Morgunblaðið - 15.07.2022, Blaðsíða 2
„Það er frábært að hafa náð þeim áfanga að opna eftir
miklar tafir sem tilkomnar voru bæði beint og óbeint
af ástandinu í heiminum,“ segja þau Anita Hafdís
Björnsdóttir og Jón Heiðar Rúnarsson um fluglínur
sem settar hafa verið upp í Glerárgili á Akureyri. Lín-
urnar krossa gilið og eru fimm talsins, þar á meðal er
lengsta lína af þessu tagi sem fyrirfinnst á Íslandi.
Zipline Akureyri er nýtt, íslenskt fyrirtæki sem
fimm vinir stofnuðu, þrír þeirra eru í Vík og reka þar
Zipline Iceland og True Adventure. Anita og Jón
Heiðar eru norðan heiða en hann er borinn og barn-
fæddur Akureyringur. Hann hefur lengi starfað við
ferðaþjónustu og hafði lengi dreymt um að gera eitt-
hvað skemmtilegt í bænum, spennandi afþreyingu
inni í bænum sjálfum.
„Við höfum upplifað mikinn meðbyr í samfélaginu á
Akureyri og það er greinilega mikil eftirvænting í
heimamönnum að fá nýja og spennandi afþreyingu í
bæinn. Nú þegar eru fjölmargir bæjarbúar búnir að
koma til okkar í ferð og við heyrum ekki annað en að
allir séu ánægðir með upplifunina. Það má vart á milli
sjá hvort fólk er ánægðara með [fluglínurnar] eða
náttúruna, en ferðin hefur opnað alveg nýja vídd í
þessa náttúruperlu sem Glerárgilið er,“ segja þau.
Bókanir hafa farið mjög vel af stað og er orðið tölu-
vert bókað í sumar. Að mestu Íslendingar og íbúar á
Akureyri og í nágrenni, enda segja þau að markaðs-
starfinu fram til þessa hafi einkum verið beint að land-
anum. Síðar verður sjónum beint að erlendum ferða-
mönnum. Lengsta fluglína landsins er á Akureyri, 260
metra löng, en alls eru línurnar 5 talsins og örstuttar
gönguferðir á milli á meðan sikksakkað er við Gler-
ána. Ferðin tekur um eina og hálfa klukkustund.
Meðbyr og
mikil eftir-
vænting
Zipline Akureyri hefur opnað fimm línu braut í Glerárgili
Morgunblaðið/Margrét Þóra
Kát Jón Rúnar Heiðarsson og Anita Hafdís Björns-
dóttir í Glerárgili í gær þegar allt var komið á fullt.
2 FRÉTTIR
Innlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 15. JÚLÍ 2022
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 569 1100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Andrés Magnússon andres@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is
Viðskipti Gísli Freyr Valdórsson vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Winkel Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf.
Logi Sigurðarson
logis@mbl.is
Ný stjórn Festar var kosin í gær.
Þrír nýir komu inn í stjórnina en
Guðjón Reynisson, stjórnarformaður
félagsins, og Margrét Guðmunds-
dóttir, fyrrverandi varaformaður
stjórnar, héldu sínum sætum í stjórn
en Margrét mun víkja sem varafor-
maður. Guðjón verður áfram stjórn-
arformaður en Sigurlína Ingv-
arsdóttir mun taka við sæti
varaformanns stjórnar.
Ný inn komu þau Magnús Júl-
íusson, aðstoðarmaður Áslaugar Örnu
Sigurbjörnsdóttur, háskóla-, iðnaðar-
og nýsköpunarráðherra, og stofnandi
Íslenskrar orkumiðlunar, Sigurlína
Ingvarsdóttir, fjárfestir og fyrrver-
andi stjórnandi í tölvuleikjafram-
leiðslu hjá EA Sports, og Hjörleifur
Pálsson, stjórnarformaður Sýnar.
Guðjón sagði í samtali við Morg-
unblaðið eftir fundinn að sér litist vel
á stjórnina og að hann væri virkilega
spenntur að byrja að vinna með
henni.
„Það sem skiptir mestu máli er að
það skapast friður um félagið og nú
getum við farið að snúa okkar að
vinnunni aftur,“ sagði Guðjón og
bætti við að þátttakan á fundinum
hefði verið ánægjuleg en fulltrúar
fyrir 92% af hlutahafahópnum sátu
fundinn. Inntur eftir því hvort vær-
ingar innan félagsins vegna upp-
sagnar forstjóra Festar hefðu skað-
að orðspor félagsins til frambúðar,
svaraði Guðjón því neitandi og að
það yrði lagað með góðri vinnu.
