Mosfellingur - 01.04.2021, Blaðsíða 24
Ragnheiður Þorvaldsdóttir er alin
upp í Hvítárholti í Hrunamanna-
hreppi og segir það forréttindi
að hafa alist þar upp. Hestamennska er
henni í blóð borin því fjölskylda hennar
hefur ræktað hross í áratugi ásamt því að
reka hestaleigu.
Ragnheiður starfar í dag við reið-
kennslu og þjálfun hesta en auk þess
hefur hún sérhæft sig í sirkusþjálfun sem
hún segir að sé góð tilbreyting frá hinum
hefðbundnu störfum.
Ragnheiður er fædd á Selfossi 27. jan-
úar 1980. Foreldrar hennar eru þau Halla
Sigurðardóttir fyrrverandi bóndi en starfar
í dag sem matráðskona hjá Landstólpa og
Þorvaldur Jón Kristinsson smiður.
Ragnheiður á tvær systur, Elínu Ósk
Hölludóttur f. 1972 og Rakel Eyju Þorvalds-
dóttur f. 1990.
Uppgötvuðu fornleifar í moldarhaugum
„Ég ólst upp í sveit á bænum Hvítárholti í
Hrunamannahreppi og á kærar minningar
úr sveitinni, ég tel það mikil forréttindi að
hafa alist þar upp.
Sumarið sem ég var 10 ára stendur ofar-
lega í minningunni en það var óvenju sól-
ríkt sumar. Ég og Birgitta frænka mín sem
var í sveit hjá okkur eyddum sumrinu við
hestagirðinguna daginn út og daginn inn.
Við vorum oft klæddar nærbuxum einum
fata með pils á höfðinu og þóttumst vera
indjánar. Við óðum í skurðum, stöppuð-
um í drullu og uppgötvuðum fornleifar í
moldarhaugum, þá aðallega
gömul rollubein. Skemmtilegast
fannst okkur þó að hanga upp á
hestunum með engin reiðtygi,“
segir Ragnheiður og brosir af
minningunni.
Krafturinn í hrossunum engum líkur
„Ég mun aldrei gleyma þegar ég fékk
mér blund á Mána gamla en hann var á
beit innan um alla hina hestana. Allt í einu
fældust hestarnir og ég ranka við mér og
næ að grípa í faxið og hestarnir rjúka á
harða stökk eftir hólfinu endalöngu. Þetta
er það trylltasta sem ég hef lent í, krafturinn
í hrossunum var engum líkur og ég gat ekki
gert neitt nema að halda mér á baki, enda
ekki með neitt beisli.“
Útskrifaðist frá Hólum í Hjaltadal
„Ég gekk í Flúðaskóla og á fínar minn-
ingar úr skólanum. Við vorum fá í bekk, 12
nemendur þangað til í 8. bekk þá bættust
við 6 krakkar úr nærliggjandi hreppum.
Ég fór síðan í FSU og útskrifaðist þaðan
af hússtjórnarbraut, ég fór líka í Iðnskólann
og lærði að teikna þar. Leið mín lá síðan í
Hóla í Hjaltadal þaðan sem ég útskrifaðist
hestafræðingur, leiðbeinandi og tamninga-
kona. Árið 2006 fór ég aftur á Hóla í áfram-
haldandi nám og kláraði reiðkennarann.“
Giftum okkur öllum að óvörum
„Ég er gift Ara Hermanni Oddssyni,
múrarameistara og hann er líka fimmfald-
ur járnkarl og ofurmenni. Við
kynntumst á blindu stefnumóti
árið 2000, vorum trúlofuð í 15 ár
og giftum okkur svo 2015 öllum
að óvörum í sameiginlegu afmæli okkar
beggja. Við eigum þrjú börn, Kristján Hrafn
f. 2003, Odd Carl f. 2007 og Sigríði Fjólu f.
2011.
Fjölskyldan hefur mjög gaman af því að
ferðast og við förum mikið í veiðiferðir.
Börnin hafa líka mikla hreyfiþörf eins og
pabbi sinn, þau hjóla mikið á fjallahjólum
með honum en fara svo í hestaferðir með
mér.
