Morgunblaðið - 15.07.2022, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 15.07.2022, Blaðsíða 18
18 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 15. JÚLÍ 2022 ✝ Sigrún Guð- björg Ásgeirs- dóttir fæddist á Ísafirði 5. maí 1951. Hún lést á krabbameinsdeild Landspítalans við Hringbraut 3. júlí 2022. Foreldrar Sig- rúnar voru Ásgeir Elías Sigurður Ólason, f. 26.4. 1925, d. 22.1. 2002, og Torf- hildur Guðlaug Jóhannes- dóttir, f. 12.11. 1926, d. 20.1. 2004. Systur Sigrúnar eru Guðrún Halldóra, f. 2.7. 1945, d. 31.5. eru: 1) Hjálmar Vagn Haf- steinsson, f. 25.4. 1971, d. 9.7. 2005. 2) Sonja Drífa Hafsteins- dóttir, f. 30.4. 1973, gift Hall- dóri Þorvaldssyni, f. 25.8. 1971. Börn þeirra eru: Hafrún Ýr, gift Atla Einarssyni og eiga þau eitt barn. Stefanía Malen, í sambúð með Ólafi Guðmundssyni og á hann þrjú börn og Aron Ingi. 3) Ásgerð- ur Hafdís Hafsteinsdóttir, f. 26.4. 1978, í sambúð með Úlf- ari Erni Jónssyni, f. 21.2. 1980. Börn þeirra eru: Andrea Sól Garðarsdóttir í sambúð með Sólrúnu Mjöll Kjartansdóttur, Antonía Ísey og Ernir Ísarr. 4) Díana Signý Hafsteinsdóttir, f. 16.2. 1984. Dóttir hennar er Viktoría Lilja Mavropulo. Útför Sigrúnar fer fram frá Ytri-Njarðvíkurkirkju í dag, 15. júlí 2022, og hefst athöfnin kl. 12:00. Jarðsett verður í Innri-Njarðvíkurkirkjugarði. 2011, og Guð- munda Kristín, f. 4.12. 1947. Upp- eldisbróðir Sigrún- ar er Ásgeir Jóns- son, f. 26.3. 1963. Sigrún lætur eftir sig eigin- mann og þrjár dætur. Eiginmaður Sig- rúnar er Hafsteinn Oddsson, fæddur á Siglufirði 7.8. 1947. Foreldrar Hafsteins voru Oddur Vagn Hjálmarsson, f. 1911, d. 1979, og Gunnfríður Friðriksdóttir, f. 1920, d. 1996. Börn Sigrúnar og Hafsteins Elsku yndislega Sigrún mín. Ég mun aldrei gleyma þér, elsku ástin mín! Vertu nú yfir og allt um kring með eilífri blessun þinni, sitji Guðs englar saman í hring sænginni yfir minni. (Sigurður Jónsson) Þinn að eilífu, Hafsteinn. Elsku besta mamma mín, kletturinn minn, besta vinkona mín. Hvernig get ég kvatt þig þegar ég get ekki hugsað mér lífið án þín? Heimilið ykkar hef- ur verið svo tómlegt án þín en ég reyni að halda öllu eins og þú best vildir hafa það og við pabbi höfum það kósý saman. Þú kenndir mér mikið og þú kenndir mér vel en það er svo óraunverulegt að hugsa til þess að ég muni aldrei aftur geta hringt í þig og spurt þig um hitt og þetta sem bara mömmur geta svarað. Ég er svo þakklát fyrir að hafa tekið þá skyndiákvörðun í jólafríinu síðustu jól að húrra mér aftur til Noregs og pakka niður dótinu okkar Viktoríu í flýti og flytja aftur heim til Ís- lands. Tíminn sem við Viktoría höfum átt með þér á þessu ári er svo dýrmætur, þó að veik- indin þín og svo mín hafi tekið sinn toll þá vorum við alla vega saman og studdum hvor aðra með jákvæðni og bjartsýni að leiðarljósi. Og best af öllu er að við kvöddumst alltaf með orð- unum: „Ég elska þig.“ Ég trúi því að allt hafi sinn tilgang, og það er eins og síð- astliðið hálfa ár hafi verið fyr- irframákveðið og undirbúningur fyrir það sem við fjölskyldan stöndum frammi fyrir í dag, að þú sért ekki lengur hér til að halda utan um okkur og þjappa okkur saman. Það verður erfitt að komast yfir þá tilhugsun að það verði aldrei önnur útilega með þér, ekkert ferðalag, engin fjöl- skyldumatarboð þar sem þú eldar marga lítra af kjötsúpu eða saltkjöt og baunir. En í hvert sinn sem ég fer í ferðalag eða útilegu, elda kjötsúpu eða saltkjöt