Morgunblaðið - 05.07.2022, Side 26
26 ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 5. JÚLÍ 2022
Besta deild karla
KA – Valur ................................................ 1:1
Leiknir R. – ÍA ......................................... 1:0
FH – Stjarnan........................................... 1:1
Staðan:
Breiðablik 12 10 1 1 35:12 31
Víkingur R. 11 7 1 3 25:16 22
Stjarnan 11 5 5 1 21:14 20
Valur 11 6 2 3 20:15 20
KA 11 5 3 3 16:13 18
KR 12 4 4 4 16:19 16
Keflavík 11 4 2 5 19:20 14
FH 11 2 4 5 16:19 10
Fram 11 2 4 5 20:29 10
ÍA 11 1 5 5 11:22 8
Leiknir R. 11 1 4 6 8:17 7
ÍBV 11 0 5 6 9:20 5
2. deild karla
ÍR – Ægir .................................................. 3:2
Staðan:
Njarðvík 10 9 1 0 37:8 28
Þróttur R. 10 8 1 1 19:8 25
Ægir 10 7 1 2 18:13 22
Völsungur 10 5 2 3 21:15 17
Haukar 10 4 3 3 13:11 15
ÍR 10 4 2 4 16:17 14
KFA 10 3 3 4 17:19 12
KF 10 2 5 3 18:22 11
Víkingur Ó. 10 2 2 6 15:21 8
Höttur/Huginn 10 1 3 6 10:19 6
Magni 10 1 2 7 7:27 5
Reynir S. 10 1 1 8 10:21 4
Opna NM U16 stúlkna
Ísland – Indland ....................................... 3:0
Lilja Björk Unnarsdóttir 42., Emelía Ósk-
arsdóttir 65., 77.
_ Ísland leikur um 5. sæti á fimmtudag.
Svíþjóð
Gautaborg – Degerfors .......................... 2:0
- Adam Benediktsson var varamarkvörð-
ur hjá Gautaborg í leiknum.
Staða efstu liða:
Häcken 12 7 4 1 25:17 25
Djurgården 13 7 3 3 26:10 24
AIK 13 7 3 3 18:15 24
Hammarby 12 6 3 3 21:11 21
Malmö 13 6 3 4 14:12 21
Kalmar 12 6 2 4 15:10 20
Gautaborg 12 6 2 4 15:11 20
Elfsborg 12 5 4 3 24:13 19
B-deild:
Trelleborg – Norrby ............................... 2:1
- Böðvar Böðvarsson kom inn á hjá Trelle-
borg á 65. mínútu. Liðið er í fimmta sæti.
Noregur
B-deild:
Stjördals Blink – Start ............................ 0:3
- Bjarni Mark Antonsson lék allan leikinn
með Start sem er í sjöunda sæti.
Bandaríkin
Orlando Pride – Racing Louisville........ 2:2
- Gunnhildur Yrsa Jónsdóttir lék ekki
með Orlando þar sem hún er á leið á EM.
New England Revolution – Cincinnati . 2:2
- Arnór Ingvi Traustason var allan tímann
á varamannabekk New England.
Houston Dynamo – Charlotte ................ 1:2
- Þorleifur Úlfarsson lék allan leikinn með
Houston Dynamo.
4.$--3795.$
Undankeppni HM karla
A-riðill:
Serbía – Belgía...................................... 73:74
_ Lokastaðan: Lettland 5/1, Belgía 4/2,
Serbía 3/3, Slóvakía 0/6. Lettland, Belgía
og Serbía fara áfram.
E-riðill:
Portúgal – Svartfjallaland ................... 62:77
Frakkland – Ungverjaland.................. 81:40
_ Lokastaðan: Frakkland 5/1, Svartfjalla-
land 4/2, Ungverjaland 3/3, Portúgal 0/6.
Frakkland, Svartfjallaland og Ungverja-
land fara áfram.
F-riðill:
Litháen – Tékkland.............................. 72:83
Bosnía – Búlgaría ................................. 76:73
_ Lokastaðan: Litháen 5/1, Tékkland 3/3,
Bosnía 3/3, Búlgaría 1/5. Litháen, Tékkland
og Bosnía fara áfram.
G-riðill:
Georgía – Spánn........................... (frl.) 82:76
Norður-Makedónía – Úkraína ............ 68:73
_ Spánn 4/1, Georgía 4/2, Úkraína 3/2,
Norður-Makedónía 0/6. Einn leikur eftir,
Spánn, Georgía og Úkraína komin áfram.
H-riðill:
Holland – Ítalía..................................... 81:92
Lokastaðan:
Ítalía 4 3 1 367:348 6
Ísland 4 3 1 340:343 6
Holland 4 0 4 297:313 0
Rússlandi var vísað úr keppni.
