Morgunblaðið - 05.07.2022, Blaðsíða 24
24 DÆGRADVÖL
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 5. JÚLÍ 2022
Fiskislóð • Bíldshöfði • Smáratorg • Helluhraun • Baldursnes
www.gaeludyr.is
Njótið
sumarsins
90 ÁRA Gunnar er fæddur og uppalinn í
Reykjavík. Hann var kaupmaður alla sína
starfsævi, fyrst í Teigabúðinni í Laugarnes-
hverfinu, síðan í Vogaveri í Vogahverfinu og
loks í Hólagarði í Breiðholti. Gunnar var alla
tíð virkur í félagsmálum. Hann var formað-
ur Kaupmannasamtaka Íslands í áratug og
var fyrir þeirra hönd í miklu norrænu sam-
starfi og var sæmdur gullmerkjum kaup-
mannasamtaka allra norrænu ríkjanna.
Hann starfaði í fjölda stjórna og nefnda,
meðal annars í Vinnuveitendasambandi Ís-
lands og Lífeyrissjóði verslunarmanna.
FJÖLSKYLDA Eiginkona Gunnars er
Jóna Valdimarsdóttir, f. 2.8. 1934. Þau eru
búsett í Garðabæ og eiga fjögur börn, Önnu
Lilju, f. 1954, Sigurð, f. 1959, Brynju Björk,
f. 1965, og Ástu, f. 1969. Þau munu verja af-
mælisdeginum með fjölskyldu sinni.
Gunnar Snorrason
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl ,
Hrútur Nú er rétti tíminn til þess að láta
hugmyndir sínar uppi við þá aðila sem geta
hjálpað þér við að koma þeim í fram-
kvæmd.
20. apríl - 20. maí +
Naut Hafðu ekki of miklar áhyggjur af öðru
fólki því þú þarft að hafa tíma fyrir sjálfan
þig. Leggðu þig fram við vinnu þína í dag
og þá muntu ná árangri á morgun.
21. maí - 20. júní 6
Tvíburar Þú hefur sterkar skoðanir á
heimspeki, stjórnmálum eða trúmálum.
Reyndu því að einbeita þér að starfi þínu.
21. júní - 22. júlí 4
Krabbi Þeir möguleikar sem þú stendur nú
frammi fyrir virðast óvenju fjölbreyttir. En
það er betra að leggja smá fyrir en hreint
ekki neitt.
23. júlí - 22. ágúst Z
Ljón Ljónið býr yfir yndislegum gáfum sem
best væri að deila á rólegan og samúðar-
fullan hátt. Nú ríður á að vera í félagsskap
einhvers sem gerir það sama.
23. ágúst - 22. sept. l
Meyja Þú þarft ekkert að óttast að leggja
starf þitt undir dóm annarra. Um leið og þú
byrjar að tala um það slást fleiri í hópinn.
23. sept. - 22. okt. k
Vog Fjarvistir og ferðalög geta tekið sinn
toll hjá öðrum í fjölskyldunni. Tíndu fyrst til
kostina og láttu þá ráða ferðinni, því þann-
ig verða ókostirnir auðveldlega yfirunnir.
23. okt. - 21. nóv. j
Sporðdreki Þú sættir þig við hlutina eins
og þeir eru, þar til eitthvað sem gerist um
miðjan dag sýnir þér fram á að til séu fleiri
möguleikar. Ef þú fagnar oft hefurðu oft
ástæðu til að fagna.
22. nóv. - 21. des. h
Bogmaður Bogmaðurinn er rausnarlegur í
garð barna sinna og ástvina í dag. Ekki
snuða sjálfan þig til þess eins að vera kurt-
eis.
22. des. - 19. janúar @
Steingeit Þú vilt sýna stuðning, vera rétt-
látur og hlusta á báðar hliðar á sögunni.
Ekki er víst að allir vilji gera og segja eins
og þú.
20. jan. - 18. febr. ?
Vatnsberi Þér getur reynst erfitt að upp-
fylla óskir annarra ef þú veist ekki fyrir víst
hvaða kröfur eru gerðar til þín. Fólk er
spennt og tilfinningaríkt í dag.
19. feb. - 20. mars =
Fiskar Það er mikil hætta á deilum í dag
og því er þetta ekki góður dagur til að
skipta sameiginlegum eignum. Það er
betra að fá aðstoð frá einhverjum við þetta.
H
ákon Stefánsson er
fæddur á Dalvík 5. júlí
1972 og ólst þar upp.
