Mosfellingur - 24.06.2021, Side 6
Frábærir útitónleikar
á Miðbæjartorginu
Rytmískir nemendur úr tónlistar-
deild Listaskólans héldu skemmti-
lega tónleika á 17. júní. Fyrst steig á
svið hljómsveitin Red Devils. Hún
er skipuð þrem nemendum í 4. bekk
Helgafellsskóla. Víðir Páll leikur á
rafgítar, Daníel Kári á rafbassa og
Kristófer Aron á trommur. Leikin
voru þrjú rokkuð lög og ljóst að
framtíðin er björt í Helgafellsland-
inu. Næst steig á svið Acerbic. Sara
Rós og Helena Tindra skipta með sér
rafgítar og rafbassaleik, Dóra leikur
á trommur og Bjartur þenur radd-
böndin. Leikin voru þrjú rokkuð lög
og var góður rómur gerður að leik
þeirra. Hljómsveitin The F Sharps
steig næst á svið og voru litrík og
skemmtileg. Þau léku meðal annars
frumsamið lag sem heitir Sunday
Groove. Hljómsveitina skipa Bergur
Davíð sem leikur á hljómborð og
syngur, Dóra trommar, Emil Haukur
leikur á rafbassa, Gabríel Kári leikur
á rafgítar og sérstakur gestur var
Lilja Sól alto saxófónleikari. Rokkbál
var næst á svið en sú hljómsveit
hefur starfað saman í nokkra vetur
og hefur æft upp nokkuð langan
lagalista. Gabríel Máni leikur á raf-
gítar og syngur, Dagur Hrafn leikur
á rafgítar og Kári trommar. Einnig
leikur Guðni Friðmar, basssaleikari,
alla jafna með sveitinni en átti ekki
heimagengt í þetta sinn. Síðast en
ekki síst steig á svið Ice Dragon. Þór-
hallur Ími leikur á rafgítar, Ólafur
Freyr á rafbassa og Daníel Þorgeir
leikur á trommur. Leikin voru þrjú
rokkuð lög og einn fönk standard,
Cissy Strut. Það er ljóst að ekki mun
skorta frábæra fulltrúa Mosfells-
bæjar í íslenskri popp-, rokk- og
jazztónlist í framtíðinni. Umsjón
með tónleikunum hafði Sjonni sem
er deildarstjóri við Listaskólann.
- Bæjarblað allra Mosfellinga6
Reiðskólann Hestamennt þekkja flestir
Mosfellingar enda hefur hann verið í nú-
verandi mynd, á félagssvæði Harðar, síðan
árið 2000. Söguna má þó rekja mun lengra
aftur í tíman þegar reiðskólinn var til húsa
upp við Reykjalund en almenn sumarnám-
skeið byrjuðu þar í kringum 1992.
„Yfir sumartímann sækja ungir nemend-
ur skólann heim en aldur nemenda er frá
4-16 ára námskeiðin byrja þegar skóla lýkur
og þeim lýkur þegar skóli hefst að hausti.
Á veturna sinnir reiðskólinn svo kennslu
fyrir fræðslunefnd fatlaðra í Herði, er það
mjög gefandi og þarft starf,“ segir Fredrica
Fagerlund skólastjóri.
Reiðskólinn hefur yfir um 40 gæðingum
að ráða og hafa margir þessara hesta fylgt
skólanum nær alla tíð. Nánari upplýsingar
er að finna á www.hestamennt.is
Hestamennt heldur úti vinsælum reiðskóla
líf og fjör á
fallegum degi
Útgáfu rjómalíkjörsins Jöklu fagnað
Mosfellingarnir Pétur Pétursson og Sigríður Sigurðardóttir héldu
glæsilegt útgáfuteiti á Barion þann 9. júní. Þá var kynntur formlega
til leiks drykkurinn þeirra Jökla sem er áfengur drykkur sem fram-
leiddur er úr íslenskum rjóma. Margt var um manninn og fór Guðni
Ágústsson á kostum í ræðupúltinu auk þess sem óperusöngvararnir
Davíð og Stefán sungu nokkur lög.