Guðjón vildi ekki tjá sig um stöðu
Eggerts Þórs Kristóferssonar, frá-
farandi forstjóra Festar, og hvort
stjórnin myndi skoða að ráða hann
að nýju. Aðspurð segir Sigurlína að
of snemmt sé að ræða um áherslu-
breytingar, nú sé nýja stjórnin að
stilla saman strengi sína og átta sig á
stöðunni.
Hvenær má búast við nýjum for-
stjóra?
„Það tekur alltaf talsverðan tíma
að ráða réttu manneskjuna í starfið
og við munum vanda vinnubrögðin
mjög vel við það en við vonumst til
þess að geta auglýst starfið innan
nokkurra vikna,“ sagði Guðjón.
Margrét fékk fleiri atkvæði
Margrét Guðmundsdóttir, fyrr-
verandi varaformaður stjórnar, fékk
afgerandi stuðning í stjórnarkosn-
ingunni og var þar efst með 18,2%
atkvæða. Guðjón hlaut 13,6% at-
kvæða. Aðspurður sagði hann það
ánægjulegt að sjá hvað Margrét fékk
mikinn stuðning í kosningunni en
ekki fékkst skýrt svar frá Guðjóni
um það hvers vegna hún tók ekki við
stjórnarformannssætinu. Magnús
Júlíusson hlaut 15,3% atkvæða.
Hann gaf það út fyrir kjörið að hann
myndi láta af störfum sem aðstoð-
armaður ráðherra hlyti hann kjör í
stjórn félagsins og því er útlit fyrir
að hann sé á leið úr ráðuneytinu.
Vill sjá frið umhverfis Festi
- Þrír nýir inn í stjórn Festar - Guðjón áfram stjórnarformaður - Sigurlína nýr varaformaður stjórnar
- Margrét fékk afgerandi stuðning - Formaðurinn vildi ekki tjá sig um stöðu fráfarandi forstjóra
Morgunblaðið/Arnþór Birkisson
Fundur Fjölmennt var á hluthafafundi Festar í gær og seinkaði fundinum
um tuttugu mínútur vegna aðsóknar en fulltrúar 92% hluthafa sátu fundinn.
Hjörleifur
Pálsson
Magnús
Júlísson
Sigurlína
Ingvarsdóttir
Guðjón
Reynisson
Runólfur Páls-
son, forstjóri
Landspítalans,
tekur undir með
Birni Zoëga, ný-
skipuðum stjórn-
arformanni
Landspítalans,
að eðlilegt sé að
endurskoða
skipurit spít-
alans. Hann
hlakkar til samstarfsins við hina
nýju stjórn og telur bjart vera
fram undan.
Spurður hvort skrítið sé að fá
fyrrverandi forstjóra spítalans
sem stjórnarformann segir Run-
ólfur svo ekki vera, þeir hafi átt í
ágætu samstarfi fram til þessa.
„Þeim mun frekar vil ég nýta
mér þá miklu reynslu og þekkingu
sem Björn hefur á rekstri stórra
sjúkrahúsa. Hann hefur auðvitað
náð framúrskarandi árangri í
starfi sínu á Karolinska háskóla-
sjúkrahúsinu. Ég vænti þess að
þetta verði árangursríkt sam-
starf.“
Björn sagði við Morgunblaðið í
gær að ástæða væri til þess að
einfalda stjórnskipulag Landspít-
alans. Telur hann of margt starfs-
fólk á spítalanum sem starfar við
annað en að þjónusta sjúklinga, en
það vakti athygli á sínum tíma
þegar Björn sagði upp nokkur
hundruð millistjórnendum hjá
Karolinska.
Runólfur telur eðlilegt að end-
urskoða skipurit spítalans af og
til. Það sé mikilvægt að stjórn-
skipulag sjúkrahúsa sé einfalt og
skilvirkt þannig að unnt sé að
taka skjótar ákvarðanir sem nýt-
ast notendum þjónustunnar. Hann
segist ekki geta sagt til um hversu
marga millistjórnendur væri hægt
að losna við, greina þurfi hvert
starf fyrir sig.
Runólfur
tekur undir
með Birni
- Hlakkar til kom-
andi samstarfs
Runólfur
Pálsson