viðtök- urnar við auglýsingunni sé líklegt að TARAMAR nái markmiði sínu. „Við erum að búa okkur undir að fara á Bretlandsmarkað. Við vinnum með fyrirtækinu Lab My Brand. Það er staðsett í London og er m.a. í eigu Íslendings. Það hefur góð tengsl inn á markaðinn.“ TARAMAR selur vörur sínar nú þegar á netinu og í verslunum í Hong Kong, Macau, Kína og Íslandi. Guðrún segir TARAMAR vera í stöðugum vexti. Stutt sé í að einka- leyfaumsókn fyrirtækisins verði samþykkt. „Þetta lítur ákaflega vel út. Á næstu 4-5 árum munum við lík- lega margfalda virði félagsins, þ.e. um leið og við höfum komið okkur betur fyrir á erlendum mörkuðum.“ Birta heildstæða bálkakeðju Guðrún segir stefnt að því að birta heildstæða bálkakeðju varanna. Með því fáist fullt gagnsæi. Vörurnar eru unnar úr þangi og lækningajurtum. „Þá mun fólk sjá hvar fræjunum er sáð, hvenær uppskeran fór fram, hvert er hita- og rakastig í ræktun- inni, hvenær unninn er vökvi úr plöntunum og hver bóndinn er sem ræktar plönturnar m.a. Birting slíkr- ar bálkakeðju er algjör nýjung hjá húðvörufyrirtækjum,“ bætir hún við. „Þetta er okkar framtíðarsýn. Hún verður hluti af markaðsátakinu í Bretlandi.“ Guðrún og eiginmaður hennar Kristberg Kristbergsson, sem bæði eru prófessorar við Háskóla Íslands, munu eftir sölu B-hlutanna áfram eiga meirihluta í félaginu. „Við stefnum á skráningu á First North- vaxtarmarkaðinn í kauphöllinni á næstu 3-4 árum. Annar kostur væri að selja stóru snyrtivörufyrirtæki TARAMAR í heild sinni. Við höfum átt fundi með nokkrum slíkum aðil- um. Áhuginn er mikill.“ Verksmiðja fyrirtækisins er í Sandgerði. Þar verður fólki fjölgað við framleiðsluna eftir þörfum. „Þeg- ar markaðssetning í Bretlandi og Dubai hefst munum við opna mark- aðsskrifstofur þar.“ 4.600 manna vildarklúbbur Fyrir tveimur árum kom fram í ViðskiptaMogganum að TARAMAR hafi verið með tvö þúsund manna vildarklúbb. Nú eru 4.600 í klúbbn- um. „Við eigum í miklu og reglulegu samtali við klúbbmeðlimi. Þeir fá af- slátt af vörum og taka þátt í próf- unum. Klúbburinn hefur mikil áhrif á vöruþróunina.“ Sem dæmi um vöru sem klúbbur- inn tekur þátt í að þróa er húðvöru- línan ICEBLU sem TARAMAR vinnur í samstarfi við örþörunga- framleiðandann Vaxa technologies á Hellisheiði. „Þessar nýju vörur eru vægast sagt að koma vel út,“ segir Guðrún að lokum. Safna 100 milljónum króna Snyrtivörur Taramar stefnir á skráningu á First North-vaxtarmarkaðinn á næstu 3-4 árum. Vörurnar eru unnar úr þangi og lækningajurtum. Taramar » Meginmarkmið er að bjóða upp á náttúrulegar og með öllu skaðlausar lausnir í húðvörum. » Þróunaraðferð félagsins heitir NoTox® Technology og er í alþjóðlegu einkaleyfaferli. » Hafa mikla virkni og getu til að bæta húð og draga úr sýni- legum áhrifum öldrunar. » Hefur fengið 26 alþjóðleg verðlaun fyrir nýsköpun, hrein- leika og virkni. - Nýjung í sprotasamfélaginu - 12% í líftæknifyrirtækinu Taramar seld sem B-hlutabréf - Félagið metið á 860 milljónir króna - Vinna með Lab My Brand í Bretlandi - Bálkakeðja gefi fullt gagnsæi 12 FRÉTTIR Viðskipti | Atvinnulíf MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 5. JÚLÍ 2022 5. júlí 2022 Gengi Kaup Sala Mið Dollari 133.05 Sterlingspund 160.07 Kanadadalur 102.8 Dönsk króna 18.645 Norsk króna 13.381 Sænsk króna 12.868 Svissn. franki 138.33 Japanskt jen 0.9833 SDR 176.79 Evra 138.7 Meðalgengi/Viðskiptavog þröng 169.1858 Hagnaður Sjávarsýnar nam á síð- asta ári rétt rúmlega þremur millj- örðum króna, samanborið við hagn- að upp á um 1,6 milljarða króna árið áður. Sjávarsýn er að fullu í eigu Bjarna Ármannssonar, athafna- manns og forstjóra Iceland Seafood International. Í nýbirtum ársreikn- ingi félagsins kemur fram að hagn- aðinn megi rekja til mikillar hækk- unar verðbréfa í eigu þess, en hrein ávöxtun verðbréfa er bókfærð á um 2,5 milljarða króna í ársreikningi samanborið við 1,4 milljarða króna árið áðu. Tekjur Sjávarsýnar námu um 145,7 milljónum króna á árinu, samanborið við tæpar 82 milljónir króna árið áður, en þar af nam feng- inn arður um 110 milljónum króna. Enginn arður greiddur Eignir félagsins voru í árslok tæp- ir 12,4 milljarðar króna en skuldir námu aðeins tæpum 670 milljónum króna. Þar af voru langtímaskuldir aðeins um 200 milljónir króna. Eigið fé Sjávarsýnar var um 11,6 milljarð- ar króna í árslok. Félagið hyggst þó ekki greiða út arð í ár. Skráðar og óskráðar eigni Sjávarsýn er stærsti eigandi Ice- land Seafood, með um 10,8% hlut. Markaðsvirði hlutarins er nú um 2,8 milljarðar króna. Þá er félagið fimmti stærsti hluthafinn í VÍS með um 7% hlut. Markaðsvirði þessa hlutar er rúmlega 2,1 milljarður króna. Þá á félagið 100% hlut í Gas- félaginu og rúmlega helmingshlut í Fálkanum-Ísmar. Morgunblaðið/Eggert Forstjóri Sjávarsýn er í eigu Bjarna Ármannssonar hjá Iceland Seafood. Sjávarsýn hagnast um þrjá milljarða - Hækkanir á eignum skýra mikinn hagnað

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.