Morgunblaðið - 05.07.2022, Page 28
28 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 5. JÚLÍ 2022
Einn höfunda
gamanþáttanna
Friends, eða
Vina, Marta
Kauffman, segir
í viðtali í dag-
blaðinu Los Ang-
eles Times að
hún ætli sér að
leggja fjórar
milljónir dollara
í nýja prófessorsstöðu helgaða afr-
ískri og afrísk-amerískri menn-
ingu, sökum þess hversu hvítir og
einsleitir þættirnir voru. Segist
Kauffman finna til sektarkenndar
vegna þeirrar einsleitni og verður
hin nýja prófessorsstaða við hennar
gamla skóla, Brandeis-listaháskól-
ann í Massachusetts. Kauffmann
segir hafa verið erfitt í fyrstu að
heyra gagnrýni á þættina yfir þess-
ari einsleitni en allar aðalpersónur í
þeim voru hvítar líkt og nær allar
sem komu við sögu í tíu þáttaröð-
um. Hún hafi þó fljótlega áttað sig á
réttmæti gagnrýninnar.
Sakbitin vegna
einsleitni Vina
Marta Kauffman
Bandaríski tón-
listarmaðurinn
Marshall Jeffer-
son hefur höfðað
mál á hendur
starfsbróður sín-
um Kanye West
fyrir notkun á
bút úr lagi hans
„Move Your
Body“ frá árinu
1986. Mun West hafa gert það 22
sinnum án leyfis í laginu „Flowers“
á plötunni Donda 2 sem kom út á
þessu ári. Fyrirtækið sem gefur út
tónlist Jefferson, Ultra Inter-
national Music Publishing, höfðar
málið fyrir Jefferson, skv. vef BBC.
Jefferson sagði í þættinum News-
beat á útvarpsstöð BBC, Radio 1, að
bútar úr lögum hans hefðu verið
notaðir ótal sinnum en að fara
þyrfti réttu leiðina, fá tilskilin leyfi
og greiða fyrir notkunina. Það
hefði West ekki gert. Jefferson fer
fram á að hagnaður af því að nota
lag hans verði metinn af dómstól og
hversu háar bætur hann eigi að fá.
Lögsóttur fyrir að
nota lag Jefferson
Kanye West
Skoski hörpuleikarinn Ruth Wall og
enski tónlistarmaðurinn og tón-
skáldið Graham Fitkin halda tón-
leika í Norræna húsinu í kvöld, 5.
júlí, kl. 20. Wall leikur á tvær hörp-
ur á tónleikunum, keltneska vír-
strengda hörpu með bjölluhljómi og
krókahörpu með girnistrengjum,
að því er fram kemur í tilkynningu
og verður þema tónleikanna er bú-
ferlaflutningar, eða migration á
ensku.
„Wall hefur lagt sig eftir því að
skilja mynstur sem myndast við
fólksflutninga eða þegar dýr flakka
milli svæða eða breytingar verða á
landslagi. Hún beinir sjónum sínum
að nútímanum en einnig því tímabili
í skoskri sögu sem nefnt hefur verið
The Highland Clearances (1750-
1850) þegar leiguliðar voru flæmdir
nauðugir burt af jörðum í hálönd-
um Skotlands,“ segir í tilkynningu.
Tónlistin sem Wall flytur er sögð
marglaga og síbreytileg að gerð og
mun hún leika ævagömul þjóðlög
frá skosku hálöndunum og Wales
og líka lög frá Íran. Þá mun hún
leika ný og nýleg verk eftir Philip
Glass, Steve Reich, Snorra Sigfús
Birgisson, Graham Fitkin og John
Cage og flétta þau saman við þjóð-
lögin. Wall hefur komið fram víða
um lönd og leikið með fjölda hljóm-
sveita.
Graham Fitkin hefur einnig kom-
ið víða við og m.a. unnið með Yo-Yo
Ma, Kathryn Stott, Sinfóníuhljóm-
sveitinni í Tokyo, BBC Symphony
Orchestra og New York City Ballet.
Hann hefur hlotið þrenn BASCA-
verðlaun fyrir tónsmíðar og tón-
skáldaverðlaun Royal Philharm-
onic Society. Nýlega bjó hann til
smáforrit sem tengt er uppdrætti af
borgum og er þannig úr garði gert
að tónverk hans bregst við í sam-
ræmi við staðsetningu þess sem
hlustar, eins og segir í tilkynningu.
Ruth og Graham munu einnig
flytja efnisskrá sína á Þjóðlaga-
hátíðinni á Siglufirði 7. júlí.
Fær Ruth Wall hefur hlotið mikið lof
fyrir hörpuleik sinn. Hún kemur
fram í Norræna húsinu í kvöld.
Búferlaflutningar í
Norræna húsinu
Jóna Gréta Hilmarsdóttir
jonagreta@mbl.is
„Hann er einn merkasti og áhrifa-
ríkasti leikstjóri og leikhúshugsuður
í Bretlandi á 20. öld,“ segir Þorgeir
Tryggvason, leiklistargagnrýnandi
hjá Morgunblað-
inu, um breska
leikstjórann Pet-
er Brook sem
lést á laugardag,
97 ára að aldri.
Brooks fæddist í
London 21. mars
1925 og sótti
nám í Magdalen
College í Ox-
ford. Að námi
loknu hóf hann
störf í Konunglega óperuhúsinu og
leikstýrði óperunni Salóme eftir
Richard Strauss með hönnun Salva-
dors Dalí. Síðar leikstýrði hann Tít-
us Andróníkus í Stratford fyrir Ro-
yal Shakespeare Company (RSC)
árið 1955 og þegar Peter Hall tók
við sem listrænn stjórnandi RSC ár-
ið 1960 hófst ríkulegt samstarf
Brooks við RSC. Ein frægasta sýn-
ing Brooks var RSC-útgáfa hans af
Draumi á Jónsmessunótt árið 1970
sem var undir áhrifum bæði frá Je-
rome Robbins-ballettinum og Pek-
ing Circus.