Veislustjórn var í höndum Höskuldar Sæmundssonar auk þess sem
Jóhannes Kristjánsson eftirherma lét í sér heyra. Gestir fengu að sjálf-
sögðu smakk og nutu kvöldsins á heimavelli Jöklu í Mosfellsbæ.
Viðtökur við Jöklu hafa farið fram úr björtustu vonum að sögn
hjónanna sem staðið hafa að þróun rjómalíkjörsins síðastliðin 14
ár. Nú er draumurinn orðinn að veruleika.
M
yn
d/
Ra
gg
iÓ
la
sindri þór, sigríður,
pétur, pétur og guðni
Bæjarstjórn og fræðslunefnd fóru þann 9.
júní í kynnisferð á seinni áfanga Helgafells-
skóla sem nú er unnið að innréttingu á.
Fyrri hluti framkvæmdarinnar, sem
voru á 1. og 4. áfanga, er lokið. Þar er um
að ræða rými fyrir tónlistarskóla, 1.-4.
bekk, skrifstofu skólans, leikskóla, lóð fyrir
yngri stig, leikskólalóð á þaki, bílastæði og
battavöllur.
Skólastarf geti hafist í haust
Nú sér fyrir endann á seinni hluti fram-
kvæmdar við Helgafellsskóla en um er að
ræða 2. og 3. áfanga byggingarinnar sem
mun hýsa 5.-10. bekk, sérgreinarými,
stoðrými og sal.
Hálfs árs bið var eftir að þessi verkhluti
hæfist vegna kærumáls sem úrskurðar-
nefnd útboðsmála tók of mikinn tíma í að
úrskurða um miðað við gildandi reglur.
Kæruferlinu lauk með úrskurði um að
ákvörðun Mosfellsbæjar um töku tilboðs
lægstbjóðanda var talin réttmæt.
Vegna þessara tafa var gripið til ráðstaf-
ana svo skólastarf gæti hafist haustið 2021
eins og stefnt var að í upphafi og verður
ekki annað ráðið en að það muni takast.
Nútímaleg skólabygging
„Helgafellsskóli er falleg, nútímaleg
skólabygging sem mun taka á móti nem-
endum í haust,“ segir Haraldur Sverrisson
bæjarstjóri Mosfellsbæjar.
„Undirbúningur, hönnun og framkvæmd
öll hefur verið til fyrirmyndar og starfs-
mönnum Mosfellsbæjar og verktökum til
mikils sóma. Það var mjög gaman að ganga
þar um sali og sjá hvert rýmið á fætur öðru
taka á sig endanlega mynd.
Við Mosfellingar höfum verið í farar-
broddi með margt í skólaþróun og þessi
nýjasti skóli okkar mun auðvitað bæta í
reynslubankann enda margt nýmæla í
byggingunni eins og sérhönnuð árganga-
svæði, sérstök rými til tónlistarkennslu og
hljóðvist sem styður við samkennslu og
gott vinnurými almennt“ segir Haraldur
Sverrisson.
Sér fyrir endann á 2. og 3. áfanga Helgafellsskóla • Hýsir 5.-10. bekkinga skólans
Framkvæmdum lýkur innan skamms
úr nýbyggingu
helgafellsskóla
Malbiksframkvæmdir
fram undan í sumar
Í áætlun Mosfellsbæjar fyrir árið
2021 er gert ráð fyrir endurnýjun
malbiks á 16 götum og nýlögnum
malbiks á 18 stöðum á grundvelli
tillögu frá Verkfræðistofu Mannvits
sem metið hefur ástand og þörf fyrir
endurnýjun og nýlögn malbiks.
Stærstu yfirlagnir malbiks árið
2021 í Mosfellsbæ eru: Bjarkarholt,
Gerplustræti fyrir framan Helgafells-
skóla, Álafossvegur/Helgafellsvegur,
Vefarastræti austurendi.