Fréttablaðið - 01.09.2022, Side 12
Þörfin er þarna og
Össur er í sterkri stöðu
til að mæta þessari
þörf.
Sveinn Sölvason,
forstjóri Össurar
Forstjóri Össurar segir kaupin
á bandaríska stoðtækjafyrir-
tækinu Naked Prosthetics
hluta af sókn Össurar inn á
nýja markaði. Þrátt fyrir ytri
áskoranir í umhverfi fyrir-
tækisins að undanförnu sé
bæði mikilvægt og tímabært
að sækja fram.
ggunnars@frettabladid.is
Heilbrigðistæknifyrirtækið Össur
gekk í vikunni frá kaupum á fyrir-
tækinu Naked Prosthetics. Banda-
ríski stoðtækjaframleiðandinn sér-
hæfir sig í tækni fyrir einstaklinga
sem misst hafa framan af fingri eða
hluta af hendi. Kaupin vöktu athygli
þar sem Össur hefur að undanförnu
glímt við áskoranir í kjölfar heims-
faraldurs og stríðs í Úkraínu.
Sveinn Sölvason, forstjóri Össur-
ar, segir að þrátt fyrir áskoranir síð-
ustu ára sé þetta góður tímapunktur
til að sækja fram og breikka vöru-
framboð fyrirtækisins. Það sé það
sem vaki fyrir stjórnendum fyrir-
tækisins með kaupunum.
„Við erum að komast út úr tíma-
bili þar sem Covid hefur haft mikil
áhrif á alla starfsemi fyrirtækja og
aðfangakeðjur. Það hefur skapað
heilmikla undirliggjandi eftirspurn.
Þótt við siglum ekki alveg lygnan
sjó hvað það varðar þá er þetta að
mörgu leyti góð tímasetning.“
Enda segir Sveinn það í anda Öss-
urar að sækja stöðugt fram.
„Ef við horfum á sögu Össurar þá
hefur hún verið blanda af innri vexti
og kaupum á fyrirtækjum sem passa
inn í okkar stefnu. Þarna erum við
að kaupa gott fyrirtæki sem býr til
mekaníska fingur og það breikkar
enn frekar okkar vöruframboð.“
Sveinn segir Össur markvisst
vera að sækja í sig veðrið á nýjum
mörkuðum og þetta sé liður í þeirri
vinnu.
„Það eru ekki nema nokkur ár
síðan Össur fór úr því að framleiða
eingöngu stoðtæki fyrir þá sem hafa
misst fætur og yfir í að þróa og fram-
leiða lausnir fyrir þá sem hafa misst
hendur. Með þessum kaupum erum
við að styrkja enn frekar vörufram-
boðið fyrir þennan nýja notenda-
hóp.“
En Sveinn segir Össur ekki bara
horfa til þess að breikka vörufram-
boðið heldur horfi fyrirtækið líka
til þess að sækja af meiri krafti inn
á markaði í löndum þar sem þörfin
fyrir stoðtæki er hvað mest.
„Í grunninn erum við að vinna á
markaði þar sem þörfin er skýr. Ef
við horfum á hinn vestræna heim,
þar sem heilbrigðiskerfin eru sterk,
þá vitum við að þar er mikill vilji
og geta til að borga fyrir þjónustu
og tæki. Enda kemur langstærsti
hluti okkar tekna þaðan. En ef
við horfum svo til landa sem búa
ekki eins vel þá vitum við að okkar
bíður risastórt verkefni á næstu
árum. Sem er að tryggja f leira fólki
aðgengi að stoðtækjum. Þar eru
bæði áskoranir og tækifæri fram-
tíðarinnar.“
Sveinn segir að þar skorti nær
öll bjargráð fyrir einstaklinga sem
þurfa á stoðtækjum að halda og
Össur vilji taka þátt í því risastóra
verkefni.
„Þörfin er þarna og Össur er í
sterkri stöðu til að mæta þessari
þörf,“ segir Sveinn Sölvason. n
Rétti tíminn fyrir Össur til að sækja fram
Sveinn Sölva-
son, forstjóri
Össurar, segir
sögu fyrirtækis-
ins einkennast
af innri vexti og
kaupum á fyrir-
tækjum sem
passa inn í skýra
stefnu.
