Morgunblaðið - 05.07.2022, Síða 21

Morgunblaðið - 05.07.2022, Síða 21
MINNINGAR 21 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 5. JÚLÍ 2022 Fallin er frá svo alltof fljótt yndisleg æskuvinkona, Sig- rún Ósk Bjarnadótt- ir. Jarðvistina kvaddi hún á björtum og fallegum þjóðhátíðardegi okkar Íslendinga, 17. júní síðastliðinn. Við æskuvinkonurnar, Anna, Helen, Hrönn (látin 2012), Jessý og Sigrún, höfum átt samleið í 60 ár. Þegar framhaldsskólaárin tóku við eftir 2. bekk í Hlíðaskóla skiptust leiðir skólagöngu okkar. Um það leyti eða 1964 stofnuðum við stöllur saumaklúbbinn okkar til að halda utan um vináttuna. Nýr kafli tók svo við um og eftir tvítugt en fram til þess tíma bjuggum við allar í foreldrahúsum í Hlíðunum. Ein af annarri hófum Sigrún Ósk Bjarnadóttir ✝ Sigrún Ósk Bjarnadóttir fæddist 20. mars 1950. Hún lést 17. júní 2022. Útför Sigrúnar fór fram 30. júní 2022. við búskap, gengum í hjónaband og eign- uðumst fyrstu börn- in. Fyrir um 40 árum bættust góðar vin- konur í klúbbinn okkar, þær Gurrý, Þurý, Dóra og Unn- ur. Því miður hafa samverustundirnar verið fáar síðustu 2 ár vegna Covid- heimsfaraldurs. Síð- asti hefðbundni saumóinn var heima hjá Sigrúnu rétt áður en Covid breytti daglegu lífi allra. Þar beið okkar glæsilegt veislu- borð skreytt fallegum blómum, en þær systur Ragna Rut og Berg- lind höfðu lagt mömmu sinni lið við undirbúning eins og svo oft áð- ur. Allar eigum við fjársjóð minn- inga frá gleðistundum liðins tíma. Elsku Sigrún er önnur sem kveð- ur nú hópinn góða, en Hrönnsa okkar lést fyrir 10 árum, mikil eft- irsjá og söknuður að hafa þær ekki lengur meðal okkar. Sigrún var glæsileg kona, vönd- uð og trygg. Hún var dugnaðar- forkur og öll hennar verk unnin af alúð og vandvirkni. Allt hennar handverk listafallegt hvort sem var fatasaumur, prjónaskapur eða alls kyns skreytingar sem glöddu augað, hún var sannkölluð lista- manneskja. Lengst af starfaði Sigrún sem ferðafræðingur hjá ferðaskrifstofunni Úrval-Útsýn. Oftar en ekki leituðum við til hennar varðandi fyrirhugaðar ut- anlandsferðir, af fagmennsku ráð- lagði hún og skipulagði ferðir sem eru okkur ógleymanlegar. Við kveðjum elsku Sigrúnu okkar með þakklæti fyrir ára- langa fallega vináttu. Mikill er söknuður allra sem hana þekktu en mestur hjá börnum hennar, Ellerti Baldri, Rögnu Rut og Berglindi, fjölskyldum þeirra og ættingjum. Innilegar samúðar- kveðjur færum við ykkur öllum. Farðu vel til hærri heima, hafðu þökk af öllu hjarta. Minningu þína munum geyma, fagra ljúfa glaða og bjarta. (TRJ) Takk fyrir að vera vinkona okk- ar. Anna, Helen, Jensína Ragna (Jessý) Guðrún Björg (Gurrý), Þuríður (Þurý), Dóra og Unnur. Nokkur minning- arorð um frænku mína Sigríði Vil- hjálms sem alltaf var kölluð Lóló. Lóló var einstaklega hjartahlý og góð manneskja sem aldrei hallmælti nokkrum manni. Í mínum huga var hún alltaf eins og kvikmynda- stjarna, vel tilhöfð og flott, enda há og grönn. Sigríður Vilhjálms ✝ Sigríður Vil- hjálms fæddist 9. september 1943. Hún lést 7. maí 2022. Útför Sigríð- ar fór fram 16. maí 2022. Eitt sinn tókum við Hreinn vinur minn að okkur að passa Gísla son Lólóar og Helgu frænku mína sem voru um fjögurra