Morgunblaðið - 15.07.2022, Blaðsíða 13

Morgunblaðið - 15.07.2022, Blaðsíða 13
FRÉTTIR 13Erlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 15. JÚLÍ 2022 HURÐIR Tunguháls 10, 110 Reykjavík, sími 567 3440, vagnar@vagnar.is, vagnar.is • Stuttur afhendingartími • Hágæða íslensk framleiðsla • Val um fjölda lita í RAL-litakerfinu • Vindstyrktar hurðir Bílskúrs- og iðnaðarhurðir Iðnaðarhurðir Iðnaðarhurðir með gönguhurð Bílskúrshurðir Hurðir í trékarma Tvískiptar hurðir Smíðað eftir máli Fyrsta flokks þjónusta og ráðgjöf Urður Egilsdóttir skrifar frá Lundúnum Önnur umferð í leiðtogakjöri Íhalds- flokks Bretlands fór fram í gær og eru nú fimm eftir í kjöri. Rishi Sunak, fyrrverandi fjármála- ráðherra, varð aftur efstur í atkvæða- greiðslunni með 101 atkvæði. Þar á eftir varð Penny Mordaunt aðstoðar- viðskiptamálaráðherra með 83 at- kvæði. Eftir að Graham Brady, formaður 1922-nefndarinnar, tilkynnti úrslitin sagðist Mordaunt vera ánægð að al- menningur skilji hennar framtíðarsýn fyrir Bretland. Skoðanakannanir sýna að Mordaunt hlýtur mest fylgi á meðal almennra félaga í Íhaldsflokkn- um en í síðustu umferð leiðtogakjörs- ins eru það þeir kjósendur sem velja á milli tveggja efstu frambjóðendanna. Mordaunt var dygg stuðningskona útgöngu Breta úr Evrópusamband- inu (Brexit) árið 2016. David Frost, fyrrverandi Brexit-ráðherra og lykil- maður í samningaviðræðum Breta, sagðist í gær hafa „alvarlegar áhyggj- ur“ ef hún yrði næsti forsætisráð- herra. Kappræður næstu daga Í þriðja sæti varð Liz Truss utan- ríkisráðherra með 64 atkvæði og þar á eftir varð Kemi Badenoch, fyrrver- andi jafnréttismálaráðherra, með 49 atkvæði. Badenoch sagði í tísti að úr- slitin sýndu að æ fleiri þingmenn Íhaldsflokksins styddu sýn hennar um „heiðarleg stjórnmál og íhalds- söm grunngildi“. Í fimmta sæti varð Tom Tugend- hat, formaður utanríkismálanefndar þingsins, með 32 atkvæði. Eftir að niðurstöðurnar voru kynntar sagðist hann ætla að halda ótrauður áfram í leiðtogakjörinu og myndi taka þátt í kappræðum þingmannanna í sjón- varpi sem fara fram í dag, á sunnudag og mánudag. Tugendhat sagðist standa fyrir „hreinni byrjun“ og að „þingmönnum þyrfti aftur að vera treyst“. Suella Braverman dóms- málaráðherra varð í síðasta sæti ann- arrar umferðarinnar með 27 atkvæði og er því dottin úr leik. Næsta atkvæðagreiðsla fer fram á mánudag og verða þá fjórir eftir í leiðtogakjörinu. Kallar eftir þingkosningum Keir Starmer, leiðtogi Verka- mannaflokksins, kallaði eftir nýjum þingkosningum á þinginu eftir að niðurstöðurnar voru kynntar. Hann sagði að Bretar þyrftu á „nýrri byrj- un“ að halda og að nýr leiðtogi Íhalds- manna myndi ekki svara því kalli. Íhaldsflokkurinn hefur ráðið ríkjum í tólf ár í landinu en Gordon Brown var síðasti forsætisráðherra Verka- mannaflokksins. „Þetta er eins og fé- lag sem er að sökkva niður í hyldýpið og reynir að skipta um stjóra í ör- væntingu. Það eru ekki breytingarn- ar sem við þurfum á að halda. Við þurfum að breyta ríkisstjórninni, ný byrjun fyrir Bretland, og það getur Verkamannaflokkurinn undir minni stjórn boðið upp á,“ sagði Starmer. AFP Leiðtogi Penny Mordaunt er hlut- skörpust í breskum veðbönkum. Sunak áfram efstur eftir aðra umferð - Suella Braverman úr leik - Næsta umferð á mánudag Leiðtogakjör breska Íhaldsflokksins Atkvæðafjöldi í fyrstu og annari umferð Liz Truss Utanríkisráðherra Fyrsta umf. 50 Önnur umf. 64 Kemi Badenoch Fyrrverandi jafnréttismálaráðherra, hætti 6. júlí Fyrsta umf. 40 Önnur umf. 49 Penny Mordaunt Fyrsti kvenkyns varnarmálaráðherra Bretlands, núverandi aðstoðar- viðskiptamálaráðherra Fyrsta umf. 67 Önnur umf. 83 Rishi Sunak Fyrrverandi fjármálaráðherra, hætti 5. júlí Fyrsta umf. 88 Önnur umf. 101 Suella Braverman Dómsmálaráðherra Fyrsta umf. 32 Önnur umf. 27 Tom Tugendhat Formaður utanríkismálanefndar þingsins Fyrsta umf. 37 Önnur umf. 32 Gotabaya Rajapaksa sagði formlega af sér sem forseti Srí Lanka í gær. Hann flúði Maldíveyjar eftir að fjöldamótmæli brutust út við komu hans til ríkisins og dvelur hann því nú í Singapúr ásamt eiginkonu sinni. Yfirvöld þar í