FRÉTTABLAÐIÐ/
AÐSEND
magdalena@frettabladid.is
Fasteignasalar hafa fundið fyrir
því að fasteignamarkaðurinn sé að
hægja á sér eftir að hafa verið ansi
fjörugur undanfarin misseri. Þetta
segir Monika Hjálmtýsdóttir, vara-
formaður Félags fasteignasala, en
hún var gestur í Markaðnum sem
sýndur var á sjónvarpsstöðinni
Hringbraut í gærkvöldi.
„Við finnum að markaðurinn er
að hægja á sér enda er hann búinn
að vera ansi fjörugur í dágóðan
tíma en eins og við lítum á þetta
þá er markaðurinn meira að færast
í eðlilegt horf. Það er svona okkar
tilfinning,“ segir Monika og bætir
við að það helsta sem bendi til þess
sé að sölutími eigna sé að lengjast.
„Við finnum vel að sölutími eigna
er að lengjast og ég hugsa að þetta
framboð sem núna er sé skyndilegt.
Það er ekki að koma til nú vegna
mikillar fjölgunar íbúða í sölu.
Þetta er bara vegna þess að sölu-
tíminn er að lengjast sem þýðir að
það eru fleiri eignir í sölu á hverjum
tíma.“
Monika segir að hún telji ósenni-
legt að fasteignaverð muni koma til
með að lækka á komandi misserum.
„Mér finnst það ekki líklegt. Mér
finnst í rauninni engar forsendur
benda til þess miðað við núverandi
aðstæður. Við erum enn í miklum
skorti á fasteignum, það hefur ekk-
ert breyst. Við erum ekki að sjá
mikið af nýjum íbúðum koma inn.
Þannig að ég sé ekki að það sé í stöð-
unni að það sé að fara að lækka.“
Monika segir að ef horft sé yfir
lengra tímabil sé framboð af fast-
eignum ekki nógu mikið. „Við erum
að upplifa miklar sveiflur og ástæð-
an fyrir því að þetta er að hægjast
núna hefur voða lítið með framboð
og eftirspurn að gera. Það hefur að
gera með ytri áhrif og ytri inngrip
sem eru að valda þessari stöðu.“
Monika segir að þó svo einhverj-
ar íbúðir séu að koma inn sé það
ljóst að framboðið sé alls ekki nóg
og líkur séu á að það verði ekki nóg
næstu þrjú til fjögur árin.
„Það hefur ekkert breyst og við
sjáum bara að fyrir örfáum mán-
uðum var mikill skortur og mikil
eftirspurn. Þá lá ljóst fyrir að það
er mikill skortur á framboði og það
hefur ekkert breyst. Við þurfum
talsvert meira framboð, eða um
4.000 til 5.000 íbúðir á ári.“
Monika bætir við að fasteigna-
salar vilji alls ekki hafa markaðinn
eins og hann hefur verið á undan-
förnum misserum en miklar hækk-
anir hafa einkennt hann.
„Ég vona of boðslega mikið að
markaðurinn nái jafnvægi. En ég veit
að til að svo verði þá er ekki hægt
að bregðast við þessum sveif lum
endalaust og í sífellu vera að örva
þetta og kæla með ytri aðgerðum,“
segir Monika og bætir við að fast-
eignasalar vilji sjá alvöruaðgerðir
af hálfu stjórnvalda. „Við viljum sjá
alvöru aðgerðir í þessum málum hjá
stjórnvöldum til að koma þessum
markaði, sem skiptir alla máli, í
öruggt kerfi sem við getum treyst
að sé gott.“ Monika segir þar að auki
að fasteignasalar vilji umfram allt
sjá markaðinn komast í eðlilegan
farveg.
„Við fasteignasalar viljum alls
ekki hafa markaðinn svona. Við
viljum bara að þetta sé eins og á að
vera og í eðlilegum farvegi þar sem
framboð og eftirspurn ráða. Það er,
nógu mikið af eignum að selja og að
fasteignaverð sé í takt við verðlag.“ n
Fasteignasalar finna að markaðurinn er að hægja á sér
Monika Hjálmtýsdóttir, varaformaður Félags fasteignasala.
12 Fréttir 1. september 2022 FIMMTUDAGURFRÉTTABLAÐIÐMARKAÐURINN FRÉTTABLAÐIÐ 1. september 2022 FIMMTUDAGUR