ára. Þetta vor, senni- lega 1964 eða 1965, var frekar kalt og við Hreinn ferðuðumst aðallega á skíðasleð- um. Við höfðum börnin hvort á sínum sleðanum, álpuðumst svo á tjörnina sem var byrjuð að leysa ís. Hlupum við á ísnum, sem gekk í bylgjum, það endaði með því að Hreinn fór of nálægt vök á tjörninni og ísinn brotnaði undan honum. Allt í einu stóð Hreinn í vatni upp að hálsi en Gísli flaut eins og korktappi burt frá sokkna sleðanum á lofti í úlp- unni sinni. Hreini tókst að krafla sig til Gísla og koma honum í land, að vísu hundblautum. Sumar kon- ur sem málið varðaði urðu mjög reiðar yfir lyktum þessa máls. En minnst reið varð Lóló, sem tók þessum ósköpum með stóískrí ró. Ekki var mikið sóst eftir barna- gæslu okkar Hreins eftir þetta. Reyndar var Lóló eins og systir mín, enda mæður okkar systur og sérlega mikið og gott samband milli fjölskyldnanna. Ég og fjöl- skylda mín vottum börnum henn- ar og systkinum innilega samúð okkar vegna fráfalls þessarar yndislegu konu. Blessuð sé minn- ing hennar. Hartmann Ásgrímsson. ✝ Hreinn Hjartar- son fæddist á Eyrarbakka 13. mars 1956. Hann lést á heimili sínu í Reykjavík 15. júní 2022. Hreinn ólst upp á Eyrarbakka en bjó öll sín fullorðinsár í Reykjavík. For- eldrar hans voru Hjörtur Leó Jónson og Sesselja Ásta Erlendsdóttir, eru þau bæði látin. Systkini hans eru Jón Erlendur Hjartarson Thelma Huld, fædd 2017. Hjördís Gígja, fædd 1986, maki hennar er Arnór Ingi Brynjarsson. Börn þeirra eru Emil Gauti, fæddur 2013, Sunneva Ýr, fædd 2016, og Elísabet Ása, fædd 2020. Hreinn Orri Hreinsson, fæddur árið 1989. Eftirlifandi unnusta Hreins er Sóley en hún býr í Taílandi. Hreinn var sjómaður. Hann var einnig með eigin rekstur og vann ýmis störf. Síðast vann hann hjá Aðföngum í Reykjavík. Hreinn var mikill áhugamaður um fótbolta og hélt mikið upp á knattspyrnufélagið Fylki þar sem hann sinnti félagstörfum um árabil. Einnig var hann mikill stuðningsmaður Manchester United. Kveðjustundin fer fram í Graf- arvogskirkju í dag, 5. júlí 2022, og hefst athöfnin klukkan 13. sem er látinn. Vigdís Hjartardóttir, maki hennar er Þórður Grétar Árnason, eiga þau tvö börn, þrjú barnabörn og eitt barna- barnabarn. Einnig áttu þau eina systur samfeðra, Hólmfríði Rannveigu. Hreinn var giftur Iðunni Ásu Hilm- arsdóttir, börn þeirra eru: Ásta Huld, fædd 1981, dætur hennar eru Iðunn Gígja, fædd 2000, og Elsku Hreinn „litli“ bróðir minn er fallinn frá, aðeins 66 ára. Ég á eftir að sakna þín og sím- talanna frá þér sem yfirleitt komu á mánudögum. Við rædd- um sundferðir, gönguferðir og hvað öll útivera væri öllum til góðs. Við skiptumst á sögum af börnum okkar og barnabörnum sem þú varst mjög stoltur af, þetta voru ljúf og djúp samtöl. Liljublóm sem að leit sólu mót á lífsins morgni var í burtu hrifið slitið óvænt upp af sinni rót ekkert finnst þar síðan nema grjót. Aftanstund og örlítill þeyr í eyra mér er hvíslað dimmum rómi: Lætur eftir sig það líf, sem deyr, lítið skarð í hópinn, ekki meir. Hjálpar alltaf að eiga í sínum hjartastað ljóselska minning ljúfa. Sorgin er ein á yfirferð ótti af henni mannfólkinu stendur hún er bæði köld og viðsjárverð og velur ekki neina sáttagerð. Liljublóm sem að leit