Morgunblaðið - 05.07.2022, Qupperneq 29

Morgunblaðið - 05.07.2022, Qupperneq 29
Aðdáendur úthrópaðir sem „gengilbeinur ræningja“ Andkapítalíska hljómsveitin Hatari gaf út nýtt lag á föstudaginn var sem ber titilinn „Dansið eða deyið“. Segir í tilkynningu að áheyrendur séu í því úthrópaðir sem gengil- beinur ræningja en um leið hvattir til að snúa bökum saman og dansa dátt. Er þetta fyrsta útgáfa Hatara frá því heimsfaraldur hófst og tón- listarmyndband væntanlegt á næstu dögum. Hljómsveitin var stödd í Finnlandi þegar lagið kom út og lék fyrir dansi á stórhátíðinni Provinssi. Hófst með þeirri uppá- komu tónleikasumar Hatara en sveitin mun koma fram víða í Evr- ópu. Morgunblaðið/Eggert Hatari Hljóm- og gjörningasveitin í Eurovision-söngvakeppninni árið 2019. MENNING 29 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 5. JÚLÍ 2022 Nánari upplýsingar um sýningartíma á sambio.is TRYGGÐU ÞÉR MIÐA INNÁ 96% Empire The Playlist BBC The sun Total FilmRogerEbert.com 79% 82% HJÖRTUR JÓHANN JÓNSSON ALDÍS AMAH HAMILTON AHD TAMIMI GUÐJÓN DAVÍÐ KARLSSON LÍSA PÁLSDÓTTIR HARALD G. HARALDS KATRÍN HALLDÓRA SIGURÐARDÓTTIR “THE BEST MOVIE OF THE YEAR” “AN EPIC ADVENTURE” “A CROWD-PLEASEING BLAST” “THE MOVIE EVENT OF THE YEAR” “A MOVIE LIGHT YEARS AHEAD OF IT´S TIME” 100% J ohanna Mo, höfundur Nætursöngvarans, hafði lengi velt því fyrir sér hvað fengi manneskju til að fremja morð og hvaða áhrif morðið hefði á aðra. Bæði í kringum fórnar- lambið og þann seka. Hugsanirnar kviknuðu í kjölfar þess að kona sem ók leigubíl var myrt árið 1991 og þrír menn á þrí- tugsaldri voru handteknir fyrir morðið. Málið var á allra vörum í heimabæ hennar, Kalmar, því menn- irnir voru þaðan. Þeir höfðu verið fengnir til verksins af fyrrverandi eiginmanni þeirrar myrtu. Mo man þó best eftir þögninni, því sá sem var svo dæmdur fyrir aðild að morð- inu var kærasti systur hennar og einn þeirra sem var dæmdur fyrir morðið vann á sama kaffihúsi og hún. Nálægðin við gerendurna var mikil og í fjölskyldu Mo var ekki hægt að tala um málið. Nú hefur hún loksins þorað að nálgast þessa spurningu: hvaða áhrif hefur morð á fólkið í kringum fórnarlambið og þann seka? Það gerir hún með að að láta aðalsögu- persónuna í bókinni, lögreglukonuna Hönnu Duncker, eiga föður sem var dæmdur fyrir morð. Einnig snýr hún aftur þangað sem þetta allt byrjaði því sögusvið bókarinnar er Kalmar og Ölands-eyja. Nætursöngvarinn fjallar um svik og leyndarmál og uppgjör við fortíð- ina. Aðalsögupersónan er svolítið týnd, klaufaleg í samskiptum en þráir fátt meira en að finna hamingj- una og eiga góð samskipti við fólk. Hljómar eins og hin klassíska upp- skrift að sænskri glæpasögu, en það er eitthvað við söguna, við uppsetn- inguna, sem grípur lesandann strax. Þrátt fyrir að hugmyndin hljómi kunnuglega þá er útkoman einstök. Hönnu finnst hún verða að snúa aftur til heimabæjarins eftir að hafa búið um árabil í Stokkhólmi. Meðal annars til að komast