Mosfellingur - 01.04.2021, Blaðsíða 26
- Íþróttir26
N a m o e h f. - S m i ð j u v e g i 7 4 ( g u l g ata ) - 2 0 0 K ó pavo g i Sími: 566 7310 - jakosport@jakosport.is - jakosport.is
AftureldingAr
vörurnAr
fást hjá okkur sport íslandi
Mosfellingarnir Ingi Már Gunnarsson og
Gunnar Ólafur Kristleifsson hafa unnið
ötult sjálfboðaliðastarf fyrir Aftureldingu
síðastliðin 40 ár.
Þeir félagar hafa gengt ýmsum störfum
fyrir félagið en þeirra aðalstarf hefur þó
verið að sinna ritara- og tímavörslu fyrir
handboltadeildina.
„Íþróttahúsið var tekið í notkun 4.
desember 1977, ég held að fyrsta klukkan
hafi komið í húsið 1978 en það var Búnað-
arbankinn í Mosfellsbæ sem gaf Aftureld-
ingu klukkuna, en síðan er nú komin nýr
og fullkomnari búnaður í húsið. Við höfum
meira og minna sinnt þessu starfi síðan. Við
tókum báðir dómarapróf hjá HSÍ í kringum
1980 og dæmdum mikið fyrir félagið og ég
dæmdi líka í efstu deild á Íslandi,“ segir
Ingi Már.
Æfðu báðir með Aftureldingu
„Við vorum náttúrlega báðir að æfa hérna
bæði handbolta og fótbolta og spiluðum
fyrir félagið, svo þróast þetta út í það að við
tökum að okkur dómgæslu og svo ritara- og
tímavarðastörf.
En síðan árið 2000 þá má eiginlega
segja að við höfum verið á ritaraborðinu
fyrir stákana og svo núna síðust árin líka
í kvennaboltanum,“ segir Gunnar. En þeir
félagar segja að þetta gefi þeim mikið, að
þeir hafi kynnst mörgu skemmtilegu fólki í
kringum þetta starf en fyrst og fremst finnst
þeim þetta rosalega gaman.
Boðið á heimsmeistaramótið í Katar
Síðastliðin 15 ár hafa þeir Ingi Már og
Gunnar starfað á ritaraboðinu fyrir HSÍ á
landsleikjum og öllum stórum leikjum sem
HSÍ sér um. „Það hefur líka verið sjálfboða-
liðastarf en árið 2015 þá var okkur boðið á
vegum HSÍ á HM til Katar. Það var í raun
þannig að allar þátttökuþjóðirnar fengu
að bjóða 20 manns á mótið og hvert sér-
samband hafði frjálst val um það hverjum
þeir buðu. HSÍ tók þá ákvörðun að bjóða
sjálfboðaliðum sem höfðu unnið fyrir sam-
bandið og nokkrum styrktaraðilum.
Þetta var ógleymanleg ferð en þarna
vorum við á fimm stjörnu hóteli með öllu
inniföldu, vorum keyrðir fram og til baka á
alla leiki og dekrað við okkur á allan hátt,“
segir Ingi Már.
Höfum gaman af þessu ennþá
„Það má eiginlega segja að þetta hafi
verið bestu launin eða viðurkenningin sem
við höfum fengið fyrir okkar sjálfboðaliða-
starf, þetta var algjörlega ógleymanlegt
ævintýri.
Maður hefur verið tengdur handbolta
og Aftureldingu meira og minna alla ævi
og það hefur verið gaman að fylgjast með
og upplifa allar þessar breytingar sem
hafa verið hér á Varmársvæðinu á þessum
tíma.
Við höfum nú stundum grínast með það
hvort að það sé ekki kominn tími til að
hleypa að yngri og ferskari mönnum, en á
meðan við höfum gaman af þessu þá höld-
um við áfram,“ segir Gunnar að lokum.
Ingi Már og Gunni eiga stóran þátt í glæsilegri umgjörð
Sjálfboðaliðar
á ritaraborðinu
síðastliðin 40 ár
ingi már gunnarsson og
gunnar ólafur kristleifsson
hamagangur að varmá
Birkir Ben með
nýjan samning
Birkir Benediktsson hefur skrifað undir
nýjan samning við handknattleiksdeild
Aftureldingar til næstu tveggja ára. Birkir
hefur verið í hópi öflugustu handknatt-
leiksmanna Olís-deildarinnar síðustu ár
og burðarás í liði Aftureldingar í fjölda ára.
„Birkir hefur gengið í gegnum erfið
meiðsli uppá síðkastið sem hann mun
sigrast á. Afturelding mun standa þétt
við bakið á Birki í þeirri vegferð sem
framundan er og hlökkum við mikið til
að sjá hann stíga á völlinn aftur þegar sá
tími kemur,“ segir Haukur Sörli formaður
meistaraflokksráðs karla.
Allt íþróttastarf fell
ur niður á næstunni
Vegna hertra sóttvarnaraðgerða sem
tóku gildi þann 25. mars fellur allt
íþróttastarf á vegum Aftureldingar
niður næstu vikurnar. Staðan verður
uppfærð á heimasíðu Aftureldingar
þegar nýjar fréttir berast. birkir benediktsson