Fréttablaðið - 01.09.2022, Side 1
1 9 7 . T Ö L U B L A Ð 2 2 . Á R G A N G U R f rettab lad id . i s F I M M T U D A G U R 1 . S E P T E M B E R 2 0 2 2
Samtímasaga
um samfélagið
Flott á floti
í fimm ár
Menning ➤ 32 Lífið ➤ 34
Mikill kostnaður og röskun
á starfi lögreglu þegar vinnu-
vikan var stytt. Sérstakt átak
þarf til að brúa bilið.
bth@frettabladid.is
SAMFÉLAG Stytting vinnuvikunnar
kallar á að ráðnir verði allt að 75
nýir lögreglumenn. „Við erum að
tala um 50 til 75 ný störf. Niður-
staðan veltur dálítið á breytingum á
vaktakerfum,“ segir Gunnar Hörður
Garðarsson, samskiptastjóri hjá rík-
islögreglustjóra.
Sigríður Björk Guðjónsdóttir ríkis-
lögreglustjóri staðfestir að styttingin
kalli á mikla endurskipulagningu.
„Breytingin eykur þörf á f leiri
menntuðum lögreglumönnum.
Það á að vera okkar aðalkeppikefli
að fjölga menntuðum lögreglu-
mönnum sem mest. Við höfum náð
að bregðast við í bili en það þarf
augljóslega að bæta enn frekar í,“
segir hún.
Ein af leiðing styttingar er að
f leiri ófaglærðir standa nú vaktir
en áður, ekki síst um helgar. Sam-
kvæmt upplýsingum frá embætti
ríkislögreglustjóra er hlutfall ófag-
lærðra meira vandamál úti á landi
en á höfuðborgarsvæðinu.
Á sama tíma hafa verkefni lög-
reglu sumpart orðið alvarlegri.
Dæmi eru um skotárásarmál undan-
farið þar sem hluti lögreglumanna í
útkalli hefur verið ófaglærður.
Lögreglumenn sem Fréttablaðið
hefur rætt við segja ekkert benda
til að menntunarskortur hafi haft
mikil neikvæð áhrif í alvarlegum
málum. Ef auka eigi þjálfun við skot-
vopn og til að mæta nýjum tímum
segi sig þó sjálft að brýnni þörf sé en
nokkru sinni á að mennta og þjálfa
fleiri lögreglumenn.
Lögregla hefur komið áhyggjum
sínum um manneklu á framfæri við
dómsmálaráðherra. Lögreglunem-
um var fjölgað úr 40 í 80 í haust. Það
dugar ekki til, að sögn ríkislögreglu-
stjóra, og er vænst áframhaldandi
fjölgunar nýnema til að brúa bilið. n
Fjölga þarf í lögreglunni
um sjötíu vegna styttingar
Ríkisráð kom saman í gær en ríkisráðsfundir eru alla jafna haldnir á hálfs árs fresti. Þetta er fyrsti fundurinn við hið sígilda ríkisráðsborð eftir að heimsfaraldurinn skall á. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK
Sigríður Björk
Guðjónsdóttir,
ríkislögreglu-
stjóri
FJÖLMIÐLAR Sífellt meiri hraði fær-
ist í þróun á fjölmiðlamarkaði og
kallar það eftir viðbrögðum þeirra
fyrirtækja sem halda vilja í lesendur
sína og áhorfendur.
Minnkandi lestur dagblaða og
minnkandi áhorf á línulega dag-
skrá virðist sýna æ minni fjöl-
miðlaneyslu en þó er almenningur
í sífelldri tengingu við fréttir f lesta
tíma sólarhringsins.
Stefán Eiríksson útvarpsstjóri
segir stefnumörkun RÚV taka mark
á breytingu fjölmiðlaumhverfis.
SJÁ SÍÐU 10
Þróun fjölmiðla
kalli á breytingar
NEYTENDUR Sælgæti í Fríhöfninni er
í mörgum tilvikum mun dýrara en í
lágvöruverðsverslunum höfuðborg-
arsvæðisins. Virðist sem almenn-
ingur og ferðamenn sem fara um
Leifsstöð fái ekki að njóta að vörur
séu seldar án virðisaukaskatts.
Breki Karlsson, formaður Neyt-
endasamtakanna, segir álagningu
hins opinbera gífurlega og algerlega
út úr korti fyrir verslun sem ekki
þarf að standa skil á virðisauka-
skatti. SJÁ SÍÐU 6
Dýrara að versla
sælgæti í Fríhöfn
en annars staðar
Stefán Eiríksson,
útvarpsstjóri
Breki Karls-
son, formaður
Neytendasam-
takanna
... hjá okkur í
d
a
gH
já
b
ónda í gær ...
markaður
Bænda
um helgina!
á Heilsu- & lífsstílsdögum Nettó
Sigraðu heilsuna
1.-11. sept.
Ofurtilboð
og app-
tilboð alla dagana