sólu mót á lífsins morgni var í burtu hrifið slitið óvænt upp af sinni rót ekkert finnst þar síðan nema grjót. Hjálpar alltaf að eiga í sínum hjartastað ljóselska minning ljúfa. (Ásgeir Trausti) Hafðu þökk fyrir allt og allt. Guð veri með þér og þínum. Góða nótt kæri bróðir. Þín systir, Vigdís (Dísa). Svefninn laðar, líður hjá mér lífið sem ég lifað hef. Fólk og furðuverur hugann baðar andann hvílir. Lokbrám mínum læsi uns vakna endurnærður. Það er sumt sem maður saknar vöku megin við. Leggst út af á mér slokknar. Svíf um önnur svið í svefnrofunum finn ég sofa lengur vil. Því ég veit að ef ég vakna upp finn ég aftur til. Svefninn langi laðar til sín lokakafla æviskeiðs. Hinsta andardráttinn. Andinn yfirgefur húsið hefur sig til himna við hliðið bíður drottinn. (Björn Jörundur og Daníel Ágúst) Hvíl í friði elsku frændi, þín verður sárt saknað, minning þín mun lifa. Þinn frændi, Árni Leó Þórðarson. Hreinn Hjartarson ✝ Þórunn Brynj- ólfsdóttir fæddist 22. júní 1938 að Ekkjufelli í Fellum. Hún and- aðist 23. júní 2022 á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja. Foreldrar henn- ar voru Brynjólfur Sigbjörnsson bóndi og vegavinnuverk- stjóri þar og Sol- veig Jónsdóttir húsfreyja. Systkini Þórunnar eru Vignir Brynjólfsson, f. 22. apríl 1926, d. 26. janúar 1983, Sigbjörn Björnsson Brynjólfsson, f. 10. nóvember 1928, Grétar Þór jamin Calm, f. 19. febrúar 1972 í Frejus Frakklandi. Foreldrar: Jean Gilles Calm, f. 19. janúar 1936 í Le Kef Túnis, og Claire Calm, f. 21. október 1935 í París, d. 9. mars 2013. Börn Sólveigar og Chrostophe eru Magnús, f. 20. ágúst 2012, og Óskar Þór, f. 1. maí 2015. Þórunn var gagnfræðingur frá Eiðum 1945 og stundaði nám í Húsmæðraskólanum á Blöndu- ósi 1956-1957. Hún lauk námi við Ljósmæðraskóla Íslands 1964 og starfaði sem ljósmóðir á Egilsstöðum. Hún lauk hjúkr- unarnámi frá Nýja hjúkrunar- skólanum í nóvember 1974 og starfaði á Borgarspítala og á fæðingardeild Landspítala þar til hún flutti til Njarðvíkur og starfaði á heilsugæslustöð HSS til starfsloka. Utför Þórunnar var gerð frá Ytri-Njarðvíkurkirkju 1. júlí 2022. Brynjólfsson, f. 26. mars 1930, d. 5. október 2009, og Sigrún Brynjólfs- dóttir, f. 16. desem- ber 1939, d. 23. febrúar 2017. Maki 31. desem- ber 1978: Magnús Rafn Guðmannsson verkfræðingur, f. 16. apríl 1943 að Dysjum í Garða- hreppi. Foreldrar: Guðmann Magnússon bóndi og hreppstjóri þar og Úlfhildur Kristjánsdóttir húsfreyja. Dóttir: Sólveig María, f. 22. júlí 1977. Maki: Christophe Ben- Kær vinkona okkar Þórunn Brynjólfsdóttir, Tóta, er fallin frá eftir erfið veikindi. Síðsumars 1965 héldu átta ís- lenskir verkfræðinemar til Kaup- mannahafnar til þess að ljúka síð- ari hluta verkfræðinámsins við Danmarks Tekniske Højskole. Sumir voru þá þegar komnir með fjölskyldu. Góður vinskapur hópsins varð enn nánari á náms- árunum í Kaupmannahöfn. Eftir námið dreifðist hópurinn nokkuð, en innan fárra ára voru allir komnir með sína lífsförunauta. Á þessum árum kynntumst við Tótu, eiginkonu Magnúsar Guð- mannssonar, Magga. Nokkru eftir heimkomuna til Íslands fór hópurinn að hittast reglulega. Við skiptumst á að halda árlegar veislur í heimahús- um og síðar fórum við að