að því hvað raunverulega gerðist í máli föður hennar, en nýr yfirmaðurinn hennar í lögreglunni er maðurinn sem kom honum á bak við lás og slá. Fljótlega er hins vegar ljóst að það eru ekki allir ánægðir með endurkomu Hönnu og útlit er fyrir að einhver vilji koma í veg fyrir að hún fari að grufla í fortíðinni. Nýju samstarfsfélagarnir taka henni flestir vel og Erik, nánasti samstarfsfélagi hennar, reynir hvað hann getur til að kynnast henni bet- ur. Hanna bregst ekki vel við því í fyrstu og finnst hann óþarflega hnýsinn. Þegar líður á mýkist af- staða hennar til hans og það liggur í loftinu að verið er að leggja grunn að samstarfi og vináttu sem mun halda áfram þróast í gegnum fleiri bækur. Á fyrsta vinnudegi Hönnu liggur fyrir að morð hefur verið framið. Fórnarlambið er Joel, 15 ára sonur gamallar vinkonu hennar, sem hún hefur þó ekki verið í sambandi við í mörg ár. Nokkrir liggja undir grun þótt ástæður morðsins virðist vera algjörlega á huldu. Stuttum köflum er skotið inn í söguna þar sem les- andinn fær að fylgjast með hugar- ástandi og gjörðum Joels síðasta daginn sem hann lifði og eykur það verulega á spennuna. Eiginlega það mikið að ég stóð mig nokkrum sinn- um að því við lesturinn að kíkja í kaflana löngu áður en ég kom að þeim. En þannig varpar fórnarlamb- ið hægt og rólega ljósi á það sem gerðist, samhliða uppgötvunum rannsóknarteymisins. Nætursöngvarinn er mögnuð glæpasaga sem er eiginlega ómögu- legt að leggja frá sér þegar lesturinn ef hafinn, enda vex spennan jafnt og þétt, allt frá fyrstu blaðsíðunni og þar til glæpurinn er leystur. Þá býr höfundur þannig um hnútana í lok sögunnar að lesandinn getur varla beðið eftir að lesa næstu bók um rannsóknarteymið Hönnu Duncker og Erik Lindgren, sem reyndar hef- ur þegar verið skrifuð. Sænsk glæpaflétta eins og hún gerist best. Hin fullkomna kilja til að grípa með í sumarfríið. Sænsk glæpaflétta eins og hún gerist best Ljósmynd/Sofia Eckerblad Spennandi Gagnrýnandi segir Nætursöngvarann eftir Johönnu Mo magn- aða glæpasögu sem ómögulegt sé leggja frá sér þegar lestur sé hafinn. Glæpareyfari Nætursöngvarinn bbbbm Eftir Johonnu Mo. Pétur Már Ólafsson þýddi. Bjartur 2022, 443 bls. SÓLRÚN LILJA RAGNARSDÓTTIR BÆKUR Málverk listamálarans Jamie Co- reth af Vilhjálmi Bretaprins og eig- inkonu hans Katrínu, hertogaynju af Cambridge, var afhjúpað í júní og hefur það hlotið heldur óblíðar viðtökur nokkurra listrýna í heima- landi þeirra. Einn hvetur fólk til að fara heldur í vaxmyndasafn Mad- ame Tussaud að skoða hjónin því þar séu þau öllu líflegri. Á vefnum Hyperallergic segir að málaranum hafi tekist að sýna hæfileika hjón- anna þegar kemur að því að standa tíguleg í rými og dagblaðið Tele- graph segir málverkið minna á tækifærisljósmynd tekna með snjallsíma. Betra að fara á vaxmyndasafn? Listamaður Jamie Coreth við hlið málverks síns af Vilhjálmi og Katrínu. AFP/Paul Edwards

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.