og baunir, þá munt þú vera mér efst í huga. Elsku besta mamma mín, mikið sem ég sakna þín! En nú er komið að kveðjustund og ég veit að Hjálmar og Tinna hafa tekið vel á móti þér og að þið munið taka vel á móti mér þeg- ar minn tími kemur. Guð geymi þig og gefi þér góða drauma. Þín Díana. Elsku besta mamma mín. Elsku besta yndislega mamma mín. Hvernig skrifar maður minn- ingu um móður sína, stoð sína og styttu og sinn aðalstuðnings- mann? Aldrei í veröldinni átti ég von á að missa þig strax. Þó að ég hafi notið þeirrar gæfu að ganga með þér lífsveginn í öll þessi ár og læra svo margt þá hélt ég að ég hefði tíma til að fá þig til að kenna mér að gera heimsins bestu kjötsúpu, bauna- súpu og baka þær allra bestu kleinur sem finnast á Íslandi. En dauðinn spyr hvorki kóng né prest hvort við séum honum viðbúin og hann tók þig frá mér og okkur öllum sem elskuðum þig, nánast án viðvörunar. Veikindin komu snögglega en í gegnum þau öll fórstu án þess að kvarta og vildir helst aldrei vera byrði á neinum. Þú tókst þeim með þeirri stóísku ró sem einkenndi þig ávallt þegar eitt- hvað alvarlegt bjátaði á og ætl- aðir aldrei að leyfa þeim að buga þig. Í sorg minni er það mér huggun harmi gegn að þú þurftir þó ekki að liggja langa og erfiða veikindalegu því það var sannarlega ekki eitthvað sem þú vildir ganga í gegnum. Nú færðu hvíldina við hlið Hjálmars bróður sem þú sakn- aðir svo sárt. Minningarnar streyma fram þegar maður stendur frammi fyrir þeirri staðreynd að fleiri verða þær ekki en þær eru ótal- margar dásamlegar sem ég á með þér elsku mamma. Þegar þú tókst fram gítarinn og söngst fyrir okkur lagið „Á kaupmanninn rétt við búðar- borðið svo brosfögur horfði Stína“ eða settir Tammy Wy- nett á fóninn og dansaðir í stof- unni. Þegar spennan magnaðist í húsinu á haustin þegar heyrð- ist: Já ég tek 20 slátur í ár og hver og einn fjölskyldumeðlim- ur var virkjaður í sláturhrær- ingar og keppasaum. Þegar vín- arbrauðsbakstur hófst vissum við að sumarið var komið og fram undan var þriggja mánaða útilegutímabil þar sem fjöl- skyldunni var pakkað niður á fimmtudögum og brunað úr bænum strax eftir vinnu á föstudögum. Hreingerningar- æðið sem rann á þig um miðjan nóvember ár hvert og smáköku- ilmurinn í húsinu þegar þú fyllt- ir hvern dunkinn á fætur öðr- um, minnst 15 sortir fyrir hver jól. Hláturinn og gleðin í kring- um þig á góðum stundum og hlýr móðurfaðmurinn þegar líf- ið var mér erfitt og ég þurfti mest á honum að halda. Ég sá þig síðast daginn áður en þú lést og síðustu orðin sem þú sagðir við okkur pabba voru: Ég elska ykkur. Þessi orð verða greypt í hjarta mitt um ókomna tíð. Þessi orð voru ætluð öllu þínu fólki sem þú elskaðir svo mikið og skilyrðislaust og munu sakna þín sárar en hægt er að koma í orð. Takk fyrir allt elsku mamma. Takk fyrir allt elsku amma sem varst börnunum mínum svo dásamleg. Takk fyrir minning- arnar, hláturinn og grátinn. Takk fyrir ástina og hlýjuna. Ég mun elska þig að eilífu. Þín dóttir, Ásgerður. Þegar ég talaði við mömmu í myndsímtali síðdegis 2. júlí átti ég ekki von á því að það væri í síðasta skipti sem ég fengi að tala við hana og segja henni að ég elskaði hana. Engin orð geta lýst sorg minni og söknuði. Fyrstu minningarnar eru af mömmu að syngja og spila á blómamálaðan gítarinn sinn, sem var mikill dýrgripur í mín- um augum öll mín uppvaxtarár, það voru dýrmætar stundir. Mamma var afskaplega dug- leg