Hann stundaði frjáls-
ar íþróttir, æfði fót-
bolta af krafti og vann í salthúsinu á
Dalvík á sumrin. „Eftir að hafa lokið
stúdentsprófi var ég í tvö ár á sjó á
Björgvini EA311 meðfram há-
skólanámi. Ég varð stúdent frá
Menntaskólanum á Akureyri 1992 og
útskrifaðist úr lagadeild Háskóla Ís-
lands í febrúar 1998. Þá bauðst mér
starf hjá sýslumanninum í Hafn-
arfirði, Guðmundi Sophussyni, sem
mér þótti einstaklega vandaður mað-
ur og lærði ég margt af honum. Á
meðan ég starfaði hjá sýslumanni
fékk ég svigrúm til að ná mér í hér-
aðsdómslögmannsréttindi. Mér
bauðst síðan að hefja störf á Lög-
fræðistofu Reykjavíkur árið 1999
sem ég þáði en það var sérstaklega
skemmtilegur tími enda stór stofa á
þeim tíma.“ Hákon sá auglýsta stöðu
bæjarlögmanns Akureyrarbæjar
stuttu síðar, sótti hann þá um starfið
og fékk það. Í því starfi var honum
falin ábyrgð og traust sem hann
reyndi að axla eftir bestu getu. „Það
sem stendur upp úr þessum tíma er
léttleiki þáverandi bæjarstjóra,
Kristjáns Þórs Júlíussonar, og það að
hann lét pólitík alltaf víkja fyrir laga-
rökum þó ég hafi ekki verið eldri en
ég var. Eftir tvö frábær ár á Akureyri
þá bauðst mér að taka við starfi sviðs-
stjóra ráðgjafasviðs hjá Intrum á Ís-
landi sem hafði stuttu áður verið
keypt af bönkum/sparisjóðum. Í því
starfi kynntist ég í mörgum stjórn-
endum í íslensku atvinnulífi og fékk
góða leiðsögn í starfi frá forstjóra fé-
lagsins, Sigurði A. Jónssyni, og yfir-
lögfræðingi, Bjarna Þór Óskarssyni.“
Páskana 2006 hringdi Reynir Grét-
arsson, besti vinur Hákons frá því í
menntaskóla, og stofnandi og aðaleig-
andi Creditinfo í hann þar sem Há-
kon var staddur ásamt fjölskyldu
sinni á Tenerife. Reynir var að leita
að lögfræðingi sem hann vildi ráða í
starf framkvæmdastjóra á Íslandi.
„Símtalið endaði með því að ég
fékk starfið enda fékk ég að vita
seinna að það var einmitt það sem
hann vildi. Það má segja að árið 2006
hafi verið ákveðinn vendipunktur í
mínu lífi, viðskipti og rekstur fóru að
skipta meira máli en lögfræðin og ég
var allt í einu farinn að vinna með
besta vini mínum en við höfðum lengi
ætlað okkur að hefja samstarf. Ferðir
til Georgíu, Jamaíka, Guyana, Tékk-
lands, Eistlands, Tansaníu og fleiri
landa fóru að vera daglegt brauð. Ég
sakna ekki ferðalaganna sem slíkra
en ég sakna áfangastaðanna. Ég man
sérstaklega eftir að hafa verið í Kart-
úm, höfuðborg Súdans. Ég fékk að
vita það á flugvellinum í Istanbúl
þegar ég var á leiðinni þangað í fyrsta
skipti að það væri hvergi hægt að
nota kort í landinu, það var ekkert
Mastercard eða Visa eða neitt slíkt.
Ég fór þá að vera með bandaríska
dollara á mér í staðinn. Þeir eru mjög
stoltir af lambakjötinu sínu þarna
eins og við erum hér á Íslandi. Ég fór
á veitingstað þar sem skrokkarnir
hanga í loftinu í fjörutíu stiga hita. Þú
velur þér stykki og þeir grilla það.
Það var mjög gott og alls ekkert síðra
en hérna heima.“ Hákon flutti líka
með þáverandi eiginkonu sinni og
börnum til Þýskalands árið 2009 eftir
að þýskt fyrirtæki, í eigu þýskra fjár-
málastofnana, keypti hlut í Creditinfo
og bjuggu þau þar í þrjú ár.
„Ég hef verið einstaklega heppinn
með minn besta vin, þá að geta unnið
eins náið með honum og við höfum
gert án þess að það hafi valdið tog-
streitu á milli okkar.“ Í dag eru þeir
félagar með fjárfestingafélagið Info-
Capital eftir að það félag seldi nokk-
uð stóran hlut í Creditinfo. InfoCapi-
tal fjárfestir í ýmiss konar
fjártæknifyrirtækjum, meðal annars
í Aurbjörgu sem er fjártæknivefur
sem hjálpar fólki með fjármál heim-
ilisins, eins og segir á heimasíðu vefs-
ins. Markmið Aurbjargar er að auka
fjármálalæsi, auka gagnsæi og að-
Hákon Stefánsson forstjóri – 50 ára
Ferðalög daglegt brauð Hákon ferðaðist víða eftir að hann og besti vinur
hans, Reynir Grétarsson, fóru að vinna saman hjá CreditInfo. Hér er Hákon
á blaðamannafundi í Tansaníu. Hákon vinnur mest á Íslandi núna.
Forréttindi að vinna
með besta vini sínum
Við Stóru-Laxá Hákon hefur gaman af laxveiði og útivist og ver afmælis-
vikunni í góðra vina hóp með vinum og fjölskyldu í Stóru-Laxá.
Til hamingju með daginn
Heiðbjört Eldey Hlífarsdóttir fæddist
klukkan 02:39 þann 24. nóvember
2021 á Landspítalanum í Reykjavík.
Hún vó 2.825 g og var 48 cm á lengd.
Foreldrar hennar eru Hlífar Arnar Hlíf-
arsson og Elsa Líf Bjarnadóttir.
Nýr borgari