Mosfellingur - 01.04.2021, Blaðsíða 22

Mosfellingur - 01.04.2021, Blaðsíða 22
 - Bókasafnsfréttir og Matarhorn22 Mikið var um dýrðir við opnun sýningarinnar Stingur í stúf eftir Harald Sigmundsson í Listasal Mosfellsbæjar 19. mars sl. Á opnuninni voru tveir gjörning- ar. Annars vegar mætti jólasveinn- inn Stúfur á svæðið og stakk sig á verkunum auk þess að sprella við sýningargesti og gefa þeim kartöflu í skóinn. Hins vegar var listamaðurinn sjálfur með gjörning þar sem hann leyfði sýningargestum að fylgjast með sér klára síðasta verkið. Sá gjörningur mun standa yfir allt sýn- ingartímabilið og enda í fullkláruðu verki. Verk Haraldar einkennast af mik- illi frásagnargleði, björtum litum og blandaðri tækni. Sjón er sögu ríkari! Síðasti sýningardagur er 16. apríl. Listasalur Mosfellsbæjar Listasalur Mosfellsbæjar stingur í stúf Tími til að njóta með fjölskyldu og vinum í samkomutakmörkunum • Mikilvægt að velja rétt vín PáskaveisLa af bestu gerð Páskarnir eru að bresta á og þá skiptir máli að njóta samveru og matar til hins ítrasta. Fjórða bylgjan gengur nú yfir og fólk er hvatt til að halda sig í sinni páskakúlu. Hér fáum við uppskriftir að páskalambi og kálkúnasamloku sem er tilvalið að slafra í sig yfir páskana í góðu yfirlæti. Matarhorn Mosfellings Kalkúnasamloka Hægeldað lambalæri í smjöri með hvítlauk, kryddjurtum og kryddjurta-bearnaise sósu Hráefni: • 1 lambalæri, helst án lykilbeins • 500 g smjör • 6 tímíangreinar • 6 rósmaríngreinar • 5 hvítlauksgeirar, gróft saxaðir • 1½ tsk. nýmalaður pipar • 1 stór poki með rennilás (zip lock) • 2 tsk. salt Aðferð: Setjið allt nema salt í pokann og lokið vel fyrir. Leggið pokann í steikingarpott og hellið volgu vatni yfir þannig að fljóti yfir lærið. Setjið lokið á og bakið í 67°C heitum ofni í 18 klst. Sigtið þá vökvann úr pokanum í pott. Hitið ofninn í 190°C. Setjið lærið í ofnskúffu og saltið. Bakið lærið í 10-15 mín. eða þar til það er fallega brúnað. Berið fram með kryddjurta-béarnaise- sósunni og t.d. bökuðu grænmeti og kartöflum. Kryddjurta-bearnaisesósa: • 5 eggjarauður • smjörið úr pokanum • 1-2 msk. Bearnaise-essens • salt • nýmalaður pipar Aðferð: Hitið smjörið í 60°C. Setjið eggja- rauður í stálskál og þeytið yfir volgu vatnsbaði í 4-6 mín. eða þar til rauðurn- ar eru orðnar ljósar og loftmiklar. Hellið þá smjörinu í mjórri bunu í skálina og þeytið vel í á með- an. Bragðbætið með Bearnaise-essens, salti og pipar. Hráefni: • 400 g afgangar af kalkúnakjöti, skornir í sneiðar • 200 g afgangar af kartöflum, grænmeti og fyllingu • 2 tómatar, skornir í sneiðar • 1/2 poki blandað salat • 4 langlokubrauð eða annað gott brauð Klettakálspestó • 1 poki klettakál • 3-5 hvítlauksgeirar • 2 msk. furuhnetur • 2 msk. parmesanostur, rifinn • 1 msk. ljóst edik • 1 msk. sykur • 1 dl olía • salt og nýmalaður pipar Aðferð: 1. Allt hráefnið í pestóið sett í matvinnsluvél og maukað. 2. Skerið brauðið til helminga eftir endilöngu og smyrjið báða helmingana með klettakálspestóinu. 3. Raðið svo öllu sem er í uppskriftinni á brauðið. Við mælum með: Piccini MeMoro Kröftugt og milli- sætt rauðvín. Rúbín- rautt. Þétt fylling, smásætt, fersk sýra, miðlungstannín. Verð: 2.199 kr. Lambalæri Við mælum með: Montalto Pinot GriGio Létt og ósætt hvítvín. Föllímónugrænt. Létt meðalfylling, ósætt, fersk sýra. Pera, stikilsber, sítrustónar. Verð: 1.849 kr. Vegna nýrra tilskipanna um sóttvarnir tak- markast fjöldi í Bókasafni Mosfellsbæjar við 10 manns frá 25. mars. Börn fædd 2015 eða síðar eru undanþegin ákvæðum um fjöldatak- mörk. Gestir eru hvattir til að sinna erindum sínum hratt og skilmerki- lega svo fleiri komist að. Lessvæði er lokað og viðburðum hefur verið frestað. Hægt er að panta safngögn á leitir. is og sækja við inngang safnsins, sjá leiðbeiningar á heimasíðu safnsins. Notendur eru hvattir til að panta á leitir. is, en sjálfsagt er að hringja í síma 566 6822 eða senda tölvupóst á bokasafn@mos.is og fá aðstoð. Athugið að þjónustan er eingöngu í boði á virkum dögum. 10 manns í bókasafninu

x

Mosfellingur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Mosfellingur
https://timarit.is/publication/1311

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.