Morgunblaðið - 05.07.2022, Page 32

Morgunblaðið - 05.07.2022, Page 32
ELDRI BORGARAR: Aðventurferðir til Kaupmannahafnar 2022 Innifalið eru flug með Icelandair, skattar, gisting, m/morgunverði á Hotel Skt. Petri 5*, rútuferðir, kvöldverðir og annað samkvæmt dagskrá. Fagþegar fá vildarpunkta fyrir ferðina, einnig er hægt að greiða hluta ferðar með punktum Ý Ý Ý Ý Ý 1. ferð: 20.-23. nóvember 2. ferð: 27.-30. nóvember 3. ferð: 4.-7. desember Verð: 179.000 kr. á mann í tvíbýli. Aukagjald v/gistingar í einbýli er 34.900 kr. Niko ehf | Austurvegi 6 | 800 Selfoss | kt. 590110-1750 Nánari upplýsingar eru veittar hjá Ferðaskrifstofu eldri borgara í símum 783-9300 og 783-9301, einnig með tölvupósti í gegnum netfangið hotel@hotelbokanir.is og á www.ferdaskrifstofaeldriborgara.is Gist er á hinu glæsilega Hotel Skt. Petri 5* sem er staðsett í miðborg Kaupmannahafnar. Skemmtileg og fjölbreytt dagskrá Sunnudagur: Flogið með Icelandair snemma morguns og lent í Kaupmannahöfn á hádegi. Gisting á hinu glæsilega Hotel Skt. Petri í miðborg Kaupmannahafnar. Um kvöldið er snæddur ekta danskur matur á veitingastaðnum Karla sem er í göngufæri frá hótelinu. Mánudagur: Skoðunarferð um gamla bæinn með Ástu Stefáns- dóttur leiðsögumanni sem gengur um slóðir Fjölnismanna og fræðir farþega um sögu Kaupmannahafnar. Þriðjudagur: Heimsókn í Jónshús, þar sem staðarhaldarinn Halla Benediktsdóttir tekur á móti hópnum og fræðir um sögu hússins. Um kvöldið er snæddur „Julefrokost“ í Tivoli á veitingastaðnum Grøften. Eftir kvöldverðinn er hægt að skoða sig um í Tivoli sem hefur verið breytt í „Juleland“ á Aðventunni. Miðvikudagur: Sigling um síkin og Christianshavn meðan hljómsveit Michael Bøving og félaga leikur jazztónlist og vana- lega ríkir mikil stemning í þessum ferðum. Brottför frá hóteli á Kastrup flugvöll síðdegis og flug til Íslands um kvöldið. Fararstjóri: Sigurður K. Kolbeinsson Dagskrá Jazzhátíðar Reykjavíkur liggur nú fyrir en hún fer fram 13.-19. ágúst og boðið er upp á sjö daga dag- skrá með djassi, blús, fönki og spunatónlist. Tónlistarmenn frá Bandaríkjunum, Evr- ópu og Íslandi koma fram. Tónleikar fara flestir fram í Hörpu og hefur hátíðin verið haldin árlega í yfir 30 ár. Af erlendum gest- um hátíðarinnar í ár má nefna Katalóníumanninn Jorge Rossy, Bandaríkjamanninn Jonathan Kreisberg, Frakk- ann Nicolas Moreaux, Danann Jakob Bro og Finnann Kari Ikonen. Dagskrána í heild og frekari upplýsingar má finna á reykjavikjazz.is. Sjö daga hátíð Reykjavíkur með djassi, blús, fönki og spuna ÞRIÐJUDAGUR 5. JÚLÍ 186. DAGUR ÁRSINS 2022 Sími: 569 1100 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is Í lausasölu 776 kr. Áskrift 8.383 kr. Helgaráskrift 5.230 kr. PDF á mbl.is 7.430 kr. iPad-áskrift 7.430 kr. Víkingar eiga erfitt verkefni fyrir höndum í kvöld þegar þeir leika fyrri leik sinn gegn sænska meistaraliðinu Malmö í fyrstu umferð Meistaradeildarinnar í fótbolta og mæta þar sínum gamla þjálfara, Milosi Milojevic. Malmö er eitt sterkasta lið Norðurlanda í dag, hefur unnið sænska meistaratitillinn tvisvar í röð og lék í riðlakeppni Meistaradeildarinnar síðasta vetur. En sagan segir okkur samt að sænsk lið hafa alltaf átt í erfiðleikum með íslensk lið í Evrópukeppni. »27 Erfitt verkefni Víkinganna í Malmö ÍÞRÓTTIR MENNING Sigurður Bogi Sævarsson sbs@mbl.is Kjötsúpan er í pottinum og samlok- urnar eru smurðar á staðnum. Á matseðli, sem er í stöðugri þróun, eru nú