Mosfellingur - 24.06.2021, Qupperneq 10

Mosfellingur - 24.06.2021, Qupperneq 10
 - Fréttir úr bæjarlífinu10 Laugardaginn 28. ágúst 2021 Kynntu þér tindahLaup MosfeLLsbæjar á hlaup.is Utanvegahlaup fyrir byrjendur jafnt sem lengra komna. fjórar vegalengdir í boði: 1 tindur (12 km), 3 tindar (19 km), 5 tindar (34 km) og 7 tindar (38 km). glæsileg verðlaun fyrir fyrstu þrjú sætin í karla- og kvennaflokki í öllum vegalengdum. Umhverfisnefnd Mosfellsbæjar óskar eftir tilnefningum til umhverfisviðurkenninga Mosfellsbæjar fyrir árið 2021. Óskað eftir tilnefningum til umhverfisviðurkenninga Umhverfisnefnd veitir árlega umhverfisviður- kenningar völdum aðilum í Mosfellsbæ sem skarað hafa fram úr í umhverfismálum. Óskað er eftir tilnefningum frá almenningi um hver hljóta skuli þessa viðurkenningu nú í ár. Hægt er að tilnefna einstaklinga, garða, götur, stofnanir, félagasamtök og fyrirtæki í Mosfellsbæ. Tilnefningar má senda rafrænt á heimasíðu Mosfellsbæjar eða með tölvupósti á mos@mos.is, og skulu berast fyrir 1. ágúst 2021. Umhverfisnefnd mun fara yfir innsendar tilnefningar að því loknu og veita þeim sem verða fyrir valinu viðurkenningar við sérstaka athöfn á bæjarhátíðinni Í túninu heima í lok ágúst. Ný 750 fm verslun opnuð í Mosfellsbæ í byrjun júní Nettó hefur opnað verslun í Sunnukrika opnunarteiti í nettó Föstudaginn 4. júní opnaði Nettó nýja verslun í Sunnukrika 3 í Mosfellsbæ. Lögð er mikil áhersla á ferskvöru og það fyrsta sem mætir viðskiptavinum við komuna er brakandi ferskt ávaxta- og grænmetistorg. Þá er Nettó leiðandi í heilsusamlegum og lífrænum vörum sem fá mikið rými í versl- uninni. rúmgóð verslun

x

Mosfellingur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Mosfellingur
https://timarit.is/publication/1311

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.