_ Ísland, Ítalía og Holland áfram.
Staðan í undanriðli tvö:
Ítalía 4 3 1 367:348 6
Ísland 4 3 1 340:343 6
Spánn 3 2 1 253:217 4
Georgía 4 2 2 297:327 4
Úkraína 3 1 2 236:242 2
Holland 4 0 4 297:313 0
_ Úkraína og Spánn mætast á fimmtudag
en seinni undanriðillinn hefst síðan form-
lega í ágúst. Þrjú efstu liðin fara á HM
2023.
4"5'*2)0-#
Varnarmaðurinn reyndi Brynjar
Gauti Guðjónsson er genginn til liðs
við Fram frá Stjörnunni og hefur
samið við félagið til loka tímabilsins
2024. Brynjar er þrítugur Ólafsvík-
ingur og lék með meistaraflokki
Víkings Ó. frá 14 ára aldri. Síðan
með ÍBV 2011-2014 og með Stjörn-
unni frá 2015. Hann er fjórði leikja-
hæsti Stjörnumaðurinn í efstu deild
og hefur alls spilað 207 leiki í deild-
inni með Stjörnunni og ÍBV. Hann
lék hins vegar aðeins fjóra af fyrstu
tíu leikjum Garðbæinga í deildinni í
ár og aðeins einn í byrjunarliði.
Brynjar Gauti
til Framara
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Fram Brynjar Gauti Guðjónsson
leikur áfram í bláum búningi.
Jón Dagur Þorsteinsson, landsliðs-
maður í knattspyrnu, er genginn til
liðs við OH Leuven í Belgíu sem
hafnaði í ellefta sæti af átján liðum í
A-deildinni þar í landi á síðasta
tímabili. Jón Dagur hefur leikið
með AGF í dönsku úrvalsdeildinni
undanfarin þrjú ár en samningur
hans þar rann út í sumar. Jón er 23
ára gamall og hefur skorað fjögur
mörk í 21 landsleik fyrir Ísland.
Rúnar Alex Rúnarsson varði
mark Leuven á síðasta tímabili, í
láni frá Arsenal, en er farinn aftur
til Englands.
Morgunblaðið/Eggert
Landslið Jón Dagur Þorsteinsson
skoraði í tveimur leikjum í júní.
Jón Dagur kom-
inn til Belgíu
LEIKNIR R. – ÍA 1:0
1:0 Mikkel Jakobsen 65.
M
Birgir Baldvinsson (Leikni)
Bjarki Aðalsteinsson (Leikni)
Brynjar Hlöðversson (Leikni)
Emil Berger (Leikni)
Mikkel Jakobsen (Leikni)
Róbert Hauksson (Leikni)
Viktor Freyr Sigurðsson (Leikni)
Árni Snær Ólafsson (ÍA)
Brynjar Snær Pálsson (ÍA)
Kristian Lindberg (ÍA)
Rautt spjald: Kaj Leo í Bartalsstovu (ÍA)
90., Maciej Makuszewski (Leikni) 90.
Dómari: Þorvaldur Árnason – 6.
Áhorfendur: 649.
_ Liðsuppstillingar, gul spjöld, viðtöl og
greinar um leikina – sjá mbl.is/sport/fot-
bolti.
FH – STJARNAN 1:1
1:0 Steven Lennon 57.
1:1 Adolf Daði Birgisson 87.
M
Ástbjörn Þórðarson (FH)
Steven Lennon (FH)
Matthías Vilhjálmsson (FH)
Oliver Heiðarsson (FH)
Haraldur Björnsson (Stjörnunni)
Daníel Laxdal (Stjörnunni)
Adolf Daði Birgisson (Stjörnunni)
Ísak Andri Sigurgeirsson (Stjörnunni)
Dómari: Jóhann Ingi Jónsson – 6.
Áhorfendur: 1.192.
KA – VALUR 1:1
0:1 Tryggvi Hrafn Haraldsson 64.
1:1 Nökkvi Þeyr Þórisson 81.
M
Ívar Örn Árnason (KA)
Dusan Brkovic (KA)
Andri Fannar Stefánsson (KA)
Elfar Árni Aðalsteinsson (KA)
Jesper Julesgård (Val)
Sebastian Hedlund (Val)
Hólmar Örn Eyjólfsson (Val)
Ágúst Eðvald Hlynsson (Val)
Rautt spjald: Guðmundur Andri
Tryggvason (Val) 68.
Dómari: Erlendur Eiríksson – 7.
Áhorfendur: 550.
