Morgunblaðið - 15.07.2022, Síða 4

Morgunblaðið - 15.07.2022, Síða 4
Morgunblaðið/Eggert Stuð Þétt var setið á aðdáendasvæðinu í Manchester í gær og fylltist það heilum fjórum tímum áður en leikur Íslands og Ítalíu hófst. Um leið og aðdáendasvæðið í Picca- dilly-garði í miðbæ Manchester var opnað í gærmorgun tóku Íslend- ingar að fjölmenna þangað og varð svæðið fullt fjórum tímum fyrir landsleik Íslands og Ítalíu. Löng bið- röð myndaðist fyrir utan veggi aðdáendasvæðisins auk þess sem margir tóku það til bragðs að fara inn á fjölskyldusvæðið við hliðina. Hvort svæði fyrir sig rúmar fimm hundruð manns. Frá byrjun var ljóst að það stefndi í frábæra stemningu. Sólin gerði vart við sig og ungir sem aldnir þáðu andlitsmálningu. Svæðið var alblátt, þar sjá mátti landsliðsbúning Íslands í ýmsum út- gáfum og nokkrar vel útfærðar heimagerðar útgáfur. Plötusnúðurinn Dóra Júlía spilaði hressandi tóna og heimamenn buðu upp á skemmtiatriði; barnakór söng og kenndi hópnum lög og leik- rit um sögu kvennafótbolta var sýnt. Allir í góðu skapi Allt ætlaði um koll að keyra þeg- ar tónlistarmennirnir JóiPé og Króli stigu á svið og mátti sjá glæsilega danstakta ungra aðdá- enda. Taktföst upphitun Tólfunnar var á sínum stað þar sem allir tóku þátt. Hvort sem það voru fjöl- skyldur leikmanna eða hópar fót- boltaáhugafólks, fór enginn af aðdáendasvæðinu í slæmu skapi. Guðni Th. Jóhannesson, forseti Ís- lands, og Lilja Dögg Alfreðsdóttir, viðskipta- og menningarmála- ráðherra, létu sig ekki vanta á svæðið ásamt börnum sínum. Ísland Sólin baðaði Íslendingana á aðdáendasvæðinu í Manchester í gær og ungir sem aldnir þáðu andlitsmálningu. Í sínum allra besta gír Það má með sanni segja að enginn hafi farið af aðdáendasvæðinu í slæmu skapi. Alla leið Fólk á öllum aldri hvatti liðið áfram. Fullt fjórum tímum fyrir leik - Íslendingar fjölmenntu á svæðið 4 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 15. JÚLÍ 2022 EM KVENNA 2022 Veronika Steinunn Magnúsdóttir veronika@mbl.is Íslendingar fylltu EM-torgið á leik kvennalandsliðs Íslands í knattspyrnu gegn liði Ítalíu í gær. Mikil fagnaðarlæti brutust út þeg- ar Karólína Lea skoraði fyrsta og eina mark Íslendinga og munaði litlu að annað markið yrði skorað á síðustu mínútunum. Þrátt fyrir að niðurstaðan hafi verið jafntefli var stuðningsfólk í sínu besta skapi í blíðskaparveðri á EM-torginu í gær. Þeirra á með- al var Axel Fannar, sem sat á fremsta bekk ásamt fjölskyldu sinni á EM-torginu. „Þetta gekk ekki nógu vel. En kannski var þetta sanngjarnt í lokin, ég veit það ekki. Við hefðum átt að nýta þessi færi betur,“ sagði hann. Aðr- ir áhorfendur sögðust ánægðir með liðið, sem átti miklu betra skilið en jafntefli. Þó þyrfti að horfa fram á veginn af bjartsýni enda mótinu hvergi nærri lokið. Margir áhorfendur báðust und- an viðtali við Morgunblaðið, þar sem þeir þyrftu að ná sér niður eftir leikinn. Ísland mætir næst Frakklandi á mánudaginn klukkan sex. Morgunblaðið//Hákon Tilfinningar Blendnar tilfinningar streymdu um áhorfendur þegar síga fór á seinni hluta leiksins. Morgunblaðið/Árni Sæberg Beðið Áhuginn á fótbolta var mismikill meðal áhorfenda. Sumir sneru sér að skjánum en aðrir sneru sér að ljósmyndara Morgunblaðsins. Morgunblaðið/Árni Sæberg Stemning Margir mættu í sínu fínasta bláa pússi á leikinn, til þess að sýna íslenska kvennalandsliðinu stuðning, sem þó klæddist hvítu gegn Ítalíu. Fylltu EM-torgið í gær

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.