kona og einstaklega mynd- arleg húsmóðir, og bjó okkur fjölskyldunni fallegt heimili sem var alltaf opið og allir velkomn- ir. Oft og tíðum var ansi gest- kvæmt á heimilinu og var hún sérstaklega lunkinn við að koma öllum fyrir í gistingu það virtist alltaf vera pláss fyrir fleiri. Mamma unni sér best með nóg af fólkinu sínu í kringum sig og galdraði fram veislur eins oft og færi gafst til að fá sem flesta saman, það má segja að það hafi verið hennar aðal- áhugamál ásamt því að ferðast. Ferðalög og útilegur voru stór hluti af uppvexti okkar og þeyttumst við um landið þvert og endilangt allar helgar á sumrin og eltum góða veðrið eins og mamma sagði alltaf. Þá var pakkað í bílinn á fimmtu- dagskvöldi útilegubúnaðnum og öllu því bakkelsi, smurðu brauði og mat sem mamma hafði útbú- ið í vikunni og brunað úr bæn- um eftir vinnu á föstudegi. Seinna var pakkað í hjólhýsið og farið í nokkrar vikur í einu. Hún hefði líklega verið á ferð og flugi árið um kring ef ekki hefði stoppað hana mikil bíl- hræðsla í vetrarfærð. Mikil sorg dundi yfir árið 2005 þegar elsta barn þeirra og einkasonur lést, mamma bar harm sinn í hljóði, en sorgin var mikil og í tilraun til að milda hana ákváðum við systur að gefa þeim hvolp, þessi litli hvolpur sem fékk nafnið Tinna átti eftir að verða mikil sálu- hjálp og gleðigjafi í þeirra lífi og átti hug þeirra allan þar til hún drapst úr hárri elli bless- unin. Mamma var aldrei langt und- an þegar á þurfti að halda og ávallt boðin og búin til að að- stoða við hvað sem var. Gott dæmi um það er þegar við hjón- in réðumst í húsbyggingu, þá var mamma allt í öllu, galdraði hún fram dýrindisveislur á einni rafmagnshellu á milli þess sem hún málaði allt húsið að innan. Útsjónarsemi og nægjusemi einkenndu hana og fann hún ráð við öllu. Ófá símtölin átti ég við mömmu þar sem ég fékk ráð hjá henni fyrir hin ýmsu verkefni sem ég strandaði með. Fyrir nokkrum árum flutti ég tímabundið með mína fjölskyldu til Noregs og voru mamma og pabbi dugleg að koma þangað í heimsókn til okkar, það voru margar yndislegar minningar sem lagðar voru inn í minning- arbankann. Ferðast og skoðað og notið góða veðursins, en eitt af því sem mamma fékk aldrei nóg af, það var sólin. Elsku mamma takk fyrir allt sem þú kenndir mér, gerðir fyr- ir mig, með mér og sérstaklega allt sem þú varst mér. Guð geymi þig elsku mamma mín. Þín Sonja. Amma mín. Fallegust og best. Ég sakna þín svo mikið og elska þig að eilífu enn meira. Þú átt risastóran stað í hjart- anu mínu og hefur átt hann eins lengi og ég man eftir mér. Takk fyrir að kenna mér að búa til kokteilsósu. Takk fyrir að laga rennilásinn á fötunum mínum milljón sinnum. Takk fyrir þola ruglið í mér, bæði þegar ég var barn og fullorðin. Takk fyrir að trúa á mig og hrósa mér fyrir minnstu hluti. Takk fyrir að passa mig, hugga mig, skamma mig, kenna mér, knúsa mig og elska mig. Það er erfitt að hugsa til þess að þú munir aldrei aftur baka sörur, bara fyrir frekjuna mig, þó þér finnist það hundleiðin- legt. Eða aldrei aftur gera heimsins besta græna salatið, sem ég fékk loksins samþykki þitt fyrir að hafa í fermingunni minni þó það væri ekki ferming- armatur. Eða aldrei aftur þvo fötin mín og skila þeim með ömmulykt, eftir að vera búin að bletta í allan matinn sem ég missti á mig. Það er erfitt að hugsa til þess að allt sem þú gerðir fyrir mig og alla sem þú elskaðir verður aldrei aftur. En ég er svo