Austurglugginn - 31.01.2002, Síða 2
2 - AUSTUR • GLUGGINN
Fimmtudagur 31. janúar
Verkmenntaskóli
Austurlands getur betur
Lið Verkmenntaskóla Austurlands
hefur brotið blað í sögu skólans og
komist í átta liða úrslit í Gettu
betur, spumingakeppni framhalds-
alltaf bara að komast í gegnum
fyrstu umferð og allt annað er
bónus,” sagði Jón. Velgengni
liðsins er ekki aðeins góð kynning
fréttamaður var búinn að segja mér
fyrir síðustu umferð að Verzló
væri álitið eitt sigurstranglegasta
liðið í keppninni og það myndi
vera þetta lið þeirra sem myndi
loks velta MR úr sessi. Ég geymdi
nú að segja krökkunum í mínu liði
þetta þar til eftir keppnina, en þá
brostu þau líka blítt,” segir Jón
glottandi.
KO
Liðsmenn og þjálfari VA í Gettu betur frá vinstri: Sóley Þórðardóttir sem sérhœfir sig í náttúruvísindum og
fornfrœði, Oskar Agúst Þorsteinsson sem sérhœfir sig í sögu og ýmsum öðrum rnálurn, Jón Knútur
Asmundsson .þjálfari liðsins og loks Ævar Unnsteinn Egilsson sem sér um íþróttir, dægurmál og landafrœði.
skóla. Lið VA lét sér ekki nægja
að sigra Menntaskólann í
Kópavogi í fyrstu umferð heldur
lagði Verzlunarskóla Islands í
annarri umferð.
Jón Knútur Asmundsson kenn-
ari við VA og þjálfari liðsins sagði
að velgengnin byggðist á miklu
jafnaðargeði liðsmanna. “Það er
rosalega góður mórall innan
liðsins og þetta fólk er svo ótrú-
lega afslappað. Markmiðið var
á skólanum heldur hleypir einnig
nýjum krafti í félagslífið.
Næst mun VA sækja Mennta-
skólann á Akureyri heim og verður
keppninni sem fer fram 8. febrúar
sjónvarpað.
Jón Knútur segir að þetta sé í
fyrsta sinn að honum vitandi sem
lið VA komist í gegnum fyrstu
umferð í Gettu betur og segir að
sigurinn á móti Verzló hafi verið
sérstaklega ljúfur. “Einn ágætur
Jón segist hafa haft gaman af að
þegar hann kom heim á föstudags-
kvöldið eftir keppnina við Verzló,
þá beið hans heillaskeyti frá
Menntaskólanum í Hamrahlíð en
mikill rígur er á milli skólanna
tveggja í Reykjavík.
Krakkamir í liðinu segjast
ekkert vera að stressa sig á
hlutunum og munu halda áfram
æfingum annað hvert kvöld í
klukkutíma í senn. Ko
Sameinuð
JÁKVÆÐAR breytingar eiga sér
stað í ferðamálum Austurlands um
þessar mundir. Ber þar hæst bygg-
ingu nýrrar Norrænu og milli-
landaflug sem þýska flugfélagið
LTU mun standa fyrir frá Dussel-
dorf til Egilstaða.
Skrifað var undir samninga um
millilandaflugið á fundi sem
haldinn var á Hótel Héraði fyrr í
mánuðinum, en þar komu saman
helstu fulltrúar ferðamála á
Austurlandi, og var mikil gleði í
mannskapnum yfir að þessum
áfanga væri náð. Það sem nú bíður
Austfirðinga er hins vegar mikil
undirbúningsvinna til þess að geta
tekið á móti auknum straumi
ferðamanna hingað.
Ein heild
Jóhanna Gísladóttir framkvæmda-
stjóri Markaðsstofu Austurlands
sagði samvinnu vera lykilatriði í
uppbyggingu ferðamála og að
helst þyrfti að herða róðurinn í
afþreyingarmálum. “Við erum það
fá að við verðum að reyna að
standa saman, kynna okkur saman
og líta á okkur sem eina heild,”
sagði Jóhanna. Hún tók þrjú
fyrirtæki í kajakróðri sem gott
dæmi um samstarfsverkefni sem
stöndum
vel lukkaðist. Fyrirtækin eru á
Seyðisfirði, Norðfirði og Reyðar-
firði en ákváðu að auglýsa saman
frekar en að líta á sig sem sam-
keppnisaðila, og hefur sú samstaða
gefist vel.
Oflug innkomuleið
Gunnar Vignisson hjá Þróunar-
stofu Austurlands og Anton
Antonsson framkvæmdastjóri
ferðaskrifstofunnar Terra Nova-
Sól hf börðust hvað ötulast fyrir
millilandafluginu. Gunnar telur að
hin nýja innkomuleið sem skapast
með fluginu muni stórefla ferða-
mannaiðnað á Austurlandi og
byggja hann upp til framtíðar.
“Með nýju ferjunni eru komnar
tvær öflugar innkomuleiðir eins
langt í burtu frá Keflavík og hægt
er og það mun hafa mjög jákvæð
áhrif á vöruþróun í ferðaþjónustu
sem ekki hefur verið nógu mikil
vegna takmarkaðra skipulags-
möguleika sem aðeins einn komu-
staður hefur valdið”.
Gunnar segir að verð á ferðum
til íslands hafi hækkað talsvert
undanfarin ár og þær hafi þess
vegna styst þar sem flestir ferða-
menn hafa takmarkað fé til eyðslu.
“Þetta hefur leitt til þess að fólk
Óskum Austfirðingum til hamingju
með Austurgluggann
Búðahreppur
FJARÐABYGGÐ Mhef
Kynningarfundur Fjarðabyggð og Hollustuvernd ríkisins boða til opins kynningarfundar í Félagslundi, Reyðarfirði, þriðjudaginn 5. febrúar kl:20:30. Fundarefni: Fulltrúar Hollustuverndar kynna starfsleyfistillögur fyrir álver Reyðaráls í Reyðarfirði. Allir velkomnir Hitaveita Egilsstaða og Fella óskar Austfirðingum til hamingju með nýtt blað