Yngstu börnin eru á fullu með mér í
hestunum og eru dugleg að ríða út og eru
líka farin að keppa töluvert. Sá elsti er
efnilegur í þríþraut og svo ætlar hann sér
í Laugavegshlaupið í sumar.“
Hún er svona bredda í sér
„Ég starfa við að þjálfa hesta og kenna
fólki og tel það mikil forréttindi að geta
starfað við mitt aðaláhugamál. Undanfarin
10 ár hef ég sérhæft mig í sirkusþjálfun og
blanda saman smelluþjálfun og 7 games
með Pat Parelli. Ég hef þjálfað merina
mína, Ósk frá Hvítárholti
mest í þessu, hún er mikill
karakter, stygg, með mikla
hlaupaþörf og svona bredda
í sér. Hún hefur sem betur
fer mikið dálæti á nammi
og ég tengi saman smellu-
þjálfun við nammið, þá er
leikurinn auðveldari. Ég
hef kennt henni allskonar
kúnstir og við höfum komið
fram í mörgum sýningum.“
100% traust ríkir
„Hann Svali minn er eng-
um líkur, gæti kannski talist
á smá einhverfurófi. Hann
var ekki nema fjögurra vetra
þegar ég kenndi ahonum
að leggjast. Það er líka það eina sem hann
kann og það er líka bara alveg nóg því hest-
ar þurfa ekki að kunna allt. Fljótlega fór ég
að prófa að velta honum á bakið og það
var ekkert mál í rauninni því hann er svo
afslappaður hestur að eðlisfari.
Það er ólýsanleg tilfinning að sitja á mag-
anum á hestinum sínum með alla fætur
upp í loft, þar ríkir 100% traust til að þetta
sé hægt. Svali hefur komið fram á mörgum
sýningum og þá oftast til þess að leggjast
niður.
Ég hef líka tekið að mér verkefni í bíó-
myndum en síðasta mynd sem ég starfaði
við var Batman myndin, Justice League,
það var alveg magnað ævintýri að taka þátt
í því.“
Þeysumst reglulega á Löngufjörum
„Ég held að flestir hestamenn séu sam-
mála um máltækið, “kóngur um stund”
sem lýsir best hvað hestamennska snýst
um. Þegar sviti og tár gleymast í þjálfun-
arferlinu, hesturinn bætir við sig eða sýnir
sínar bestu hliðar.
Það er líka gæsahúðatilfinning að vera
á hraðskreiðum vígalegum gæðingi í stór-
brotinni náttúru. Ég á einn svoleiðis hann
Hrímni, við þeysumst reglulega um á
Löngufjörum. En það er ekkert sem toppar
að fara á fjall og smala kindum í Hruna-
mannaafrétt, það er vikuferðalag í fallegri
náttúru með góðu fólki.“
Gef sjálfri mér tíma
„Hestarnir taka nánast allan minn frítíma
en ég reyni samt að gefa sjálfri mér tíma og
rækta eigin líkama. Ég hef prófað ýmislegt,
æft bootcamp, hlaupið New York maraþon,
gengið á Hvannadalshnjúk og tekið þátt í
Íslandsmóti í hjólreiðum.
Ég tók grunnnámskeið í brasilískri glímu,
tekið ýmis konar föndur og hannyrða man-
íu og málað myndir með olíu, svo hef ég
líka óbilandi áhuga á garðrækt þannig að
þú sérð að það vantar ekkert upp á áhuga-
málin,“ segir Ragnheiður og hlær er við
kveðjumst.
Það er ólýsanleg tilfinning
að sitja á maganum á
hestinum sínum með alla fætur
upp í loft, þar ríkir 100% traust.
MOSFELLINGURINN
Eftir Ruth Örnólfsdóttur
ruth@mosfellingur.is
HIN HLIÐIN
Strengdir þú áramótaheit?
Já, að hugsa um heilsuna.
Flottasta Eurovision lag allra tíma?
Gleðibankinn.
Uppáhaldssjónvarpsþáttur? Outlander.
Fallegasta fjall á Íslandi? Högnhöfði.
Hvað færðu þér í bragðaref? Jarðarber,
Daim og Þrista með svolítið af heitri
karamellusósu og hokkýpúlver á toppinn.
Besti helgarmaturinn?
Lambalæri með öllu tilheyrandi.
Hvað óttastu mest?
Kóngulær, finnst þær viðbjóður.
Vandræðalegasta augnablikið? Þegar
ég fór með bílinn minn á verkstæði því
það lak vökvi undan honum. Ég lýsti
áhyggjum mínum og viðgerðarmaðurinn
fór vel yfir bílinn en fann ekkert að. Fyrir
rælni opnar hann pallinn á bílnum og sér
þá kassa af bjór sprunginn, mig langaði
að hverfa á þessu augnabliki.
Fjölskyldan, Ari, Ragnheiður, Oddur Carl, Kristján Hrafn og Sigríður Fjóla.
Hestar þurfa ekki að kunna allt
Ragnheiður Þorvaldsdóttir reiðkennari og tamningakona hefur sérhæft sig í sirkusþjálfun síðastliðin 10 ár
- Mosfellingurinn Ragnheiður Þorvaldsdóttir24
Myndir: Ruth Örnólfsdóttir, Liga Liepina og úr einkasafni.
á fjöllum
RagnheiðuR og Ósk fRá hvítáRholti
6 áRa með mÓRu
á bRúðkaupsdaginn