Sjómannablaðið Víkingur

Árgangur

Sjómannablaðið Víkingur - 01.03.2015, Blaðsíða 49

Sjómannablaðið Víkingur - 01.03.2015, Blaðsíða 49
Sjómannablaðið Víkingur – 49 Og hver er ávinningurinn, vill Víking- ur fá að vita. „Þetta er miklu brasminna, já einfaldar störfin, og fækkar þar af leiðandi körlum um borð og gerir hlut hvers og eins betri.“ Það væsir heldur ekki um skipverja; einkaherbergi með sturtu og salerni, stór matsalur og setustofa, fullkominn tækja- salur og gufubað. Og kokkurinn er með eldhús sem jafnast á við eldhúsið fræga sem Orkuveita Reykjavíkur bjó að (og gerir kannski enn) – nema hvað Vík- ingurinn gleymdi að spyrja eftir brauð- bökunar-vélinni. Í fljótræði (kann betur við það orð en fávisku) missir Víkingur út úr sér eitthvað um keðjur en Guðlaugur skipstjóri er fljótur að leiða hann frá villu síns vegar. „Keðjur eru löngu horfnar af spilum. Nú eru það togvír og togtaugar frá Hamp- iðjunni sem við notum. Já, ég hef notað togtaugarnar – Dynex taugar – síðastliðin átta ár og vil ekki sjá annað. Þær eru svo miklu meðfærilegri en togvírinn, sterkari og endingarbetri.“ Að lokum má geta þess að þeir Grandamenn ætla ekki að láta hér staðar numið eða eins og þeir orða það sjálfir: „Bygging Venusar markar upphaf stærsta nýsmíðaverkefnis íslensks sjávarútvegsfyr- irtækis í sögu lýðveldisins en fram til ársins 2017 verður allur skipafloti félags- ins endurnýjaður.“ Í brúnni. Ljósmynd: Kristján Maack O p t i m a r - I c e l a n d | S t a n g a r h y l 6 | 1 1 0 R e y k j a v í k | S í m i 5 8 7 1 3 0 0 | F a x 5 8 7 1 3 0 1 | o p t i m a r @ o p t i m a r . i s | w w w . o p t i m a r . i s Mjög mikilvægt er að kæla aann hratt fyrstu klukkustundirnar eftir veiði, það lengir geymsluþol verulega. Notkun ísþykknis frá Optimar Ísland er góð aðferð til að ná fram hámarks kælihraða því otmikið og fínkristallað ísþykknið umlykur allt hráefnið og orkuyrfærslan er því gríðarlega hröð. Þessi hraða orkuyrfærsla hamlar bakteríu- og örveruvexti og hámarks gæði aans eru tryggð. Hröð niðurkæling er það sem Optim-Ice® ísþykknið snýst um. Tryggir gæðin alla leið! 16 14 12 10 8 6 4 2 0 -2 0 1 2 3 4 5 6 Tími (klst) H ita st ig (° C ) Hefðbundinn ís Ísþykkni NIÐURKÆLING Á ÝSU Heimild: Seash Scotland Hvaleyrarbraut 27 220 Hafnarfirði Sími: 564 3338

x

Sjómannablaðið Víkingur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.