landi sögðu að Raja- paksa væri einungis í heimsókn í Singapúr af „persónulegum ástæð- um“ og að hann hefði ekki sótt um hæli. Óvíst er hvert hann heldur næst en sérfræðingar í öryggismál- um telja að hann muni fara til Sam- einuðu arabísku furstadæmanna. Forsetahjónin hafa verið á flótta frá því á miðvikudag er þau yfirgáfu Srí Lanka ásamt lífvörðum. Miklar óeirðir eru í ríkinu vegna ástandsins í efnhagslífinu. Rajapaksa er ásak- aður um að hafa gert ríkið gjaldþrota en erlendar skuldir Srí Lanka hljóða upp á 51 milljarð dollara. Eldsneyti er af skornum skammti í landinu og þá er sömuleiðis skortur á innflutt- um matvælum og lyfjum. Fjórir af hverjum fimm Srí Lanka-mönnum sleppa nú máltíðum til þess að kom- ast af. Naut friðhelgi gegn handtöku Rajapaksa lýsti yfir neyðarástandi vegna mótmæla 1. apríl. Rúmum þremur mánuðum síðar brutust mót- mælendur inn á heimili hans og flúði hann land þremur dögum síðar. Sem forseti naut Rajapaksa friðhelgi gegn handtöku en talið er að hann hafi óttast að vera handtekinn af nýrri stjórn ef hann hefði ekki yfir- gefið ríkið. Hann sendi tölvupóst til forseta þingsins þar sem hann til- kynnti afsögn sína. Er hann fyrsti forseti Srí Lanka til þess að gera það síðan fyrsti forseti ríkisins tók við völdum árið 1978. Mótmælendur í Colombo, höfuð- borg Srí Lanka, fögnuðu ákaft er fréttir bárust af afsögn Rajapaksa. Talskona mótmælenda sagði að mótmælendur myndu yfirgefa for- setahöllina, skrifstofu forsetans og forsætisráðuneytið friðsamlega. „Við munum þó halda áfram að berj- ast,“ sagði talskonan. Ranil Wickremesinghe var áður forsætisráðherra en er nú starfandi forseti. Hann verður ekki formlega forseti fyrr en hann sver eið. Eftir það hefur Wickremesinghe 30 daga til að öðlast stuðning þingsins. Ef það tekst ekki kjósa þingmenn um nýjan forseta. Mótmælendur hafa einnig kallað eftir afsögn hans. Forseti Srí Lanka tilkynnir afsögn - Forsetahjónin flúin til Singapúr - Rajapaksa er fyrsti forsetinn til að segja af sér - Mótmælendur fögnuðu ákaft í höfuðborginni - Wickremesinghe tekur við formlega er hann hefur svarið eið AFP Srí Lanka Bræðurnir Mahinda Rajapaksa, fyrrverandi forsætisráðherra, og Gotabaya Rajapaksa, fyrrverandi forseti, eru ekki vinsælir í heimalandinu. Sergio Mattarella, forseti Ítalíu, neit- aði að samþykkja afsögn forsætisráð- herrans Mario Draghi í gær. Matt- arella bauð forsætisráðherranum að koma fram fyrir þingið með yfirlýs- ingu. Búist er við að það verði um miðja næstu viku og kemur þá í ljós hvort ríkisstjórnin hafi nægan stuðn- ing til þess að starfa áfram. Draghi tilkynnti afsögn sína eftir að þingmenn Fimm stjörnu hreyfing- arinnar (M5S) sátu hjá í atkvæða- greiðslu um vantrauststillögu á hend- ur ríkisstjórninni í efri deild ítalska þingsins. Ófullnægjandi efnahagsaðstoð Ástandið er tilkomið vegna þess að Giuseppe Conte, leiðtogi M5S, neitaði að styðja drög Draghi um 23 milljarða evra efnhagsaðstoð til bágstaddra fjölskyldna og fyrirtækja. Sagði Conte að Draghi gerði ekki nóg til að stemma stigu við hækkandi verðlagi í landinu. Þrátt fyrir að vantrauststillagan væri ekki samþykkt sagði Draghi að ríkisstjórnin gæti ekki starfað án stuðnings M5S. Hann sagði í yfirlýs- ingu að nauðsynlegur grundvöllur samsteypustjórnarinnar væri „ekki lengur til staðar“. Þá sagði hann einn- ig að „sá sáttmáli um traust sem rík- isstjórnin væri byggð á væri horfinn“. Draghi var bankastjóri Evrópska seðlabankans á árunum 2011 til 2019 áður en Mattarella skipaði hann í embætti forsætisráðherra í febrúar árið 2021. Var honum falið að mynda þjóðstjórn með stuðningi þingmanna úr flestum flokkum sem eiga sæti á þingi. Helstu verkefni Draghi voru að rétta við efnahagslíf landsins eftir erfið ár vegna heimsfaraldursins. Til stóð að Ítalir gengju til þingkosninga á næsta ári. Svo kann að fara, í ljósi pólitískrar óvissu, að boðað verði til kosninga síðar á þessu ári. Draghi reyndi að segja af sér - Forseti Ítalíu hafnaði afsögninni AFP Forsætisráðherra Mario Draghi til- kynnti forsetanum afsögn sína.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.