ferðast saman bæði innanlands og utan sem styrkti vinskapinn innan hópsins enn frekar. Allar voru þessar ferðir þaulskipulagðar og einstaklega vel heppnaðar, enda um mjög hressan hóp að ræða. Við höldum enn árlegu veislurnar í heimahúsum, sem alltaf eru jafn skemmtilegar, en ferðalögin hafa strjálast með árunum. Heimili þeirra Tótu og Magga var í Njarðvík. Tóta ólst upp á Ekkjufelli í Fellum og áttu þau Maggi sér annað heimili í Freys- nesi við Lagarfljót þar sem þau dvöldu á sumrin. Þetta er efa- laust einhver fallegasti staður á landinu með útsýni suður eftir Lagarfljóti og í björtu veðri sést Snæfellið með sínum fönnum tróna í fjarska í heiðríkjunni. Tóta og Maggi voru ákaflega gestrisin. Ef eitthvert okkar var á ferð á Suðurnesjum og langaði til að heilsa upp á þau og sníkja sér ef til vill kaffibolla var viðbúið að innlitið endaði með því að bor- in var fram ríkuleg kvöldmáltíð. Eins var gestrisni þeirra við brugðið í Freysnesi. Ef gesti bar að garði var jafnan slegið upp veislu. Síðsumars var meira en sjálfsagt að koma til þeirra í berjamó eða sveppatínslu, þá undir þeirra leiðsögn ef á þurfti að halda. Minnisstæðar eru tvær sumar- ferðir okkar sem þau Tóta og Maggi stóðu fyrir. Önnur var til Suður-Frakklands þar sem Sól- veig dóttir þeirra bjó með sínum manni honum Benja. Þá var kom- ið við á heimili tengdaforeldra Sólveigar og beið okkar þar óvænt veisla. Og í Freysnesi nut- um við lífsins meðal annars með heimsókn í svonefndan Brenni- vínshelli þar sem boðið var upp á staup, siglingu um Lagarfljót, kvöldverð við varðeld í fjörunni og fræðslu um hinn kynngimagn- aða stað, Freysnes. Tóta er sú fimmta sem fellur frá úr sextán manna hópnum og er þeirra allra sárt saknað. Við erum þakklát fyrir að hafa þekkt Tótu og minnumst hennar með hlýhug. Við flytjum Magnúsi, Sólveigu, Benja og drengjunum þeirra sem og öðrum aðstandendum innileg- ar samúðarkveðjur. Blessuð sé minning Þórunnar. Fyrir hönd DTH 68 hópsins, Guðrún og Jón. Þórunn Brynjólfsdóttir Minningarvefur á mbl.is Minningar og andlát Á minningar- og andlátsvef mbl.is getur þú lesið minningargreinar, fengið upplýsingar úr þjónustuskrá auk þess að fá greiðari aðgang að þeirri þjónustu sem Morgunblaðið hefur veitt í áratugi þegar andlát ber að höndum. Andláts-, útfarar- og þakkartilkynningar eru aðgengilegar öllum. www.mbl.is/andlát Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, SÓLON RÚNAR SIGURÐSSON, fv. bankastjóri, verður jarðsunginn frá Hallgrímskirkju miðvikudaginn 6. júlí klukkan 13. Guðrún M. Sólonsdóttir Hannes Heimisson Sigurður M. Sólonsson Arnfríður Hjaltadóttir Árni Valur Sólonsson Svanlaug Ida Þráinsdóttir barnabörn og barnabarnabörn Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma, langamma og langalangamma, STEINUNN GUÐNÝ SVEINSDÓTTIR frá Kastalabrekku, lést á Hjúkrunar- og dvalarheimilinu Kirkjuhvoli Hvolsvelli 1. júlí. Útförin fer fram frá Oddakirkju á Rangárvöllum mánudaginn 18. júlí klukkan 11. Gróa Ingólfsdóttir Þórunn Sigurðardóttir Sigurveig Þóra Sigurðard. Hildur Sigurðardóttir Guðlaug Sigurðardóttir Hjördís Sigurðardóttir Jóna Sigurðardóttir og fjölskyldur

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.