þakklát fyrir öll árin sem ég fékk með þér og minningin þín lifir svo skært. Þakklát fyrir tímann sem við áttum saman síðustu mánuði þar sem ég fékk að hugsa um þig og passa upp á þig. Þó að samviskubitið yfir að gera aldrei nóg sé mjög sterkt, þá veit ég að þetta var nóg fyrir þig því þú ert venjulega mann- eskjan sem hugsar um alla hina. En það gerði svo mikið fyrir mig að þú treystir mér til að vera til staðar fyrir þig. Besta mín. Þegar ég hugsa til baka um hvaða minning lýsir þér best, þá ert það þú í útilegu að hlæja, dilla þér og gretta þig. Ham- ingjusöm og glöð að vera með fólkinu þínu að ferðast. Þannig man ég þig að eilífu. Ég elska þig. Þitt barnabarn, Andrea Sól Garðarsdóttir. Á sunnudagsmorgni, sem leit út fyrir að verða eins og hver annar sunnudagur, lágum við systkinin, hvert í sínu bæjar- félagi, og veltum okkur upp úr amstri hversdagsins. Okkur var snögglega kippt út úr þessum hversdagslegu hugsunum þegar fregnir af andláti ömmu okkar, Sigrúnar Ásgeirsdóttur, bárust okkur til eyrna. Ósjálfrátt lagði hugurinn til hliðar hugsanir um skipulag og verkefni vikunnar sem fram undan var og leitaði þess í stað aftur í tímann í minningabankann. Á þessari stundu streymdu margvíslegar minningar um hugann. Minn- ingar um yndislega ömmu sem okkur þótti svo vænt um og söknum ólýsanlega mikið. Amma var stór manneskja, þótt hún væri ekki sérlega há- vaxin, eða eiginlega bara alls ekki hávaxin. Hún hafði hins vegar stórar skoðanir, stóran persónuleika, stórt skap, en fyrst og fremst stórt hjarta. Amma var líka einstaklega óheppin þegar kom að orðavali, eins og daginn sem hún hafði sparkað harkalega í þröskuld- inn á baðherbergishurðinni, og tilkynnti að hún hefði „rekið sig upp undir þröskuldinn“. Amma vildi alltaf fylgjast vel með því sem börnin og barna- börnin voru að gera, sýndi því áhuga og sagði sína skoðun á því, hvort sem hún var okkur sammála eða ósammála. Eftir að hún lærði á samfélagsmið- ilinn Snapchat fylgdist hún enn meira með því sem við vorum gera, og leið vart sá dagur sem amma sendi okkur ekki ein- hverja fallega kveðju eða skila- boð. Amma var mikil félagsvera, án þess þó að vilja vera mið- punktur athyglinnar. Hún hleypti ekki hverjum sem er að sér, en hélt í staðinn sínum nán- ustum þeim mun þéttar að sér. Ef eitthvað stóð til, hvort sem það voru veisluhöld eða framkvæmdir á fasteignum, þá var amma einhvernveginn alltaf mætt fyrst á staðinn, boðin og búin að aðstoða við þau verkefni sem til féllu hverju sinni. Hún setti fólkið sitt í fyrsta sæti, og vildi ekki láta aðra breyta sín- um plönum fyrir sig. Amma var konan sem sam- gladdist og fagnaði sigrum ein- læglega með okkur og hélt utan um okkur þegar eitthvað bját- aði á, meðan hún bar sinn harm í hljóði. Hún tókst á við lífið með viljann og æðruleysið að vopni og leysti þannig öll þau verkefni sem fyrir hana voru lögð. Elsku amma, takk fyrir allt og allt. Þín barnabörn, Hafrún, Stefanía og Aron. Elsku amma. Ég sakna þín svo ótrúlega mikið. Takk fyrir allt, þú varst best. Þín Viktoría Lilja. Sigrún G. Ásgeirsdóttir ✝ Margrét Arn- heiður Jak- obsdóttir fæddist 8.janúar 1952, hún lést á Heilbrigðis- stofnun Vestur- lands 2. júlí 2022. Foreldrar Mar- grétar voru Jakob Magnússon, f. 18. apríl 1925, d. 9. ágúst 2005, og Svava Auð- unsdóttir, f. 27. október 1925, d. 15. október 2020, bændur í Samtúni í Reykholtsdal. Margrét var önnur í röð fjögurra systkina. Eldri er Magnús Jakobsson, bóndi í Samtúni, og tvær yngri systur; Sveinsína Erla Jakobsdóttir og Guðrún Jak- obsdóttir sem nú er látin. Margrét giftist eftirlifandi eigin- manni, Sigurði Guðna Sigurðssyni, og eignuðust þau þrjú börn: 1. Jakob Svavar Sigurðsson, í sam- búð með Helgu Unu Björnsdóttur. 