Tók sér stöðu rannsakanda
„Fyrri hluta ferilsins, á meðan
hann er ennþá starfandi í Bretlandi,
vekur hann mikla athygli fyrir bylt-
ingarkenndu Shakespeare-
sýningarnar sem hann setur upp.
Hann er aðeins tvítugur þegar hann
setur upp frekar lítið þekkt verk,
Ástarglettur, og einhvern veginn
endurskilgreinir hvernig á að horfa
á það verk með einfaldri túlkun. Það
sama í raun gerist árið 1970 þegar
hann leikstýrir Draumi á Jóns-
messunótt. Leikmyndin í þeirri sýn-
ingu var aðeins hvítur kassi, leik-
ararnir voru klæddir einföldum
búningum og leikmunirnir voru
bara einhverjir vírar. Þetta er allt
mjög abstrakt, eitthvað sem hafði
aldrei verið gert áður og var mjög
byltingarkennt. Hann setti einnig
upp Lé konung þar sem maður áttar
sig á því í fyrsta sinn að dæturnar,
sem eru alltaf kallaðar vondu dæt-
urnar, hafa eitthvað til síns máls,
þetta er dálítið erfiður karl með
þeim og að lesa dóma um sýninguna
er eins og engum hafi dottið þetta í
hug áður, eitthvað sem virðist vera
alveg augljóst í dag,“ segir Þorgeir.
Hvað getur kallast leikhús?
Árið 1970 flutti Brook til Parísar
þar sem hann stofnaði alþjóðlega
miðstöð sína fyrir leikhúsrannsóknir
en hún heimsótti einnig Afríku og
sýndi þar.
Að sögn Þorgeirs var Brook svo-
lítil stjarna sem leikstjóri en henti
því öllu frá sér til þess að rannsaka.
„Hann stofnar leikhóp, sem hann
fær stuðning fyrir frá frönsku ríkis-
stjórninni, og fer að rannsaka hver
séu lágmarksskilyrðin fyrir því að
eitthvað getið talist vera leikhús.
Hann fer m.a. í langa ferð um Afr-
íku með leikhópnum í leit að fólki
sem veit ekkert hvað leikhús er,
sem hefur aldrei séð leikhús og
kannar hvernig hægt sé að fá það til
að horfa á sig og fá eitthvað út úr
því.
Hann heldur í rauninni þessari
rannsókn áfram alla sína starfsævi
og skrifar bækur eða grundvallarrit.
Í fyrstu bók sinni, Tóma rýmið,
skoðar hann t.d. bæði þróunar-
möguleika leikhússins og gagnrýnir
það. Hann skoðar leikhúsið í kring-
um sig og finnst það merkt dauð-
anum, þrúgað undir einhverjum
hefðum og hafa misst neistann, bara
orðin einhver framleiðsla,“ segir
Þorgeir.
Yfirgefið hús lífgað við
Fjórum árum eftir að hann flytur
til Parísar, árið 1974, breytir hann
vanræktu tónlistarhúsi sem stóð
fyrir aftan Gare du Nord-lestar-
stöðina í ómissandi áfangastað fyrir
leikhúsunnendur, Bouffes du Nord.
Brooks leikstýrði einnig söngleikj-
um, t.d. US þar sem hann mótmælti
Víetnamstríðinu og níu tíma útgáfu
af Mahabharata. Auk þess leikstýrði
hann óperum og kvikmyndum,
þeirra á meðal kvikmyndaaðlög-
uninni af Höfuðpaurnum (1963) eftir
William Golding og óperum á borð
við Carmen og Töfraflautuna en að
sögn Þorgeirs var markmið Brooks
með öllum verkum sínum að fanga
þennan áhrifaríka einfaldleika.
Helstu fjölmiðlar og leikhúsfólk
hérlendis, þ. á m. Magnús Geir
Þórðarson þjóðleikhússtjóri, hafa
minnst Brooks. „Peter Brook sem
án vafa telst einn allra áhrifaríkasti
leikstjóri og leikhúshugsuður síð-
ustu aldar er látinn, 97 ára gamall.
Bók hans og pælingar í The Empty
Space höfðu gríðarleg áhrif á vest-
rænt leikhús. Ég fékk tvisvar tæki-
færi til að hitta hann, hlusta á hann
tala um leikhús og ræða við hann.
Hann var djúpvitur en líka einstak-
lega heillandi og gaf sér góðan tíma
til að ræða við ungan leikstjórnar-
nema – það var verðmætt og inspir-
erandi,“ skrifar Magnús Geir m.a.
um Brook á Facebook-síðu sinni.
Áhrifaríkur einfaldleiki
- Leikstjórinn Peter Brook er fallinn frá - Hann vakti mikla athygli fyrir
byltingarkenndar Shakespeare-uppfærslur og rannsóknir á leikhúsinu
AFP/Lionel Bonaventure
Leikhúsmaður Peter Brook árið 2018 í myndatöku fyrir leikhúsið Bouffes
du Nord í París. Brook lést á laugardag, 2. júlí, 97 ára að aldri.
Þorgeir
Tryggvason
–– Meira fyrir lesendur
NÁNARI UPPLÝSINGAR
um auglýsingapláss:
Berglind Bergmann
Sími: 569 1246
berglindb@mbl.is
Sérblað Morgunblaðsins kemur út 19. júlí
Allt sem þú þarft að
vita um rafbíla
Auglýsendur athugið
SÉRBLAÐ