Mosfellingur - 01.04.2021, Blaðsíða 7
Þverholt 2 I Mosfellsbær 270 I Sími 525 6700 I mos.is
Umsóknarfrestur er til og með 14. apríl 2021
Sækja skal um starfið á ráðningarvef Mosfellsbæjar, www.mos.is/storf. Umsóknir skulu innihalda starfsferilsskrá og kynningarbréf sem
greinir frá reynslu, menntun og fyrri störfum ásamt rökstuðningi fyrir hæfni í starfið. Nánari upplýsingar veitir Linda Udengård framkvæmda-
stjóri fræðslu- og frístundasviðs í síma 525-6700 eða á linda@mos.is. Um framtíðarstöðu er að ræða. Öllum umsóknum verður svarað.
Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og viðkomandi stéttarfélags. Ráðið er í öll störf óháð kyni.
Mosfellsbær er öflugt og eftirsótt sveitarfélag þar sem gildin virðing, jákvæðni, framsækni
og umhyggja eru leiðarljós starfsmanna í daglegu starfi.
Mosfellsbær er í fararbroddi í nýbreytni í skólastarfi. Á næsta
skólaári verður Varmárskóli fyrir 1.-6. bekk með um 400
nemendur. Skólinn starfar í anda uppbyggingarstefnunnar og
leggur áherslu á útinám.
Skólastjóri Varmárskóla ber ábyrgð á starfsemi skólans,
rekstri og mannauðsmálum. Hann gegnir lykilhlutverki í að
móta góðan skólabrag og samstarfsvettvang skóla og íbúa.
Skólastjóri ber ábyrgð á að skólinn starfi í samræmi við lög,
reglugerðir, aðalnámskrá grunnskóla og stefnumörkun
Mosfellsbæjar.
Mosfellsbær leitar eftir metnaðarfullum einstaklingi sem
hefur víðtæka þekkingu á skólastarfi, býr yfir áræðni og
leiðtogafærni.
Menntunar- og hæfniskröfur:
• Leyfisbréf kennara og kennslureynsla skilyrði
• Viðbótarmenntun í stjórnun og/eða á sviði uppeldis-
og menntunarfræða er skilyrði
• Þekking á stjórnsýslu, fjármálastjórnun og
stefnumótunarvinnu
• Reynsla á sviði stjórnunar í mennta- og
menningarstofnunum
• Þekking á sviði upplýsingatækni
• Frumkvæði, sjálfstæði og góðir skipulagshæfileikar
• Framúrskarandi lipurð og færni í samskiptum
• Góð íslenskukunnátta og færni til að tjá sig í ræðu og riti
• Almenn tungumálakunnátta
SkóLAStjóRi
VARMÁRSkóLA
Nýr skóli á gömlum grunni