BESTA DEILDIN
Víðir Sigurðsson
vs@mbl.is
Eftir sextán leiki í deildinni án sig-
urs tókst Leiknismönnum að gal-
opna fallbaráttu Bestu deildar karla
í fótbolta með því að leggja Skaga-
menn að velli, 1:0, í Efra-Breiðholti
í gærkvöld.
Langþráður sigur er vægt til
orða tekið en eftir sigur á Val 8.
ágúst 2021 höfðu Breiðhyltingar
gert fimm jafntefli og tapað ellefu
leikjum.
Nú eru þeir allt í einu bara stigi
frá því að komast úr fallsæti þar
sem Skagamenn eru sjálfir komnir
í vond mál. Þeir hafa ekki unnið í
níu leikjum í röð og eru komnir
með Leiknismenn andandi ofan í
hálsmálið á sér.
_ Mikkel Jakobsen skoraði
markið dýrmæta. Líka langþráð
mark, hans fyrsta fyrir Leikni í
deildinni en við miklu var búist af
honum eftir að hann hafði raðað inn
mörkum í Færeyjum í fyrra.
_ Skagamaðurinn Kaj Leo i Bar-
talsstovu og Leiknismaðurinn Ma-
ciej Makuzsewski voru reknir af
velli fyrir stimpingar í uppbótar-
tíma. Þeir verða báðir í banni í
næstu umferð, Kaj Leo gegn Vík-
ingi og Maciej gegn Stjörnunni.
Eins og þegar FH féll
Byrjun FH í deildinni er orðin sú
versta í 27 ár, eða frá því liðið féll
árið 1995, eftir að Hafnfirðingarnir
misstu niður forystu sína og Stjarn-
an jafnaði undir lokin í Kaplakrika í
gær, 1:1.
FH-ingar eru að sogast niður í
fallbaráttuna því eftir úrslit gær-
kvöldsins eru þeir aðeins þremur
stigum frá fallsæti. Þeir hafa unnið
tvo af fyrstu ellefu leikjunum, alveg
eins og árið 1995.
_ Steven Lennon skoraði sitt 99.
mark í deildinni og það fyrsta síðan
í fyrstu umferðinni og kom FH yfir.
_ Varamaðurinn Adolf Daði
Birgisson jafnaði fyrir Stjörnuna á
87. mínútu með sínu þriðja marki í
deildinni. Óli Valur Ómarsson átti
síðan stangarskot fyrir Stjörnuna í
uppbótartíma leiksins.
_ Stjörnumenn léku sinn 400.
leik í efstu deild karla í gærkvöld.
Þeir hafa enn aðeins tapað einum af
fyrstu ellefu leikjum sínum og
halda sínu striki í baráttunni í efri
hlutanum.
_ Keflvíkingar náðu svipuðum
áfanga gegn Fram í fyrrakvöld en
þeir léku þá sinn 900. leik í deild-
inni.
KA nýtti liðsmuninn
Valur og KA eru áfram í fjórða
og fimmta sæti eftir jafntefli á KA-
vellinum á Akureyri í gærkvöld,
1:1.
_ Tryggvi Hrafn Haraldsson
kom Val yfir með sínu fjórða marki
í deildinni í ár, eftir langa sendingu
Ágústs Hlynssonar fram völlinn.
_ Guðmundur Andri Tryggva-
son sóknarmaður Vals fékk rauða
spjaldið þegar hönd hans sveifl-
aðist í andlit Kristians Jajalo
markvarðar KA sem var á ferð
með boltann í höndum utarlega í
vítateignum. Guðmundur Andri
verður í banni þegar Valsmenn fá
Keflavík í heimsókn næsta mánu-
dag.
_ KA nýtti liðsmuninn og Nökkvi
Þeyr Þórisson jafnaði, 1:1, eftir
sendingu Andra Fannars Stef-
ánssonar. Hans sjötta mark í deild-
inni í ár.
_ Hallgrímur Jónasson kom inn
á sem varamaður hjá KA og lék
sinn fyrsta deildarleik síðan hann
slasaðist í júní 2020. Hallgrímur
missti í millitíðinni af 48 leikjum
KA í deildinni.
Loksins eftir sextán leiki
Ljósmynd/Þórir Tryggvason
Akureyri Ágúst Eðvald Hlynsson lagði upp mark Valsmanna gegn KA og á
hér í höggi við norðanmanninn Hallgrím Mar Steingrímsson.
- Leiknir skellti ÍA og galopnaði fallbaráttuna - Versta byrjun FH í 27 ár eftir
jafntefli við Stjörnuna - Hallgrímur með eftir að hafa misst af 48 leikjum KA
Morgunblaðið/Arnþór Birkisson
Breiðholt Aron Bjarki Jósepsson skallar frá marki ÍA og félagi hans Oliver
Stefánsson og Leiknismaðurinn Emil Berger fylgjast með.