2. Ólafur Guðni Sigurðsson, í sambúð með Herdísi Lilju Björnsdóttur. 3. Sigríður Helga Sigurðardóttir, í sambúð með Sigurði Ara Ómarssyni. Margrét verður jarðsungin frá Akraneskirkju í dag, 15. júlí 2022, klukkan 13. Margrét frænka mín er látin eftir löng og erfið veikindi. Hún lést á sjúkrahúsinu á Akranesi 2. júlí sl. Þegar Magga var fimm ára réð ég mig í sveit til foreldra hennar, Jakobs og Svövu, í Samtúni í Reykholtsdal. Gulli bróðir minn hafði þá verið hjá þeim í sveit sem vinnumaður í nokkur ár og leið afskaplega vel. Mér, borgarbarninu, þótti þetta spennandi, ekki síst þar sem í Samtúni voru margir góðir hestar og Jakob afar viljugur að lána okkur hestana eftir að vinnudegi lauk. Það kom fljótt í ljós að Magga var ákveðin og rögg- söm stúlka sem vissi hvað hún vildi. Mér var stundum falið að passa Möggu og Sveinu systur hennar, sem var ári yngri, en ég minnist þess ekki sérstak- lega að þær hafi þurft mikla pössun. Báðar voru mjög þægilegar og höfðu ávallt nóg fyrir stafni. Börnin í Samtúni voru alin upp við vinnusemi og kunnu vel á umhverfið. Öll föðurfjölskyldan bjó á sömu jörðinni, Snældubeinsstöðum, en foreldrar Jakobs voru Magnús Jakobsson, bóndi og kennari, og kona hans Sveins- ína Arnheiður Sigurðardóttir, Jónssonar, útvegsbónda frá Akranesi. Þetta var öruggt og gott umhverfi. Svava var úr Reykjavík en móðir hennar, Margrét Eyleif Bjarnadóttir, var heimilishjálp hjá ömmu minni Guðrúnu Eyleifsdóttur frá Árbæ. Hún var þar heim- ilisföst í mörg ár ásamt Svövu dóttur sinni. Faðir Svövu var Auðunn Magnússon. Við systkinin vorum mörg ár tengd Samtúni og sóttum í að koma þangað þótt við vær- um þar ekki lengur í vinnu. Alltaf var jafn gott og gaman að koma í Samtún. Þegar ég var farin að búa vildi svo til að Magga var hjá okkur Jóni í tvo vetur þegar hún fór í framhaldsskóla í Reykjavík. Hún stundaði námið af samviskusemi og ábyrgð eins og allt annað sem hún gerði. Mikið fannst okkur hjónum gott að hafa Möggu. Það var sama hvað hún var beðin um að gera, allt var gert með góðu og eins vel af hendi leyst og hugsast gat. Magga var einstakt snyrtimenni og vandvirk, sama hvort hún að- stoðaði við húsverkin eða gætti sona okkar, allt var í öruggum höndum. Hún var svo samviskusöm og ábyrg að leitun var að öðru eins. Seinni veturinn sem hún bjó hjá okkur fór hún að vera með ungum pilti frá Akranesi. Ég var í fyrstu hálfáhyggjufull þar sem mér fannst ég bera ábyrgð á henni svona ungri, en um leið og ungi maðurinn sagði deili á sér vissum við að hún var í öruggum höndum. Jón minn var ættaður af Akranesi og í ljós kom að hann þekkti vel til fjölskyldu þessa unga manns, Sigurðar Guðna. Magga hefur því verið í þeim öruggu og tryggu höndum frá því hún kynntist Sigga 17 ára gömul. Á Akra- nesi leið þeim vel í fallega húsinu sínu og þar ólu þau upp börnin sín þrjú. Siggi hef- ur ekki vikið frá henni í löngu og ströngu veikindastríði hennar. Ég votta Sigga og fjölskyld- unni allri innilega samúð. Hvíl í friði, elsku Magga mín. Guðrún Erla Björgvinsdóttir (Ninný). Margrét A. Jakobsdóttir

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.