tíu heitir réttir og kótelettum verður bætt við innan tíðar. Hleðslu- stöð fyrir rafmagnsbíla er hraðvirk og gestrisnin er rómuð og ráðandi. Þetta er kjarni mála í Baulu í Borg- arfirði, söluskálanum við hringveg- inn rétt fyrir ofan Borgarnes. Fríða Birna Þráinsdóttir og hennar fólk tóku við rekstri skálans fyrir Orkuna í byrjun júní sl. og hafa að undanförnu verið að þróa starfsem- ina eftir sínu höfði. Þar er á reynslu að byggja því sl. þrjú ár hefur Fríða haft rekstur Esjuskálans í Grundar- hverfi á Kjalarnesi með höndum. Vörumerkið virkar „Rekstur Esjuskálans/Baulu hef- ur gengið vel og við fengið jákvæða umsögn fólks. Orðið hefur borist,“ segir Fríða. Nokkuð er síðan stjórn- endur Orkunnar nefndu við Fríðu hvort hún vildi bæta við sig og taka við Baulu, en starfsemin þar hafði verið í tómarúmi um nokkurt skeið. Hún var treg, en ákvað svo að taka slaginn. Gerði þá meðal annars kröfu um að nafn Esjuskálans fylgdi sér í Borgarfjörð eins og gekk eftir. „Til er fólk sem fjasar um að Esj- an sé ekki í Borgarfirðinum og því sé nafnið ómögulegt hér. Baulan sé hið eina sanna Borgarfjarðarfjall. Þar vil ég þó segja að Esjuskálinn er bara vörumerki sem virkar óháð staðsetningu,“ segir Fríða sem hef- ur í tímans rás sinnt margs konar verslunar- og þjónustustörfum. Kann því ágætlega til verka og legg- ur sig fram um að kenna ungu fólki sem hún ræður til starfa góð vinnu- brögð. Alls vinna 16 manns í Esju- skálunum Baulu og á Kjalarnesi, m.a. ungmenni úr Borgarfirði. Um daginn og veginn „Röskleiki skiptir máli og að geta leyst fljótt og vel úr málum. Mikil- vægt er að brosa og bjóða góðan daginn þegar í hús kemur fólk sem vill gjarnan taka spjallið um daginn og veginn; staðhætti, veður, veiði og hverra manna þú sért. Útlending- arnir vilja fá upplýsingar um svæðið. Sveitafólkið kemur hingað gjarnan eftir vörum sem þarf í búreksturinn, t.d. olíum eða varahlutum sem stundum eru tiltækir, en ef ekki, þá strax næsta dag. Þá koma hingað í Esjuskála Baulunnar gjarnan sum- arbústaðaeigendur á svæðinu til að spjalla. Óformlegir fundir þeirra hér sem eru á laugardagsmorgnum eru fjölmennir og oft heilmikið líf. Svona á þetta líka að vera; söluskálar við þjóðveginn eiga alltaf öðrum þræði að vera félagsmiðstöðvar,“ segir Fríða. Bætir við að rekstri sem þess- um fylgir mikil viðvera og vinnudag- urinn sé jafnan langur. Hafa þurfi auga á öllum þáttum í rekstrinum, ekki síst því að skapa góðan anda og stemningu svo fólk vilji mæta á svæðið. „Starfinu fylgja samskipti við alls konar fólk sem er skemmtilegt,“ til- tekur Fríða sem segir alla fjölskyld- una í þessum rekstri, það er hún, eiginmaðurinn Guðmundur Árni Guðlaugsson og dæturnar Rósmarý Bergmann og Regína Bergmann, en sú fyrrnefnda sér nú um reksturinn á Kjalarnesinu. „Nei, það er ekkert mál að fara hér á milli Kjalarness og Baulu. Þetta eru 60 kílómetrar og á rafmagnsbíl er þetta auðvitað bara eins og draumurinn einn,“ segir vertinn í Esjuskálanum Baulu. Esjan nú í Borgarfirði - Kjalnesingar færa út kvíar - Söluskáli er félagsmiðstöð - Vörumerkið virkar - Búvörur, kjötsúpa og samlokurnar Morgunblaðið/Björn Jóhann Vert Mikilvægt er að brosa og bjóða góðan daginn þegar í hús kemur fólk sem vill gjarnan taka spjallið um daginn og veginn, segir Fríða um starfið. Morgunblaðið/Björn Jóhann Baula Esjuskálinn er ábót á nafn söluskálans góða þar sem margir stoppa.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.